Vísir - 20.03.1970, Síða 5
. Fbstudagur 20. marz 1970.
5
□ Mörgu ábótavant
í umferðinni
JT^agmn er nú farið að lengja,
og kann því að vera minni
iiaetta en áður, en gott er þó
að sjá, að umferðarlögreglan
gefur þeim bifreiðum (ekkj sízt
vöreöutningabifreiöum) gaum,
sem aka með númer, bakljós og
srvo nefnd , kattaraugu“ alger-
lega hulin aur, þannig aö ekk-
ert sést.
í rökkrinu voru þessar bif-
reiðir oft enn hættulegri kyrr-
stæðar, jafnvel á þeim stöðum,
þar sem enginn gerði ráð fyrir
bifreiðastöðum.
Ýmis stærri fyrirtæki láta nú
aka starfsfólki sínu að og frá
vinnustað. Hafa í þessum til-
gangi verið keyptar gamlar bif-
reiðir, m. a. gamlir strætisvagn-
ar eða hópferðabifreiðir. Starfs-
fólksbifreiðir þessar stöðva á
hinum einkennilegustu stöðum,
sjálfákveðnum — eða ákveðn-
um eftir samkomulagi við starfs
fólk. Misbrestir eru á, að þeir,
sem út úr' stTga, gibti varúðar,
þegar farið er t. d. fram fyrir
bifreiðina, og þá frá hægri götu-
brún yfir á þá vinstri. Líka er
mikill misbrestur á, að bifreiðir
þessar gefi nógu glögg ljós-
merki, þegar farið er af stað frá
hægri götubrún, og ætti það
að vera alger skylda, að bif-
reiðir sem þessar hefðu mjög
stóran útispegil til afnota fyrir
bifreiðastjórana, svo og, að
stefnuljós væru nægilega stór,
greinileg og hrein.
Göngubrautir hafa ekki náð
neinni hefð í umferðinni. Eru
alhr i sömu óvissunni (og ótt-
anum), — alger ruglingur í rétt
indum og skylduni. Mjög er
hættulegt, þegar bifreið stöðvar
á annarri akrein, og fólk skýzt
svo framundan viökomandi bif-
reið, en önnur gætir sín ekki,
og ætlar á fleygiferð fram úr
(gagnbrautarslysin svonefndu).
Mtmar oft svo mjóu, að setja
þyrfti reglur um, að sú bifreið,
sem stöðvar, gefi merki út á
auðu akreinina (til að vara að-
vífandi bifreið við). Nauðsyn-
legt er einnig, að fólk gefi
merki, ef það ætlar út á göt-
una.
Utanbæjarmönnum þvrfti að
kynna umferðarreglur hér í
höfuðborginni, t. d. gatnamerk-
ingar o. fl. Ætti það aö byggj-
ast inn í ökukennslu (og próf)
úti á landi, að höfuðbörgar-
svæðið værj kynnt með mynd-
um og teikningum við munnlegt
próf (undirbúning ökuprófs).
„Pedes“
HRINGIÐ í
SÍMA1-16-60
KL13-15
9
ÞriSjungur utvinnuluusru
/ Hufnurfírði um sjötugt
— treysta sér ekki i vinnu eins og togaralöndun
# Menn athuga það ekki að
mikinn mannskap þarf til
að losa togara ef vel á að ganga
og þvi engan veginn óeðlilegt
að beöið sé um aöstoð frá skól-
unum, þó að nokkurt atvinnu-
leysi sé skráð, sagöi Hermann
Guðmundsson, formaður Verka-
mannafélagsins Hlífar í viðtali
við Vísi.
Töluverða athygli vakti, þeg-
ar togarinn Maí landaði í Hafn-
arfirði í fyrradag og leita þurfti
til Flensborgarskóla til að fá
vinnuafl til að losa togarann.
Þá voru um 90 menn og konur
skráð atvinnulaus í Hafnarfirði.
Þar af um 30 karlmenn.
Það vill gleymast, að veruleg-
ur hluti karlmannanna eru aldr-
aðir menn, sem ekki treysta sér
í slíka vinnu, sagði Hermann
Guðmundsson. Um þriðjungur
er um sjötugt, að því er Helgi
Jónsson sagði í viðtali viö Vísi,
en hann hefur umsjón með at-
vinnuleysisskráningunni í Hafn-
arfirði. Þá eru m.a. smiðir og
húsgagnabólstrari skráðir at-
vinnulausir. Það er þeirra mál,
hvort þeir vilja fara i uppskip-
un eða ekki, sagði Helgi Jóns-
son. Verkamennirnir missa at-
vinnuleysisbæturnar ef þeir taka
ekki þeirri vinnu, sem býðst,
en fagmenn eru ekki skyldaðir
til að taka hvaða vinnu sem er.
Helgi Jónsson sagði að mikill
hluti kvennanna. sem voru
skráðar atvinnulausar, fái nú
vinnu i Bæjarútgeröinni vió
fiskverkun vegna löndunar Maí.
Hann taldi ekki óeðlilegt þó að
vinnuafl vantaði við uppskipun
úr togaranum. Það væri erfitt
að halda mannskap við höfnina,
þegar ekkert væri þar að gera
svo mánuðum skiptir. —VJ—
MGMúhiH
eg hvili fm JjJ „
med gleraugum frá lyllf
Austurstræti 20 . Sími 14566 *
(SLENZKAN IÐNAÐ
VEUUM (SLENZKT
.vsvSHiivSKSs.
JBP-GATAVINKLAR
:<•:•:•
1B. PÉTURSSON SF.
ÆGISGÖTU 4*7 13125,13126
• Frá fisklöndun í Hafnarfirði fyrir ári, — úr reykvískum
togara, sem leitaði suður eftir þar eð reykvískir verkamenn
fengust ekki.
Frá Guöspekifélaginu
A
Fundur verður haldinn í húsi félagsins, Ing-
ólfsstræti 22, föstudaginn 20. marz kl. 9 síðd.
Húsinu lokað kl. 9.
Erindi: Sigvaldi Hjálmarsson
Hljömlist: Gunnar Sigurgéirsson
Fermingardömur
Höfum opið á sunnudögum fyrir fermingar.
Gjörió svo vel aö panta strax.
Hárgreiðsliistofan LÍSA
Hrísateig 47 . Sími 38675