Vísir - 20.03.1970, Síða 6
V1SIR . Föstudagur 20. marz 1970.
ÞJÓNUSTA
SMURSTÖÐIN
ER OPIN ALLA
DAGA TIL KL.
18.00.
HEKLA HF.
Laugaveg 172 - Símj 21420
FORNARVIKA
KIRKJUNNAR
HJÁLPUM KIRKJUNNI
AO HJÁLPA
liefur lykilinn að
betri afkomu
fyrirtœkisíns. •. •
. ... og v!8 munum
oðstoða þig vi8
08 opna dyrnar
08 auknum
viðskiptum.
VÍS/R
Auglýsingadeild
Aðalstrœti 8
Símar: 11660,
15610,15099.
Bj'órn Pálsson alþingismaður, Löngumýri:
F járf estingarf élagið
bætir engin vandkvæði
'T'ímanlega á þessu þingi flutti
Eyj'ólfur Konr. Jónsson frum-
varp til laga um Fjárfestingar-
félag íslands hf. ásamt Bene-
dikt Gröndal. Svipað frumvarp
hafði Eyjólfur flutt á næsta
þingi á undan, en þá dagaði það
uppi. Milli þinga vann Eyjólfur
að því að afla frumvarpinu fylg-
is. Leitaði hann einkum til
Verzlunarráðs lslands og Félags
ísl. iðnrekenda til stuönings. Lét
Eyjólfur að því liggja í fram-
sögu, að þeir væru frumkvöðlar
að þessu hugarfóstri. Taldi einn-
ig, að samþykkt frumvarpsins
mundi gera okkur mestu vel-
megunarþjóð veraldar. Ég álít
rétt, þar sem frumvarp þetta er
frumlegt aö skýra frá efni þess
og fara um það nokkrum orð-
um.
Verzlunarráð íslands og Félag
fsl. iðnrekenda skulu samkvæmt
frumvarpinu hafa forgöngu um
stofnun Fjárfestingarfélagsins,
og þeir aðilar, sem samtök þessi
kveðja til. Hlutaféð skal eigi vera
minna en 80 milljónir. Einka-
bönkum og opinberum sjóðiun í
landinu er heimilt að kaupa og
eiga hlutabréf í félaginu, án til-
lits til gagnstæðra ákvæða laga
um þessar stofnanir skal stofn-
unum þessum jafnframt heimilt
að vera fullgildir stofnendur aö
félaginu. Félagið skal vera skatt-
frjálst til 1977 hliðstætt og
Landsbanki íslands. Verkefni
Fjárfestingarfélagsins skulu meö
al annars vera þessi:
1. Að vera frumkvöðull aö
stofnun, endurskipulagningu og
sameiningu atvinnufyrirtækja.
2. Að kaupa, eiga og selja
hlutabréf 1 atvinnufyrirtækjum
og skuldabréf þeirra.
3. Að greiða fyrir útgáfu
hlutabréfa og skuldabréfa at-
vinnufyrirtækja með beinni og
óbeinni þátttöku í útboöum og
annarri dreifingu á þeim.
4. Að útvega, veita og á-
byrgjast lán til atvinnufyrir-
tækja, sem félagiö tekur þátt í
og beitir sér fyrir.
5. Að taka þátt í rannsókn-
um á atvinnunýjungum og til-
raunum með þær og hafa milli-
göngu um öflun og sölu á rétt-
indum til hagnýtingar þeirra.
6. Að annast tæknilega og
viðskiptalega ráögjafaþjónustu
við stofnun og rekstur atvinnu-
fyrirtækja.
Óskyld verkefni
Eins og sjá má, er hér um ó-
skyld verkefni að ræöa, sem
grípa inn í starfssviö stofnana,
sem þegar eru fyrir. Félaginu er
ætíað að hafa frumkvæöið að
sameiningu og endurskipulagn-
ingu hlutafélaga að því er mér
virðist á ölíum sviðum þjóöfé-
lagsins. Til þess þarf yfirgrips-
meiri þekkingu og hæfni en á-
stæða er til að ætla, að þetta
félag hafi, Vafalaust getur ver-
iö ástæða til að sameina félög
í vissum tilfellum. En það á að
gerast eftir eigin óskum þeirra
og fyrir frumkvæöi aðilanna
sjálfra, sem gerst þekkja að
sjálfsögðu hvað bezt hentar í
því efni.
Annað höfuöverkefnið á að
vera aö eiga og braska með
hlutabréf. Við erum kotríki, eig-
um tiltölulega mörg hlutafélög,
en lítiö af hlutabréfum, sem
hafa varanlegt verðgildi. Kaup-
hallir þrífast tæpast nema í stór
um ríkjum. Að sjálfsögðu getur
félag eða einstaklingar stofnað
og starfrækt sölumiðstöö fyrir
hlutabréf. Til þess hafa eigi ver-
ið skilyrði eða ástæða þótt til
þess. Við eigiun nóg af hlutafé-
lögum, og engin vandkvæði hafa
verið á að fá hlutabréf prentuð
eða skuldabréf samin, enda eigi
skortur á lögfræðingum í þessu
landi.
Fjórði starfsliðurinn er um
að útvega, veita og ábyrgjast
lán til atvinnufyrirtækja, sem
félagið tekur þátt í eöa beitir
sér fyrir. Eigi er óeðlilegt, aö
félag þetta reyni að útvega lán
til eigin fyrirtækja. Hins vegar
hygg ég, að lánstraust erlendis
hljóti að verða dálítið takmark-
að, jafnvel þótt hlutafé eigi aö
vera að nafninu til 80 milljónir.
Hins vegar hefur rfkið beint eða
óbeint orðið aö standa bak við
fiest erlend lán. Ástæða er til
að ætla, að svo muni verða fram
vegis. Bezt er að skulda sem
minnst, en beri nauðsyn til að
taka lán, hygg ég, að félag sem
þetta muni engum straumhvörf-
um ráða.
Fimmti og sjötti starfsliður
eru annars eðlis. Þar á félag
þetta að gerast ráðgjafi atvinnu-
fyrirtækja, tæknilega og viö-
skiptalega, og ennfremur að ann
ast tilrauna- og rannsóknastarf-
semi. Hingað til hefur rfkið eöa
stofnanir þess annazt þessa
starfsemi að mestu, beint eöa
óbeint. Til er rannsóknarráð rík-
isins, rannsóknarstofnanir sjáv-
arútvegsins, rannsóknarstofnun
byggingariönaðarins, rannsókn-
arstofnun fiskiönaðarins, rann-
sóknarstofnun iðnaðarins og
rannsóknarstofnun landbúnaöar
ins. Án efa má eitthvað að þess-
um stofnunum finna, því að ekk-
ert er fullkomið. En þá er rétta
leiðin að efla þessar stofnanir
með bættum starfsskilyrðum og
hæfum mönnum í stað þess að
fela fjárvana braskfélagi að vaða
inn á starfssvið þeirra. 1
Er rétt að einkabankar og op-
inberir sjóðir gerist aöilar að
braskfélögum?
Seölabankinn gefur út fróð-
legt og þarft rit, sem heitir Fjár-
málatíðindi. Þar er ágæt ritgerð
um hlutverk lánastofnana. Upp-
haf hennar hljóðar þannig:
„Hlutverk bankastofnana er
fyrst og fremst fólgið í öruggri
varöveizlu og ávöxtun fjár fyr-
ir þá, sem þess óska. Leiðin að
því marki er fólgin í lánveit-
ingum til þeirra aðila, sem telja
sig hafa þörf fyrir lánsfé og
geta veitt nægilega tryggingu
fyrir endurgreiöslu“.
1 ritgerð þessari er hvergi tal-
aö um, að hlutverk lánastofn-
ana sé að eiga í hlutafélögum.
Það gefur auga Ieið, aö eigend-
ur hlutafélaga verða að sjá þeim
fyrir nauðsynlegu rekstrarfé,
eigi þau aö geta starfaö. Félög,
sem bankar eiga hlut í, búa því
við allt aöra aðstöðu en önnur
félöig. Forráðamenn viðkomandi
banka geta tæplega tekiö óhlut-
dræga afstöðu gegn slíkum fé-
lögum. Sparifé það, sem bönkum
er trúað fyrir, getur á þann hátt
verið notað í vafasamt brask,
og því getur fylgt margþætt spill
íng. Ég held þvf, að það væri
frekar óviturlegt af íslenzkum
einkabönkum að fara inn á þá
leiö að gerast meðeigendur að
braskfélöguifl og gera að engu
með einni setflingu þau laga-
ákvæöi, sem um það hafa gilt.
Einkabankar hafa eigi ríkisá-
byrgð fyrir spariinnlánum, og
hvar verður numið staðar, ef
inn á slíka leið er farið? Veröa
eigi flestar lánastofnanir þá fyrr
en varir orðnar meðeigendur í
fyrirtækjum gegnum áróður eða
mútur? Bankafyrirtækin heföu
betri aðstöðu með útvegun láns-
fjár. Önnur fyrirtæki gætu tæp-
ast þrifizt jafnhliöa þeim. Ég
álít því, að þama sé verið að
fara inn á óeðlilega og hættu-
lega leið.
Lög um hlutafélög
Til eru lög um hlutafélög.
Vera má, að breyttar aðstæður
valdi því, að þörf sé þar á breyt
ingum. Þá er að gera þær. Henti
iðnrekendum að sameina fyrir-
tæki sín í stærri einingar og
þurfi til þess breytta löggjöf á
einhverju sviði, held ég, að allir
telji eðlilegt að verða við skyn-
samlegum óskum 1 þvi efni. Það
þarf að vera samræmi í þeim að-
gerðum, og þær þurfa að vera
byggöar á reynslu og þekkingu.
Undanþága frá
skattgreiðslu
Lagt er til, að Fjárfestingar-
félag þetta verði skattfrjálst til
ársins 1977. Eigi er ólíklegt, að
farið verði fram á, að þetta
skattfrelsi verði framlengt, þeg-
ar þar að kemur. Hafi vemdarar
þessa félags góða aðstöðu þá,
gæti þetta skattfrelsi staðið
lengur. í skjóli þess gæti átt sér
stað margþættur rekstur og éf
til vill einhver smáspilling. Ráð-
herra bankamála lýsti því yfir,
í umræðum á þingi, að félag
þetta beri eigi að skoða sem
lánastofnun, og muni því eigi
heyra undir bankamálaráðu-
neytið. 1 lýöræöislandi eiga
sömu lög að gilda fyrir alla. Sé
horfið af þeirri leið, ér lýðræð-
inu hætt, og hvar em takmörk-
in? Geta eigi fleiri aðilar farið
fram á að fá með sérstökum
lögum leyfi til að stofna skatt-
frjáls félög til einhvers konar
reksturs eða rannsóknarstarf-
semi. Otvegsmenn, eigendur
frystihúsa, mjólkurbú, bænda-
samtökin eða jafnvel Alþýðu-
sambandið. Ég held, að þetta sé
dálítið vafasöm leið. Hvar eiga
takmörkin að vera? Hvenær á
að stinga við fótum?
Lokaorð
Tækniþróun er ör nú á tím-
mn, og við verjum ef til vill of
litlu fé til rannsókna og nýj-
unga á sviði atvinnulífsins. Fiski
málasjóður hefur nokkur fjár-
ráð, sem hann má verja til
þeirra hluta á sviöi sjávarútvegs
ins. Ég hygg, að viturlegt væri
að stofna sjóð vegna iönaðarins
i sama skyni með beinu fram-
lagi frá ríkissjóði eða iðnþróun-
arsjóði. Stofnlánasjóöir atvinnu-
veganna mættu gjaman hafa
meiri fjárráö. Þeir hafa verið
margskertir með endurtekmun
gengislækkunum. Þá þarf að
auka með góöri fjárstjóm og
auknu eigin fé. Engin vand-
kvæöi veröa bætt með stofnun
braskfélaga, sem borin em uppi
með lagastoðum, sem byggjast
á ranglæti og hættulegum laga-
breytingum.
fer frá Reykjavík miðvikudaginn 25. þ. m.
til ísafjarðar.
Vörumóttaka á mánudag og þriðjudag í A-
skála.
H/F EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
VÖRUBÍLL
M.s. Gullfoss
Til sölu stór þriggja öxla vörubíll, sem þarfnast lag-
færingar, verð og greiðsluskilmálar samkomulag. —
Uppl. 1 síma 34033 á kvöldin.