Vísir - 02.04.1970, Síða 4
A V1S IR . Fimmtudagur 2. aj?ríl 1970.
(íBítita í upptöku-
herbergi sjón-
varpsins
Landsflokkaglíman 1970 verður
háð í upptökuherbergi sjónvarpsins
dagana 11., 12. og 13. apríl n. k. og
verður glímunni sjónvarpað beint.
Glímt verður í þrem þyngdar-
flokkum fullorðinna en auk þess
í unglingaflokki, drengjaflokki og
sveinaflokki.
Þátttaka tilkynnist til for-
manns mótsnefndar, Sigurðar Inga-
sonar, pósthólf 997 í síðasta lagi
2. aprfi (í dag).
Glímusamband íslands stendur
fyrir Landsflokkaglímunni að þessu
sinni, en mótsnefndina skipa:
Sigurður Ingason, formaður, Sig-
urður Geirdal. Tryggvi Haraldsson,
Rögnvaidur Gunnlaugsson, Guðm.
Freyr Halldórsson, (Frá Glímusam-
bandi íslands).
Everton /
— en Leeds i erfiðleikum i Evrópubikarnum,
tapaði heima fyrir Celtic i gærkvöldi
EVERTON tryggði sér í
gærkvöldi Englands-
meistaratitilinn í knatt-
spyrnu með 2:0 sigri yf-
ir West Bromwich. —
Þetta er í sjöunda sinn,
sem liðið verður Eng-
landsmeistari, fyrst 1890
þá 1914, 1928, 1932,
1939, 1963, og nú 1970.
Everton hlýtur 63 stig, 9 stig-
um meira en næsta lið, Leeds,
sem v.arð Englandsmeistari í
fyrra og setti þá met hvað varð-
ar stígin, hlaut 67 stig af 84
mögulegum.
Manch. LFnited, Arsenal og
Liverpool hafa ásamt Everton
orðið 7 sinnum Englandsmeist-
arar frá stofnun deildarinnar
1888, en fyrstu Englandsmeist-
ararnir voru Preston North End
og unnu þeir tvö fyrstu árin, en
þá var röðin komin að Everton.
Huddersfield hefur þegar
unnið sér sess að nýju meöal 1.
deildadiðanna í Englandi, 1
fyrrakvöld náði liðið sér í stigið,
sem til þurfti í leik gegn
Middlesborough, leiknum lauk
1:1. Fjórtán ár eru liðin síðan
Huddersfield féll í 2. deild.
Liðiö var á árum áður mjög
sterkt lið, vann 1. deild 1924,
1925 og 1926, þrjú ár í röð, en
i bikarúrslitum lenti liðið fjór-
um sinnum á árunum frá 1920—
1938 en tapaði í öll skiptin i
úrslitaleikjunum.
Huddersfield hefur nú 56 stig
eftir 40 leiki. I öðru sætj i 2.
deild er nú Blackpool með 49
stig. Alex Smith skoraði fyrir
Huddersfield eftir 15 mín. leik,
en John Hickton jafnaði úr víta-
spyrnu 10 mín. síðar.
Ipswich jók mjög líkumar á
að halda velli í 1. deild með
sigri yfir Arsenal i fyrrakvöld.
Ipswich sigraði meö 2:1. Hefur
Ipswich þá 27 stig að loknum
39 leikjum, eða sama og Sout-
I
hampton, sem tapaði 0:4 í fyrra-
kvöld fyrir Coventry. Þrjú lið
eru á þessum tveim á töflunni,
Crystal Palace með 25 stig eftir
40 Ieiki, Sheff. Wed, með 24 stig
og 39 leiki og Sunderland með
23 stig að loknum 39 leikjum.
- JBP -
Celtic vann Leeds í fyrri leik
Iiðanna í undanúrslitum Evrópu-
bikarkeppni meistaraliða f
knatfcspymu í Leeds f gærkvöldi.
George Conelly skoraði eina ,
mark leiksins á fyrstu mínútu
hans.
í Varsjá lauk leik pólska liðs-
ins Legia og Feijenoord frá
Rotterdam með jafntefli, ekkert
mark var skorað. Þessi leikur
var hinn undanúrslitaleikurinn.
51
• Hér fer einn skíöakappanna á skíöalandsmótinu á Siglufirði um síðustu heigi. Það má sjá á
myndinni, að greitt er „ekið“ gegnum hlið svigbrautarinnar, eða kannski hefur hann verið í
bruni og í engu skeytt um hindranir svigbrautarinnar þessi kappi.
ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐIN
OPNUÐ í JÚLl
• S,l. sumar tók íþróttamiðstöð
ÍSÍ að Laugarvatni til starfa.
Rættist þá langþráður draumur
íþróttamanna að elga þess kost að
• Sovétmenn urðu heimsmeistar-
ar í ísknattleik í 10. sinri á
annan í páskum, en til úrslita léku
þeir gegn liði Svía og nægði jafn-
tefli til vinnings. Svo vel gátu Sví
ar þó ekki gert, yfirburðir Sovét-
manna voru algjörir og unnu þeir
3:1.
Sovétmenn hlutu einnig Evrópu-
meisíÆratitil að launum en það er
raunar aðeins formsatriði, en að-
eins Evrópuþjóðir tóku þátt í þess-
ari Keppni í Stokkhólmi, Kanada-
menn tóku ekki þátt að þessu
sinni.
dvelja saman við æfingar og þjálf-
un á stað. þar sem væri ró og frið-
ur og æffngaskllyrði góð. Enda
þótt húsakynnj að Laugarvatni
Sovétríkin fengu 18 stig, Svíar
15, Tékkar 11, Finnland 10, A.-
Þýzkaland 5 og PóIIand með eitt
stig. Tvö þau síöastnefndu fara nið-
ur í b-riðil næstu keppni, sem fer
fram í Sviss, en upp úr þeim riðli
flytjast Bandaríkin og V.-Þýzka-
land.
Áhorfendur í Stokkhólmi fengu
rétt að lykta af stórtíðindunum í
leiknum gegn Rússunum. Lið þeirra
byrjaði vel og skoraðj fyrsta mark
leiksins, en smám saman kom í
Ijós hver hafði töglin og hagldirnar,
Rússar reyndust þeim algjör ofjarl.
væru ekki að fullu tilbúin og tíðar-
farið eins og menn muna eitthvert
það óhagstæðasta, sem komið hef-
ur um margra ára bil, luku allir sem
dvöldu í íþróttamiðstöðinni í fyrra
upp einum munnj um það, hve mik-
ið gagn og ánægja væri að því, að
dvelja þar við æfingar.
Nú er verið að vinna að þvi, að
ljúka við heimavistarbygginguna
og er þess því að vænta að enn bet-
ur geti farið um dvalargesti en var
s.l. sumar.
Ákveðið hefur verið aö starfsemi
I’þróttamiðstöðvarinnar hefjist 12.
júli í sumar, eða strax að lokinni
íþróttahátiö ÍSÍ og síðan veröi
stöðin starfrækt til loka ágúst-
mánaðar.
Forstöðumenn stöðvarinnar f
sumar verða þeir Sigurður Helga-
son, skólastjóri og Höskuldur Goði
Karlsson, forstöðumaður Laugar-
dalshallarinnar.
Allir aðilar að ISÍ, sérsambönd,
héraðssambönd og félög geta sótt
um afnot af Iþróttamiðstöðinni á
tímabilinu 12. júlf—31. ágúst.
Þurfa umsóknir að hafa borizt
íþróttamiðstöðvarnefnd ÍSl fýrir. lok
maimánaðar n.k. ‘ :«• .
Frekari upplýsingar veitir skrif-
stofa ÍSÍ eða formaður íþróttamið-
stöðvarnefndar, Stefán Kristjáns-
son, íþróttafulltrúi.
Heimsmeistarar
í tíunda sinn
Fyrsta bikarkeppni
íshokkímanna
Mótið hófst fimmtudaginn 26.
marz sl. kl. 20 með leik mi’" liðs
vamarliðsins af Keflavikurflug-
velli ,og a-liðs Skautafélags Akur-
eýrar. Fyrri hálfleikur var mjög
spennandi, og kom öllum á óvart
geta vamarliðsins, sem lék mjög
góðan varnarleik. I hálfleik var
staðan 1—0 Akureyri í vil, og var
farið að gæta taugaóstyrks í liði
þeirra. I seinni hálfleik kom fram
í liði Akureyringa maður sem
gjörbreytti stöðunni, og varð um
leið banamaður varnarliðsins, en
piltur þessi var Hermanri Haralds-
son og skoraði hann 3 mörk á
skömmum tíma, en við það breytt-
ist staðan úr 1—0- í 4—0 fyrir Ak-
ureyri, og urðu það lokatölur leiks
ins.
Annar leikur kvöldsins var leik-
ur a-liðs Skautafélags Reykjavíkur
og b-liðs Skautafélags Akureyrar.
Var leikurinn mjög hraður og
spennandi í upphafi, en varð að
hálfgerðum einstefnuakstri hjá
Skautafélagi Reykjavíkur er á
hann leið. Þó var aldrei um upp-
gjöf hjá Akureyringum að ræða,
heldur var munurinn að mestu
leyti í þvl fólginn að þrek Reyk-
víkinganna var svo miklu meira.
Úrslit leiksins urðu 7—1 Reyk-
víkingum í vil.
Þriðji leikurinn var á milli b-Iiðs
Skautafélags Reykjavíkur og liðs
varnarliðsins, og er óhætt að segja
að það hafi verið einn lélegasti leík
ur kvöldsins af hálfu Reykvíkinga.
Leikurinn var alltaf jafn og gat allt
gerzt, þar til leikurinn var flaut-
aður af. Varnarliðsrrienn unnu þenn
an leik 4—0, og var leitt að sjá að
hinn annars góði skotmaður Kristj
án Tryggvason var ekki í essinu
sínu, enda oft gróflega hindraður.
Varnarliðsmenn sáu fljótt varnar-
galla Reykjavíkurliðsins, eða rétt-
ara sagt fundu fljótt leiðina í mark
Reykvíkinga, en hún var sú að
taka hinn harða varnarmann Reyk
víkinga, Bjöm Ámason, úr ir- "•'rð
og skjóta uppi á markvörð Reykja
vfkur, en hann virðist eingöngu
geta varið niðri. Ungur maður,
Steinn Steinsen, sýndi og mjög góð
an leik, og má mikils af honum
vænta í framtíðinni.
Fjórði leikur kvöldsins var svo
á milli a-liðs og b-liðs Akureyrar,
og var hann mjög spennandi í byrj
un, en i hálfleik var staðan 3—1,
og höfðu b-Iiðsmenn verið f>.,i til
að skora .En í síðari hálfleik komu
yfirburðir a-Iiðsins í ljós með bet-
ur útfærðum leik og sterkari vöm,
enda unnu þeir leikinn 4—1, og
voru vel að sigrinum komnir, þvi
að þegar b-liðið hafði tapað for-
skoti sínu og var orðið undir, þá
hreinlega nennti það ekki meiru.
Síðasti leikur kvöldsins var svo
á milli a-liðs og b-liðs Reykjavikur.
Strax í upphafi voni b-Iiðsmenn
mjög kröftugir, og var augsýni-
legt, að þeir ætluðu ekki aö gefa
hlut sinn fyrr en i fullá hnef-
ana. Það má segja að „slagskot"
þeirra Sveins og Rúnars í a-liðinu
hafi bjargað leiknum fyrir liðið. Nú
sýndi líka Kristján Tryggvason að
hann getur skorað mörk, hvort
sem er af löngu færi eða stuttu,
enda vom þeir hættulegir í sókn
fyrir b-liðj hann og Steinn Stein-
sen. I vöminni stóð Bjöm sig vel.
Andrés Sigurðsson kom iíla út úr
þessum leik, en hann lék f vöm
a-Iiðsins. Tvisvar sinnum missti
hann menn inn fyrir sig og f bæði
skiptin varð mark úr því. Einnig
komst hann tvisvar sinnum einn
upp, en í bæði skiptin lét hann
verja hjá sér, enda skaut hann
niðri á Ólaf Björgvinsson, sem stóð
sig sæmilega í marki b-liðsins.
Beztir í b-liðinu vom þeir Kristj-
án, Biörn, Steinn og ÓÍafur í mark *
inu, en hann ver vel niðri vfð fs-
inn. en missir helzt til mörg skot'
inn uppi, enda hættir honum um»
of til að leggjast á hnén. I a-
líðinu voru þeir Rúnar, sem skoraði
2 mörk og Sveinn með 4 myrk
beztir ásamt beim Hannesi og Sig
urjóni. Þó var áberandi í þessum
leik of mikil harka. Leiknum lauk
6— n fyrir a-liðiö. -ex-
AFGRfiDSLÁ
ABALStRÆTl S
SÍMI M6-ÓO