Vísir - 14.04.1971, Síða 16
Hannibalisfar
bjóda fram
í öllum
kjördæmum
• Ákvörðun okkar um að bjóða
fram í öllum kjördæmum
núna til alþingiskosninganna er
alveg óbreytt og munu því fram-
boðslistar okkar sjá dagsins ljós
á næstunni, sagði Hannibal
Vaidimarsson, formaður Sam-
taka frjálslyndra og vinstri
manna í viðtali við Vísi í morg-
un.
Hannibal sagði, að efstu menn-
irnir hefðu yfirleitt þegar verið á-
kveðnir, en ekki væri talið rétt að
gefa upp nöfin þeirra fyrr en fram-
boðslistamir hefðu verið að fullu
ákveðnir.
Þegar hefur komið fram, að
Hannibal muni skipa efsta sætið f
Reykjavík, en önnur efstu sæti list-
ans munu skipa þeir Bjarni Guðna-
son prófessor, Haraldur Henrýsson
I'öigfræðingur, Inga Birna Jónsdótt-
ir kennari og Steinunn Finnboga-
dóttir Ijósmóðir. — í Norðurlands-
kjördæmi eystra munu Björn Jóns-
son alþingismaður og Benóný Am-
órsson bóndi skipa efstu sætin.
— VJ
Þama skreið þjónustulipri þjóf-
urinn inn í nótt.
„Stóraukin hætta afneta-
dræsum á floti í sjónum"
— segir Pétur SigurBsson, forstjóri
Landhelgisgæzlunnar
Netadræsur, sem fljóta
uppi um allan sjó, eru
að verða stórvandamál,
sagði Pétur Sigurðsson,
forstjóri Landhelgisgæzl
unnar í viðtali við Vísi
í gær. Varðskipið Albert
togarinn Egill Skallagrímsson,
sem svo dró Al'bert upp undir
Vestmannaeyjar. Þar var kyrr-
ari sjór og óhætt að senda kaf-
ara niður til þess að skera úr
skrúfunni.
Togarinn lenti sjálfur í svip-
uðum vandræðum við Færeyjar
í vetur og það virðist orðiö
mjög algengt að skip fái neta-
druslur í skrúifur.
Netatrossur, sem týnast fljóta
upp á yfirborðið eftir ákveðinn
tímo og mara í hálfu kaf{ þar,
skrúffum skipa. Einnig fljóta
víða dræsur af rifnum trollum.
Það vill jafnvel bera við að
netadruslum sé hent í sjóinn,
þegar verið er að gera við
veiðarfærin.
Sagð; Pétur að þetta væri
vaxandi vandamál, sem vert
væri að taka til meðferðar. —
Skip og bátar reyna aö vara
hverja aðra við ef vart verður
ið netadræsur á floti. Til dæmis
var í gær trossa eða slitrur af
trolli á floti út af Ingólfshöfða.
— JH
skip beöið um aöstoð. Það var geta þannig hæglega lent í
Það er sagt að netatrossur, sem týnast og nást ekki upp, haldi áfram að veiða fisk þar til þær fljóta upp. — En fara þær þá að
veiða skip? Netadræsur úr trollum og öðrum veiðarfærum valda stórkostlegum erfiðleikum, ef þær lenda í skrúfum skipa. Það
er því eins gott að hífa varlega inn trollið og gæta þess að rífa ekki.
Sendur heim frú
Noregi með lungun
saknlistn
íslendingur nokkur var fyrir
skemmstu sendur heim frá Stav-
anger í Noregi, þar sem lögreglan
hafðj hendur í hári hans og setti
hann í steininn fyrir ýmis belli-
brögö, er hann hafði leikið. Maður
þessi er búinn að fara víða um lönd
og stíga mörg víxlspor á ferðum
sínum. Hafði hann brotizt inn í
verzlanir og hnuplað. Hann hafði
ennfremur reynt að falsa ávísanir
og fleira þess háttar má lesa í
syndaregistrj hans. Rannsóknar-
lögreglan tók mál mannsins I sínar
hendur og situr hann nú inni með-
an mál hans verða könnuð. — JH
®---------------------------
Freymóður hefur ekki tfma
til að skipta sér af
— Þótti nektarsenan i Fást „helzt til falleg"
„NEI“, svaraði Freymóður,
„ég hef ekki hugsað mér að
skipta mér af nektarsenu leik
aranna í Hárinu. Það kemur
þó ekki til af því, að ég sé
að skipta um skoðun á kyn-
ferðismálum. Ég einfaldlega
hef bara ekki tíma til að sjá
Hárið, þar sem ég er á för-
um til útlanda“.
„Án þess að hafa séð sýning-
una get ég nú lítið talað mig út
um skoðun mína á stripli leik-
aranna, en með fyrirvara mundi
ég segja svona sýningu afar ó-
heppitega fyrir þjóðina," sagði
Freymóður. „Hún er annars
meira en lítið undarleg þessi
múgsefjun, sem flæðir yfir Iand-
ið, að fólk afkiæðir sig unnvörp-
um til að striplast. Nekt er sál-
HÁRINU
rænt einkamál hvers og eins, en
ekki eitthvað, sem á að hafa í
flimtingum á tjailtíi eða í sam-
komuhúsum. Ég fæ ekki skilið,
hvaöa tilgangi þetta nektaratriði
í Hárinu á að þjóna. Ekki getur
það haft neinar menningarlega
þýðingu. Helzt kemur mér í hug,
að svona nokkuð sé sett á svið,
þar sem það er vitað, að það
veki forvitni og á því megi
græða. Hvers vegna er annars
verið að því?“ spurði Freymóð-
ur.
Þjófurinn þóttist vera afgreiðslumaður
Ibegar að honum var komið
„Hvað var það fyrir yður?“
spurði afgreiðslumaðurinn út
um lúgugatið á sjoppunni að
Bergstaðastræti 54, þegar fólk
bar þar að rétt fyrir miðnætti
í nótt.
En bak við þessa venjulegu,
kurteislegu fyrirspurn verzlunar-
fólks : leyndist innbrptsþjófur, sem
staðinn hafði verið að verki.
Hinn raunverulegi afgireðslu-
maður var vart fyrr búinn að loka
sjoppunni og yfirgefa hana, er
maður þessi brauzt inn um lúgu-
opið og skreið inn í sjoppuna. Þá
bar að fólk, og til þess að ekki
kæmist upp um hann, lét hann á
engu bera og bauö því afgreiðslu.
Afgreiddi hann öl út um lúguna,
eins og hann hefði ekki annað
gert sína ævi.
En það kom út á eitt. Upp komst
um strákinn Tuma og lögregluna
bar að 1 tæka tíð til þess að hand-
sama hann í verzluninni. Var það
heldur ekkj í fyrsta sinn, sem hann
komst undir mannahendur.
Þrjú önnur innbrot voru framin
í nótt en hvergi stoliö neinum
verðmætum, svo að saknað væri.
Höfðu þó þjófarnir, sem brutust
inn í verzlun Zimsen við Suðúr-
landsbraut gert töluverða leit, bæði
í verzluninni og í skrifstofum Gólf-
teppagerðarinnar i sama húsi.
Um páskana var brotizt inn i
annað sinn á stuttum tíma i skart-
gripaverzlun Sigmars og Pálma við
Hverfisgötu 16 og stolið nokkrum
gullhringum úr glugga, en þjófur-
inn slapp burtu. í fyrra skiptiö
var stolið um 50 trúlofunarhringj-
um og hafa þeir ekki komið í leit-
irnar ennþá. — GP
Þann fyrirvara vildi Freymóö-
ur hafa á þessum ummælum sín-
um, að hann væri ekki búinn að
sjá sýninguna og vissi þess
vegna ekki hvernig nektarsenan
fellur inn í verkið. „Ég sá
Faust,“ sagði hann. „Þar var
nektaratriði. Eins og það féll inn
i verkið var þaö fyllrlega afsak-
anlegt. Stúlkan, sem þar kom
fyrir nakin átti að tákna freist-
ingu djöfu'lsins. Mér fannst bara
það atriði missa hálfvegis
marks, vegna þess hve það var
fallegt. Stúlkan iðaöi sér raunar
eitthvað, en atriðið var samt
helzt til faHegt,“ sagði Freymóð-
ur að lokum. — ÞJM