Vísir - 10.12.1969, Blaðsíða 4
Var Sharon Tate myrt í mis-
gripum fyrir son Doris Day?
Dýr bílaviðgerð.
Nýlega var kveöinn upp dómur í
París f máli, sem reis upp fyrir
meira en ári, þegar Brigitte Bar-
dot neitaði að greiða verkstæðis-
reiknirig sinn vegna viðgerða á
Rolls Royc-inum hennar, en hún
á ’58-árgeröina af einum slíkum.
Dómurinn gerði henni að greiða
reikniriginn, en leikkonan hafði
neitað á þeirri forsendu, að við-
gerðin hefði farið fram án hennar
vitundar eða vilja.
Reikningurinn hljóðaði upp á
2.000 dollara.
Þyrnirósa og prinsinn
hennar
„Það er ánnars skrýtið. Ég hef
aldrei verið trúuð á ævintýri, en
samt finnst mér ég vera Þyrni-
rósa í örmum prinsins míns, sem
bjargaði henni“, segir sú ham-
ingjusáma Marianne Faithful —
fyrrum unnusta Mick Jagger,
söngvarans hjá Rolling Stones —
þegar hún tilkynnti blaðamönn-
um trúlofun sína og Mario Schif-
ano, sem er 32ja ára gamall list-
málari og kvikmyndastjóri.
Við það sama tækifæri lýsti hún
því yfir, að söngkonuferli hennar
væri lokið.
„Ég vil ekkert hafa saman að
sælda viö heiminn. Söngvari er
án nokkurra persónueinkenna. —
Hann er aðeins sjálfsali sem hef-
ur mikil áhrif á aödáendahóp
sinn.“
Joan Baez mamma
Þjóðlagasöngkonunni, Joan Baez,
fæddist nýlega næstum 15 marka
sonur en því miður var faðirinn
þar hvergi viðstaddur, því að
hann afplánar um þessar mundir
fangelsisdóm í Safford — ríkis-
fangelsi Arizona, fyrir að neita
herkvaðningu.
Joan Baez sagði blaðamönnum,
að hún vonaðist til þess, að barns
faðir hennar, Harris Davies,
fengi að sjá soninn, sem skira
á Gabríel, um jólin.
Lítið fyrir ræður
Samuel Beckett, sem hlotnuðust
bókmenntaverðlaun Nobels 1969,
hefur nú tilkynnt Nobels-aka-
demíunni, að hann muni ekki
taka sér ferð á hendur til þess að
veita viðtöku verðlaununum, þeg-
ar þau verði afhent.
Þess í stað mun Jerome Lind-
on, útgefandi hans í París^ veita
37.000 dollurunum viðtöku í um-
boði skáldsins, sem aldrei hefur
flutt ræðu opinberlega, svo vitað
sé til..... ..............
Foð/V hennar dulbjó sig sem hippia og
leitaði morðingjanna
Dulbúinn eins og hippíi leitaöi
faðir leikkonunnar, Sharon Tate,
morðingja dóttur sinnar í fjóra
mánuði.
Hann er liðsforingi í upplýs-
ingaþjónustu hersins, en fékk sig
lausan frá störfum til þess að
geta starfað að ráðningu morð-
gátunnar, sem á tímabili virtist
ætla að verða lögreglunni ofviða.
Þegar handtökur hinna grun-
uðu höfðu fariö fram, sagði fað-
irinn blaðamönnum, að þungu
fargi væri nú af honum létt, en -
hins vegar var hann ófáanlegur
til þess að ljóstra upp, að hve
miklu leyti ráöning gátunnar
væri eftirgrennslan hans að
þakka.
Nokkrum dögum eftjir að Shar
on Tate og 4 aðrar manneskjur
aðrar voru myrtar, og ljóst var,
að lögreglan hafði næsta lítið til
þess að fara eftir við morðingja-
leitina, tók faðir leikkonunnar á-
kvörðun um að leita þeirra á eig-
in spýtur. Sterkur'orðrómur hafði
leikið um það, að morðin væru
verknaður hippíalýðs. og lét hann
sér vaxa bæði hár og skegg og
blandaði síðan geði við ýmsa
hippía, eiturlyfjalýö og hellabúa.
Meðal þeirra dvaldist hann i 4
mánuði og hleraði samtöl þess-
ara undirheimabúa.
Eins og fram hefur komið í
fréttum, hafa þrjár manneskjur
verið handteknar, grunaðar um
að vera í vitorði um morðin.
Tiiheyrðu þær hippíaflokki, sem
var stjórnað af ofstækismanni,
Charles Manson, sém er í hópi
hinna þriggja handteknu. Tálið
er, að þessi klíká hafi myrt
minnst 18 fnanns við' sértrúarat-
hafnir og „grafið lík þeirra í
eyöimörkinni“ — eftir því sem
lögfræðingur annarrar handteknu
stúlkunnar segir, þeirrar, sem
talaði af sér, svo aö upp um allt
komst. Hann fullyrðir jafnframt,
að morðingjaklíkan hafi haft
morð 11 annarra á prjónunum.
Önnur stúlka, Susan Atkins, að
nafni, sem nú situr í varðhaldi,
er grunuð um að hafa verið í hópi
hippíanna 5, sem myrtu Sharon
Taje./Hún er einnig grunuð um4>
mArð' á hljómlistarmaririi,; Gary
•man, sem hvarf fyrir mánuöi
Charles Manson, leiðtogi hippíaklíkunnar, er kallaði hann „Guð“,
„Jesús“ og þess á milli „Satan“.
hann villuna á leigu, áður en þau
Sharon Tate og Roman Polanski
fluttu í hana.
Terry átti að hafa lofað Charles
Manson að koma honum í sam-
band við hljómplötuútgefanda
vegna söngleiks sem Manson var
höfundur að, en ekki staðið við
það.
Sharon Tate: Var hún myrt í
misgripum?
qg|taliðiter-, að. hafi- verið háls-
hðggvinn.
Við yfirheyrslur hefur Susan
Atkins látið í það skína, að Shar
on og hennar fólk hafi verið myrt
í misgripum. Hippiarnir hafi ætl-
aö sér að hefna sín á syni leik-
konunnar, Doris Day, en hann
heitir Terry Melcher, og hafði
on
dollara meðlag
Eden Marx fyrrum eiginkona
grinleikarans Groucho Marx
(Marx-bróðir), skildi við hann í
sumar eins og frá hefur verið
sagt hér á síðunni, en það hefur
aldrei verið upplýst, hvernig skil-
málarnir voru.
Nýlega upplýsti hún þó, að rétt
urinn heföi gerf Groucho Marx
að greiða henni 1 milljpn dollara
meölag, sem talið er vera nálægt
þriöjungur eigna grínleikarans.
Hin 38 'Sra gamla fyrirsæta,
sem áður var, krafðist skilnaðar
á sínum tíma á forsendu þess að
Groucho væri henni grimmur
eiginmaður og sem' dæmi um það
tilgreindi hún- jólakvöldið í fyrra,
þegar Groucho hafði ekki líkað
matseld hennar. Átti hann aö
hafa sagt viö hana: , Ég held ég
hafi skipti á þér og nýjum kokk
og nýrri eiginkonu.”
Enn sprengir
hún launaskalann
Elizabeth Taylor hefur venju-
lega verið néfnd sem ein hæst-
launaða kvikmyncjaleikkonan og
vfst er það, að ; ékki eru þær
dónalegar f járhæðirnar', sem hún
’i móttekur fyrir lel.k sinn í hvert'
sinn. Nú virðist hún einnig hafa
sprengt skala sjónvarps, til að
mynda f Bretlandi, þar eð hún
hefur þegið hlutverk, þar sem
hún á að fá 220 milljónir ísl.
króna. Og er ekki aö efa „að frú-
in leysir það v*>l af hendi, þar
eð árið 1969 hefur verið nokk-
urs konar hvíldarár hjá þeim
hjónum, Richard Burton og
henni, og hefur Elizabeth ekki
tekið hlutverki á árinu fyrr en
nú.