Vísir - 20.12.1969, Síða 1

Vísir - 20.12.1969, Síða 1
VÍSIR ■ Unga stoikan á myndinni var í gærdag meöal nemenda i Menntaskólanum við Lækjargötu að undirbúa jólagleði nemend- anna. Yfirleitt hafa menn vanizt að jólasveinamir væru karlkyns, eins og nafngiftin bendir til, — en vitaskuld er ánægjulegt að sjá fagra dís með skotthúfuna, svona til tilbreytingar. „Þreyttir á svæf- ingarstarfsemi" ur viö þaö sem var fyrir tvær sið- ustu gengisfellingar. c) launamismunun háskólamennt- aðra manna verði leiðrétt. Segir stjórnin loks að stúdentar við skólann hafi margsinnis lýst yfir því, að þeir sætti sig ekki við einstrengingslegar takmarkanir að deildum háskólans. Njóti þeir fulls stuðnings stjórnar SFHI', sem muni vinna áfram aö raunhæfri lausn þessara mála og hafi þá samvinnu við stúdentaráð og stúdénta. B Atkvæði greidd í Alþingi í gær um EFTA-málið, yfirgnæfandi meirihluti greiddi atkvæði með aðildinni (Ljósmynd Vísis, Ástþór). EFTA samþykkt 34:7 í gær Framsókn greiddi ekki atkvæði, en einn „datt" út af linunni, en leiðrétti atkvæði sitt — stjórn- K arsinnar, Hannibal og Björn með EFTA hlaut stuðning yfir- gnæfandi meirihluta þing- manna við lokaafgreiðsl- una í gær. Aðild íslands að bandalaginu var samþykkt með 34 atkvæðum gegn 7. 17 greiddu ekki atkvæði og 2 voru f jarverandi. Verð ur ísland því væntanlega meðlimur í EFTA í marz næstkomandi. VISIR r I VIKULOKIN — með jólaefni fylgir blaðinu til fastra áskrifenda Þingmenn stjórnarflokkanna greiddu atkvæöi með tillögu rikis- stjórnarinnar, og hið sama gerðu Hannibal og Björn, fulltrúar „frjáls lyndra og vinstri manna“ á þingi. Framsóknarmenn greiddu ekki at- kvæði í þessu stórmáli, utan einn, Magnús Gíslason, varamaður Jóns Kjartanssonar, þingmanns af Norö vesturlandi. Var Magnús fyrstur Framsóknarmanna til að greiða at- kvæði við nafnakall og sagði skýrt „nei“, þegar nafn hans var kallaö upp. Varð honum hált á flokkslín- unni, þvi að aðrir þingmenn flokks- ins brugðust illa við. Reis Magnús upp að lokinni atkvæðagreiðslunni og kvaðst hafa gert skyssu. Hefði hann ekki fylgzt vel meö, um hvað greidd voru atkvæði og verið að „spekúlera", eins og þingmaður- inn orðaði það. Fékk hann aö breyta atkvæði sínu og var „neiið" hans strikað út, en það var mál manna, sem fylgdust með, að þarna hefði þingmanninum orðiö „hált á flokkslínunni". Alþýðubandalagsmenn báru fram tillögu um að þjóðaratkvæði skyldi ráða, hvort Island gengi í EFTA eða ekki. Var tillagan felld viö nafnakall með 32:26, en tveir voru fjarstaddir. Hannibal og Bjöm studdu þessa tillögu, þótt þeir væru eindregið fylgjandi aðild að EFTA. Framsóknarmenn gerðu tiilögu, að málinu yröi vísað frá og því „frestað". Var hún felld meö 32 atkvæðum gegn 26 (tveir fjatstadd- ir.) Úrslit þessa máls eru þvf stór- sigur þeirra, sem styöja aðiklina. Andstaðan var hverfandi, þegar á hólminn kom. Staurður Bjarnoson skipaður ambosso- dor í Höfn • Sigurður Bjarnason, ritstjórí Morgunblaðsins, alþingismaður og forseti neðri deildar Alþingis, hefur nú verið skipaður ambassa- dor í Kaupmannahöfn. Danska ríkisstjórnin hefur fyrir sitt leyti samþykkt þessa skipun, en það þarf ávallt aö fá samþykki við- komandi ríkisstjómar, áður en unnt er að skipa sendiherra. Dr. Gunnar Thoroddsen hefur nú látið af störfum sem ambassador lslands í Kaupmannahöfn, og er hann kominn heim fyrir skömmu. Hann mun taka sæti í hæstarétti frá 1. janúar n.k. Miklar mannabreytingar hafa orðið í utanrikisþjónustunni að und anförnu, en nú er aðeins óútfyllt í eina meiri háttar stöðu, þ.e. stöðu Haraldar Kröyer í New York, en hann hefur verið skipaður sendi- herra í Svíþjóð. Byrjað á nýju fæðing- ardeildinni í febrúar Heilbrigðismálaráðuneytið hefur nú ákveðið að framkvæmdir við grunn viðbótarbyggingar Fæðingar deildar Landspitalans, hefjist í feb rúar n.k. Er áætlað að byggingin verði tilbúin til útboðs síðari hluta vetrar, þannig að hægt verði að hefja framkvæmdir með vorinu. Fjármagn hefur verið tryggt til þess að gera bygginguna fokhelda á árinu 1970. Á fjárlögum ársins 1970 eru veittar 10 milljónir kr. til byggingarinnar og einnig er þar veitt heimild til að taka 20 millj. kr. lán til hennar. Hefur heilbrigðismálaráðherra, Jóhann Hafstein, unnið að fjáröfl- un með samningum við bankana, sem allir hafa tekið málaleitun ráðherrans vel. Seðlabankinn lánar 10 millj. kr., en gert er ráð fyrir að 10 millj. kr. fjárveiting skiptist milli viðskiptabankanna í hlptfalli við innlánsfé þeirra, — Lands- banka, Búnaöarbanka, Útvegs- 1 banka, Iðnaðarbanka, Verzlunar- ' banka og Samvinnubanka. Teikningar að nýju byggingunni eru langt komnar og verður hún > um 15 þús. rúmmetrar að stærð. j Á fyrstu hæð byggingarinnar verð ' ur sjúkradeild fyrir kvensjúkdóma, | á annarri hæð deild fyrir sængur- '■ konur, alls 50 rúm, og á þriðju j hæðinni verða fæðingastofur og | skurðstofur o. fl i „Stúdentar eru langþreyttir á aráðabirgðalausnum og svæfingar- Itarfsemi nefnda og ráða, — þeir krefjast framkvæmda", segir í yfir- (ýsingu stjómar Stúdentafélags Há- skóla Isíands, sem barst blaöinu í gær vegna þess að læknadeild hef- ur enn boðað takmörkun að deild- inni með ákvæðum um lágmarks- elnkunnir á stúdentsprófi. SFHÍ kveðst vilja benda á eftir- farandi atriði í þessu máli: 1) Lokun einnar deildar innan H.í. leysir ekki vanda hans. Vanda- mál einnar deildar eru með því að- rins flutt yfir á aðrar deildir. 2) Offjölgun í einstökum háskóla- deildum stafar fyrst og fremst af námsleiðafæð við H.Í., skorti stúd- ;nta á fjármagni til náms við er- enda háskóla og launamisréttj há- ikólamenntaðra manna í þjóðfélag- 'nu. 3) Eina raunhæfa lausnin er því leiðrétting ofantalinna atriða, það er: ) staöið veröi við marggefin fyrir- heit um fjölgun námsleiða þegar á næsta hausti. b) stúdentum verði gert kleift að stunda nám sitt erlendis þannig, að kostnaður verði a.m.k. sambærileg-

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.