Vísir - 21.04.1971, Side 5
5
V l &I R . WBóvlfcudagiir 2>l. apríi
Arsenal sendi Burnley niBur
/ aðra deildina í gærkvöldi
— og hefur náð tveggja stiga forskoti á Leeds
Arsenal færist nær meist
aratiflinum í ensku knatt-
spyrnunm. I gærkvöldi
kom næst neðsta liðið í 1.
deild, Burnley, til Lundúna
og lek við Arsenal á High-
bury og eftir leikinn voru
örlögBurnleys ráðin — lið-
ið Ieikur í 2. deild næsta
keppnistímabil eftir að
hafa verið samfleytt í 1.
deild frá því fyrsta keppn-
istímabilið eftir síðari
heimsstýrjöldina að
Bumley vann sig þá upp úr
2. deild. Arsenal sigraði
með eina markinu, sem
skorað var í leiknum og
hefur nú 60 stig — eða 2
stigum meira en Leeds í
deildinni og á þó enn fjóra
leiki eftir gegn þremur
leikjum Leeds.
En það var lítiH meistarabragur
á leik Arsenal gegn botnliðinu og
taugaspennan var allsráðandi hjá
leikmönnum beggja liða í þessum
þýðingarmikla leik. Og spumingin
er nú: Er hið mikla álag, sem er
á leikmönnum Arsenal farið að
hafa veruleg áhrif á leik liðsins
til hins verra? Að vísu varð Arsen-
ai nú í fyrsta skipt;i f 12 leikjum
að gera breytingar á liði sínu, þar
sem tveir af leikmönnum liðsins,
Peter Storey og Bob McNab, gátu
ekki teikiö vegna landsleiksins við
Grikkland á Wembley í kvöld, en
liði hefur þó mjög góða varamenn,
Kelly og Roberts, svo það átti
ekki aö breyta miklu. Nú, en
Arsenal vann þó og eina mark leiks
ins skoraði Oharlie George úr víta-
spyrnu eftir að Probert hafði varið
með höndum á marklínu hjá Burn-
ley. Þetta var áttundi sigurleikur
Arsenal í röð og George hefur i
tveimur sióustu leikjunum fært lið-
inu fjögur stig með því að skora
emu mörkin í þeim.
Enska landsliðiö.
England leikur við Grikkland í
kvöld í Evrópukeppni iandsliða og
einvaldurinn i ensku knattspyrn-
unni, Sir Alf Ramsey valdi enska
landsliðið ‘i gær. Einn nýliði er i
liðinu Peter Storey, Arsenal, sem
leikið hefur mjög vel i vetur sem
framvörður eða tengiliður í Ar-
senal-liðinu, en áöur lék hann
alltaf sem bakvörður og það var
einmitt í stöðu hægri bakvarðar,
sem Sifr Alf settj Storey í liöið,
sem annars er þannig - skipað:
Gordon Banks (Stoke), Peter
Storey (Arsenal), Emlyn Hughes
(Liverpool), Alan Mulley (Totten-
ham), Roy MoFafland (Derby),
Bobby Moore (West Ham), Francis
Lee (Manch. City), Alan Ball
(Everton), Martin Chivers (Totten-
ham), Geoff Hurst (West Ham) og
Martin Peters (Tottenham).
Bobby Moore er sem sagt aftur
valinn í liðið og verður jafnframt
fyrirliði. En mesta athygli vekur,
að Ramsey velur tvo leikmenn,
sem leikið hafa sem framverðir á
keppnistímabilinu í stööu bak-
varðar. Fiestir töldu þó að þeir
Poul Reaney (Leeds) og McNab
(Arsenal) mundu skipa bakvarða-
stöðurnar, en Ramsey karlinn fer
sínar leiðir eins og áður. Þá er rétt
að þeta þess, að þrír leikmenn frá
Leeds, Aian Clarke, Terry Cooper
og Nonnan Hunter, komu ekki til
Charlie George
— tvö mörk — fjögur stig
greina í landsliðiö vegna meiðsla,
svo og ColiK Bell, Manch. City og
Peter Osgood, Chelsea. Bezti leik-
maður Burnley, Ralph Coates, gat
ekkj leikið með liði sínu gegn
Arsenal í gær vegna þess, að hann
er í landsliðshópnum, og þó er
hann ekki einu sinni valinn !i lands-
liöið frekar en McNab.
Da ve McKay til Swindon
Gamfi stníðshesturinn Dave
McKay mun yfirgefa Derby í lok
keppnistímabiisins og leika með
Swindon Town í 2. deild í haust,
jafnframt því, sem hann verður
þjálfarji Swindon. Þetta var til-
kynnt um helgina og kom tals-
vert á óvart, því ekkert hafði verið
rætt um þaö áður, aö Dave mundi
fara til Swindon. Hann ieikur sinn
síðasta leik fyrir Derby laugar-
daginn 1. mai og veröa þá áreiöan-
lega margir viðstaddir leikinn við
W'BA til að kveöja þennan frá-
bæra leikmann. Þó Dave sé nú 36
ira hefur hann leikið alia leiki
Derby á keppnistímabilinu.
Hann hóf knattspyrmrferil sinn
með Edinborgarliöinu Hearts og
varð þar skozkur meistari og sigr-
aðj auk þess með liði sinu í bikar-
keppninni og deildakeppninni, en
1959 var hann seldur tii Totten-
ham fyrir aðeins 30 þúsund pund,
sem voru mikil reyfarakaup fyrir
Tottenham. Hann var í sigurliði
Tottenham sem vann déild og
bikar 1961 og lék þrivegis i sigur-
liði Tottenham i bikarkeppninni.
Hins vegar var hann meiddur og
gat ekki leikið 1963, þegar Totten-
ham, fyrst enskra liða, sigraði í
Evrópukeppni bikarhafa. Nokkru
síðar varð hann fyrir alvarlegu
slysi — fötbrotnaði í leik gegn
Manch. Utd. einmitt, þegar Tott-
eoham var að verja Evróputitil
sinn og var frá knattspyrnu í ár.
Og þegar hann hóf að leika á
ný með varaliðinu brotnaði hann
aftur á sama fæti. En bann lét
það ekki á sig fá og nokkrum
mánuðum síðar var haun kominn
í keppnj aftur.
Sumariö 1968 fór hann til Der-
by, þar sem forráðamenn Totten-
ham töldu daga hans sem knatt-
spyrnumanns talda. En þaö var
nú eittbvað annað. Derby var þá
í 2. deild, en þegar McKay fór að
leika með liðinu gjörbreyttis) það
til hins betra og ekki leið á löngu,
þar til Derby var komið, í 1. deild.
Happdrætti hjá K.S.I.
veqna þáttöku í ÓL
iKnattsþýrnusatúband jIslands
(KSl) er um þessar-mundir aö
fara af stað með happdrætti og
veröur ágóðanum af því varið til
þátttöku íslenzka landsliðsins í
undankeppni fyrir Ólympíuleik-
ana í Múnchen næsta ár. Vinning-
urinn verður ferð með landsliðinu
til Parísar, sem stendur frá 14.-18.
júni í sumar, ásamt uppihaldi, og
Víðnvangshlaup
Hafnarfjarðar
Víðavangshlaup Hafnarfjarðar
fer að venju fram á sumardaginn
fyrsta og hefst hiaupið við Lækj-
arskóla kl. 2. FH sér um hlaupið
eins og áður. Keppt verður í sjö
aldursflokkum bæði karla og
kvenna 17 ára og eldri, en síðan
er keppt í þremur flokkum drengja.
Hjá stúlkum er keppt í þremur
flokkum. Keppt er um farandgrip
í öllum flokkunum, svo og verð-
launapeninga. Hægt er.að tilkynna
þátttök í hlaupið í dag í verzlun
Valdimars Long.
Frjálsíþrótfa-
mót hjá UMSK
íþróttasamband Kjalarriessþings
gengsf fyrir frjálsíþróttamóti í
Baldurshaga á' Laugardalsvelli
föstudaginn 23. apríl og hefst
keppnin kl. fimm. Keppt verður í
50 m. hlaupi karla og kvenna,
einnig 50 m. grindahlaupi, lang-
stökkj með atrennu og hástökki
með atrennu. Þá gengst sambandið
fyrir móti í fþróttahúsinu á Kárs-
nesi 28. apríl kl. 7.45. Keppt verð-
ur í kúluvarpi, hástökki án at-
rennu og langstökki án atrennu í
karla og kvennaflokki, svo og i
þrístökki án atrennu, sem auövitað
er aðeins fyrir karla.
vérður vinningshafi gestur KSÍ á
landsleiknuirt f París,-
•Eins og kunnugt-'ier leikur ís-
land í riöli með Frakklandi í und-
ankeppnj og verður fyrri leik-
urinn milli landanna á Laugar-
dalsvellinum hinn 12. maí næstk.
Takist íslenzka landsliðinu að
vinna hið franska í leikjunum
tveimur kemst það áfram í keppn-
inni og' léikur þá við lönd þau,
sem sigra í 2. og 3. riðli keppn-
innar, en riðill I’slands er nr. 1.
1 riðli 2 leika Sovétríkin og Hol-
land, en í riðíi 3 Austurríki og
Luxemborg.
Dregið verður í happdrættj KSÍ
hinn 7. júní og er verð miða 100
krönur..
Unglingakeppni
gegn norskum
Golfsambönd íslands og Noregs
hafa komið sér saman um að efna
til landsleiks millj unglinga á
sumri komanda. Enn hefur ekki
verið endanlega ákveðið hvenær
þetta veröur en væntaniega kem-
ur norska landsliðiö tii íslands um
miðjan júlímánuð n.k 1 því verða
4 leikmenn og fararstjóri verður
forseti norska golfsambandsins A.
Wahlström. Ráðgert er að keppt
verði bæði í einstaklingskeppni og
flokkakeppni. Að öðru leyti verður
reynt að gefa sem flestum ungl-
ingum fær; á þvf að kynnast hin-
um norsku golfmönnum í leik.
Unglingamót
i bodminton
Unglingameistaramóf Reykjavík-
’ur í badminton fer fram i Laug-
ardalshöllinni á sumardaginn
fyrsta (á morgun) og hefst kl. Ifl.
Úrslitaleikir fara fram samdægurs.