Vísir - 10.12.1969, Blaðsíða 3
3
Nýliðarnir eru enn
án þjálfara
— en hin 1. deildarliðin sennilega
öll á grænni grein
en £ hans staö kemur Ám£ Njáls
son, sem er Valsmönnum að góöu
kunnur sem leikmaður. Ámi er
íþróttakennari að mennt.
Óli B. mun halda áfram að þjálfa
KR-inga í vetur og næsta sumar, en
Öm Steinsen tekur aö sér að byggja
úpp 2. flokk félagsins, undirstöð-
una, Hann fer því frá Fram, en
Framarar hafa ekki enn ráðið til
sín neinn í staðinn, en talað um
Guðmund Jónsson, fyrrum þjálfara
Unglingalandsliðsins.
Frétzt hefur að Hólmbert Frið-
jónsson muni áfram þjálfa íslands
meistara Keflavíkur og Hreiöar
Ársælsson líklega Vestmannaey-
inga, en ekki vitað með Einar Helga_
son og hina nýbökuðu bikarmeist-
ara Akureyringa.
Nýliöamir £ deildinni, Víkingar,
hafa engan þjálfara fengið, en ekki
hefur neitt heyrzt um annáð en
Ríkharöur þjálfi Skagamenn áfram
ásamt landsliðinu.
Óli B. sæmdur
silfurmerkinu
• Hinn vinsæli þjálfari knatt-
spyrnumanna í ýmsum félögum
undanfarna tvo áratugi, Óli B.
Jónsson, var sæmdur silfurmerki
KSÍ. Albert Guðmundsson, formaö-
ur KSÍ, afhenti Óla merkiö á þjálf-
araráðstefnunni um helgina.
• Sagði Albert aö Óli hlylti merk-
ið fyrir farsælan feril sem þjálfari
og sérlega góðan og velheppnaðan
knattspyrnuferil. Fullyrti Albert aö
lipurð og leikni Óla, jafnframt
framúrskarandi hegðun í kappleikj-
um hefði verið öllum lærdómsrík
og til eftirbreytni.
I1 x 2 - 1x2
Vinningar í 19. leikviku (leikir 6. desember).
Úrslitaröðin: X 1 2 — 2 1 2 — 12 1—221
Vinningsupphæð kr. 52.000.00. ! nr. 6988 Kópavogur ' nr. 11696 Eskifjörður \ nr. 16477 Reykjavík nr. 18645 Reykjavík nr. 19877 Reykjavík nr. 50007 Reykjavík
Kærufrestur er til 29. desember. Vinningsupphæðir geta • lækkað, ef kærur verða teknar til greina.
' Vinningar fyrir 19. leikviku verða sendir út 30. des.
j Getraunr - íþróttamiðstööin - P O Box 864 - Reykjavík
Nokkur hreyhng er á þjálfurum
ýmissa knattspymuliða um þessar
mundir. Sem dæmi má nefna að
Guðbjörn Jónsson hættir hjá Val,
^kauta
SKEIFUIMN117
Opiö alla daga
Simi 84370
Aðgangseyrir kl. 14—19
kr. 35. kl. 19.30—23.00
kr. 45. Sunnud. kl. 10—19
kr. 35. td. 19.30—23.00
kr. 45.00
10 miöar kr. 300.00
20 miðar kr. 500.00
Ath, Afsláttarkortin gildá
allc daga jafnt.
Skautaleiga kr 30.00
Skautaskerping kr 55.00
íþrótt fyrir alla ,'jölskvld-
Uppsteypf einbýlishús
á góðum stað í austurbænum með góðri lóð, er til
sölu. Hagkvæmt verð. Lftil útborgun og góðir greiðslu-
skilmálar. —Uppl. gefur Ásbjörn Ólafsson. — Sími
24442.
Knattspymuskór bamaðir!
— en ætti ekki oð banna of stóra velli
eins og of stóra skó?
Drengir i 5. aldursflokki skulu
i framtíðinni leika i strigaskóm!
Þjálfararáðstefna kom saman
um „hringborðið“ um síðustu
helgi og samdi þessa ályktun,
sem ráðstefnan beinir til KSÍ-
þings til samþykktar. Segir í á-
lyktuninni að drengimir fái betri
tilfinningu fyrir bolta með þessu
móti, sem er eflaust nokkuð rétt.
Þá segir ennfremur að það
gerist of oft að drengir £ þess-
um flokki noti of stóra skó.
Hitt mun sönnu nær að jafnvel
þótt skórnir passi, þá bera
drengimir svo ungir ekki hina
þungu og stirðu knattspymuskó
eins vel og strigaskó. Þá sýna
þjálfararnir góöan hug í garö
foreldra og segja að þama verði
um fjárhagslegan spamað aö
ræöa, en ekki er víst að allir for-
eldrar samþykki það, enda hafa
margir talið knattspyrnuskó
fremur ódýrt skótau handa
drengjunum, þar sem strigaskór
spænast upp oft á skömmum
tíma, en knattspyrnuskórnir
duga langtlmum saman.
Á hinu furðaði mig að ráð-
stefna 37 þjálfara hvaðariæva af
landinu, skyldi ekki minnast
einu orði á alltof stóra leikvelli,
sem drengjunum er oft boöiö
upp á. Álít ég að það mál sé
ekki m:nna mál en skór drengj-
anna, því að þjálfari viðkomandi
liðs getur haft þaö í hendi sér,
hvernig leikmenn hans mæta
búnir til fótanna, þar sem hann
ræöur engu um það hvort lið
hans leikur á knattspyrnuvelli
fyrir drengi, — eða þá hvort þeir
verða látnir leika á sama fleti og
meistaraflokksmenn, t.d. á Mela-
vellinum, eins og iðulega er gert,
— til stórskaöa fyrir knatt-
spymuna.
Á þjálfararáðstefnunni var
rætt u m leikaðferöir og héldu
ÓIi B. Jónsson og Helgi V. Jóns-
son inngangserindi. Reynir
Karlsson ræddi um þrekþjálfun
og rætt var um stofnun þjálfara-
félags og nefnd skipuð til að
vinna að framgangi þess máls.
Loks ræddi Björgvin Óskar
Bjamason um knattþrautir og
var samþykkt að beina þvi til
tækninefndar KSÍ og unglinga-
nefndar að endurskoðun fari
fram á þrautunum. Um innan-
hússknattspyrnu urðu heitar og
fjörugar umræður og samþykkt
að óska eftir endurskoðun regln-
anna fyrir næsta þing KSÍ.
Að lokum var sýnd kvikmynd
af þjálfun Benfica.
Hermann og
landsliðið
um helgina?
• RÆTT hefur verið um að
koma á síöasta leik ársins n. k.
sunnudag á Melavelli milli liðs
Undlr 23ja ára og Landsliðsins.
Fer þetta eftir því hvemig veður
verður og verður þetta örugg-
lega síðasti leikur ársins í knatt
spyrnunni, enda aðeins rúmur ’
hálfur mánuður eftir af árinu.
• Fari svo að af þessum leik •
verði, þá mun Hermann Gunn- <
arsson að öllum likindum leika;
með landsliðinu. Hermann hefur .
nú að ölhim líkindum flutt heim .
fyrir fullt og allt, hættur við að ,
reyna atvinnumennskuna í knatt'
spymu, þrátt fyrir tilboð, —
a.m.k. f bili.
Jólatré
Rauðgreni
Eðalgreni
Blágreni
mm,
m
w
1
Nælon
nef-
pökkun
Sjálfsafgreibsla
Takið börnin með í jólatrásskóginn
GROÐURHÖSIÐ
WHNlH
Við Miklatorg
Sími 22822
Við Hafnarfjarðarveg
Sími 42260