Vísir - 29.04.1969, Page 6
6
VIS I R . Þriðjudagur 29. aprfl 1969.
ferðir
^nnað kvöld verður ein þessara stúlkna krýnd fegurð-
ardrottning Islands 1969 aö lokinni keppni, sem
fram fer í kvöld og annaö kvöld.
Stúlkurnar muuu koma fram fyrir áhorfendur á
miönæturskemmtun í Austurbæjarbíói í kvöld og síð-
an fara í úrslit keppninnar fram í Klúbbnum annaö
kvöld.
Þar með er reyndar ekki öll sagan sögð. — Stúlkurn-
ar munu allar taka þátt í keppni erlendis. — Nú í vor
flýgur ein þeirra til Parísar, dvelur þar í tvo daga og
fær síðan „rauðan passa“ ti! Marokkó, þar tekur hún
þátt í Evrópukeppni, sem haldin er aö þessu sinni í
borginni Rabat á Atlantshafsströndinni. — í þessari
keppni verður 21 þátttakandi, frá Evrópulöndunum.
Önnur mun dvelja 14 daga á Miami-strönd og taka
þátt í Universe-keppninni. — Þriöja ferðin verður
svo í haust til Skandinavíu. Þangað fara tvær stúlkur
og taka þátt 1 Fegurðarsamkeppni Noröurlanda í Hels-
ingfors. -
^lþjóöakeppnin, sem haldin hefur verið á Langa-
sandi í Kaliforníu veröur nú aö líkindum á Fil-
ippseyjum í haust og mun stúlkan, sem í þá keppni
fer fljúga til Tókíó og þaöan til keppninnar. — Keppn-
in er flutt frá Langasandi vegna einhvers
lags, sem upp kom varöandi sjónvarpsaðstööu og þ.u.l.
Loks gefst svo einni stúlku kostur á Lundúnaferð til
keppni um titilinn Miss World, sem haldin veröur í
London að hausti.
Stúlkurnar eiga því væntanlega eftir að standa í
skærari sviðsljósum en í kvöld og annað kvöld og
koma fram fyrir milljónir áhorfenda í keppnissölum
og sjónvarpi erlendis. u:nr',!
Til vinstri í efri röö er Ragnheiöur Pétursdóttíjr, til
hægri María Baldursdóttir. — Neöri röð frá vinstri:
Ágústa Siguröardóttir, Erla Harðardóttir og Dagmar
Gunnarsdóttir.
i
i
i
f
i
i
i