Vísir - 08.08.1969, Blaðsíða 16
AUGLÝSINGAR
AÐALSTRÆTI 8
SÍMAR 1-16-60
1-56-10 og 1-50-99
Föstudagur 8. ágúst 1969.
iSSSf erkI
BOLHOLTI 6 SlMI 82143
OfflJJMSI
JUIA
SHflSI
fSEnroa u&J
SVANS-PFÍENT ,
SREIFAN 3 - SÍMAR S2íbs OQ SISSlJ
TRYGGtNG
* * *
mGÍ
LAUGAVEGl 178 S
SÍMl 21120
Þær stóöust prófiö og bætast
nú í hóp fyrirsæta og sýningar-
stúlkna Tízkuþjónustunnar. Frá
vinstri: Fanný Jónmundsdóttir,
Koibrún Sveinsdóttir og Ásta
Benný Hjaltadóttir.
(Ljósm. Bjaml.).
NAikið ölæði í borginni
Stórhuga gripdeildarmenn
• Svo undariegt sem það er,
finna sumir menn helzt fullnæg-
ingu í því að beita þá, sem síð-
ur mega sín, órétti og yfirgangi.
Nú hefur svo borið við að und-
anförnu, að afreksmenn þessir
hafa hvað eftir annað lagt leið
sína í skólagarða Reykjavíkur-
brrgar að næturlagi og látið
greipar sópa.
Börnin, sem með ánægju og
ærnu erfiði hafa unnið að því að
rækta blóm og alls kyns grænmeti,
koma svo að morgunlagi og líta
yfir auðn og skemmdir. Auk þess
sem almenningsálitið hlýtur að for-
dæma slíkar aöfarir, kveður svo á
í hegningarlögunum, að þeir, sem
vinna spjöll á mannvirkjum, gróðri
og öðru því, sem friðað er á al-
menningssvæði, skuli sæta varð-
haldi eða 'angelsun í allt að þrem
árum eöa greiða sektir, éf máls-
bætur eru.
Yndislegt að gifta
sig á íslandi*4
-- sogð/ brúðurin frá Ohio, brosandi /
rigningunni við Árbæ
• Já, það er yndislegt að
gifta sig á íslandi, en ég ætla
ekki að gera það aftur. Ég
ætla aldrei að gifta mig aft-
ur, sagði ung brúður frá Ohio
brosandi í rigningunni við Ár
bæ í gær.
Hún var komin hingaö til
lands til að giftast sínum heitt-
elskaða, kennara frá Ohio, sem
hefur verið hér í tveggja mán-
aða kynnisferð á vegum Rotary
ásamt fimm öðrum mönnum frá
Ohio, en sjálf er hún kennari.
Brúðgumanum, Rodney Mere
dith Arthur, leizt svo vel á að
skella sér í það heilaga hér á
landi, að hann sendi eftir Nancy
sinni Otto, en þau ætla jafn-
fram að nota sér tækifærið
og fara í ,,honnímún“ til Evr-
ópulanda.
Útlit er fyrir, að hin nýgiftu
þurfi að endurtaka giftinguna,
þegar til Ohio kemur til að fuil-
nægja lögunum þar, þó að ekki
væri annað séð en að Óskar J.
Þorláksson, dómkirkjuprestur,
hafi gefið þau saman, þannig að
ekki megi sundur skilja.
Þau voru ekki í rigningarskapi ungu brúðhjónin frá Ohio, Eriendur Einarsson, forstj. SIS, og Se
archey, fararstjóri Ohio-búanna, voru svaramenn og virtust upp með sér af því.
Ölvun var með meira móti á
ötum borgarinnar í gærkvöldi og
nótt — og eins í öldurhúsunum
- svo að það gerist varla meira
m hinar „blautustu" helgar.
Varð lögreglan að taka úr um-
ferö 20 menn og voru þeir allir
færðir í fangageymslurnar — allir,
vegna ölvunar á almannafæri og
óspektir.
Fjórir mannanna voru útlending
ar, sem reyndu að hindra lögregi-
una í starfi, þegar hún ætlaði að
fjarlægja drukkinn félaga þeirra frá
einum samkomustaðnum.
Litlu flugfélögin beru sig vel
— Flugfélagið Þytur jbó hætt starfsemi
■ Litlu flugfélögin í Reykja-
vík láta ekki illa yfir af-
komu sinni í sumar. Aukning
erlendra ferðamanna hefur
hjálpað leigufluginu, þótt
færri íslendingar virðist hafa
efni á að taka Tlugvél á leigu.
Þó er flugfélagið Þytur hætt
starfsemi, en í húsakynni
þess er Icominn Flugskóli
Helga Jónssonar, sem starf-
rækir leiguflug og flugskóla.
Björn Pálsson, sem stýrir
Flugþjónustunni hf. hefur fjórar
vélar á sínum snærum, þar af
eina sex farþega og aðra níu
farþega. Bjöm segir, að undan-
farið hafi verið mjög þokkalegur
kafli í fluginu. Stóru vélarnar
nýtist vel, til dæmis í sjúkra-
flugi, enda þurfi stóra vél fyrir
lækni með dót sitt. Meira sé en
áður um útlendinga, sem ferð-
ist með leiguvélum, en minna
um íslendinga. Þá flýgur Björn
mikiö til Grænlands, tekur við
farþegum Flugfélags íslands og
flytur þá milli staöa þar.
Flugstöðin hf. hefur 5 vélar,
sem taka upp í 5 farþega. Elíes-
er Jónsson segir, að afkoman
hafi verið ágæt og mikiö um út-
lendinga í sumar.
Flugsýn hf. hefur fjórar litlar
vélar, tveggja og þriggja sæta.
Heildartekjur eru miklu minni
en fyrir nokkrum árum, að sögn
Jóns Magnússonar, enda er Flug
sýn hætt Neskaupstaðarfluginu,
sem gaf góða raun á síldar-
tímunum.
Helgi Jónsson, sem rekur flug
skólann, sem að ofan greinir,
segir afkomuna ekkert lakari
hjá sér en í fyrra. Hann hefur
fjórar vélar, upp í 5 sæta.
vera viðstaddir prófið, en dóm-
nefndina skipuðu Óli Páll ljós-
myndari, Berta Snorradóttir
og Sigríður Gunnarsdóttir.
Komu stúlkurnar fram a. m. k.
7 sinnum hver í mismunandi fatn
aði. Prófið stóöust þrjár stúlkur,
bæði sem fyrirsætur og sýning-
arstúlkur, og að auki ein stúlka
sem fyrirsæta. María Ragnars-
dóttir, sem hefur notið aðstoðar
Theódóru Þórðardóttur við
kennsluna, hefur í hyggju að
halda fleiri slík námskeið síðar,
og láta nemendur þreyta próf.
• Það var óneitanlega
spenna í Ioftinu inni í dans-
skóla Sigvalda í gærkvöldi,
þar sem þreytt var fyrsta
prófið í tízkusýningum hér
á landi, en María Ragnarsdótt
ir hefur kennt stúlkunum sex,
sem gengust undir prófið.
• Hafa stúlkurnar verið
á tveggja má.iaða námskeiði
3 klst. í viku, og skar nrófið
úr um, hverjar gætu unnið
hjá Tízkuþjónustunni sem
sýningarstúlkur og fyrirsæt-
ur. en það fyrirtæki er rekið
2 Maríu Ragnarsdóttur.
Var fréttamönnum boðið að