Vísir - 20.01.1971, Blaðsíða 9
VT5TK . MiövIRudagur 20. janúar 1971,
9
Þorkell Guðmundsson fisksali hefur komið upp rækjuvinnslu í húsum sínum í stað þess að vinna fisk í soðið fyrir Kefl-
víkinga og er þessi mynd tekin þar í fyrradag.
ÍÍSBSm:
— Eruð þér tekian til
við skattaframtalið?
Leó Jónsison, vélfræðingur:
— Nei. Mig vantar ennþá launa-
seðil eiginkonunnar. Ætli maður
snari sér ekki í framtalið um
helgina.
Guðjón Einarsson, fréttamað-
ur: — Nei, nei, nei. Hverjir ætli
byrji svo sem á því fyrr en á
síðustu stundu?
Verðum að standa á réttí
okkar eins og hundar á roði
— spjallað við fisksala i verkfalli i Keflavik
VIÐ VERÐUM daglega að horfa á eftir ýsunni upp
úr bátunum hérna inn í Reykjavík, án þess að fá
nokkuð af henni sjálfir, sögðu Kristinn Helgason og
Þorkell Guðmundsson, fisksalar í Keflavík, þegar
Vísir heimsótti þá í gær.
Keflvíkingar hafa ekki fengið fisk í soðið í heila
viku, nema þá þeir sem eiga kunningja á bátunum.
Fiskbúðirnar hafa verið lokaðar í viku og hefur
fiskur verið af skornum skammti raunar síðan um
áramót, til dæmis mjög erfitt að fá ýsu.
— Ég er að hugsa um að opna
fiskbúðina aldrei aftur, því að
ég hef eklci trú á að þetta lagist
svo að viðunandi verði, sagöi
Kristinn. Ég er búinn að vera
við þetta í 27 ár og það hefur
aldrei verið svona erfitt að
verzla meö fisk. Þaö er ekki
nóg með að álagningin sé lág,
heidur er einnig erfitt að fá
nokkum fisik. Þessi stóru fisk-
söluifyrirtæki í Reykjavík kaupa
fiskinn f stórum stíl, kannski
aMa ýsu, sem hér kemur á land
til dæmis og svo selja þeir aft
ur í fiskbúðimar í bænum.
Fólk heldur að þeita
sé slóðaskapur
Það er erfitt að standa innan
við búðarborðiö og hafa ekkert
aimennilegt fyrir viðskiptavin-
ina. Svo heldur fólk að þetta
sé af tómum ónytjungshætti,
maður nenni ekki að sinna
þessu. Og maður fær hara
skömm í hattinn.
— Okkur finnst það fjandi
hart, segir Þorkeli, að eiga að
selja ýsuna á 26.50 kflóið, svo
heyrir maður að þeir séu famir
að selja ýsu í Kaupfélaginu í
Njarðvfkum á 29.50 kr. kílóið,
nákvæmlega sama verði og hún
er seld á i Reykjavfk. öWcu; e?
gerc að selja hausaða ýsu í. 33
kr. en f Reykjavík er hún á 37
og ýsuílökin á 59 kr. en þau
kosta 66 kr. í búðunum á Reykja
vík.
Áíagningin í öfugu hlut-
falli við vlnnuna
Við skulusn taka fyrir verðið
á þorskinum, sem er uppgefið
frá verðlagsstjöra 20 kr. á kíló
með haus, 25 kr. fyrir hausaðan
fisk og 46 kr. fyrir þorskflökin.
Nú við keyptum þorskinn inn
á 15 kr. kílóið. Samkvæmt okkar
útreikningum er kílóið komið
í 18 krónur, þegar búið er að
slægja fiskinn, 22,50 þegar búið
er aö slægja hann og hausa og
45 kr. þegar búið er að flaka
hann. Álagningin á slægðan fisk
er þannig 11,1% en ekki nema
2,2% á flakaðan fisk- Og þá er
ekki talin öl! vinn.m við fiskinn.
Álagningin verður minni, esftir
þvi sem hann er unninn meira.
Það sér hver heilvita maður
hversu öfugsnúið þetta er.
Nú yildi kannski, eiflhyer
halda því fram að við hefðum
þó alltaf eittíhvað upp úr beina-
kastinu. Sannleikurinn er raimar
sá að það, sem við fáum fyrir
beinin nær ekki að bera uppi
bílakostnaðinn.
Fyrir utan þetta er svo reikn
aðmeð 10% rýmun við geymsiu
og þá fer dæmið að vera dálítið
skrýtið. Það væri gaman að
komast að því hjá Söilusamtökun
um SH og SÍS, hvað áætlaður
kostnaður við flökun og pokkun
er miki'lL Ég trúi þvf ekki að
hann sé undir 6 krónum á
hvert kíló.
Sama sagan er með ýsuna og
þorskinn. Alagningin á hana er
22,7% á slægða, 17,8% á slægða
og hausaða og 9,3% á flökin.
Ég rei'kna verðið þanr.ig út að
ég miða við að 1200 kg af
fiski, óslægðum, verði 1000 kg,
þegar búið er að slægja hann og
300 kg þegar búið er að hausa
hann.
Eldd lengar hægt
að ganga í kösina
— Það ar stór hluti af fóJki
í vandræðum nú þegar, sagði
Kristinii. Það eru þegar farnar
að heyrast óánægjuraddir meö
betta. Þegar fiskur fæst ekki á
írjálsum markaði segir það sig
auðvitað sjálft, að það hlýtur
að verða vöntun.
Það er af sem áður var, að
fól'k geti gengið í kösina, þegar
bátarnir eru að Ianda og fengið
sér fisik. Þannig var þetta í mínu
ungdæmi. Þá gat hver sem var
fengið sér f soðið og það var
ekki spurt um verð. Nú er þetta
búið að vera. Þetta er dýr vara
og sjómennimir geta auðvitað
ekki staðið i þvf að vera að af-
greiða fólk með fisk, enda ekki
nein aðstaða til þess.
Ég veit ekki, bvernig þeir
hafaþetta í Reykjaivík, en manni
skilst að það sé ekki í öllum
ti'lfellum farið náikvæmlega eft
ir þessu verði, sem verðlags-
stjóri hefur sett. Og það er auð
vitað bagalegt, þegar einum
líðst að gera þetta og öðmm
hitit. Manni finnst. að hægt væri
að koma þessu í það Jiorf, að
hægt væri að lifa mannsæmandi
lífi á því. Svo yrðum við þá að
standa á þvi eins og hundar á
roði.
Ég er orðinn gamaill I þessu
og þess vegna betur settur með
mitt, en ég er orðinn leiður á
þessu. Veiztu ekki um einhvern
sem vill kaupa?
Það er annað með þá sem em
að fjárfesta í þessu kannski. —
Það getur orðið erfitt fyrir þá
að standa undir slíku með svona
álagningu.
Farinn að vinna rækju
í stað soðningar
Ég hef verið með dálitía
rækjuvinnslu ti'l þess að reyna
að halda þessu uppi, sagði Þor-
feell. Ég hef tekið á móti af ein-
um bát, við erum með nokkrar
konur f vinnu við að piila rækj
una ofan í dósir.
Og það stóð heima, að konum
ar voru að piila úr síðustu kötf-
unum, þegar Vísismenn komu
bakatil í fiskbúðinni hjá Þor-
keli. Stóðu í hvítu við borðin og
pilluðu vigtuðu og settu rækj-
una í dósir. En fiskur handa
Kefivíkingum í soðið hafði hér
ekki komið inn fvrir dyr í viku
Og vogimar og áhöldin f fisk-
búðinni stóðu óhreyfð í myrkr-
inu.
Líklega endar þetta með því að
þeir Kefivíkingar verða að elta
fiskinn af sínum eigin bátum
inn f Reykjavfk og kaupa sér
í soðið í fiskbúðunum hér. —JH
i1
5!
4
%
*
■x
Sigurður Sveinsson, rafvéla-
virki: — Nei, ég er ekki byrjað-
ur, þar eð ég hef ekki fengið
launaseöilimin minn.
Viggófsson, starfsm.
á auglýsingast.: — Nei, ég er
ekkert farinn að pæla í skatt-
skýrslunni. Það væri kannski
rétt, að fara að líta á hana.
Elínóra Sveinsdóttir, klínik-
dama: — Nei. Mér finnst ekk-
ert 'iggja á með það.
Hulda Guðmundsdóttir, bíl-
jj stjóri hjá Símanum: — Nei, það
!f hef ég ekki getað ráöizt í ennþá.
Eg hef nefnilega ekki fengið
launaseðilinn minn enn, þó að ég
vinni hjá rikisstofnun. Ég. hlýt
alla vega að fá seðilinn í dag og
ver svo næstu viku í að fylla
í slcýrsluna út.