Vísir - 02.04.1970, Blaðsíða 9

Vísir - 02.04.1970, Blaðsíða 9
Ví SIR . Fimmtudagur 2. apríl 1970. V Hjálmurinn bjargaði lífi hans ■ Fullir skelfingar horfðu sjónarvottar á unglingspilt, sem kom akandi eftir malbikaðri götunni, steypast fram yfir stýr- ishartdföngin og skella á höfuðið í götuna, svo að small í. „Ó, ó, ó,.... voðalegt er að sjá“, og sumir litu undan, með- an aðrir nálguðust gætiiega hinn „stórslasaða ungling." En mikil var undrun allra þegar hinn slasaði reis upp við dogg, og hafði aðeins hruflazt og hlotið tvo, þrjá marbletti. Öryggishjáimurinn hans hafði hlíft höfði hans. Alveg það sama hafði gerzt fyrir átta árum á þessum sama stað, fyrir framan hús nr. 4 á Suðurlandsbraut. Þá hafði ungur maður á Lambretta-bifhjóli ekið á ca. 30 km hraða á bifreiö og við höggið kastazt fram af hjólinu og yfir bifreiðina, en lent sföan á höfuðið í götuna. „Cíðar var mér sagt, að ég hefði svifið eina fjóra metra í loftinu og komið niður á höfuðið og runnið eftir jörð- inni aðra fjóra metra" sagði Kristinn Helgason, þegar blaða maður Vísis tók hann tali í gær dag og rifjaði upp með honum þetta 8 ára gamia atvik, en Kristinn var ungi maðurinn, sem ók Lambrettunni. „Ef ég hefði ekki haft hjálm- inn minn þá, hefði ekki þurft um að binda, heldur bara jarða mig“, sagði Kristinn, enda var það líka sannfæring allra, sem óhappið sáu, eöa farið, sem kom í hjálminn hans af högginu. Hnefastór hola í hjálminum blastl við öllum, ’er Kristinn var borinn burt í sjúkrabörum. - ■ Kristinn Helgason, sem á öryggishjálminum líf sitt að launa. Hann starfar núna hjá Landm?-Iingum og hefur ekki snert viÍ5 bifhjóli síðan slysið varð — vegna aðstandenda, sem ekki mega til þess hugsa. „í staðinn lá ég í viku á spítala, hafði hægt um mig á eftir og hef síöan ekki kennt mér meins.“ Af þessu slysi og öðrum átt- uðu menn sig á því hér heima, hvilíkt þarfaþing slíkir örygg- ishjálmar eru, en þótt ótrúlega hljómi, þá höfðu menn alveg fram á byrjun áratugsins verið ákaflega tregir til að nota slíkan höfuðbúnað á vélhjólum eða bif hjólum. „Þá voru ó'líkt fleiri hjálm- lausir á hjólunum, heldur en hinir, sem notuöu hjálmana. Það stappaðj nærri sérvizku, að ég skyldi aldrei fara á hjólið hjálm laus og hafði keypt annan hjálm handa konunni minni, sem stundum sat hjólið með mér“, segir Kristinn, þegar hann leið- ir hugann til venju þeirra ára. „Enda speglast viðhorf manna þá til þessara öryggis- tækja í því, að þá voru þeir i sama tollaflokki og skrauthatt- ar kvenna, lúxusvarningur." „það var eiginlega ekkj fyrr en upp úr 1961, að notk- un öryggishjálma hjá ökumönn um bifhjóla tók að breiðast út“, segir Magnús Einarsson, varð- stjóri í umferðard. lögreglunn ar í Reykjavík, sem í mörg ár hefur unnið við löggæzlustörf á bifhjóli. „Á þessum árum urðu nokk- ur alvarleg slys, sem vöktu menn til umhugsunar um öryggi þessara hjálma, og að fenginni þessari raunalegu reynslu fjölg aði smám saman þeim, sem not- uðu öryggishjálma“, segir Magn ús varðstjóri. Hin ótrúlega björgun Kristins Helgasonar, sem hann átti ein göngu að þakka hjálminum sín- um og „sérvizku‘‘ sinni — að aka aldrei hjálmlaus — var á- kaflega áþreifanlegt dæmi um öryggisaukann af hjálmanotk- uninni og vakt; mikla athygli á sínum tíma, enda gerði Vísir fréttina að aðalforsíðufrétt sinni 20. júnf 1962. „Bifhjólamenn eru að vísu ekki skyldaðir af lögum til þess að bera þennan sjálfsagða höf- uðbúnað. en kostir hiálmanna liggja svo i augum uppi, að þeir eru orðnir sárafáir, sem sjást á bifhjólum eða vélhjólum hjálmlausir. Umferðarlögreglumenn hafa Fréttin á forsíðu Vísis 20. júní 1962, en vegná!þéssárar naumu björgunar og svo annarra slysa mótorhjólamanna, sem ekki enduðu eins vel breiddist notkun öryggishjálma út. líka gert mikið að því að stöðva þá, sem eru á ferð hjálmlausir á vélhjólum, og benda þeim á, hvílíkt öryggi sé að hjálmun um. Því hefur ævinlega verið vel tekið, og f langflestum til- vikum hafa þessir hjólamenn átt hjálma, en átt aðeins stutta leið að fara, sem þeim fannst ekki taka því að setja upp hjálm inn sinn fyrir“ sagði Magnús Einarsson. Hann telur, að drjúg an þátt í útbreiðslu hjálmanna hafi Vélhjólaklúbburinn „Eld- ing“ átt, en það er félagsskapur ungra pilta, sem mikið hefur starfað að góðakstri meöal ungra bif- og vélhjólaeigenda. „ A ð mínu mati er það þrennt, “^sem er ákaflega mikilvægt fyrir öryggi bifhjólamanna, auk þess að sjálfur stjómunarútbún aður bifhjólsins sé í fullkomnu lagi“, segir Magnús af margra ára reynslu sinni í akstri Harley-Davidson lögreglubif- hjóla. „Það er í fyrsta lagj örygg- ishjálmur. Hann er númer eitt og enginn ættj að hreyfa hjól hjálmlaus. Það Iiggur í augum uppi hvers vegna. í öðru lagi ættu bifhjólamenn að hafa hlýja og sterka hanzka, helzt með uppslögum, sem ná upp fyrir jakkaermar. Hlýja, svo að þeir verði ekki loppnir og kannski fatist tökin við stjómun hjólsins þess vegna. Sterka, svo að hlifð sé af, ef þeir kynnu að detta eða rekast utan í, en margur hefur einmitt hru'flað sig illilega í slíkum smá óhöppum. í þriðja lagi ættu þeir að vera i hlýjum fötum (helzt stormheldum jakka) til hlífðar gegn loftstraumnum og næð- ingnum, því að stirðnun af kulda dregur úr viðbragös- snerpu bifhjólamannsins. Gam- alt ráð bifhjólamanna var að leggja dagblað innan fata á brjóstið til varnar næðingnum.“ Tjegar mönnum varð ljósara öryggi af notkun hjálma, greiddu yfirvöld götuna með því að lækka þessa innfluttu vöru í tollum. „Hjálmar voru í 90% tolla- flokki, eins og hattar, húfur og önnur höfuðföt, en fyrir þrem árum voru þeir lækkaðir niður í 35% tolla“, sagði Gunnar Bern- hard, umboðssali fyrir Honda- vélhjól, sem er einn aðalinn- flytjandi bifhjólahjálma. Hann kvað sölu hjálma fylgj- ast að viö sölu nýrra hjóla, því að hjálmamir slitnuðu lítið og piltar, sem selja hjól sín, láta hjálma sína oftast fylgja með. „Salan í hjálmunum hefur ver ið ósköp svipuð frá árj til árs, nema í fyrra, þegar dró mjög úr sölu nýrra bifhjóla vegna gengisbreytingarinnar", sagði Gunnar í samtali við blaðamann Vísis í gær. Meðalgóður bifhjólahjálmur mun kosta í kringum 1000 krón ur út úr búð í dag. „Ótrúlegt nokkuö; en það eru ennþá til menn, sem aka vél- hjólum, og tregðast við að nota hjálma. Það eru' einkum eldri menn, því að hinir yngri eru al veg búnir að laga sig að tilhugs uninni um að hiálmurinn heyrir til hjólaútbúnaðinum", segir Gunnar. sem kynnzt hefur mörg um vélhjólanotendum vegna varahlutasölu sinnar. Reynslan sýnir, að það er ekkj sparsemi, sem þorgar sig. Enda mun það frekar vera út- lit höfuðfatsins, sem stiórnar gerðum manna { því að nota ekkj öryggishjálma við bifhióla akstur En þegar öryggi manns- ins er annars vegar. ættu menn að láta tildursiónarmið víkja — stinga húfunni f vasann og setja heldur upp hjálm. GP □ Hvers glæpur er mestur? „Réttlætisvinur“ segir: „Ósköp varð mér hverft við, þegar ég las í blaðinu, að verk smiöja ein hér í bæ hefði sett upp þannig kerfi, að innbrots- þjófar eigi á hættu að skað- brennast af völdum brennisteins sýru, reyni þeir innbrot í verk smiðjuna. Við vitum öll, að það er rangt og varðar við lög að brjótast inn. En það er miklu stærri glæpur að skaðbrenna mann með brennisteinssýru. Og mér er spum. Ætla yfirvöld ekki að láta það til sín taka, er æðikollar setja upp þjófa- varnarkerfi, sem getur skað- brennt menn? Lögreglustjóri á tafarlaust að láta rífa þetta kerfi niður og senda upphafs- menn þess í sálræna rannsókn." □ Of margir aðskotahlutir „Þrifin húsmóöir“ hafði þetta að segja: ,,Mér finnst allt of mikið um, að ýmsir aðskotahlutir, pödd- ur eða annað slíkt finnist í mat vælum hér á landi. Það er skilj anlega ekki hægt að fyrir- hyggja öll slík mistök. En til- fellin eru óhugnanlega mörg. Það getur ekki talizt eðlilegt, að borgarlæknisembættinu ber- ist nærri daglega dæmi um vafa samt hreinlæti þeirra aðila, sem fara höndum um matvæli. Ekki fæ ég trúaö þvf, að þaö sé ein- hver sóðaskapur í þjóðarsál Is- lendinga. Það hlýtur að vera hæet að fá úr þessu bætt.“ □ Aðstoð á röngum stað „Sportmaður“ skrifar: „Alltaf er verið að hossa blessuðum fþróttamönnunum •okkar, sem satt aö segja geta margir lítið, enda nenna þeir ekki að leggja eins mikið á sig við æfingar og erlendir íþrótta menn gera. Maður opnar ekki svo blað, að ekkj sé heimtaður stuðningur við íþróttirnar. Og nú á að fara að 'gera fþrótta- mennina að launamönnum. Ætli afrekin færist þá ekkj niður á sama svið og vinnuafköst opin- berra starfsmanna. Á hinn bóg- inn höfum . við heimsfrægan skáksnilling eins og hann Frið- rik og annan upprennandi, sem ekki ætlar að veröa síðri, hann Guðmund Nær væri að gera eitthvað fyrir þessa menn og hætta þessari sjálfsblekkingu í íþróttunum." HRINGIÐ í SÍMA1-16-60 KL13-15

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.