Vísir - 02.04.1970, Qupperneq 3
VlSIR . Fimmtudagur 2. april 1970,
3
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Vindlingareykingar
minnka um 3°]o í
Bandaríkjunum
Landbúnaöarráöuneytið i
Bandaríkjunum hefur skýrt frá
því, að vindlingareykingar þar
í landi hafi minnkað um 3%
árið 1969.
Reyktir voru 528 milljarðar
vindlinga árið 1969, en 546 millj-
arðar árið áður. Þetta er mesta
minnkun reykinga á einu ári
síðan skýrsla um skaðsemi reyk
inga var birt árin 1963—64, og
annað árið í röð, sem dregur úr
vindlingarevkingum.
Reykingar á mann minnkuöu
í fjórða árið í röð. Á hvern
mann komu 3.993 vindlingar ár
ið 1969, en höfðu verið 4.186 ár
ið 1968.
Mexikanskur mannfræðingur hef
ur komizt að þvi, að Indíánarnir í
Mexíkó þjáðust af sárasótt löngu
áður en hvítir menn stigu fæti á
grund Ameríku.
Áður höfðu menn almennt taiið,
að Spánverjar heföu komið með
þennan ófögnuð til álfunnar.
'Alejando Estrada, 22ja ára pró-
fessor í mannfræði við Ameríku-
háskólann kvaðst hafa fundið tvær
hauskúpur við Yagul í Oaxaca, og
hefði fólkið, sem þær voru af tví-
mælalaust þjáðst af sárasótt
(sýfilis).
„Þetta er í fyrsta sinn, sem við
höfum getað sannað, að Indiánar
hafi haft þennan sjúkdóm áður
en Spánverjar komu“, sagði hann
blaðamönnum. Hauskúpur þessar
voru frá 800 fyrir Krist.
MIKIL ATOK
í BELFAST
^Tuttugu og átta hermenn
og mikill fjöldi almennra
borgara særðust í nótt í
átökum í Belfast í Norður-
írlandi. Lögreglan beitti
táragasi til að verja sig
gegn áhlaupi æfra kaþól-
ikka.
Um 600 kaþólikkar réðust á
brezku hermennina og köstuðu
grjóti og bensínsprengjum.
Sjónarvottur segir, að hermenn-
jrnir hafi „fallið eins og flugur" í
grjóthríðinni. Hermennimir eru úr
skozku sveitunum, sem eru mót-
mælendur.
Kvöldið áður særðust tuttugu her
menn I óeirðum á þessu sama
svæði. Talsmaður brezka hersins
sagði, aö ástandið væri mjög alvar-
legt.
Sárasótt í Ameríku á
undan hvítu mönnunum
Umsjón- Hankur Helgason
Ambassador og ráðherra:
BjóBa sjálfa sig sem gísfa
verBi farþegunum sleppt
Fréttamenn skýrðu frá
því snemma í morgun,
að japanski samgöngu-
málaráðherrann og am-
bassador Japans í Seoul
hefðu boðizt til þess að
verða sjálfir gíslar jap-
önsku stúdentanna, ef
þeir leyfðu farþegum
flugvélarinnar að fara
frjálsum ferða sinna. —
Enn í morgun var hin
rænda flugvél í Seoul,,
höfuðborg Suður-Kóreu.
Ríkisstjórn Suður-Kóreu
ræddi í morgun, hvað unnt væri
að gera til að fá farþegunum
sleppt úr haldi. Skömmu áður
hafði flugvélin verið dregin út
á aðalbrautina, og ræningjarnir
höfnuðu tilboði, sem átti að
tryggja þeim, að þeir yrðu flutt
ir áfram til Norður-Kóreu, ef
þeir létu farþegana lausa.
Japanski ambassadorinn, Masa
hide Kanayama, hefur gengið
vasklega fram í samningaviðræð
unum og vill nú fela sjálfan sig
í hendur ræningjanna, ef önnur
ráð finnast ekki til að bjarga
farþeguum.
Upplýst er, að farþegarnir séu
86 og sjö manna áhöfn frá Bo-
eing-flugvélinni. Ræningjarmr
eru fimmtán japanskir stúdent-
ar úr öfgasamtökum til vinstri.
Ástandið var óbreytt laust fyr
ir hádegi.
Flugumferðarstjórar „veikir"
Marglr flugumferðarstjórar í Bandaríkjunum hafa verið „veikir“, það er f verkfalli, síðustu daga.
Miklar tafir hafa orðið á flugi víðs vegar um landið. Myndin sýnir farþega á LaGuardia-flug-
vellinum í New York, sem leggjast fyrir í hinnilöngu bið eftir flugfari. — Flugfélögin krefjast
hundraða milljóna dala skaðabóta vegna tafanna. í gærkvöldi skoraði stéttarfélag flugumferðar-
stjóra á meðlimi sína að snúa tii vinnu, og margir „frískuðust“ f morgun.
Mýs éta hveiti i Viktoríu.
Músaplága í A stralíu
„Þetta eru milljónir músa.
Menn geta ekkj ekið hraðar en
tuttugu mílur á klukkustund,
•því aö bíllinn mundi renna, ef
menn þyrftu að hemla. Svo mik-
il mergð af músum er á vegin-
um.“ Þetta sagði lögregluþjónn
í einu helzta kornhéraði Ástra-
h'u.
Mýsnar eru ekki aðeins á veg
unum, helduj- einnig í hveiti-
geymslunum, hlöðum og búrum
á stórum svæðum í fylkjunum
Viktoríu og Nýja Suður-Wales.
Bændurnir kalla þær fljúgandi
teppið.
Þetta er versta músaplága i
Ástralíu sfðan 1939, og til kom
in vegna fyrri offramleiðslu á
hveitj og einkar hagstæðrar
veðráttu.
Sérstakar ráðstafanir eru gerð
ar til að vemda sjúklinga í
sjúkrahúsum gegn músum. Heilu
akrarnir hafa verið uppétnir. 1
hlöðum veiðast allt að 100 mýs
á einni nóttu f vatnstunnum
meö agni. Kona ein missti allar
birgðir sínar af „pillunni", sem
mýsnar átu frá henni, og lagði
þá til, að pillan yrði notuð til
að hindra fjölgun músanna í
framtíðinni.
Annars binda menn vonir viö
ástralska veturinn, sem fer í
hönd.
Humphrey býr sig undir
forsetaframboð 1972
Hugsar sér Kennedy sem varaforsetaefni
Hubert H. Humphrey, sem tap-
aöi fyrir Nixon í forsetakosningun-
um 1968, hefur nú byrjað baráttu
fyrir framboði í næstu kosningum.
Segja fréttamenn, að hann hugsi
sér Edward Kennedy sem varafor-
setaefrii, ef til kemur.
Humphrey býður sig fram í kosn-
ingum til öldungadeildarinnar í
haust I fylkinu Minnesota, sínu
gamla kjördæmi.
Humphrey telur, að Kennedysé
nú í þann veginn að endurheimta
fyrri hylli eftir slysið í fyrra, og
gefur Humphrey Kennedy hærri
einkunn en flestir aðrir leiðtogar
demókrata gera um þessar mundir.
Humphrev verður þó fyrst aö
vinna sigur f kosningum til öld-
ungadeildarinnar, en hann á víð
ramman reip að draga f haust 1
kjördæmj sínu.