Vísir - 10.05.1971, Side 9

Vísir - 10.05.1971, Side 9
V í SIR . Mánudagur 10. maí 1971, Guðlaugur Þðrðarson, sjómað- ur: — Þaö er alltaf skemmtilegt aö fara á sveitaböll. Eöa það þótti mann; áður fyrr. Ég hef nú lítið gert af því upp á síð- kastið síðan ég trúlofaði mig. Eitt af nýjustu félagsheimilunum í byggingu — í Gnúpverja hreppi. Félagslieimilið er jafn nauðsynlegt og kirkjan H Hvert fer ungt fólk í ævintýraleit, þegar nóttin gerist björt og hlý, nema austur í sveitir eöa upp í Borgarf jörð til þess að skvetta dulítið úr sér á dunandi sveitaballi. Hvem laugardag bruna bilalestir úr borginni. Innanborðs er ungt fólk og kátt. Sumir eru þarna í hálfgerðu leyfisleysi, fullir af eftirvæntingu, aðrir hafa að baki langa reynslu i þessum sérstæðu krossferðum út í „guðs græna náttúruna“. Ferðinni er heitið að Hvoli, í Aratungu, að HlQðum á, Hval- fjarðarströnd, ellegar upp í Hlégarð í Mosfellsseveit. Endir slíkra ferða verður kannski ekki aftur jafn góður og upp- hafið. Eigi að síður fara menn aftur og aftur, nnz þeir hafa dansað sig þreytta og drukkið sig sadda af sveitasælunni, svo sem hún gerist á sveitaböllum. Það heitir á góðri íslenzku „að rasa út“. eru vasapeningar ungs fólks úr sveit og úr borg, sem halda uppi þessum menningarmusterum dreifbýlisins, að veru'egu leyti. Um það má lengi deila, hvort þessar skemmtanir eru hollar ungu fólki. Það sækir þær, enda í undanförnum árum hafa víða verið byggð glæsileg félagsheimili í sveitum landsins. Á síðasta ári voru 33,4 milljónir króna veittar úr Félagsheimila- sjóði til féiagsheimilabygginga. að sögn Þorsteins Einarssonar, iþróttafulltrúa, sem allra manna er kunnugastur þessum málum. Mörg hinna nýjustu og glæsi- legustu félagsheimila eru í sveitum, einmitt þar, sem unga fólkið vill skemmta sér á sumr- in. Hvað tosta þess; heimili, og hvaða gagn er að þeisn fyrir ut- an að vera ballhús fyrir ungt fólk? — Eitt nýjasta félagsheimilið, sem byggt hefur verið er í Gnúpverjahreppi, skammt frá Búrfellsvirkjun. Kostnaðurinn, sem kominn var í þetta heimili, að sögn Þorsteins, var um síð- ustu áramót 14,6 mil’jónir. Þar af greiðir Félagsheimilasjóður nær 6 milljónir. En sjóðurinn greiöir 40% af kostnaðarveröi húsanna. í Gnúpverjahreppj búa rúmlega 300 manns, svo að þarna hefur sjóðurinn úthlutað hverjum hreppsbúa um 200 þúsund krónum. Þetta glæsilega félagsheimili rúmar meira en al'a hreppsbúa 5 sæti. Þar er eitt glæsilegasta leiksvið á landinu. Til samanburðar má geta þess að í Reykjavík eru sæti í sam- komuhúsum fyrir um það bil 14000 manns, að því er Þor- steinn Einarsson sagði okkur. 'V’íða í bæjum og kauptúnum skortir samkomuhús fyrir almenna félagsstarfsemi. Á Sel- fossi er til dæmis mjög ófull- komin aðstaða til þeirra hluta, en félagsheimilj er að heita má í hverri sveit allt í kring. Hins vegar er ekki svo að skilja aö félagsheimilin séu ekki brúkleg til annars en halda í þeim hin alkunnu sveitaböll. Þar er bókasafn byggðarlagsins, aðstaða fyrir hreppsnefndina. íþróttástarfsemi er mikil í hús- unum og skólastarf yfir vetur- inn Að sögn Þorsteins er nú víða fariö að sameina byggingu félagsheimilis og íþróttahúss. Þannig er fyrirhugað að félags- heimili, sem fyrirhugað er að byggja á Djúpavogi, Eyrarbakka og í Þorlákshöfn verði jafnframt íþróttahús fyrir skó'a og fþrótta- líf á þessum stöðum. Auk sveitadansleikjanna fara svc fram í húsunum ýmsar al- mennar skemmtanir innan sveit- ar, fundahöld, leiksýningar og því um líkt. — Félagsheimilin eru nauðsyn í sveitunum, segir Þorsteinn, íbróttafulltrúi. Fólk- ið vil! ekki án þeirra vera frekar en kirkiunnar eða skólahússins. Og fólk lætur bá fé sveitarfé- lagsins ganga í byggingu og rekstur þeirra ef á þarf að halda. |7n sveitaböl’in eru, hvað sem .raular og tautar arðbærasti rekstur félagsheimilanna og það ' Ungt fólk i æv/fi- týraleit — menn- ingarhallir i sveitum — sveitaböll með svipuðu sniði og fyrrum — runnið af beim, áður en þeir komast i tugthúsið • þótt því gefist kostur á tóm- stundaiðju, sem fullorðna fólkið myndi telja æskilegri. — Og eru ekki líka ha'din sveitaböll í Reykjavik? ■^/lisir hringdi austur að Selfossi f Jón Guömundsson, yfir- lögregluþjón sem ýmsu er van- ur af sveitaböllum, þar sem hann hefur umsjó,-, með lög- gæzlu á þessum skemmtunum þar eystra. — Það eru skemmtanir í fé- lagsheimilunum allt árið nú orðið segir Jón. Að vfsu verður örlítil breyting á þeim -með sumrinu. Þá sækir fleira fólk af höfuðborgarsvæðinu staðina hér fyrir austan Síðastl. laugar- dagskvöld yoru til dæmis þrjú böll hérna í nágrenninu, í nýja félagsheimilinu f Borg í Gríms- nesi, í Félagslund; í Gaulverja- bæ og svo í Kvenfélagshúsinu í Hveragerði. Þetta voru allt lokaböll, sem kallað er — í til- efni vertfðarlokanna og auðvit- að sótti fólk frá sjávarp'ássun- um þessi böll. — Er orðinn meiri menning- arbragur yfir sveitaböllum en áöur var? — Og ætl; þetta sé ekki ó- sköp svipað gegnumsneitt og verið hefur. — Er meira um drykkjuskap á unglingum? — Það hefur kannski farið vaxand.i, En .þetta .fer alltaf mik- ið eftir auraráðum fólksins. Það er kannski minna um slagsmál en áður var en að öðru leyti er þetta lítið breytt. — Hvaö gerir lögreglan við óróaseggi sem verður að fjar- lægja af dansleikjunum? — í sumum húsrnum er að- staða til þess að geyma ölvaða menn, meðan bráir af þeim, þetta eru ekki fangageymslur, heldur herbergi, þar sem lög- reglumenn geta vaktað mennina meðan þeir eru að átta sig. Vit- leysan í þeim varir venjulega bara stutta stund og við slepp- um þeim þá venjulega að dans- leik Ioknum, ef ekkert alvar- . legra kemur til. Annars flytjum við menn f fangageymsluna okk- ar á Litla-Hrauni. TTér áöur fyrr tíðkaðist það A að láta menn oní poka, þegar þeir gerðust ölvaöir og óróasamir. Að því þótti ipikil óvirða menn þóttu heldur setja niður. ef þeir voru látnir í poka, En að öðru leyti var ekki fundið að þeirri aðferð, unz hún var afiögð. Og það tíðkaðist líka einu sinni í Reykjavík, þegar fanga- geymslan var full að aka með ölvaöa óróaseggi út á öskuhauga og skilia þá eftir þar. — Telurðu nauðsynlegt að hafa aðstöðu til þess að geyma ölvaða menn í félagsheimilun- um? — Það er afskaplega æskilegt já. Vegalengdir eru yfirleitt langar í næstu fangageymslu og þegar þangað kemur er yfirleitt runnin af mönnum víman. Og þó að ýmsar sögur fari af sveitabö'lum, heldur ungt fólk áfram að sækia þau f leit að félagsskap og ævintvmm. — JH Karl Karlsson, sjómaður: — Ég er að mestu hættur að fara á sveitaböll. En mér fannst það alltaf skemmtilegt. Það var frjálslegt. allir þekktu alla og ekki ofbauð mér sukkið þar yfirleitt. Jón Friöjónsson, nemandi: — Æ, ég veit það ekki, ég hefði svo sem ekkert á móti þvf, ef ég hefði tíma til þess. En því er ekki að heilsa. Ásta Björk Vilhjálmsdóttir: — Ég hef ekki mikið farið á sveitaböll. einu sinni á Selfoss jú( og mér þótt; gaman þar, svo ég hefði ekkert á móti því !i sjálfu sér. Sonja Jónsdóttir: — Ég hef vfst eiginlega aldrei komiö á sveitaball. Ég ætla mér samt að bæta úr þvi þigar fram líða stundir svo að ig slægi elcki hehdinni á móti því, ef færi gæfist. |

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.