Vísir - 15.09.1970, Side 16
I
y
Þrir á sflysavarð-
stofu efftir árekstur
Harður árekstur varð á gatnamót-
um Kleppsvegar og Dalbrautar í
gærkvöldi um kl. 20, þegar tveir
fólksbílar rákust á. Bílarnir, sem
óku eftir Kleppsvegi, mættust við
Dalbraut, en þá var öðrum beygt
til vinstri í áttina að Dalbraut.
Rakst hann þá á vinstra fram-
bretti og hurð bíisins, sem kom
vestan Kleppsveg, og varð af harð-
ur skellur. Einn farþegi var i öðr-
um bílnum með ökumanni, en allir
hrír, ökumennirnir báðir og farþeg-
inn, voru fluttir á slysavarðstofu.
Þeir voru þó ekki taldir alvarlega
slasaðir. — GP
,Bara fjórar stelpur, sem
lentu í þessu af tilviljun"
stúlkurnar fjórar fá oð fara úr sóttkvmni i dag
0 Þær voru farnar að
hlakka mikið til þess í
morgun að sleppa úr
prísundinni stöllurnar í
sóttkvínni á Vífilsstöð-
um. Þaðan fá þær að
fara í dag.
„Við erum samt ekki aiveg
lausar ennþá“ sagði ein þeirra,
Sigrún Sigurðardóttir, f viðtali
við blaðið í morgun, „við þuri-
um að mæta í tvo daga, mið-
vikudag og fimmtudag, í lækn-
isskoðun, svo að það verði pott
þétt, að við göngum ekki með
smit“.
Sigrún var farin að hlakka
mikið til að losna úr einangr-
uninni. „Ég var komin í kápuna
í morgun". Stöllunum hefur liö-
ið ágætlega þessa daga, sem
þær hafa dvalizt I sóttkvínni, en
þeim þykir súrt í broti að hafa
ekkj getað verið úti. „Það hef-
ur verið svo gott veður. Það er
srvo mikil víöátta hér, þegar
ldtið er út um gluggana, að
mann langar út“ segir Sigrún.
Svo harma þær það, að þær eru
búnar að missa brúna litinn, sem
þær fengu í Danmörku.
Sigrún vonast til að sleppa
við mikið umstang, þegar sótt-
kvím verður kvödd klukkan
eitt í dag. Hún segist bara ætla
að fá eina vinkonu til aö taka
á móti sér og kannski ættingj-
ana. „Ég vona að það verði ekki
stórfenglegt eins og verið sé að
hleypa út einhverju merkilegu.
Það hefur ekkert gerzt, við er-
um bara fjórar stelpur, sem
ientu f þessu af tilviljun".
— SB
Byrjað að setja skýlin
niður fyrir veturinn
ægeaaaapgih sggg •. mém fm « mtsmstststetí - -----
Byrja er að koma upp biðskýl-
um SVR fyrir veturinn, þeim sem
tiil eru. í morgun var skýlið á
gamla viðkomustaðnum við Þver-
holt flutt og sett niður á viðkomu-
staðnum við gatnamót Smiðjustígs
og Hverfisgötu Smíði skýlisins,
sem á að koma á Lækjartorg er
langt komin. Verður það sett nið-
ur innan tveggja til fjöguira vikna.
Það verður stærsta skýli strætis-
vagnanna — er reyndar 40 fer-
metra hús.
Eiríkur Ásgeirsson forstjóri SVR
skýrði biaðinu frá þessu i morgun.
Hann sagði ennframur, að um
mánaðamótin verði gerðar breyt-
ingar á tímaáætlunum strætis-
vagnanna. Þessar breytingar verða
ekki miklar örlitlar breytingar á
tíðni en engar umtaisverðar leiða-
breytingar. — Breytingarnar eru
framkvæmdar vegna þess hve
vagnakostur SVR rýmaði vegna
brunans í sumar og einnig vegna
fenginnar reynslu á tímasetningu
ýmissa ieiða. Þessar breytingar
verða þó ekki endanlegar. — SB
Hringbraut í morgun
Árekstur varð á gatnamótum
Laufásvegar og Hringbrautar um
kl. 9 í morgun, þegar Skoda-bifreið,
sem ók eftir Laufásveginum og
hafðj stöðvunarskyldu að gæta á
gatnamótunum, var ekið yfir Hring
braut í veg fyrir Saab-bifreið, er
ók vestur Hringbarut.
Rakst Saab-bílllinn á framenda
Skodans og hrökk af honum upp
á eyjuna sem skilur að akbraut-
imar á Hrinigbrautinni.
Engin meiðsli urðu á fólki, og
ekki heldur í tveim árekstrum öðr-
um, sem urðu á Hringbraut i
morgun — annar við gatnamót
Njarðargötu og hinn við Mikla- j
NÝJA
— 17-l8°/o hækkun
Nýja kjötverðið tekur gildj í dag.
Verðhækkunin á haustslátraðu
kjöti er 17 — 18%, miðað við verð
í júníbyrjun. Verðhækkun á
slátri og kartöflum er hlutfallslega
meiri þaT sem miðað er við verö
frá 1. marz s.l.
Samkvæmt nýja veröinu kostar
nú kílóið af súpukjötinu, frampart-
ur og síða nú 137,20 krónur kílóið,
en var á 116,30 í júníbyrjun.
: Kílóið af læri kostar nú 155,70
{ krónur en var á 132.30 og kflóið
| af kótilettum 176,80 krónur, en
! var á 150.40 krónur.
> Heilsilátur með sviðnum haus
Þrir árekstrar á
Verið er að smíða stærsta biðskýli SVR, sem verður sett upp á Lækjartorgi.
i Smálækkun á bensíni
upp úr áramótum
j Samningar hafa nú tekizt um kaup
I á olíuvörum frá Sovétríkjunum til
! íslands fyrir um 900 milljónir ís-
j lenzkra króna. Er þar um að ræða
250.000 tonn af gasolíu, 55.000 tonn
af bensíni og 90.000 tonn af fuel-
olíu.
Er þessar olíuvörur verða seldar
út frá olíufélöigunum hér, — sem
gert er ráð fyrir að verði upp úr
áramótum, — kvað Haligrímur Fr.
Hallgrímsson forstj. Skeljungs,
verða einhverja hækkun á fuelolí-
unni, en hins vegar lækkar inn-
kaupsverð bensíns nokkuð.
Gasolían mun ekki '■■ækka í veröi,
, enda urðu um 30G hækkanir á
: henni í júlí og ágúst i sumar, sam-
j fara hækkununum á heimsmarkaðs
I verði gasolíu. — ÞJM
KJÖTVERÐIÐ
miðað VÍð júniverð Iaí fiokks kaitöflum kostar
nú 23.10 krónur, miðað við fimm
kostar nú 127 krónur en var i | kílóa poka, en var £ marz $1. 20
marz s.l. á 103.40 k'rónur. Kílóið i krónur. — SB
Verið að ákveða bætur
til öskufallssvæðanna
Harðærisnefnd er nú að ákveða,
hvað eigi að bæta af tjóninu á
öskufallssvæðunum. Mun ákvörðun
in liggja fyrir einhvern næstu daga,
að sögn Jóns Amalds ráöuneytis-
stjóra. Ríkisstjómin mun byggja
ákvörðun um stuðning við bændur
á ýtarlegum rannsóknum, sem harð
ærisnefnd hefur framkvæmt á svæð
unum.
Forystumenn bændasamtaka hafa
sagt, aö hætt sé við, að fjöldi
bænda verði að hætta búskap, ef
verulegur stuðningur komi ekki
til.
Harðærisnefnd hefur undanfarin
ár kannað skemmdir af völdum
kals og gert tillögur um stuðning
þann, sem bændur hafa fengiö frá
hinu opinbera af þeim sökum. - HH
,Engu hægt að slá
föstu ubh braicicT
— segja fulltrúar Loftferðaeftirlitsins
Á föstudaginn í síðustu viku
fóru menn frá Loftferðaeftirlitinu
austur á Neskaupstað og rannsök
uðu brak úr flugvél sem fannst
við Gerpi. Rannsókn á brakinu
stendur enn yfir, enda næsta erf-
itt að heimfæra brakið upp á ein-
hverja ákveðna flugvélategund.
„Þetta eru bara plötur úr flugvél
arskrokk, og jafnvel þó mann
gruni eitthvað ákveðið, þá er ekki
hægt að slá neinu föstu með þetta
ennþá. Málið er því áfram í rann-
sókn“, sögðu fulltrúar Loftferða-
eftirlitsins í morgun. — GG