Vísir - 21.08.1970, Blaðsíða 16
Þar hugsa allir um að
stækka, breyta og bæta
Veruleg framleiðsluaukning hjá verksmiðjum
SIS á Akureyri i fyrra og i ár
VISIR
Föstudagur 21. ágúst 1970.
\--------------------------
Gripnir v/ð
innbrotin
Þrír ungir menn voru staðnir að
íinnbmti i fyrrinótt í málmsteypu-
1 verkstaeði við Laugamesveg. Hand-
i tók lögreglan piltana alla á staðn-
. um, en þeir viðurkenndu. að þeir
i hefðu ætlað að stela kopar.
Og I nótt voru aftur tveir ungir
j menn (um tvítugt) staðnir að til-
. raun til innbrots og þjófnaðar í
j verkötæðisskúr við Kirkjusand.
'Ætluðu þeir að stela verkfærum.
- GP
Kæran á
Barnaverndaráð
í athugun
!• Enn hetur ekkl veriö ákveðið,
hvort af opinberri rannsókn
jverði á afgreiðslu Barnavemdar-
ráðs á máli konunnar, sem kærði
,‘ráðið fyrir að þvinga sig til þess
iað afsala sér rðttindum yfir einu
jbama sinna, eins og vagt var frá f
;Vfsi í vikunni.
Beiðni konunnar um rannsókn
■ og upptöku málsins á nýjan leik
imeð nýju Bamavemdarráði var
■ send sakadómi Reykjavfkur, sem
jsíðan sendi embætti saksóknara
ríkisins beiðnina tii athugunar og
1 ákvörðunar.
Hjá embætti saksóknara fékk
J blaðið þær upplýsingar, að síðan
I hefði tími farið til þe$s að afla
!gagna hjá Bamavemdarráði og í
i bið meðan kærandi hefur kynnt sér
i þessi gögn — með þvl að ef hann
; kynni hugsanlega að óska að draga
: kæru sína til baka, að þeirri athug
tun lokinni. Er nú þess beðið, að
konan eða málfiytjandi hennar láti
í i ljós, einhvem næsta daginn, hvort
* þau halda fast við kæmna á Bama
vemdarráð. — GP
■ Þrátt fyrir brunann mikla
á Akureyri í ársbyrjun
1969, þegar verksmiðjuhús
Iðunnar brunnu, hefur orðið
mikil framleiðsluaukning hjá
iðnfyrirtækjunum á Oddeyr-
inni. Kom þetta fram í ræðu
Erlends Einarssonar, for-
stjóra SlS í gærmorgun, er
hann setti iðnstefnu sam-
vinnufélaganna, sem opin
verður fram yfir helgina.
Kvað Erlendur heildarsölu
Iðnaðardeildar SÍS hafa orðið
472 milljónir króna 1969 og
hafi hún aukizt um 140 milljón
ir króna frá árinu áður eða um
42,17%.
Sama þróunin virðist ætla að
verða i ár, fyrstu 6 mánuðina
hefur oröið veruleg framleiðslu
aukning í verksmiðjum og sölu
verðmæti Sambawdsverksmiðj-
anna, þar með taldar Efnaverk-
smiðjan Sjöfn og Kaffibrennsla
Akureyrar, sem eru sameign
SlS og KEA, var samtals
257,5 milljónir í júnílok, aukn-
ingin var 67,5 milljónir miðað
við sama tíma árið á undan.
1 viðtölum við hina ýmsu verk
smiðjustjóra í gær kom það
fram að þeir eru allir mjög
bjartsýnir á framtíðina, — yfir
leitt er rætt um stórfelldar end
urbætur á vélakosti, og stækk-
anir á verksmiðjuhúsnæði.
Mest sala fyrri hluta ársins
varð hjá ullarverksm. Gefjun,
74,4 milljónir króna, sem er
30% aukning, en mesta aukn-
ingin varð hjá Iðunni, eða
662% aukning, salan 1969 varð
aðeins 221 þúsund krónur, en
fyrstu 6 mánuðina í ár
14,8 milljónrr, sem stafar af því
að framleiðslan lá niðri eftir
brunann mest allt árið. Sútunin
hefur aukið söluna um 85% á
þessu tímabili, en hjá Heklu,
Sjöfn, Kaffibrennslu Akureyrar
og fataverksm. Gefjun er alls
staðar um aukningu að ræða,
einhvers staðar nálægt 20%
Sama er um verksmiðjur KEA
að segja, þ.e. kjötiðnaðarstöð-
ina, efnagerðina og smjörlíkis
geröina. ‘
Af heildarsöluverðinu fóru (
um 60% til Sovétríkjanna. Um
60% af útflutningnum, sem i
nam 119 milljónum í fyrra, fór \
til Sovétríkjanna, 14% til i
Bandaríkjanna og 26% til Vest ■
ur-Evrópulanda. ;
Ullar- og skinnavörur eru að- ■
aluppistaðan i iðnaði SÍS, enda !
voru verksmiðjurnar á Akur- !
eyri upphaflega stofnaðar til að
færa bændum hærra verð fyrir
afurðir sínar. Nú mun helming-
ur gæranna á hverju ári flutt-
ur út óunninn, þ.e. saltaðar, en
úr helmingnum er unnið hér
heima og minnkar útflutningur
á söltuöum gærum óðfluga með
hverju árinu. — JBP
1
•)
;
Skildingaumslag selt til
Svíþjóðar á rúma hálfa millj.
■ Sænskur frímerkjakaup-
maður, er var á ferð hér
á landi fyrir skömmu, keyptl
umslag frímerkt meS skild-
ingamerki á yfir hálfa miilj-
ón ísl. króna og er það mesta
verð, sem nokkru sinni hef-
ur vérið greitt fyrir íslenzkt
frímerki. Umslag þetta var til
sýnis á sínum tíma á frí-
merkjasýningunni f „Veröld
innan veggja“. Það var stfl-
að tii V. Fischers frá Jóni
bónda Eyjólfssyni á Ökrum.
Elgandi þessa dýra umslags
var dánarbú Einars heitins
Það lætur ekki miklð yfir sér þetta 97 ára gamia umslag
með einu litlu skildingamerki. Það er þó að verðgildi hálft
fbúðarverð í Stór-Reykjavfk.
Tómassonar, fyrrum kola- 7
kaupmanns. t
Það er Frímerkjamiðstöðin 1
Reykjavík sem sá um sölu á
umslagmu.
Þetita er 21. ski'ldingaumsilagið
sem finnst og kom í leitimar í
vor. Bréfið er skrifað á fódfó-
örk. Hún er sfðan brotin saman
þannig að hún myndar einnig
umslag utanum. Bréfið er síðan í
stimplað i Hjarðarholti og frí- 7
merkt með rauöu 4ra skildinga \
merki 23. júlf 1873. i
Bréfið er hins vegar skrifað í
13. júlí og er Jón á Ökrum að i
biðja Fischer kaupmann fyrir /
Helga son sinn en hann er faðir )
Sæmundar Helgasonar, sem 1
lengi vann hjá póststjóminni í i
Reykjavík. /
Eflaust hefur Jón á Ökrum 1
ekkd órað fyrir því, að þetta bréf 7
hans ætti efltir að verða svona j
verðmætt tæpum hundrað árum i
síðar. í
Aðeins örfá skildingaumslög /
eru nú til hér á landi, þar af eru 7
tvö i Þjóðminjasafni. Umslög ^
þessi hafa selzt mjög dýru verði f
ytra, allt upp [ 700 þúsund kr.. /
en þetta er hæsta verð, sem 7
fengizt hefur fyrir slíkt umslag \
hér á landi. - JH (
Nýtt dagheimiii fyrir
vangefin börn
Styrktarfélag vangefinna byggir við Stj'órnugráf
9 „Mikill skortur er á hæl-
isrými fyrir vangefin
börn,“ sagði Torfi Tómasson,
framkvæmdastjóri Styrktar-
félags vangefinna, Vfsi í
morgun. Styrktarfélagið er
nú byggja nýtt dagheimili
fyrir vangefin börn og rís
heimilið við Stjörnugróf.
Heimilið verður svipað að
stærð og dagheimilið Lyngás við
Safamýri, sem félagið rekur, en
brýn þörf var á öðru dagheimili,
þar sem heimilið við Safamýri
hefir orðið að blaupa undir
bagga með fölki sem ekki kem-
ur börnum sínum á hæli. Þannig
sagðj Torfi að mörg böm, sem
nauðsynlega þyrftu að vera á
hæli, böm sem væru allt að þvi
örvitar, fengju að vera á dag-
heimilum með bömum, sem
væru tiltölulega lítið vangefin.
Nýja heimilið við Stjömugróf j
er dýrt tæki. Sagði Torfi að
allar fjárhagsáætlanir hefðu far-
ið úr skoröum, en bjóst við að
kostnaður yrði um 18 milljónir.
Húsið er 850 fermetrar að fllat-
armáli og einlyft, en kjallari
verður undir 137 fermetmm
hússins.
Styrktarfélag vangefinna hef- i
ir sjáWt aflað alls fjár til byp>g-
ingarinnar með merkjasölu og ]
happdrætti, en eitthvað hafa þó
einstaklingar gefið.
Framkvæmdir hófust f júní '
1969 við grunninn, en ekki
komst verulegur skriður á bygg-
inguna fyrr en eftir verkfallið í
vor. Vonaðist Torfi eftir að !
heimilið gæti tekið til starfa
einhvem tíma á næsta ári.
— GG
Skuttogarinn kemut tii
Sigíufjarðar um helgina
★ Fyrsti stóri skuttogarinn sem
Islendingar eignast lagðj af
stað frá Bremerhaven i fyrradag og
er væntanlegur til Siglufjarðar um
helgina. Siglfirðingar munu þá eiga
einu skuttogarana á landinu, en
þeir keyptu á sinum tírna Siglfirð-
ing, eina skipið til skamms tíma,
sem hér hefur verið búið skuttogi.
Dagný SI 70 er 550 tonna skip
frá Þýzkalandi keypt i Hamborg
á 50 milljónir. Eigandi er Togskip.
h.f. á Siglufirðt, en skipstjóri verð-
ur Kristján Rögnvaldsson, sem áð-
ur var með Margréti SI.
Siglfirðingar eru orðnir dálítið
langeygir eftir að sjá þetta skip.
bætast i flotann, en byrjað var að'
tala um að bað kæmi til landsins;
fyrir kosningar. — JH'
-'Wí*