Vísir - 10.12.1969, Síða 11
V í SIR . Miðvikudagur 10. desember 1969.
n
I í DAG j ÍKVÖLdI j DAG I ÍKVÖLD | j DAG 1
SJÓNVARP KL. 21.35:
Seglskipið PAMIR
Hér sjáum við mynd af skólaskip
inu Gorch Foch, sem oft'
hefur komiö hingað til lands. En
miðvikudagsmynd sjónvarpsins
fjallar einmitt um stórseglskip
svipaö að gerö og útliti og Gorch
Fock. „Seglskipið Pamír“, nefn-
ist myndin og er um það fræga
skip Pamír, er var síðasta stór-
seglskipið í heiminum er gegndi
ÚTVARP KL. 16.15:
Engin skýring til, og jbó...
„Ferðin til tunglsins", eftir Jules
Veme, þótti fram úr hófi ævin-
týraleg og frumleg, þegar hún
var skrifuð töluvert fyrir alda-
mótin síðustu. En hvað hefur
gerzt? Við höfum svo sannarlega
náð til tunglsins og á næstu þrem
ur árum ætla Bandaríkjamenn
sér að skjóta 8 mönnuðum geim-
förum til. tunglsins. Þannig að nú
á tímum eru menn farnir að líta
á „Ferðina til tunglsins", sem
ótrúlega nákvæman spádóm,
fremur en fjarstæðukennda skáld
sögu, og hvað vitum við líka um
það, hvað höfundur bókarinnar
hafði fyrir sér? Lét hann aðeins
hugmyndaflug og óskhyggju ráða
skrifum sínum, eða hafði hann
ef til vill einhverjar staðreyndir
til að byggja á, en varð að koma
þeim á framfæri í skjóli skáldsög
unnar, til þess að verða ekki að
athlægi samtíðarmannanna. Já,
það er svo sannarlega margt
skrítið og furðulegt, þegar hlut-
irnir eru athugaðir nánar. Og ein-
mitt um slíka furðulega hluti
fjallar erindi, er Ævar R. Kvaran
flytur í dag klukkan rúmlega
fjögur og er annað af tveimur
erindum þessa efnis. Þýðii hann
og endursegir þætti úr bókinni
„Erinnerungen auf die Zukunfst"
eftir Eric von Danicen.
,Eric von Danicen, er maður
mjög auðugur og á meðal annars
fjöldann allan af vetrarhótelum í
Sviss,“ sagði flytjandinn Ævar R.
Kvaran, er blaðamaður hafði sam
band við hann vegna hins for-
vitnilega efnis. „Þegar ferða-
mannatímabilinu lýkur á vetuma
ferðast þessi maður og gerir sjálf
stæðar rannsóknir á ýmsuih for-
sögulegum undrum veraldar, er
fomleifafræðingar og vísinda-
menn nútímans hafa ekki náð að
skýra nægjanlega, að því er hon-
um finnst. Á slíkum ferðalögum
vítt ig breitt um heimsbyggðina
hefur hann safnað saman gifur-
legu magnj upplýsinga og dregið
af þeim margar forvitnilegar og
fróðlegar ályktanir, sem svo aft-
ur vekja ótal vandamál og úr-
lausnarefni. Hann skoðar fortíð-
ina í ljósi vísindanna, og vill
halda þvi fram, að við jarðar-
búar séum ekkj nema lítið sand-
kom á sjávarstrðnd f víðáttu al-
heimsins og það sé hlægilegur
hroki að áætla, að við séum einu
viti bomu verumar í þeirri víð-
áttu. Ef til vill réðu mennimir yf-
ir miklu meiri menningu ög
tækni á forsögulega tímabilinu,
heldur en við nú í dag, eða
hvernig á til dæmis að skýra
pýramfdana frægu f Egyptalandi,
úthöggnu risaklettana f Suður-
Ameríku, sem festir eru saman
meö koparkrækjum, og falla
svo vel, að færustu verkfræð-
ingar treysta sér ekki til að
gera betur í dag. 1 Bagdad hafa
fundizt rafhlöður og raftæki, og
í ævagamalli gröf í Kfna hafa
menn fundið álbelti, en eins og
við vitum þarf flókna efnabreyt-
ingu til að fá fram ál, er ekki
hefur verið kunn fyrr en á síð-
ustu öld“, sagði Ævar ennfremur.
hlutverki kaupskipsins. Pamír
fórst við Azoreyjar árið 195:
skömmu eftir að það var gert
að skólaskipi og er myndin sem
við sjáum í kvöld einmitt tekin
I fyrstu ferð þess í því hlutverki
SJONVARP •
Miðvikudagur 10. desember.
18.00 Gustur. Dýralæknirinn.
18.25 Hrói höttur. Svarta pjatl-
an. Þýðandi Ellert Sigurbjöms
son.
18.50 Hlé.
20.00 Fréttir.
20.30 Það er svo margt... Kvik-
myndaþáttur Magnúsar Jó-
hannssonar. Flug á Grænlands
jökul árið 1951. ísland árið
1938, landkynningarmynd sem
tekin var I tilefni af Heimssýn
ingunni f New York 1939.
21.05 Lucy Ball. Lucy tekur þátl
I bökunarkeppni. Þýðandi Krist
mann Eiðsson.
21.35 Seglskipið Pamir. Þýzk
mynd um þetta fræga -kip,
sem var sfðasta stórseglskipið
í heiminum. Lýsir hún einni af
sfðustu ferðum þess. — Þýð-
andi Bjöm Matthfasson.
23.00 Dagskrárlok.
ÚTVARP
Miðvikudagur 10. desember.
15.00 Miðdegisútvarp.
16.15 Veðurfregnir. Erindi: Ráð-
gátur fortíðar, raunveruleiki
framtfðar. Ævar R. Kvaran
flytur fyrri hluta erindis, þýdd
an og endursagðan.
16.45 Lög leikin á selló.
17.00 Fréttir. Létt lög.
17.15 Framburðarkennsla f esper
anto og þýzku. Tónleikar.
17.40 L;‘'i bamatíminn. Gyða
Ragnarsdóttir sér um þátt fyrir
yngstu hlustenduma.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Daglegt mál. Magnús Finn-
bogason magister flytur þátt-
inn.
19.35 Á vettvangi dómsmálanna.
Sigurður Líndal hæstaréttar-
ritari segir frá.
20.00 Kammertónlist. Búdapest
kvartettinn leikur Strengja-
kvartett nr. 1 í F-dúr op. 18
eftir Beethoven.
20.30 Framhaldsleikritið:
„Böm dauðans" eftir Þorgeir
Þorgeirsson. Endurtelrinn 6.
og síðasti þáttur (frá sl. sunnu
degik Höfundur
stjómar flutningi. 1
21.30 Þjóðsagan um konuna.
Soffía Guðmur.dsd ^Mr þýðir
og endursegir kafla úr bók eft
ir Betty Friedan, — þriðji lest
ur.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Óskráð saga
Steinþór Guðmundsson á Hala
mælir æviminningar sfnar af
munni fram (4).
22.45 Á elleftu stund. Leifur Þór
arinsson kynnir tónlist af
ýmsu tagi.
23.30 Fréttir f stuttu máli. —
Dagskrárlok.
T0NABÍÓ
JUDO
MEISTARINN
(Chinese Headache for Judoka)
Óvenju skemmtileg og hörku-
spennandi ný, frönsk mynd 1
litum. Þetta er ein af snjöll-
ustu Jl)DÓ-„slagsmálamynd-
unurn", sem gerð hefur verið.
ISLENZKUR TEXTI
Marc Briand — Marilu Tolo.
Sýnd kl. 5 og 9. Bönnuð böm-
um innan 14 ára.
Aukamynd: íslenzk fréttamynd
NÝJA BÍÓ
Islenzkur texti.
Grikkinn Zorba
Heimsfræg grfsk-amerisk stór
mynd gerð eftir skáldsögu Nik
os Kazantzakis. Anthony Qu-
inn, Alan Bates, Irene Papas,
Lila Kedrova. Bönnuð bömum.
Sýnd kl. 5 og 9.
IjnTíllrMilMíHliJ
Hryllingsherbergib
Sérstaklega spennandi, ame-
rísk mynd f litum. ísl. texti.
Sesane Danova
Patric O’Neaf
Bönnuð innan 14 ára.
Sýnd kl. 5
Stórbingó kl. 9.
WÓDLEIKHÚSIÐ
BETUR MÁ EF DUGA SKAL
f kvöld kl. 20
FIÐLARINN Á ÞAKINU
fimmtudag kl. 20
Næst sfðasta slnn
Aðgöngumiðasalan opin frá
kl. 13.15 til 20. Sími 1-1200.
Sá sem stelur fæti er heppinn
f ástum f kvöld, sfðasta sinn.
Iðnó-revían fimmtudag
Tobacco Road laugardag
Aðgöngumiðasalan í Iðnó er
opin frá kl. 14. Sími 13191
Litla leikfélagið Tjarnarbæ
I súpunni
eftir Nínu Björk
Sýning f kvöld kl. 21.
Síðasta sýning.
Aðgöngumiðasalan f Tjamar-
bæ er opin frá kl. 14. — Sfmi
15171.
KÓPAV0GSBI0
Leikfangið Ijúfa
Hin umtaiaða aiarra, aanska
mynd. Endursýnd kl. 5.15 og 9.
Stranglega bönnuð innan 16
ára.
Harðskeytti ofurstinn
íslenzkur texti. Hin hörku-
spennandi og viðburðaríka am
eríska stórmynd f Panavision
og litum með úrvalsleikurun-
um Anthony Quinn, Alain Del-
on, George Segal.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð innan 14 ára.
HASK0LABIÓ
Ekki eru allar ferðir
til fjár
Sprenghlægileg mynd í litum
um margvfslegar hættur undir
heimalffs með stórþjóðunum.
íslenzkur textf. Aðalhlutverk:
Sid Caesar, Robert Ryan,
Anne Baxter.
Sýnd kl 5, 7 og 9.
LAUGARÁSBÍÓ
Sovézka kvikmyndavikao:
Sá fertugasti og fyrsti
Ágætlega leikin, spennandi og
raunsæ litmynd frá Mosfilm
um baráttu ástar og skyldu-
rækni á umbrotatímum bylt-
ingar. Leikstjóri: Grígori
Tsjúkhræ.
Aðaihlutverk leika: ísolda íz-
vitskaja, Oleg Strízjenov og
Nikolai Krjútsjkov.
ENSKT TAL.
Aukamynd:
För fsl. þingmannanefndarinn-
ar um Sovétríkin á sl. vori.
ÍSLENZKT TAL.
Sýnd kl. 9.
Hetjudáðir ungherjanna
Mjög spennanch og skemmti-
leg breiðtjaldsmynd i litum frá
Mosfilm um afrek unglinga í
borgarastyrjf’-^nni eftir rúss-
nesku byltinguna.
Leikstjóri: Edmond Keosajan.
Aðalleikarar: Vítja Kosíkh,
Valja Kúrdjúkova, Misja Metj-
olkin, Vasja Vasflév og Vlad-
imír Trésjalov.
Mynd við hc~' ....”nga,
e....r: i4u.
Aukamvnáí
För fsl. þingmannanisfndarlp»>
ar um Sovétrfkfn á sl. sumri.
ÍSLENZKT TAL.
Sýnd kl. 5.