Vísir - 02.04.1970, Side 5
V 1SIR . Fimmtudagur 2. apríl 1970.
5
Átta íslenzkir
framleiðendur
sýna í Khöfn
n Átta fslenzkir húsgagnafram-
leiöendur taka þátt í húsgagna-
kaupstefnu sem verður haldin dag
ana 8.—10. maí í Kaupmanna-
höfn. Islenzku framleiðen.durnir
sýna bæði nýjar og eldri gerðir
framleiðslu sinnar.
j£ Fyrirtækin, sem taka þátt- 1
kaupstefnunni eru: Kristján Sig-
geirson, Trésmiðjan Víðir, Tré-
smiðja Kaupfélags Árnesinga, Stál
iöjan í Kópavogi, Model-húsgögn,
Nývirki hf., Hansa hf. og Trésmiðj-
an Kvistur.
H íslenzk húsgögn hafa ekki ver
ið á sýningum eða kaupstefnum um
árabil. —SB—
Harður árekstur
© Haröur árekstur varö á mánu-
dag á gatnamótum Miklubrautar og
Háaleitisbraútar, þegar bifreið, sem
ekiö var norður Háaleitisbraut, var
beygt til vinstri inn á Miklu-
braut í veg fyrir bifreið, sem kom
úr gagnstæðri átt eftir Háaleitis-
braut á töluverðum hraða.
Bifreiðinni, sem beygt, var inn
á Miklubrautina, ók kona og slapp
hún án meiðsla, en farþegi með
henni, önnur kona skarst á hné og
á enni. Ökumaður hinnar bifreiðar
innar slapp einnig án meiðsla, en
í bifreiðinni með honum var 5 ára
drengur, og var hann fluttur á slysa
varðstofuna, en meiðsli hans reynd
ust smávægileg.
Báðar bifreiðirnar skemmdust
mjög mikið og varð að draga þær
með kranabíl af staðnum. —GP—
Hætta að seEja
tóbak ti! Sslands
Philip Morris tóbaksfyrirtækið
hefur nýlega stöövað allar tóbaks
sendingar til f'íJands að sinni. Jón
Kjartansson ft tstjóri ÁTVR sagði
í viðtali við bWSið að sú ályktun
væri dregin af þessu, að fyrirtækið
heföi hætt að selja framleiðslu sína
hingað vegna viövörunarmiðanna,
sem eru nú settir á alla sígarettu-
pakka.
Meðal þess tóbaks, sem Philip
Morris hefur selt hingað, eru síga-
rettumar Roy, Philip Morris, Marl-
boro og Parliament. —SB—
AUGLÝSINGAR
AÐALSTRyfTI 8
SÍMAR 1*16-60
1-56*10 og 1-50-99
Brotizt inn i
Heilsuverndar-
stöðina
© Brotizt var inn í Heilsuvemdar
stöðina á föstudaginn langa og
hafði greinilega af verksummerkj
um að dæma verið gerð þar mikil
leit að peningum og verðmætum, en
þjófarnir höfðu á brott meö sér á-
vísun, sem var að upphæð kr. 3500.
Enginn varð þjófanna var, en þeir
höföu slitið 5 síma úr sambandi lik
lega til þess að koma í veg fyrir, að
boöum yrði komið til lögreglunnar,
ef þeir yrðu staðnir að verki.
Nokkur sprautuefnisglös höfðu
þjófarnir brotið, en annars engu
spillt nema þá með sóðaskap sín-
um, þvi að sums staðar helltu þeir
innihaldi úr glösunum og óhreink
uðu gólf. Flesta skápa og skúffur
höfðu þjófarnir opnaö í leitinni, en
einskis var saknað utan ávísunar-
innar —GP—
HANN JOHN HEITIR
I
• Margir voru látnir hlaupa
apríl í gær að venju. Vísis-
fréttin um komu John Lenn-
on vakti mikla athygli og jafn
vel lof, enda þótt menn hafi
látið gabbast. Margir töldu
að myndirnar af Lennon
væru klipptar til og falsaðar
þannig en þannig Iá þó ekki
í málinu.
Við leituðum til Jóns Gunnars
sonar, ungs leikara, sem kunnur
er ekki hvað sízt úr fjölmörgum
auglvsinguin í sjónvarpinu. —
Hann féllst strax á að gerast
hinn vinsæli John Lennon um
stund.
Við fengum að láni stfítu 513
á Sögu, og þar hagræddi Jón
skeggi, sem fengið var aö
láni, en gleraugu feng-
um við af Lennon-gerðinni
JÓN
hjá Jóhanni Sófussyni, gler-
augnasérfræðiogi í Kirkjuhvoli,
en hjá Sportver á Laugaveginum
fengum við að láni danska Berry
sportskyrtu.
Bæði gleraugun og sportskyrt
an reyndust nákvæmlega eins
og fyrirmynd okkar að átrúnað
argoöinu mikla, John Lennon.
Jón Gunnarsson revndist og
hafa til að bera mikla Iagni til
að koma sér upp Lennon-skeggi
eftir fyrirmyndinni og eftir
vandasamt verk var haldið upp í
grill hótelsins, þar sem „Lenn-
on“ og Gunnar Þórðarson, hinn
góðkunni lagasmiður og hljóð-
færaleikari skeggræddu um
söngleikinn væntanlega.
í baksýn voru reyndar þrír
herrar, en ekki lífverðir heldur
einn af þingmönnum framsókn-
arflokksins og kunningjar hans
tveir, sem veittu víst engu ó-
venjulegu athygli i salnum.
Á neðri myndinni á baksíð-
unni í gær var aftur á móti ný-
leg mynd af Lennon og Yoko
Ono. Má af henni marka hversu
ótrúlega líkur Jón varð nafna
sínum hinum enska.
Útvarpið gabbaði hlustendur
sína með bragði, sem lesendur
Vísis kannast sjálfsagt við frá
því fyrir nokkrum árum, kirkju
turni á Skólavörðuhæð, sem
Frakkar voru að skjóta á loft. í
Tímanum var greint frá miklum
samningum íslendinga við
Bandaríkjamenn þess efnis að
íslendingar seldu mikið magn af
Gvendarbrunnavatni til New
York. í Morgunblaðinu og Þjóð
viljanum virtist ekki um gabb
að ræða að þessu sinni. —JBP
Hvar næst P
Hver næst ?
verður mánudaginn
Vinningar gera hvorki mannamun né staðarmun. Gleymið ekki að
endurnýja. Síðustu forvöð fyrir hádegi dráttardags. Happdrætti SÍBS
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm