Vísir - 02.04.1970, Blaðsíða 2

Vísir - 02.04.1970, Blaðsíða 2
Kvikmyndin eftt, en veruleiklnn svo annað. Ein hinna nýju bandarisku kvikmynda ber nafnið „Ég elska konu mína“. Það er hljómfagurt nafn óneitanlega, en þeir, sem að myndinni stóðu, virðast ekki lifa í anda myndarheitisins. Elliott Gould, sem leikur aðal- hlutverkið, er skilinn við Börbru Streisand. David Wolper, framleiðandi myndarinnar, er nýskilinn við sína konu. Og svo hefur handritshöfundur myndar- innar bætt um betur og tilkynnt, að hann sé I þann veginn að skilja við sína konu. LEiVIN-met. Rannsókn, sem UNESCO gekkst fyrir, leiddi i ljós, að Lenin mun eiga heimsmet í bókaþýðingum. Verk hans hafa verið þýdd yfir á 222 tungumál. 1 öðru sæti er belgísk-franski léynilögregluhöfundurinn, Ge- orges Simenon, en Maigret- reyfarar hans hafa veriö þýddir á 143 tungumál, en í þriðja sæti er Shakespeare, sem þýddur hefur verið á 111 mál. Ástæðan fyrir því, að Lenin skuli skara svona fram úr vin- sælum höfundum eins og Shake speare og Simenon, er talin vera sú, að í Ráðstjórnarríkjunum einum eru töluð meir en 50 tungumál. Þessari mynd var smellt af leikkonunni Gretu Garbo eitt- hvert sinn, þegar ljósmyndara tókst að koma henni að óvör- um, en hún forðast alla daga blaðaljósmyndara og ber jafnan dökk sólgleraugu. Sannleikurinn er númer þrjátiu og sjö og hálft. Það var sagt leikkonunni Gretu Garbo til hnjóðs, að hún hefði ægilega stóra fætur, sem engin kona vill láta um sig segja. En núna eftir öll þau ár, sem liðin eru síðan Greta Garbo fyllti fréttadálka blaðanna, hef- ur komið i Ijós, að enginn fót- ur var fyrir þessum orðrómi um fótastærð leikkonunnar. Nýlega var npfnilega haldið uppboð á fatnaði, sem Greta Garbo bar í kvikmyndinni „Kristín drottning", og auðvitað fylgdu þá skórnir hennar með. Þeir reyndust vera númer þrjátíu og sjö og hálft. Réttarhöldin í Sharon Tate-morðinu standa ennþá yfir Þessar þrjár stúlkur syngja glaðar og áhyggjulausar og ekk- ert nema fangagæzlan lengst t.v. á myndinni hér meðfylgjandi minnir á, að yfir þeim vofir á- kæra fyrir þátttöku í fjöldamorö unum í húsi leikkonurnar Sharon Tate, þegar hin efnilega leikkona og fjórir vinir hennar voru myrt. •V'í .... Mynd þessi var tekin, þegar stúlkurnar voru færðar til yfir- heyrslu við frumrannsókn máls- ins í sakaréttinum í Los Angeles. Frá hægri talið eru það Leslie van Houten, Patricia Kerwinkel og Susan Atkins. Það var framburöur hinnar 21 árs gömlu Susan Atkins sem fyrst varpaði einhverju ijósi á hið dularfulla og hryllilega morö á hinni barnshafandi leikkonu og vinum hennar í Hollywood-villu leikstjórans, Roman Polanskis — eiginmanns Sharon Tate. Réttarhöldunum er enn ekki lokið í málinu, en auk stúlkn- anna var hippíaleiötogi að nafni Charles Manson ákærður fyrir morðin, og var talið, að hann hefði verið stjómandinn í hryll- ingsverkunum. Sagt var að hann hefði haft dávald yfir hippia- klfku sinni, sem lá úti í Death Vally (Dal dauðans). Vel þess virði Einbeitt á svip með tunguna úti í öðru munnvikinu vandaði Char- lotte Graham miðið, en lét síðan tertuna vaða í andlitið á fómar- dýri sfnu — skrifstofustjóra sin- um. Nei, nei! Misskiljið nú ekkert Hún hafði ekki tapað glórunni, heldur aðeins hreppt stóra vinn- inginn, verðlaunin fyrir að vera bezti sölumaður General Tele- phone Company 1969. Sá, sem upptökin átti að þess um einkennilegu verðlaunum, var yfirmaðurinn sjálfur, Connie Barnes sölustjóri og skrifstofu- stjóri, sem hugkvæmdist, að sölu menn hans slíta sér gjaman út, ef þeir eygja horfur til þess að hreppa þetta eindæma hnoss — að klessa tertu f andlitið á sjeff- anum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.