Vísir - 13.08.1969, Qupperneq 6
6
VI S IR . Miðvikudagur 13. ágúst.
............... ' •■ ....................................................................................................................................................................... ; ; . .;
Brynjólfur Ingólfsson, ráðuneytisstjóri Iðnaðarmálaráðuneyt
isins er til alls búinn í iðrum Loðmundar gamla, en þeir Árni
Þ. Árnason, deildarstjóri, skruppu austur um helgina til eftir-
lits.
'P'inbúinn í Loömundarfiröi hef
■Li ur fengið gesti, háværa
geati. Það eru borar tveir og
jaíþýta með fríöu föruneyti. —
Fimm skurðir alldjúpir hafa þeg
ar verið ruddir í fjallsranana
og borarnir eru sums staöar
komnir á 15 metra dýpi á
skurðbotnunum og ætla sér
lengra um helming. Jaröveg-
urinn, sem hlýtur svo óvæga
meðferö, er sizt af verri endan
um, perlusteinn í bak og fyrir.
En til hvers er perlusteinninn
nýttur, ef gæðin reynast nægjan
leg Perlusteinninn er ágætt ein
angrunarefni, ólífrænt og end-
ingarbetra en lífræn einangnm
arefni og brennur ekki. NotaÖur
svipaö og kísilgúrinn sem síunar
efni og til blöndunar í steypu
og múrhúðun. Hugmynd ís-
lenzkra stjórnvalda var sú, að
reyndust gæði íslenzka perlu-
steinsins nægjanleg .skyldi hann
fluttur utan sem kjölfesta í
sömu skipum og flyttu kísilgúr
frá Mývatnsverksmiðjunni, en
sú framleiðsla er flutt til Bret
lands. Svo kann að reynast, að
þessi ódýra flutningsaöferð
skapi rekstrargrundvöll fyrir
perlusteinsnám í Loömundar-
firöi.
Ánægðir að unnu dagsverki. Kjartan Thors t. v. hefur yfirumsjón með sýnishornatökunni af
hálfu Iðnaðarmálaráðuneytisins en bandariski jarðfræðingurinn Eldom J. Lomnes tekur sýn-
ishom fyrir Johns-Manville, en það rannsakar gæðin.
Gestir í Loðmundarfirði
Engin hafnarmannvirki eru enn í Loðmundarfirði og aðdrættlr því örðugir. Þama var bor-
tækjunum lomdað, en jarðýtunni tökst að koma eftir slóðinni yfir fjallið frá Húsavik og um
Borgarfjörð eystri.