Vísir - 08.08.1969, Blaðsíða 10
10
V í S IR . Föstudagur 8. agúst 1969.
Guðrnundur Valdimarsson, mál-
ari, tH heimilis að Njálsgötu 34,
andaði þann 2. þ. m., 71 árs að
aldri. Eftirlifandi eiginkona hans
er Elin Sigurðardóttir. Jarðsett
verður frá Fossvogskirkju kl. 10.30
á morgun.
Akureyrarbær
hafnaði 350
þúsund krónum
Bæjarráð Akureyrar hafnaði ný-
lega ósk íbúa við Suðurbyggð um
að fá að gefa bænum 15 bús. kr.
á hús við götuna, eða um 350 þús.
kr. alls. Að vísu átti sá böggull að
fyigja skammrifi, að bærinn léti
malbika götuna í ár, sem myndi
hafa kostað um 750 þús. kr., þ.e.a.s.
malbikun akbrautarinnar. En það
er ekki á hverjum degi, sem hið
opinbera afþakkar peninga.
Erindi Suðurbyggðarbúa var vís-
að til athugunar við gerð áætlunar
um varanlegan frágang gatnakerfis
bæjarins, sem nú er unnið' aö, —
eins og þar stendur, — enda er
ekki seinna vænna að semja áætl-
unina þar sem framkvæmdatíma-
bil núverandi kjörtímabils er út-
runniö eftir nokkrar vikur.
Föstudagsgrein -
1*—> 9. síðu.
lands, hvaða erindi átti hann
þangað sem ritstjóri, ef hann
hreyfði ekki hið minnsta við
þeim bráðu spurningum, sem
liggja svo brennandi á tungu.
Vat förin þá bara farin og far-
bann fiokks hans rofið, til að
skemmta sér, skála og dufla,
éta góóan mat og liggja í sól-
baði suður í Saxlandi?
Hann hefur nú að vísu út-
skýrt það sem ekki var áður
vitað, að ferðabann fiokksins til
ríkja þeirra, sem réöust á Tékkó
slóvakíu hafi aðeins átt að gilda
opinber flokkasamskipti. En er
þá ekkert í veginum að fara
þangað til að njóta lífsins, sitja
í veizlum, smjaðra, sleikja og
ljúga, skríöa fyrir þessum ofbeld
ismönnum prívat, drekka vodka
og éta borsch og mæla undirgef
nilegast með grátklökkum róm
spasibo. Allt er þetta þá jafn
hornagldarlega öfugsnúiö og vit
laust og hugsazt getur. Það
heföi þó verið ráð að viðhalda
hinum flokkslegu samböndum
og nota þau til að fylgjast af
einlægni og kritisku hugarþeli
með hinum stjórnmálalegu
vandamálum.
IBUÐ OSKAST
4ra—5 herbergja íbúð
óskast á leigu.
Uppl. í síma 14932.
PfíklS
'ROOF TOPS
17 ÁRA ALDURSTAKMARK
MUNIÐ NAFNSKÍRTEINI
Hftt verður miklu síður á
nokkurn siðferðislegan hátt rétt
lætt, að halda áfram þessum
persónulegu smjaðurs og hræsni
feröum, legg í lófa karls, austur
fyrir járntjaldið. Slíkt virðist
engum tilgangi öðrum þjóna en
að selja sálu sína hinu illa, að
fórna samvizkunni við gistivin-
arhót með morðingjum.
Cá atburður gerðist líka um
sömu mundir og ritstjórinn
sat að gleðskap með austiy-
þýzkum yfirvöldum, að einn
kunnasti rithöfundur Sovétrikj-
anna flýði land sitt. Hann heitir
Kutsnetsov og naut ekki minni
viröingar og álits og skálda-
styrkja í sínu heimalandi en t d.
Thor Vilhjálmsson hér. Hann
hafði hylli valdamanna, naut
hinna beztu lífskjara, bækur
hans voru lesnar í milljónaupp-
lögum frá Eystrasalti austur að
Okotska-hafi. Hann átti heimili
úti í sveit og íbúð í Moskvu,
hafði bíl til umráða og yfir-
höfuð öll lífsins þægindi, eins
og sú æðri stétt sem situr í náð
inni. Síðast fékk hann sérstakt
leyfi og styrk til að ferðast til
London. Honum hafði verið fal-
ið það háleita verkefni aö kynna
sér líf sjálfs Lenins, er hann
dvaldist í útlegð um tíma í Eng
landi, og gefur það eitt nokkra
hugmynd, hve mikils hann var
metinn í Rússlandi.
Það kom þvi sannarlega eins
og reiðarslag yfir rússnesk yfir
völd, þegar þau fréttu, að þessi
Ijúflingur þeirra hefði ákveöið
að gerast flóttamaður. Og fyrir
Kutsnetsov var það mikil og
örlagarík ákvörðun. Bara það,
að hann kann ekki orð í útlendu
máli gæti gefið nokkra hug-
mynd um hve ákvörðun hans
hefur veriö örvæntingarfull, um
að yfirgfefa ættjörð sína og fjöl
. skyldu og hamingjusamt líf við
veraldlegar allsnægtir, — en
hélt út í óvissuna og myrkrið.
Hann segist hafa tekið þessa
ákvörðun eftir árásina á Tékkó
slóvakíu, eftir það varð lífið í
Rússlandi honum óbærilegt,
hvað sem þægindum og allsnægt
um leið. Það var sá dropi, sem
fékk vatnið til að fljóta yfir, en
fram að þeim tíma hafði þó
gagnrýnin og óánægjan verið að
grafa um sig með honum, vegna
þeirra andlegu fjötra, sem lagð-
ir eru á líf og starf rithöfunda
í Sovétríkjunum. Lýsing hans á
því lífi er sannarlega ömurleg.
Fyrst eru þær kröfur gerðar til
rithöfundarins, að hann ritskoði
sjálfan sig, viti hvar hann stend
ur, hvað hann má og má ekki
skrifa um, en svo er það ekki
nóg, síðan eru handritin tekin
og rifin og tætt niður til aö
fylgja flokkslínunni.
'það hefði nú verið stutt (og
kannski ókeypis fargjald hjá
Aeroflot) fyrir ritstjóra komm-
únistablaðsins að skreppa frá
Berlín til Moskvu til að rann-
saka þetta mál og leggja fram
fleiri spurningar sem brenna á
tungu og loga í hjarta, hvers
þess manns sem telur sig sósíal
ist. Var þessi lýsing Kutenetsovs
virkilega rétt. og kannski hefði
þá ekki verið úr veginum í leið
inni að heimsækja nokkra rit-
höfunda í fangelsunum eins oa
Juri, Daniel og Sinjavsky og
spyrja þá hvernig þeim liöi. Það
þekkist varla í siðuðum löndum
annað en heimsækja megi fanga
i fangelsi, eöa taka svolítið sam
tal við unga ljóðskáldið Évtús
hénko sem nú var veriö aö
reka frá ritstjórn bókmennta-
tímarits.
En æ og ó. Fyrir sliku haföi
ritstjórinn engan áhuga.
Það var rætt um það nýlega i
sj'ónvarpinu. að ef ein kartafla
væri mygluð og skemmd í poka,
þá mygluöu hinar út frá henni.
Þorsteinn Thorarensen
í
I DAG
I
IKVÖLD
BELLA
Ég fer bara svona. Ég á ekki
fleiri þurra kjóla!
Mánudagar.
Árbæjarkjör, Árbæjarhverfi kl.
1.30—2.30 (Börn). Austurver, Háa
leitisbraut 68 kl. 3.00—4.00. Mið-
bær, Háaleitisbraut 58 — 60 kl.
4.45 — 6.15. Breiöholtskjör, Breið-
holtshverfi kl. 7.15—9.00.
' i'judagar.
Blesugróf kl. 2.30 — 3.15. Árbæjar-
kjör, Árbæjarhverfi kl. 4.15 —
6.15. Selás, Árbæjarhverfi kl
7.00—8.30.
Miðvikudagar.
Áiftamýrarskóli kl. 2.00 — 3.30.
Verzlunin Herjólfur kl. 4.15 — 5.15
Kron v. Stakkahlíð ki. 5.45—7.00.
Fimmtudagur.
Laugalækur/Hrísateigur kl. 3.45
—4.45. Laugarás kl. 5.30—6.30.
Dalbraut/Kleppsvegur kl. 7.15—
8.30.
Föstudagur.
Breiðholtskjör, Breiðholtshverfi
kl. 2.00 — 3.30 (Börn). Skildinga-
nesbúðin, Skerjafirði kl. 4.30 —
5.15. Hjaröarhagi 47 kl. 5.30—7.00
Háteigskirkja. Daglegar kvöld-
bænir i kirkjunni kl. 18.30. Séra
Arngrímur Jónsson.
Hundavinafélagið. Uppl. varð-
andi þátttöku og skráningu f sím-
um 51866, 50706 og 22828.
BIFREIÐASKOÐUN
R-12301 - R-12450.
VEÐRIÐ
I DAG
Suðaustan kaldi
skýjað aö mestu
og smá skúrir.
Hiti 12 — 14 stig.
ÍILKYNNINGAR
Sundlaug Garðahrepps viö
barnaskólann er opin almenningi
mánudag til föstudags kl. 17.30—
22. Laugardaga kl. 17.30—19.30
og sunnudaga kl. 10—12 og 13—
17.
Bókabíllinn. Sími bókabílsins er
13285 kl. 9-12 f.h.
Viðkomustaöir:
Fimmtugur er í dag, 8. ágúst,
Rósberg G. Snædal, rithöfundur,
Akureyri.
Misritun
Þaö misritaóist í Vísi í gær að
1. deildarleikur I<R og ÍA yröi í
dag. Þessi leikur verður á sunnu-
dagskvöldiö kl. 20.00 á Laugar-
dalsveilinum.
Stúlka óskast
til aöstoöar innanhúss á sveita-
heimili, 100 km frá Reykjavik.
Upplýsingar á Barónsstíg 16.
Sími 11826.
Hjólhýsi til sölu
með 2 sveínbekkjum, eldunarplássi og vaski til sölu.
Upplýsingar i síma 40980.
BÓKHALDSSKYLDIR AÐILAR, ATHUGIÐ!
Tökum aö okkur að færa vélabókhald fyri" einstakl-
inga og smærri fyrirtæki ásamt gerð söluskatts-
skýrslna og uppsetningu efnahags- og rekstursyfirlita
til skattsuppgjörs. Útvegum öll tilheyrandi gögn. —
Uppl. í síma 32638.
Á LÝÐHÁSKÓLI ERINDI TIL ÍSLANDS?
bæklingur Þórarins Þórarinssonar, fyrrverancii skóla-
stjóra, fæst hjá flestum bóksölum. — Útgefandi.