Vísir - 15.08.1970, Side 8
8
VT'STR . Laugardagur 15. ágúst 1970.
Útgefan ls Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R Eyjólfsson
Ritstjóri ■ Jónas KristjánssoD
Fréttastjóri; Jón Birgir Pétursson
Ritstjómarfulltrúi Valdimai H. Jóhannesson
Auglýsingar; Bröttugötu 3b Símai 15610 11660
Afgreiðsla Bröttugötu 3b Sími 11660
Ritstión- Laugavegi 178 Simi 11660 Í5 Ifnur)
Áskriftargjald ki 165.00 á mánuöi innanlands
I lausasölu kr. 10.00 eintakið
Prentsmiflja Vfsis — Edda hf.
I sismsasmmmaimammtmmmmmmmmmummtmmmmmmaBmmmammmmmmmm
Mengun umhverfisins
Frá því var sagt í blaði hér á dögunum, að hin óskap-
lega mengun í Bandaríkjunum sé farin að vekja slík-
an ótta og óhugnað, að veruleg brögð séu nú orðin
að því, að Evrópumenn, sem hafa starfað þar á und-
anförnum árum, snúi heim eða áformi að gera það.
Þetta er enn mun skárra í Evrópu, en þó langt frá því
að vera gott sums staðar, t. d. í mörgum stórborg-
unum. En það er ekki aðeins andrúmsloftið, sem er
eitrað og mannlífið eitt í hættu, heldur hefur sums
staðar verið eitrað svo fyrir fiska og dýr, að við út-
rýmingu liggur, ekki sízt Þskanna í ám og vötnum.
Fiskur er orðinn óætur í mörgum vötnum í Banda-
ríkjunum.
Margir vita hvernig sumar ensku árnar hafa ver-
ið leiknar, og ómengaðar veiðiár eru varla til á hnett-
inum nema á íslandi og ef til vil) írlandi og Noregi.
Fyrir nokkrum árum gerðist það í Danmörku, að
útrennsli frá pappaverksmiðju steindrap allt líf í á
einni á Suður-Jótlandi. Þá kom það fyrir í Norður-
-Svíþjóð í vor, að þar drápust tvö hundruð og fimmtíú
hreindýr af eitri, sem sprautað hafði verið á kjarr til
þess að deyða laufið. Svipaðar sögur eru eflaust til
frá mörgum stöðum, en þessar nægja til þess að sýna
hvert stefnir, ef ekki verður farið að spyrna við fót-
um og gæta sín vel. Við erum t. d. margir hálfhrædd-
ir um að svipuð örlög geti beðið Elliðaánna og ár-
innar á Suður-Jótlandi, ef ekki verður verið vel á
verði gegn þeim mörgu hættum, sem óneitanlega
steðja að þessum dýrgrip borgarinnar.
Þá er mengun sjávarins orðin mönnum ærið
áhyggjuefni. í marzmánuði s.l. vetur var haldin ráð-
stefna við lagadeild Columbía-háskólans í New York,
þar sem saman voru komnir mjög margir sérfræð-
ingar í ýmsum greinum, enda vakti þessi fundur
mikla athygli í Bandaríkjunum og víðar. Gunnar G.
Schram, deíidarstjóri í ntanríkisráðuneytinu og fyrrv.
ritstjóri Vísis, flutti þama ræöu, sem vakti mikla
athygli og fjallaði aðallega um mengun hafsins. Sagði
hann m. a., að allar þjóðir heims yrðu að taka hönd-
um saman til að afstýra þeim voða, sem yfirvofandi
væri, ef ekki yrði snúizt fljótt til varnar, og að nauð-
synlegt væri að stofna alþjóðanefnd til að samræma
aðgerðir í þessu skyni.
Hér er verkefni, sem ætla mætti að Sameinuðu
þjóðirnar ættu að láta til sín taka. Það hefur að sönnu
eitthvað borið þar á góma fyrir skömmu og ekki
vonum fyrr. En það þarf meira til í þessu máli en
velta vöngum yfir því í sölum Sameinuðu þjóðanna.
Hér þarf raunhæfar aðgerðir og að hefjast strax
handa. Vonandi er það góður fyrirboði, að svona til-
lögur og ábendingar skyldu koma frá okkar fulltrúa
— fyrirboði þess að þjóðin öll muni senn vakna til
fullrar vitundar um skyldur gagnvart eigin landi,
lofti og legi.
Persar reyna að efla a
stöðu sína við Persaflóann
— krefjast brottflutnings brezka herliðsins fyrir árið 1971
EITT fyrsta verk nýju íhalds-
stjórnarinnar í London eftir
kosningar í vor, var að lýsa
því yfir að ákvörðun Wil-
sons, fyrrum forsætisráð-
herra, að draga brezka her-
liðið vii’. Persaflóa í burtu það
an, yrði endurskoðuð.
Forsætisráðherra Irans,
Hoveida, * svaraði stjórn
Heaths þegar og sagði að
Bretar skyldu skilyrðislaust
vera farnir með hvern ein-
asta hermann frá Persaflóa
ekki seinna en 1971.
Öryggi landanna á svæð-
inu viö Persaflóa verður að
vera í höndum ríkjanna við
flóann og „við getum ekki
leyft íhlutun af neinu tagi
frá utanaðkomandi aðilum“,
sagði Hoveida forsætisráð-
herra.
Persar hafa mikinn áhuga á
flóanum. Fyrst og fremst er
hann eini aögangurinn sem þeir
hafa að heimshöfunum og um
flóann sigla öll olíuflutningaskip
þau er eiga að sækja til olíu
landanna í Arabíu Um Persa-
flóa sigla og skip þau er sækja
útflutningsvörur til hafnanna i
Bandar Abbas, Mah Car og
Khark. Við botn flóans er
stærsta olíuborunarstöð Persa.
l*ersar éfla aðstöðu sina
Síðustu mánuöi hafa Persar
því hrundið af stað öflugum á-
róðri gegn brezku stjórninni þar
eystra, jafnframt sem samn-
ingaviðræður um ítök Bretanna
við Persaflóa eru hafnar. Keis-
arinn hefur meira að segja sjálf
ur rætt við brezka utanríkisráð
herrann, Sir Alec Douglas-Home
í Belgíu og stóð keisarinn á þeim
fundi fast á kröfu Persa um
brotthvarf brezka herliösins fyr
ir 1971.
Zahedi, utanríkisráðherra
Persa hefur svo verið á samn-
ingafundum með ráðamönnum
smáríkjanna við Persaflóa og
farið þess á leit við þau, að
þau standi með Persum um kröf
una um brottflutninginn. Zahedi
náði góðum árangri f þessum
viöræðum, og má nú segja að
öll smáríkin við flóann styðji
kröfur Persa. a.m.k. í orði.
Mörg smáríki við Persaflóa
voru samstarfsfús við þennan
stóra bróður við flóann, enda
buðu Persar öllum ríkjunum,
sem undantekningarlaust eiga
við efnahagsvandamál að stríða,
fjárhagsaðstoð við uppbyggingu
og ef til vill hemaðaraðstoð ef
á þarf aö halda.
í samanburði við smáríkin þar
við Persaflóa, em Persar stór-
veldi. Persía telur samtals 28
milljónir íbúa, en öll hin ríkin
telja ekki nema 12 milljónir
samanlagt.
EfnahagsaðstoS
Vitað er að mörg smáríkjanna
við Persaflóann em hrædd við
yfirgang Persa og vilja mörg
hver ekki ganga til náins sam-
starfs við þá á sviði hemaðar,
en það er Persum hins vegar
mjög svo áriðandi að geta
byggt upp öflugt vamarkerfi
við flóann af þeim sökum að
bæði Bretar og Bandarfkjamenn
eiga mikilla hagsmuna að gæta
vegna olíufyrirtækja sinna á
þessum slóðum og munu tæpast
samþykkja, að brezka her-
liðiö verði kallað heim ef ekk-
ert kemur f staðinn.
Því er það að Persar leggja
áherzlu á að lokka smárfkin til
sfn með því að heita þeim efna-
hagsaöstoö, gegn því að fá aö-
stöðu til að efla hervamir.
Saudi-Arabía
tryggastur bandamaður
Umleitanir Persa haía fengið
hvað mestan hljómgmnn f Saudf
Arabíu og viröist vera þar mik-
ill áhugi á að halda Persaflóan-
um hreinum fyrir útlendingum,
jafnframt kemur til sögunnar
sameiginlegur áhugi á að halda
niðri byltingaröflum sem hætta
stafar af f Arabíu. Þannig get-
ur svo farið að þama verði
myndað hemaðar- og efnahags-
bandalag Persaflóaríkjanna og
hafa Persar mestan áhuga á
Saudi-Arabiu f því tilliti. Stjóm
in f Teheran hefur minni áhuga
á Kuwait, því þar hafa verið
mikil vandræði að undanfömu
vegna byltingarhreyfinga og
deilumál er nú uppi með þessu
olíurfki og írak.
Hvað snertir hið litla fursta-
dæmi Bahrein, þá halda Persar
Umsjón: Gunnar Gunnarsson.
að sér höndum, því þar er á-
stand allt mjög óljóst. Þjóðin
hefur nýlega með yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða óskað eftir
sjálfstæði, en jafnframt eru þar
íraskir þjóðernissinnar uppi-
vöðslusamir.
Landamæradeilur
Eflaust veröur erfiöast fyrir
Teheran-stjómina að eiga við
Baath-stjómina í írak, enda
hafa þessar tvær þjóðir lengst
af átt í erjum vegna landamær-
anna við Shatt-el-Arato, en viö
landamærin liggja miklar olíu-
miðstöðvar. Þau landamæri eru
alls ekki á réttum stað eftir
persneskum skilningi og sömu-
leiðis eftir alþjóðlegum venj- ’
um. Einstalka íraskur leiðtogi
hefur að vísu veriö tilbúinn aö '
semja um þessi landamæri, en 1
til þess kemur eflaust ekki í .■
bráö, meðan Baath-stjómin er^
við lýði, enda lá við strfði milli .
nágranna í fyrra vegna þessara ,
landamæra. Báðar þjóöir standa
nú dyggan vörö um landamærin ■
og em herlið beggja aöila grá '
fyrir jámum tilbúin að hlýða
kalli. Og nú er það fleira en .
landamærin sem grannarnir bft
ast um. írak er það lífsnauösyn
að hafa greiðan aðgang að hafi
um Persaflóann, en ef Persum .
tekst að ná verulegum ítökum
í smáríkjunum vestan megin
við hann er viöbúið að þeir geti
hótað að loka allri umferð íraks ■
manna um hann. Þannig styður
Baath-stjórnin bvltingarhreyf-
ingar í smáríkjunum gegn sam
einingarstefnu Persa og rekur
víðtækan áróður á þessum slóð
um um „samsæri heimsvalda-
sinna“ f Austurlöndum nær, þ.
e. Persa og Bandarikjamanna.
Sem stendur hafa Persar þvi
mestar áhyggjur af byltingar-
hreyfingum sem nú eru ærið'
framkvæmdasamar sunnan meg
in við flóann og eru studdar af
Egyptalandi og írak og/eða
Bretum.
Áhugi Rússa vakinn
Þannig er ástandiö að verða -
mjög viðsjárvert þar suður frá,.
og ekki veröur málið einfaldara
við það, að Rússar eru farnir
að gefa deilunni þarna meiri og .
meiri gaum. Það er gamall rúss
neskur daumur að opna sér leið
í suöurátt til „heitu landannr."
og fá örugga siglingaleið út á
Indlandshaf. Fyrsta hreyf ;n«
þeirra í þá átt að hagnýta sér
deiluna þarna, er að styöia bvlt
ingaröfl andsnúin Bretum. Oc
nái Sovét einhverjum ítökum
að marki við Persaflóann hafa
þeir stórbætt taflstöðu sína
gagnvart Kfnverjum og geta
reist Bandarfkjunum níðstöng í
Asíu.