Vísir - 16.03.1971, Blaðsíða 9
VÍSIR . Þriðjudagur 16. marz 1971
fengið annað
eins ur sjo
— segir loðnukóngurinn Gunnar Hermanns-
son — heildarveiðin orðin 167 jbúsund lestir
— Nei, ég hef aldrei fyrri fengið svona mikið
magn af fiski úr sjó á jafnskömmum tíma, sagði
Gunnar Hermannsson skipstjóri á Eldborgu, þeg-
ar hann kom í talstöðina í gær. Eldborg er nú afla-
hæst loðnuskipanna með 5.758 lestir, og Vísir
hringdi af því tilefni í Gunnar laust eftir hádegið
í gær, þar sem hann var staddur á skipi sínu
sunnan við Reykjanes.
Reykjavík 21.548 lestir,
Neskaupstaður 12.202,
Hafnarfjörður 12.021
Keflavík 10.311,
Akranes 9.799,
Hornafjörður 6.744,
Þorlákshöfn 6.648,
Sandgerð; 6.639.
„■yið vorum búnir að vera
T fjórar vikur viö þetta í
gær“, sagði Gunnar. Auðvitaö
reiknum við með, að þetta
standi eitthvað lengur. Það verð
ur þá óvenju endasleppt, ef svo
er ekiki. Veiðin stóð fram í
apríl í fyrra. Og þó er það
aldrei að vita. Það er ekki
gott að reikna hana út þessa
l'oönu.
Þessi loðna sem bátamir hafa
verið í hér við Reykjanesið er
öll búin að hrygna. Eftir það er
verra að eiga við hana og hún
hverfur fljótlega eftir að hún
hrygnir.“
Svartur sjór í mánuð
Méginloðnugangan er nú
komin norður í Faxaflóa, en þar
var ekki hægt aö kasta á loðn-
una í gær vegna veðurs. Úr
þessari einu göngu hefur veriö
mokað ótrúlega miklu magni alls
voru 167.693 lestir komnar á
land á laugardag, samkvæmt
upplýsingum Fiskifélags íslands.
Megnið af því magni hefur
veiðzt úr þessari einu göngu.
Loðnan hefur gengið mjög þétt,
torfa við torfu. Veiðisvæðið
hefur verið tiltölulega lítið, en
þar hefur sjórinn líka veriö
svartur af Loðnu. Skipin hafa
ekki þurft annað en dýfa nót-
inni í tvisvar sinnum eða þrisv-
ar til þess að fylla skipin.
Þrær hafa hvarvetna hér í flóanum fyllzt á skömmum tíma, þarna er hústóftin við verk-
smiðjuna úti í Örfirisey að fyllast, en til Reykjavíkur eru nú komnar 21548 lestir af loðnu.
Og aflahæstu skipin höfðu
þennan afla á miðnætti laugar-
dags:
Eldborg 5.758 lestir,
Gísli Árni 5.288,
Örfirisey 5.035,
Öm 4.914,
Fífill 4.843,
Óskar Magnússon 4.605,
Loftur Baldvinsson 4.575,
Súlan 4.454,
Grindvíkingur 4.375,
Jón Garðar 4.119 lestir. — JIH
Nú um helgina dró 'hins vegar
mjög úr veiði. Veður hefur
versnað og eins virðist loðnan
hafa dreift sér og hrygningin er
að ganga um garð. í gærmorgun
voru skipin samt að kasta
sunnan við Reykjanesið: Og
Gunnar á Eldborgu sagði að
þar hefðu verið stakar smátorf-
ur — lítið út úr því að hafa.
Hins vegar hefur lítið sem ekk-
ert veiðzt fyrir austan heldur,
austur í Bugtum, þar sem tals-
vert magn fannst í vikunni sem
leið.
Bíða hennar sömu örlög
og sfldarinnar?
Ýmsa óar við þessari óskap-
legu veiði á loðnunni. óttast að
hennar bíði sömu örlög og síld-
arinnar á sínum tíma: ofveiði.
Við spurðum Gunnar álits á
þessu, en sé um ofveiði að
ræða, má til sanns vegar færa
að hann eigj stærsta þáttinn í
henni, sem aflahæsti loðnu-
skipstjórinn:
— Því miður getum við ekk-
ert fullyrt um það. Við verðum
aðeins að treysta þvi sem vís-
indamennimir segja. Þeir kom-
ast næst þvi að vita eitfchvað,
hvert stefnir í þeim efnum. Og
þeir hafa lýst því yfir að loðnu-
stofninn sé ekki í hættu þrátt
fyrir þessa miklu veiði, ekki
Loðnulöndunin kostar oft mikla snúninga og vörubílstjórar
hafa verið i stöðugum akstri allan sólarhringinn, meðan hrot-
an stóð hvað hæst.
næstu tvö árin að minnsta
kosti. — En það er auðvitað
mest um vert. hvernig hrygning-
in gengur. Og það hefur sitt að
segja, hvaða áhrif náttúran hef-
ur á hrygninguna.
— En þínir menn em ánægð-
ir? spurðum við Gunnar að lok-
um.
— Óneitanlega. Þetta er búið
að vera ágætt. — En það verða
líka oft langar eyður hjá sjó-
mönnunum, þótt þeir geri, það
gott stuttan tíma. ^
Heildaraflinn var á sama fcíma
í fyrra orðinn 92 þúsund lestir.
Aflaverðmæti þeirrar loðnu, sem
á land er komin losar 200
milljónir króna. Aflahæsta skip-
ið hefur skilað afla að verð-
mæti um 7 milljónir. Og háset-
ar á hæstu skipunum eru komn-
ir með hátt á annað hundrað
þúsund krónur í hlut.
Útflutningsverðmæti
yfir 600 miflj.
Ekki mun fjarri lagi að út-
flutningsverðmæti þessa afla
verði upp undir 700 milljónir:
Mjöl fyrir yfir 450 milljónir.
Lýsi fyrir rúmlega 100 milljónir
kr. og auk þess mun búið að
fyrsta loðnu til útflutnings fyr-
ir um 100 milljónir. Þessai uiur
eru að sjálfsögðu grófar ágizk-
anir. En verð á mjölj og þá ekki
sízt lýsi hefur verið mjög hag-
stætt. Að vísu hefur mjölverðið
lækkað dálítið vegna hinnar
miklu framleiðslu, en það hefur
lengst af haldizt um 28 sillingar
fyrir próteineininguna og reikn-
að er með 65 próteineiningum
í tonninu. — Lýsisverðið hefur
híhs vegar .verið. hæst uip 96
pund tonnið — Lýsismaghi'ð‘ d
lóðnunnfei' hfng vegar afar lítið
og kann að rýrna nokkuð, þar
sem geyma verður loðnuna viö
misjafnar aðstæður lengj nokk-
uð, sums staðar úti í hrauni,
svo sem til dæmis í Eyjum.
Víða verður ekki búiö að bræða
allt upp fyrr en með vorinu,
þótt ekkert bættist nú við, þar
sem verksmiðjumar verða auk
loðnunnar að bræða allan fisk-
úrgang frá vetrarvertlðinni.
Þriðjungur aflans
til Eyja
Þróarrými hefur mjög skort á
þessum loðnuveiðum, vegna
þess hve mikið hefur borizt á
stuttum tíma, og var um tíma
löndunarbið hjá verksmiöjun-
um, líkt og á sildinni nyrðra
og eystra f gamla daga. Lang-
mestu hefur verið landað í
Vestmannaeyjum, eða 53.007
lestum alls, en hæstu löndunar-
staðir eni annars þessin
Birgir Pétursson, bifreiðastjóri:
— Loðnu hef ég séð niöri á
höfn. Það kom ekki beinlínis
vatn fram i munninn á mér,
svo ég hef ekki enn tekið mér
hana til matar.
— Hafið þér séð eða
borðað loðnu?
Sigurður Ingimarsson, tækni-
skólanemi: — Nei, ég hef aldrei
séð loðnu og þaðan af síður
bragðað hana.
Gunnar Guðlaugsson, 11 ára: —
Já, ég hef séð hana. Pabbi
benti mér á hana niðrj á
bryggju um daginn. — Nei. ég
hef ekki boröaö loðnu.
Kristján Eiríksson, stýrimanna-
skólanemi: — Ég hef svo sem
séð hana um borð í skipum en
hins vegar aldrei smakkað
hana.
ég hef oft séð loönu, en aldrei
boröað hana. Ég get heldur ekki
sagt að mig langi til þess. Ég
er samt á þeirrj skoðun, aö við
getum gert okkur góðan mat úr
henni, með því að sjóða hana
niður og selja útlendingum.
HarWdur Tómasson, barþjónn:
Já, já loðnu hef ég bæðj séð og
boröað. 'Sá hana síðast í þró
úti í örfirisey. Það er hins veg-
ar lengra siðan ég smakkaði á
henni. Ég get ekki sagt að mér
hafi geðjazt að henni þá.