Vísir - 02.04.1970, Blaðsíða 16
Miðvikudagur 2. aprfl 1970.
Stríð um
Playboy-
merkið
Tveir aðilar hafa nú látið
skrásetja þetta sama
merki hjá vörumerkja-
skrárritara og hefur merk
ið verið augiýst í Lögbirtinga-
blaðinu af tveimur aðilum. Þetta
er hið heimsþekkta Playboy-
merki, en stríð er nú um merkið
á milli bandaríska stórfyrirtæk-
isins H.M.H. Publishing Co. Inc
og Hreiðars nokkurs Jónssonar,
sem rak næturklúbbinn Playboy-
Club, þar til rekstur hans var
stöðvaður í fyrravor.
Umboðsmaður bandaríska fyr-
irtækisins, sem m. a. hefur út-
gáfustarfsemi (Playboy) og veit-
ingarekstur (Playboy-klúbba),
Kristinn Gunnarsson, hrl. sagði
í viðtalj við Vísi í morgun, að
vörumerkjaskrárritari hefði ekki
úrskurðað hverjum merkið til-
heyrði hórlendis. Hann kvað það
auðvelt fyrir bandaríska fyrir-
tækið aU5 fara með málið fyrir
dómstólana hérlendis til að fá
réttinn dæmdan fyrirtækinu,
enda hefði merkið hér þegar
meira en áratuga hefð. — Þess
má geta, að Hreiðar lét skrá-
setja merkið í fyrifavor, en
bandaríska fyrirtækið lét ekki
skrásetja það fyrr en sl. haust.
- vj —
Húsgögn Einars Ben. lágu
undir skemmdum í geymslu
jbegar sjónvarpsmenn fengu þau lánuð og gátu
bjargað þeim frá algjörri eyóileggingu
— Þessi húsgögn hafa verið
i geymslu f vöruskemmu á
Grimsstaðaholtinu síðan um
áramót, en þá voru þau flutt
úr kjallara Háskólans, sagði
Magnús Már Lárusson há-
skólarektor í viðtali við Vísi
í morgun um húsgögn Einars
Benediktssonar skálds, sem
sjónvarpið fékk til af Jta í
leiksviðsmynd að Heddu
Gabler, sem sýnd var um
páskana.
Snorri Sveinn Friðrrksson sá
um leiksviðsmyndina og sagði
hann í viðtali við blaðið að
þama hefði verið um sófa, þrjá
stóla, skrifborð og einn bakstól
að ræða.
— Húsgögnin voru vægast
sagt iila farin enda í stæmri
geymslu, í gamaili sements-
skemmu, sem H. Benediktsson
og Co. áttu einu sinni. Húsgögn-
in voru geymd þama ásamt
fleiri munum Háskólans. Það
var fyrir tiJviljun að við rákumst
á þetta þama.
Þá sagði Snorri Sveinn, að
húsgögnin væru mjög vönduð.
— Það var óskaplega mikil
vinna að ná af þeim óhreinind-
unum, en þau vom þvegin upp
og borin á þau leðurfeiti. Þessi
meðferð, sem þau fengu héma
gaetj bjargað þeim um einhvem
tfma.
HOsgögnin eru í geymslu
Sjónvarpsins ennþá og hafa ekki
borizt nein fyrirmæti um það
hvert eig; að skila þeim nema á
fyrri stað.
Háskólarektor sagði enrrfretn-
ur í viðtalinu mikil vandkvæK
vera á geymslu húsgagnarma,
„hvar er plássið?“ Aðspœður
sagði hann Þjóðminjasafnið ai-
gjörlega sprungið og geymstar
þess kasfuiiar.
Húsgögnin eru úr Herdfear
vík sem er í eigu Háskóians og
sagði rektor koma ta greina að
setja húsgögnin upp þar. í arfi
Háskólans eftir skáidið vom
einnig bækur þess sem ruá em
í Háskólabókasafni. — SB.
Það sást stundum ekki f snjóþotumennina fyrir snjónum, sem þyrlaðist undan sleðanum, er þaut á miklum hraða
una, þar sem ÍR-ingar héldu snjóþotukeppni sina á páskadag hjá Skíðaskála iR.
Bílar frá öllum bíla-
stöðvum „óku apríl44
• Vonandi hafa flestir, sem
„hlupu apríl“ í gær, haft
gaman af því og lítil óþæg-
indi, en leigubflstjórarnir sem
óku upp að Korpúlfsstöðum í
gærmorgun voru ekki mjög
hrifnir, er þeir áttuðu sig á
þvf að þeir voru að „aka
apríl“. Hafði verið hringt á
leigubíla og sendiferöabíla
frá öllum bilastöðvum borg-
arinnar laust fyrir hádegið,
og þeir beðnir að koma upp
að Korpúlfsstöðum. Þangað
óku bílarnir að sjálfsögðu, en
gripu í tómt, og áttuðu sig
þá á þvi að einhver gárung-
inn hafði verið að gabba þá.
Á fimmtu síðunni í dag er
meira um aprílgabb útvarps
og blaða. Þess skal sérstak-
lega getið, að frétt Vísis um
dýrasjúkrahús var ekki april-
gabb eins og margir virtust
álíta. . —þs—
Jafna aðstöðu
skólaunglinga
‘', , * „ s - . wv
-
■ "j. ■ f- !
Skólaunglingar úr sveit munu
brátt fá aukna styrki, sem eiga
að jafna aðstöðu þeirra og ungl-
inga í þéttbýli. — Á fjárlögum
þessa árs eru veittar 10 milljónir
króna tii að jafna aðstöðu skóla-
fólks f dreifbýlinu miðað við
þéttbýlið.
Menntamálaráðhefra skýrði í gær
á Aliþingi frá tillögum um skiptingu
þessa fjár. Eru þær þess efnis, að
1050 unglingar úr strjálbýlinu, sem
stunda nám í menntaskólum og
tækniskólum fá; i styrk 1000 kr. á
mánuði í átta mánuði á árinu. Þetta
kostar ríkið samtals 8,4 milljónir.
Því, sem eftir er af tíu milljón-
unum, verði varið til að styrkja
200 nemendur á gagnfræðastiginu,
850 krónur á mánuði í sjö mánuði.
Þessj styrkur yrttt, ef td kæná,
astiaður þeim námsmönoum, er
dvetja fjarri heimiium síawm og erw
ekki í beimavist. — HH.
rikti meiri kátiaa, heAdur
en speooa yfir nýstárieg« keppnis-
anótí, seai skjðiadeiM M bacfi á
ípáskadag hjá jfiglask9fa srnum.
Keppt var í svig* á SKRSOTUM.
Antígóna
sýnd i
siöasta sinn
• Antígóna eftir Sófókles verður
sýnd í 25. og síðasta sinn í
kvöld. Aðsókn framan af var dræm,
i en þegar liðið hefur á," hefur hún
glæðst verulega og á síðustu sýn-
ingu, sem var á skírdag, var fullt
hús að sögn fulltrúa Leikfélags
Reykjavíkur. — JBP —
Það aem oK bfiW—ol var sú
staðe^wd, aö læppeadumir. sem á
ofsafenð gpsjstwst nðnr heekkuna
/og stýíxSu fimtega ýqfiat á milli
a»iodn*naj*ilH5arffla eBB framhjá
iþMtn (óíögtegt), voru jafeíttft atan
íborðs viði
anborðs.
Það var þwi:
ur á botnmum, þegar haOBt
mark, en önnur
menn ekfci.
Keppnin var fjöibresytt og
endur urðu að vera jafnvigir á að
renna sér niður hallann og suo
hins vegar upp hann. Þrir kepp-
enda unnu til verðlauna, sem
hin glæsilegustu — sitt
ið handa hverjum. GP
Börn eyðileggja trjágróður
Hér sést greinilega hvemig trjámnnamir hafa verið brotnir fram-
an við húsið númer 160 viö Laugaveginn og margra ára vinna
húseigandans eyðilögð. ,
■ Flestir hafa gaman af að
snyrta til í .kringum hús sín,
ekki sízt, þegar vorar og
gróðurinn fer að gægjast upp
úr moldinni. í timburhúsi við
Laugaveginn býr fullorðin
kona, Arnbjörg Markúsdóttir,
og er hún ein f jölmargra borg
arbúa, sem em farnir að
hugsa fyrir vorinu og hlú að
trjám og gróðri við hús sín.
En þegar Arnbjörg kom úr
vinnu í gær beið hennar ófögur
sjón. Börn úr næsta húsi höfðu
rifið og slitið upp bókstaflega
hverja plöntu í garðinum. Trjá-
runnar sem girtu lóðina af voru.
brotnir og rifnir upp og lóðin
hreint eins og eftir loftérás.
Líklega verður seint nógsamlega
brýnt fyrir foreldrum að fylgjast
vel með börnum sínum er þau
eru aö Ieik og hvetja þau til að
leika sér ekki i göröum annarra
og að virða allan gróður í stað
þess að eyðileggja hann. — þs.