Vísir - 20.03.1970, Page 2
Jónina
í dag og á morgun verður dreift
á blaðsölustaði nýju tölublaði af
táningablaðinu JÓNlNU, en þaö
er þriðja tölublaðiö, sem kemur
lít af þvf merkisriti.
Blaðið er tuttugu síöur aö
stærð í handhægu broti. Efni
* blaðsins má bara teljast þó nokk
uð fjölbreytt, að minnsta kosti
er óhætt að segja þaö vera lit-
' rfkt en hæst ber áreiöanlega
greinarnar um „stóðlífsbælið",
Söru, afhjúpun Bjögga, viðtalið
við Náttúru-Jonna, þar sem hann
fer fram á að fá næturklúbba og
bjór (slæmt, að þessi ágæti mað
ur skuli ekki hafa komizt á fram
1 boðslista til borgarstjómarkosn-
inga), þá er þar grein um Moth-
ers of Invention, og ber sú grein
hina forvitnilegu fyrirsögn „Kast
' ar þvagi yfir söngvarann". Stutt-
ar greinar um hljómsveitirnar
Tilveru, Mods, Litla matjurta-
garðinn og Acropolis fljóta einnig
vöknuð
Nú hefur veriö ákveðið, að
Combó Þórðar Hall sjái um stutt
prógram í næsta þætti Stefáns
Halldórssonar „í góðu tómi“
Verður hafizt handa viö gerð
þáttarins strax eftir páska og
hann síðan sýndur um miöjan
næsta mánuð.
Ásamt Combóinu kemur fram
í þættinum hljómsveitin Tónar,
eins og hún var skipuð á fyrstu
tímum hljómsveitarinnar. Ekki
fylgir það sögunni, hvort lagaval
ið verði það «■' og þá, en
allt um það ætti músíkin hjá
þeim að verða góð, því hljóm-
sveitina skipa nokkrir af okkar
beztu hljómlistarmönnum f dag.
Ekki liggur enn ljóst fyrir,
hvað annað verður tekið fyrir í
næsta „Tómi“, en vjð getum
treyst því, að Stefán beri ekki
neitt slor á borð fyrir okkur —
það hafa þættir hans sýnt og
sannað.
COMBÓ
sjónvarpið
meö og eru þau greinarkom
ágætt skraut auk fréttanna af
endalokum Bítlanna og Roof Tops
(?)•
Að þessu nýja Jónínu-framtaki
standa sömu menn og þeir, sem
gáfu út fyrstu tvö tölublöðin, en
það eru heiöursmennimir Ástþór
Magnússon blaðaljósmyndari og
verzlunarskólanemi og mennt-
skælingurinn Páll Hermannsson,
báðir úr Reykjavík. Aðspurðir
kváðu þeir félagamir það ein-
vörðungu hafa verið áhuginn,
sem rak þá út í útgáfuna, en ekki
vonin um gróða — það hefði
sýnt sig við útgáfu fyrri blað-
anna, að slíkt væri haldlaus von,
...nú og svo hafa auglýsendur
verið okkur óvenju innanhandar",
bætti Ástþór við og ánægjubros
breiddist yfir andlit hans — og
svo var hann þotinn að „redda“
málunum ....
Höfuðpaurinn f Combóinu, Egill Eðvarðsson, spilar skottís fyrir Glaumbæjargesti s.I. sunnu-
dagskvöld. Hann stundaði nám í tíu ár í tónvídd og tónfræði við Tónlistarskóla Akureyrar.
Ljósm. K. Ben.
UMSJÓN: ÞÓRARINN J. MAGNÚSSON
HVERJIR ERU
BEZTIR?
Beatles voru vinsælastir 1965. Hverjir eru vin
sælastir í dag, fimm árum síðar?
Ég var að fletta í gær i gegn-
um gamla árganga af VÍSI og var
þá aðallega að leita eftir gömlum
bítlagreinum og myndum. Sér-
staklega var um auðugan garð að
gresja í árgöngunum frá árunum
1964 — 65, enda einkenndust þau
ár af hræringum miklum í heimi
unga fólksins og var ástæðan sú,
að Beatles voru aö ryðja sér til
rúms og í kjölfar þeirra kom
fjöldinn allur af öðrum bítium og
tfzkufyrirbrigðum. Veldi Bítlanna
virtist samt ekki ætla að vara
lengi og þegar lubbamennin The
Rolling Stones geystust fram á
völlinn leit helzt út fyrir að Beatl
es væru búnir að vera. í viðtali,
sem VÍSIR birti 6. febnW 1965
við einn aðalbítilinn í bænum, Sig
urð Árnason bassaleikara f
Strengjum (nú í Náttúru) ke ir
greinilega fram að „Beatles séu al
veg búnir að vera — og nú séu
það Rolling Stones sem blakti.“
einnig talaði hann um aö það
væru krakkamir, smábörnin og
gamla fólkið, sem héldj Beatles
uppi. Ef þessi fullyrðing Sigga
hefur þama átt við einhver rök
að styðjast sé ég ekki ástæðu til*
annars en að hrópa margfalt
húrra fyrir þeim aðdáendahópi,
því það er þá þeim hópi að þakka
að enn f dag — fullum fimm árum
seinna — eigum viö enn kost á
að njóta hljómlistar The BeatlesJ
Það var aðeins nokkrum dög-|
um eftir að fyrrgreint bítla-viðtal.
var birt að VfSIR efndi til vin-
sældakosninga meða! lesendal
blaðsins og varð þátttaka mjög
góð. Til gamans, birtum við hér
að neðan úrdit kosninganna:
Erlendar hljómsveitin
Beatles 142 atkvæði
Rolling Stones 138 atkvæði
Kinks 13 atkvæði
Dave Clark Five 5 atkvæði
Manfred Mann 3 atkvæði
Shadows 2 atkvæði.
Innlendar hljómsveitiK
Hljómar 195 atkvæöi
Tónar 52 atkvæði
Sóló 20 atkvæði
Tempó 20 atkvæði
Strengir 5 atkvæði
Toxis 5 atkvæði
Dúmbó 2 atkvæði
Lúdó 2 atkvæði
Fjarkar 1 atkvæði
Það er óneitanlega gaman að
rifja upp þessar tölur finnst mér,
og *við það rifjast margt upp,
bæði stórt og smátt. Við sjáum
þama að Rollingamir hafi veitt
Bftlunum harða samkeppni og er
munurinn það lítill, að erfitt er
að gera sér grein fyrir hvor
þeirra hafi átt sterkari ítök í
fólki. Það ætti þó að veitast okk
ur auðveldara í dag að greina
muninn — eða hvað?
Það er athyglisveröast við inn
lenda listann, að engin af þeim
hljómsveitum, sem þar eiga sæti
er enn við lýði. Sú þeirra er síð-
ast geispaði golunni var Dúmbó
sextett, en þeir hættu sem kunn-
ugt er rétt fyrir jól eftir rúmlega
sex ára puð. „En maöuf kemur í
manns stað“, eins og máltækið
segir og á það alveg eins við í
hljómlistarheiminum, því í dag
em unglingahljómsveitirnar sízt
færri en þær voru, þegar vin-
sældakosning VÍSIS fór fram.
Aftur á móti liggur ekki eins
Ijóst fyrir hver þeirra hljómsveita
sem troða upp í dag er vinsælust.
Það gæti verið fróðlega að kom
ast að því, en til þess verðum við
að efna ti! skoöanakönnunar með
al lesenda. f þeim tilgangi fylgir
atkvæðaseðill blaöinu í dag, og
hefur skilafrestur verið ákveöinn
til 9. apríl. Auk þess sem við
kjósum okkur vinsælustu hljóm-
sveitimar innlenda og erlenda,
kjósum við einnig vinsælasta
söngvarann. Dregið verður úr að
sendum atkvæðaseðlum og fær
sendandi vinningsseðilsins aö
launum L. P.-plötu eftir eigin
vali.
Ég kýs .....Á...............................................
beztu innlendu hljómsveitina.
beztu erlendu hljómsveitina.
Ég kýs ......................................................
bezta söngvarann (eöa söngkonuna).
Sendið atkvæðaseðlana til Dagblaðsins Vfsis, Laugavegi 178,
fyrir 9. apríl n.k.