Vísir


Vísir - 06.02.1971, Qupperneq 13

Vísir - 06.02.1971, Qupperneq 13
V Í STR . Laugardagur 6. febrúar 1971. 13 Vega og virkjunarmál Mestir eldri menn muna, þegar Ameríkumenn komu með sína taekni til landsins. Þá var eins og svipt vœri frá hulu vana og sof- Aíidaháttíir verkfræðinga, forráða- manna þjóðarinnar og alþýðu- manna. Öil þjóöin tileinkaði sér hina nýju stórvirku amerísku tækni á mjög skömmum tima. Við áttum læröa verkfræöinga þá eins og nú. Þeir sáu hvað var aö ger- ast úti í löndum, en þeim datt ekki í hug að það „ætti við hér“. Það skyldi þó ekki vera að eitthvað svipað eigi sér staö nú? Hafa for- ráðamenn vegamála tileinkað sér þær miklu tækniframfarir i vega- gerð sem hafa orðið í Bandaríkj- unum og víðar síðastliðin 30 ár? Mér finnst margt benda til þess, að svo sé ekki. Ég skrifaði grein i Vísi 21. okt. ’69. Þar held ég því fram að það væri þjóðhagsleg- ur stórvinningur að leggja rafmagns járnbrautir um landið þar sem um ferðin er mest. Það myndi iétta mesta umferðarþunganum af vegun um og gera vegaviðhaldið mjög auð velt. Miklar fjárupphæðir mundu sparast f minni notkun þungra vörubila, varahlutum, hjólbörðum, bensíni og olíum. Bensín og olía eru einhver mesti mengunarskað- valdur bæöi í lofti og legi. Við eigum nær óþrjótandi orku í fall- vötnum og jarðhita, sem engri mengun veldur, og endist meðan vatn rennur í á og hiti geymist í jörð, Olíuinnflutningurinn er að stórum hluta algerlega óþarfur. Hafa bílainnflytjendur athugað möguleika á því að flytja inn raf- magnsbíl? Hafa þeir fylgzt með því sem er að gerast í þeirri fram- Ieiöslu? Líklega hefir mörgum brugðið þegar olía hækkaði skyndi lega um helming eða meir. Hvem- ig yrði ástandið hér ef lokaðist fyrir olruinnflutning vegna stríðs eða af öðmm ástæðum. Þau gleði tíðindi hafa gerzt, að fmmvarp er komið fram á Alþingi, þess efn is, að öll hús á íslandi, sem ekki hafa jarðhita, skuli fá raforku til hitunar innan 5 ára. Sveitimar eiga lfka að fá ódýra afgangsorku til heyþurrkunar. Það er heldur léleg frammistaða, að hleypa vatns orkunni framhjá orkuvemnum með an heyforði landsmanna grotnar niður I rosatíð. Það ætti að vera nuðvelt að leysa vandamál bilana, ístruflana og „toppálags", með þvi að reisa gufurafstöðvar eftir þörf- um. Hvað ætli að sé búið að puðra mörgum milljónum hestafla út í loftið í Krisuvik, Hveragerði og víðar? Hvað á afturhaldsöflunum lengi að haldast uppi að hindra lífsnauðsynlega rafvæðingu í þessu landi? Hafa forráðamenn vegamála athugað hvernig á því stendur, að margir vegaspottar sem em orðnir 60—70 ára gamlir, og algerlega unnir með handverkfærum, hafa enzt vel. Jarðvegi var mokað upp með handskóflum, síðan mulið grjót með sleggjum ofan á. Grjót- lagið var svo þjappað undir ofaní- burðinn með vélþjöppu. Vegurinn frá Eyrarbakka upp í „Síberíu" er einn af þessum vegum. Þegar brezki herinn var í Kaldaðamesi var ekið á þessum vegi fjölda af þungum grjótbílum á hverjum virk um degi á annað ár. Þar að auki miklir flutningar af kolum, heyi, fiski, föðurbæti og mörgu fleira. Þama þurfti engin tugmilljóna jarð vegsskipti, eins og nú tíðkast. Ég vil mælast til þess að rannsakað verði, hvað orsakar þetta mikla slitþol þessa vegar. Bf til vi'Il má eitt-hvað af þessu læra, og nota við vegagerð nú. Það ætti að vera auð veldast með nútíma véltækni. Það er leitt til þess að vita, að náttúruverndarsjónarmið séu tekin í þjónustu þeirra afla sem vinna markvisst gegn því að hér skapist skilyrði til mannsæmandi lifs ört vaxandi þjóöar í nútíð og framtíð. Það er vægast sagt furðulegt þegar stórmenni þjóðarinnar tala um ís- lenzkan verksmiðjulýð með lítilli virðingu. Það er engu likara en að þessir furðufuglar vilji helzt að íslenzkur verkalýður og bændur séu sem fátækastir og aumastir. Það var hér engin stóriðja þegar sjó- menn og verkalýður voru útpísk- aðir með vökum og þrældómi af íslendingum. Ég hefi unnið við stóriðju um tíma. Ég hefi aldrei haft betri lífsafkomu og lífs ánægju. Ég hefi komið í álverið í Straumsvík. og.ég gat ekki betur séð en að m'enn væru þar „glaöir og prúðir”. Enda ekki undarlegt, því þar virðist öll aðbúð, stjórnun og umgengni vera mjög til fyrir- myndar. Dugnaður, vinnusemi og vandvirkni er sá grundvöllur sem þjóðfélagið hvílir á, hvort sem unn- ið er í stórum eða litlum verk- smiðjum, á sjó eða við sveita- störf. íslenzkur verkalýður og bændur munu áreiðanlega ekki veita þeim brautargengi, sem vilja koma í veg fyrir að sú geysilega orka sem við eigum í vatnsafli og jaröhita verði nýtt. Þeir menn, sem hatrammast berjast gegn virkjunar málum tala gjaman um peninga- sjónarmið þeirra sem styðja þessi mál. Það Iiggur við að maður fái velgju, þegar miklir peningafurst- ar berja sér á brjóst og fara að svara öðrum um peningasjónarmið. Það er talað um að vatnsvirkjanir minnkj veiði og eyði fuglalífi. Það er forðazt að nefna viiliminkinn, sem er á góðri leið með að útrýma öllum fuglum sem hann ræður við. Minkurinn býr um sig í hraunun- um umhverfis veiðivötnin og tekur sinn toll. Nælonnetaveiði er viða stunduð. Ég býst ekki við að upp sé gefin ta-lan á þeim sundfuglum, sem kafna í netunum árlega. Hvað ferst mikið af islenzkum farfuglum í olíubrák úthafsins? Sú háskalega villa virðist sitja blýföst fyrir brjóstinu á alltof mörgum, að stórvirkjanir og stór- iðja vinni gegn öðrum atvinnugrein um. Alíir menn sem ekki eru fjötr- aðir viðjum wnans, eða blindaðir af einhverju stjórnmálalegu óeðli, hljóta að sjá að allar aðrar at- vinnugreinar og þjóðfélagið sem heild, hagnast stórlega á nýjum út- flutningsatvinnuvegum sem vatns- orka og jarðhiti skapa. Það bein- línis opnar möguleika á öllum svið- um. Það myndast fjármagn til upp- græðslu örfoka lands. (Samanber hina velheppnuðu uppgræðslu f Þjórsárdal) Ennfremur til, að auka stórlega veiði í vötnum, jafnvel þar sem engin veiði er nú. (Samanber Lagarfossvirkjun). Nú ef svo yröi eitthvað afgangs, þá er ég ekki hræddur um að t. d. stórskáld þægju ekki aukna styrki, jafnvel þótt aurarnir kæmu fyrir ál, kísil gúr, salt eða sóta. Og þannig mætti lengi telja. Ég vil taka undir um- mæli forseta íslands við vígslu Búrfel-Isvirkjunar. Hann sagði að virkjun fallvatna með tilheyrandi rafvæðingu sé byriuð, og hún veröi ekki stöðvuð. Við þurfum vel menntaða dugnaðarmenn og fram- sýna 'stjórnmálamenn, til að hrinda í framkvæmd stórvírkjunurn bæði vátnsáfls -,og jarðhita. Ég .sköra á þjóðina að lofa þeim frambjóð- endum að sitja heima í næstu kosningum, sem ekki styðja þessi framfararmál af alhug. Ég sé í anda knörr og vagna knúða krafti sem vannst úr fossa þinna skrúða stritandi vélar starfsmenn glaða og prúða, stjórnfrjálsa þjóð, með verzlun eigin búða. H. Hafstein. Verði gróandi þjóðlíf með þverrandi tár, sem þroskast á guðsríkis braut. Matth. Jochumsson Ingjaldur Tómasson RHstj. Stefón Guðjohrtsen A« fimmtán umferöum loknum í tvfmenningskeppni Bridgefélags Reykjavíkur er staðan þessi: 1. Sfmon Símonarson og Þorgeir Sigurðsson 2175 2. Jón Ásbjömsson og Karf Sigurhjartarson 2170 3. Jón Arason og Vi-Ihjálmur Sigurðsson 2161 4. Jöhann Jónsson og Þórarinn Sigþórsson 2113 5. Jón Hjaltason og Öm Amþórsson 2109 6. Páll Bergsson og Þórir Sigurðsson 2102 Hér er spil frá síðustu umferð, þar sem toppurinn slapp naumlega úr greipum Þorgeirs. Staöan var al-lir á hættu og norður gaf. ¥ 8-7-6 ¥ 9-6-5-4 ♦ Á-8-2 4» D-9-2 ¥ D-10-4-3-2 ¥ D ¥ K-G-7-6-5-4 * 3 ¥ K-G-9-5 ¥ K-10-7-3 ♦ D-10-9 ¥ G-4 ¥ Á ¥ Á-G-8-2 ¥ 3 ¥ Á-K-10-8-7-6-5 Margir áttu f erfiðleikum með spil n-s og hvort sagnsería Símonar og Þorgeirs er betri eða verri en hver önnur, ska! ekki lagður dóm- ur á. Sagnir gengu þannig: Norður Austur Suður Vestur P P 1 ¥ P 2 ¥ P 6 ¥ Allir pass. Vestur spilaði eðlilega út ein- spilinu í laufi, Þorgeir lét drottn- inguna úr borði' og eftir nokkra umhugsun lét austur gosann. Mun það senni'lega hafa átt að vera bending til makkers að hann ætti styrk í hálitunum, eða það finnst mér Iíklegasta ástæðan. Þetta ör- lagarika kaffl gaf Þorgeiri mögu- leika til þess að koma stemmunni heim. Hann lét nú hjartafjarka úr blindum, þristur, átta og drottning- in. Þá kom spaöi og Þorgeir spilaði sig inn á tfgulás. Enn kom hjarta, sjö gosi og tíguM. Nú sá Þorgeir hvemig hægt hafði verið að vinna slemmuna. Spfli hann hjartaníu í öðrum slag, þá er spilið unnið, því austur hefur gefið honum aukainn komu á lauf með þvf að kasta gos- anum í fyrsta slag. Vitantega er það frekar ósennilegt, að vestur sé með tvö einspil, en það kostar ekkert að taka þann möguleika með i reikninginn og spila hjartaníunni. Nýtega er hafið Reykjavíkurmót í sveitakeppni og gildir það jafn- framt sem undankeppni fyrir Is- landsmót. Þátttaka var með eindæm um léleg í Reykjavfk og er sagt að annarfeg öfl hafi spillt fyrir mótinu með lævíslegum áróðri. Verður nán ar skýrt frá þessum málum f næsta þætti. Eftir 12 umferðir í sveitakeppní Bridgefélags Hafnarfjarðar er rðð efstu sveita þessi: 1. Sveit Ólafs Guðmundssonar 207 2. Sveit Kristj. Andréssonar 179 3. Sveit Sigurðar Emilssonar 169 4. Sveit Þorst. Hálfdánarsonar 154 5. Sveit Björns Eysteinssonar 138 6. Sveit Guðm. Finnbogasonar 115 Al'ls taka 10 sveitir þátt í keppn- inni og er spiluð tvöföld umferö. 0PIÐ til kl. 4 í, dag BJÓDUM HINN HEIMSFRÆGA BÆHEIMS - KRISTAL TIL BRÚÐARGJAFA 0G TÆKIFÆRISGJAFA FALLEG MUNSTUR — VÖRUR Á ÖLLUM VERÐUM Verzlunin KRISTALL Skólavörðustíg 16. — Sími 14275. Brú í Fljótshverfi Vegagerð rikisins óskar að selja til niöurrifs og fjar-' lægingar yfirbyggingu gömlu Brunnárbrúarinnar í Fljótshverfi. Brúin er byggð 1913, — yfirbygging stál- grindarbiti með timburgólfi yfir eitt haf 22,8 m. að lengd. Stálgrindarbitinn er byggður upp af prófiljám- um og er stálþungi alls áætlaður um 6 tonn. Kauptilboð í yfirbyggingu brúarinnar, eins og ástand hennar er í dag, þurfa aö berast skrifstofu vorri fyrir kl. 11 f. h. 22. febrúar 1971. Tilboðsgjafi skal skuldbundinn til að fjarlægja yfir- byggingu og allt, sem henni tilheyrir, á sinn kostnað fyrir 1. okt. 1971. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI7 SÍMI 10140 Nauðungoruppboð sem auglýst var í 46., 48. og 49. tölublaði Lögbirtinga- blaðsins 1970 á eigninni Sunnuhlíð, Mosfellshreppi, þingl. eign Birgis Sveinssonar og Reykiöjunnar h/f fer fram eftir kröfu Jóns Finnssonar hrl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 10/2 1971 ki. 3.00. Sýshimaðurinn í Gullbringu- og Kjósa.sýslu. Nuuðungaruppboð sem auglýst var í 51., 54. og 56. tölublaði Lögbirtinga- blaðsins 1970 á v.s. Þverfelli KE-11 (áður Brimnes RE-333), þingl. eign Þverfells h/f, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík í Grindavíkurhöfn viö eða f skipinu þriðjudaginn 9/2 1971 kl. 3.00 e.h. Sýslumaðurinn I Gullbringu- og Kjósarsýslu.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.