Vísir - 08.08.1969, Blaðsíða 5
VÍSÍR . Fösíudagur 8. ágúst 1969.
— Ef þið hafið nægan tima, og gaman af
saumaskap, jbd borgar þab sig, — annars tæp-
lega — Kvennasiðan gerir lauslega könnun
á kjólaverbi og kostnaði við saumaskap
\ þessmn síðustu tímum, reyn
-í*' ir mi'kið á spamaðargetu
húsmæðra, sem hafa mikinn
hhita peningaveitu landsmanna
á mílli handanna. Eitt af því,
sem til þessa hefur þótt prýða
og einkenna hina hagsýnu og
sparsömu húsmóður, er að hún
geti saumað sjálf. Þess vegna
datt okkur í hug að gera dá-
litla könnun á því, hvað raun-
verulega sparast (ef það er þá
eitthvað) á því aö sauma sjálfur.
Við ætlum að fjalla um kjóla
saum, því að óumdeilanlega er
mjög mikill sparnaður í þvi að
sauma bamaföt, dúka, púða og
aðra minni hluti eða flíkur, þó
að það útheimti oft meiri hand-
lagni en kjólasaumur, þótt ó-
trúlegt kunni að virðast. En að
sauma sér kjólinn sjálfur, er
vissalega ekki endilega sparn
aður og að láta sauma kjól hjá
saumateonu er sárasjaldan ódýr
ara en að kaupa hann í búö
Að sjálfsögðu er aðalkosturinn
við að láta sauma kjölinn að
hann passar algerlega og við
fáum nákvæmlega það sem við
viljum. Og ef við erum lag-
hentar saumakonur sjálfar, þá
ættum við enn frekar aö geta
fengið það sem við viljum. —
Einmitt þetta aðriði, verður erf-
itt að meta til fjár, enda ekki
reynt hér, heldur einungis fjall
að um beinan kostnað.
Við gengum í verzlanir i
óorgirmi og litum á kjólefni, til
búna kjóla og fleira, sem að
þessu lýtur, og raunar reyndist
okkur mjög erfitt að gera sam
anburð vegna þess, hve verö-
lag er geysilega mismunandi.
Við komumst að þeirri niöur
stööu að mjög erfitt er að fá
kjól undir 2000 kr. í Reykja-
vík. Raunar má fá Iérefts-
prjóna- eða gerviefnakjóla fyrir
minna, en þeir eru þá sjaldan
samkvæmt nýjustu tízku, enda
,,fyrirgengisfellingarflíkur“
eins og verðið bendir til. Góður
dag- eða kvöldkjóll kostar í
flestum tilfellum 2-3000 krónur
en léttari, ófóðraðir kjólar,
skokkar, skyrtublússukjólar eða
sumarkjólar kosta yfirleitt held
ur minna. Kvöldkjólar kosta að
vísu allt að 5-6000 krónur, ef
um sérlega dýrt og vandað efni
er að ræða. Siðir kjólar, sem
yfirleitt eru úr dýrum efnum,
kosta 3-4000 (ódýrari) og 4-7000
krönur úr dýrum efnum, jafnvel
með kápu eða slá, þó er þetta
mjög mismunandi eftir verzlun-
um.
Það er raunar tilgangslaust
að rekja hér verð á kjotefnum,
svo geysilega mismunandl sem
það er, en óhætt er að full-
yrða, að meðalverð á bómullar,
striga, acetate eða gerviefnum
er 1-300 krónur metirinn (yfir-
leitt 120—130 á breidd) en ull-
arefni, crimplenefni, silki og
önnur fínni efni kosta 3-600 kr.
metirinn. Samkvæmiskjólaefni
kosta jafnvel á annað þúsund
metrinn en þá oftast notuð i
blússur axlastykki eða aðra
hluta af kjólnum. Rennilás í bak
á kjól (nælon) kostar 50—60
krönur, 50—60 cm langur. Fóð-
ur (aetate) kostar 190 kr. metr
inn, 140 cm breitt og taft fóð-
ur 60—80 krónur. Snið á kjól
kostar um 150 krónur, ef við
þurfum á því að halda. Við sjá
um því á þessu aö ef við miðum
við að kaupa 2 síddir í kjólinn
(120—130 cm breitt), þá fáum
við tæplega í góðan kjól fyrir
minna en 1000 krónur.
Síðan bætist við fóður og lás
fyrir 4-500 kr. (acetate fóður
e*- nú notað í flesta kjóla) og ef
við þurfum að auki snið,
kannski tölur, bönd, belti og svo
að sjálfsögðu tvinna, þá er
kostnaðurinn fljótlega kominn
hátt í tvö þúsund krónur. Auð-
vitað. getur þetta allt orðið ódýr
ara, hér er miðað váð vandaö
an kjól, en mjög einfaldur kjóll
getur vissulega orðið mun ó-
dýrari. En í flestum tilfellum
verður heldur lítið eftir til að
borga saumaskapinn sem við
verðum þó að meta til fjár, eink
um ef við nú vinnum úti.eða
höfum miklu að sinna heima fyr
ir Það er því óhætt að segja,
að þær sem hafa góðan tíma og
—einkum og sér í lagi — hafa
gaman af að sauma og sitja ekki
sveittar yfir saumaskapnum vik
wi saman, vitandí ekki hvað
snýr upp og hvað niður — þær
ættu að sauma sjálfar á sig
kjölana. Og síða kjóla ætti lag
hent kona helzt aídrei að kanpa.
ffm beina snið, sem svo mjög
eru i tízku á síðum kjólum, eru
sérlega auðveld í saum og fall-
eg idlar- krep- eða bómullar-
efni eru tilvalin í léttan siðan
kjól, sem síðan má stytta. Það
er vissulega grátlegt að þurfa
að eyða fleiri þúsundum í kjól,
sem undantekningalaust er
ekki í notkun nema takmark-
að.
Þaö er í rauninni mjög hæpið
að það borgi sig fyrir konu, sem
er övön saumaskap að sauma
sjálf á sig kjól, nema hann sé
því einfaldari í sniðum. Bezt er
þá að kaupa snið, eða fá kjól-
inn sniðinn fyrir sig, sem oft
getur verið mjög hentugt. En
af saumaskapurinn útheimtir
margra kvölda vinnu, áhyggjur
og erfiði, þá borgar sig varla að
sauma kjólinn sjálfur.
Það er oft mikið að gera í vefnaðarvöruverzl unum borgarinnar, þar sem konur kaupa sér
það sem þarf í heimasaumaða kjólinn.
Hvað spömm við á því
að sauma kjólinn sjálfar?
OSVALOUR
S,
DANiEL
Srautarholti 18
Sími 15585
SKILTI og AUGLYSINGAR
BILAAUGLÝSINGAR
ENDURSKINSSTAFIR á
BlLNÚMER
UTANIltJSS AUGLÝSINGAR
0- %
Nýtízku veitlngahús - AUSTURVER - Háaleitisbraut 68
— Sendum — Sími 82455
SjáÍfsbjónusta
Njótið sumarleyfisins. Gerið við bilinn sjálfir. Veitum
alla aöstöðu.
Nýja bílaþjónustan, Hafnarhraut 17. Sími 42530.
UOSÆSTILLINGAR
Bræðurnir Ormsson hf
Lágmúla 9, sfmi 38820.
(Beint á móti bensínstöð BP viö Háaleitisbr.)
© Notaðír hílar til sölu
Höfum kaupendur að Volkswagen og Land-
Rover bifreiðum gegn staðgreiðslu.
Til sölu í dag:
Volkswagen 1200 ’53 ’55 ’56’ 64
Volkswagen 1300 ’66 ’67 ’68
Volkswagen Fastback ’66
Volkswagen Microbus ’62 ’65
Volkswagen station ’66
Land-Rover bensín ’62 ’63 ’64 ’65 ’66 ’67 ’68
Land-Rover dísil ’62 ’66
Willys ’66.
Við bjóðum seljendum endurgjaldslaust af-
not af rúmgóðum og glæsilegum sýningarsal
okkar.
Sími
21240
HEKLA hf
Laugaveqi
17 0-17 2