Vísir - 13.08.1969, Side 8
8
V1S IR . Miðvikudagur 13. ágúst.
Utgerar li RevKjaprent h.I
Framkvæmdastjön Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjór*: Jónas KristjánssoD
Aflstoóarritstjóri: Axel Tborsteinson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsrngar: Aflalstræti 8. Slrriar 15610 11660 og 15099
Afgreiflsla Aflaístræti 8. Simi 11660
Ritstjórn; Laugavegi 178. Simi 11660 (5 línur)
Askriftantiald kr. 145.00 * mánuði innanlands
f lausasölu kr. 10.00 eintakiö
'Jrentsmiðia Vísis — Edda hl.
i 11 iiiilniinniii—mi———————
Skekkjur
I vikunni, sem leið, var birt í Alþýðublaðinu grein
þýdd úr Arbejderbladet í Osló, um efnahagsvandræði
Breta og orsakir þeirra. Segir þar að upplýst sé nú og
viðurkennt af brezka viðskiptamálaráðuneytinu, að
síðan 1963 hafi útflutningur Breta verið talinn minni
en hann raunverulega hafi verið, sem nemi 2000—
2500 millj. íslenzkra króna á mánuði og hafi þessi
skekkja haft hinar hörmulegustu afleiðingar í för með
sér. Þetta vanmat á brezkum útflutningi hafi orðið til
þess að auka vantrú bæði heima og erlendis á efna-
hagsgetu þjóðarinnar og þangað megi rekja fjármála-
kreppur, verðlækkun pundsins o.fl.
Þetta er ótrúleg saga, en sé það rétt, að hún sé í
samræmi við yfirlýsingu sjálfs brezka viðskiptamála-
ráðuneytisins, verður sú heimild að teljast áreiðan-
leg. Skýzt þótt skýrir séu, segir máltækið. Gera má
ráð fyrir að Bretar hafi á að skipa allfærum mönnum
til slíkra útreikninga, og því er furðulegt, að svona
mistök skuli geta komið fyrir á þessari tækni- og
tölvuöld.
Þessi grein í Alþýðublaðinu varð ritstjóra Tímans
svo að hugleiðingarefni stuttu síðar. Hann spurði
hvort ekki væri hugsanlegt að svona reiknisskekkjur
gætu komið fyrir víðar en í Bretlandi og hvernig það
væri hér hjá okkur. Hvernig ætti að skýra „tvær stór-
felldar gengislækkanir á einu og sama árinu, nema
sem afleiðingar af tölfræðilegum skekkjum eða hugs-
anaskekkjum eða samblandi af þessu hvoru tveggja“!
Ber að skilja þessi orð ritstjóra Tímans svo, að hann
sé nú fallinn frá þeirri kenningu sinni, að efnahags-
erfiðleikar okkar séu rangri stjórnarstefnu að kenna,
hér hafi aðeins „tölfræðilegar skekkiur" valdið öllum
vandræðunum? Honum hefur þá orðið á alvarleg
„hugsanaskekkja“, sem tekið hefur langan tíma að
leiðrétta, en þetta mun ekki vera sú eina, sem villt
hefur fyrir ýmsum góðum mönnum í þeim herbúðum
síðasta áratuginn, svo ekki sé lengra farið.
Allur þorri íslenzku þjóðarinnar, og þar á meðal
ritstjóri Tímans, veit ofur vel, að það eru hvorki töl-
fræðilegar skekkjur né hugsanaskekkjur, sem valdið
hafa efnahagserfiðleikum okkar síðustu árin, og það
er heldur ekki röng stjórnarstefna. Engin ríkisstjórn
hefði verið þess megnug, að koma í veg fyrir þau á-
föll, sem yfir efnahagslífið hafa gengið, en hins veg-
ar er vandséð að nokkurri annarri ríkisstjórn hefði
tekizt betur að fleyta þjóðarskútunni gegnum ófær-
urnar, en þeirri, sem með völdin hefur farið. Reynslan
af Framsókn og kommúnistum, þegar þeir flokkar
stjórnuðu, bendir ekki til þess, að þeim hefði tekizt
betur nú. Og ekki hefur þjóðin um langt skeið viljað
fela þeim forustu aftur. Hún fékknóg af vinstri stjórn-
inni og öllum hennar skekkjum. Það kostaði ekki svo
lítið að leiðrétta sumar þeirra.
«
appsigliagu
□ Að því er virðist horfir nú vænlegar en áður um að
viðræður geti farið fram um bætt samstarf í Vestur-
Berlín og ef til vill greiðari samgöngur milli Vestur- og Austur
Berlínar. Um þetta I.afa farið fram undirbúningsviðræður og
sitt af hverju hefir komið í ljós, sem bendir til að fyrir hendi
sé nokkur vilji til þess að árangur geti orðið af viðræðum.
Hefir að undanförnu verið vís
að til ummæla hér að lútandi,
Gromikos, utanrfkisráðherra
Sovétríkjanna, Brandts utanríkis
ráðherra og vara-kanslara Vest-
ur-Þýzkalands, ambassador og
hemámsstjóranna í Vestur-Berl-
ín og fleiri.
Athygli c vert að vekja á því,
að dr. Kiesinger sagði, er hann
lýsti vonum sínum um jákvæð-
an árangur, að ekki kæmi til
mála að stjóm hans féllist á
breytta skipan í Vestur-Berlín.
Og efa-tónn var í orðum hans,
að Ulbricht myndi fallast á
frjálsleg samskipti ibúa Vestur-
og Austur-Berlínar.
Enn aðskilur borgarhlutana
„múrinn mikli“, sem reistur var
1961 — nú ramgerari og virkis-
veggjalegri en þá, og handan
þessa mikla múrs er austur-
þýzka þjóöin einangruð, og hef-
ir ekki haft af nema tveimur
þjóðarleiötogum að segja: Adolf
Hitler og Walter Ulbricht. Bylt-
ing var reynd 17. júní 1953. Hún
mistókst. Og Austur-Þjóðverjar
hafa oröið að sætta sig viö
stjórn, sem aldrei var löiglega
kjörin. Og til Austur-Berlínar fá
ekki aðrir Vestur-Berlínarbúar
að koma en fólk á ellistyrk og
um undanþágur jafnvel á stór-
hátíðum heyrist ekki. Múrinn
var byggður til þess að hindra
flótta, til þess að fyrirbyggja að
fólkið kynntist viðreisn og vel-
sæld, sem það haföi ekki sjálft
af að segja. Nú eru flóttatilraun
ir fátíðar, og framfarir hafa orð-
iö miklar í Austur-Þýzkalandi.
Þótt það verði ekki nú sam-
tengjast borgarhlutamir án efa
nánara samgöngulega, og í
Vestur-Berlín eru allar bílabraut
ir t. d. byggðar þannig, að hægt
er að samtengja þær bílabraut-
um A.Þ. Og það hefir jafnvel
átt sér stað samvinna milli aust-
ur-þýzku stjómarinnar og vest-
ur-þýzku um endurbyggingu brú
ar á Saalebílabrautinni, en
hún var eyðilögð í síðari heims-
styrjöld, og var á hinni mikil-
vægu samgönguleið milli Berlin-
ar og Miinchen. Tollar og gjald-
eyrismál valda ekki erfiðleikum
og viöskipti milli Vestur. og
Austur-Þýzkalands hafa aukizt
og nema orðið þremur milljörð-
um marka árlcga. Á slíku m. a.
byggjast framtíðarvonir um auk
ið samstarf að minnsta kosti öll-
um Þjóðverjum til hagsbóta. Og
þvi meira samstarf, því meiri
l'kur fyrir lausn á stjórnmála-
legum vandamálum, en slíka
lausn eygir víst enginn enn. —
(Heimild og myndir INB).
Saale bílabrautarbrúna, sem
byggö var sameiginlega af Bonn
og Austur-Berh'n 1966. „Hjartan
lega velkomnir til Austur-þýzka
alþýðulýðveldisins“, en ferða-
menn hvort sem þeir eru þýzkir
eða erlendir þurfa að fá dvalar-
leyfi hjá lögreglunnl.
L
íW5