Vísir - 21.05.1971, Blaðsíða 9

Vísir - 21.05.1971, Blaðsíða 9
VÍSIR . Föstudagur 21. maí 1971. unum viö ísrael. Þar gætir meiri þjóöcrnislegra æsinga, sem gætu aftur hvenær sem er leitt til nýrrar æsingastyrjaldar við ísraelsmenn. Þess vegna eru viðskiptin við Sadat e. t. v. ennþá vandmeð farnari en væri við Sabry. Það verður aö líta svo á, aö hægt sé fyrir vestrænar þjóðir að komast að samkomulagi við Sadat, og e.t.v., ef rétt er að farið, aö hnekkja með því áhrif um Rússa. Og vegna þess hvað mikið er þar í húfi, er þar sann arlega tækifæri, sem ekkj má láta ónotað. En á hinn bóginn er þess að vænta, að Sadat geri miklu strangari kröfur en Sabry hefði nokkurn tíma gert um lausn Palestínu-málsins. Cadat hefur að undanförnu komið á óvart á margan hátt með djörfung sinni og með því að fara inn á nýjar leiöir. Það verður að vísu a'.drei auð- velt að sjá. hvar við höfum hann. En þegar tekið er tillit til, að hann styðst fyrst og fremst við afl egypzkrar Þjóð- ernisstefnu, þá er ekki hægt að neita því, að hann hefur sýnt alveg óvenjulega dirfsku með tillögum sínum, bæði um heildar lausn deilnanna við fsrael og um bráðabirgðalausn varðandi opnun Súez-skurðarins. Það hef ur jafnvel verið sagt, að svo iangt hefði Nasser aldrei þor- að að ganga. Fleira bendir li sömu átt, svo sem heimsókn Rogers utanríkisráðherra Banda ríkjanna til Kairó. Á sama tíma og Sadat styöst að vísu við þjóðernissinnaöflin hefur hann þó reynt að draga úr öfgun- um. Hann leitar fyrir sér um samninga við ísraelsmenn og virðist hafa hug á að snúa sér að raunhæfri lausn innanlands- vandamála. Hann hefur sýnt vilja til að draga úr hernaðar- útgjöldum og í stað þess leitazt við að bæta lífskjör almennings, en slík mál hafa venjulega feng ið að sitja á hakanum. Er sagt, að greina megi mikinn mun á almennum lífskjörum 'i landinu síðan hann tók við völdum. Ef ti'l vill má líta á tillögu hans um opnun Súez-skurðar sem þátt í þeirri viðeitni, hann vilji gera raunsæja samninga til að hagnýta sér skurðinn í efnahags- legri uppbyggingu Iandsins. A ð vísu verður engu spáð um, hvað út úr þessu kemur á endanum. En mér virðist aö það sem nú er að gerast í Egyptalandi megi túlka sem eins konar ákall Sadats til vest- rænna þjóða um að koma til snóts við Egypta, svo hann geti hafið raunhæfar aðgerðir til viðreisnar í landinu og hamlað gegn si'auknum rússneskum á- hrifum þar. En eins og venju- lega er ísrael o/ hagsmunir þess það sker sem allt ætlar að stranda á.Andspænis viðleitni Sadats til aö ná samningum gerast ísraelsmenn því stífari og ósáttfúsari. Tillagan um Súez-skurðinn má vera próf- raun á þetta, sem einnig skiptir vestrænar þjóðir miklu máli, því að lokun Súez-skurðarins hefur f för með sér stórkost- leg mil'jaröaútgjöld fyrir þær. Prófraunin er einfaldlega sú, hvort ísraelsmönnum eigi að haldast það áfram uppi. að loka þessari heimssiglinga'eið með hervaldi. Og þar eru ekki aðeins í húfi siglingahagsmunir vestrænna þjóðá, heldur hvern- ■c um skipast hin mikilvægustu alþjóðamál. Cnginn h'utur ernú nauðsynlegri fyrir vestrænar þjóðir en að reyna að sættast við Arabaþjóðirnar og draga úr útþenslu og yfirráöum Rússa á þeim slóðum. Og svo virðist sem tíllögur og aðgerðir Sadats geti leitt til lausnar. Þorsteinn Thorarense::. taxiMii Fagrabrekka heita þessar brunarústir við Suðurlandsveg, en þær eru eitt það fyrsta, sem utanbæjarmenn á leið til höfuðstaðarins reka augun í til marks um snyrtimennsku Reyk- víkinga. Umhverfismengunin: liyelzt er, að merki sjáist um vaxandi hreinlætisáhuga og snyrtimennsku, þegar erlendir stórlaxar eða kóngar og aðrir þjóðhöfðingjar eru væntanlegir í opinberar heim- sóknir Þá er rokið upp til handa og fóta, hússkrifli máluð eða fjarlægö .malbikunarvélar keyrðar á tvöföldum hraða og hvarvetna reynt að snurfusa og dedúa við þá bletti. sem lík- legt er, að hinir erlendu höfð- ingjar berji augum. Allt þetta er gert í virðingarskyni yið hina erlendu gesti — en dags daglega er ekki að sjá. að Reykvíkingar beri virðingu fyr ir sjálfum sér. Svona hreinlætisherferðir standa sjaldnast nema í nokkra daga, síöan sækir aftur í sama farið, nýja málningin flagnar af, holur koma í malbikið og rusl og spýtnabrak tekur aftur að safn'ast upp. Þetta ástand, er óviðunandi. Með litlum tilkostnaði má gera Reykjavík aö heimsins hrein- ustu borg — án þess að miðað sé við fólksfjölda. Því fé væri vel varið, og séu ráðstafanirn- ar geröar strax, verður kostnað urinn minni. í mörgum nafngiftum kemiir fram, að íslend- ingar hafa einhvern tíma verið ákaflega róman- tískir fagurkerar inn við beinið. Við Suðurlands- veg, skammt frá Rauð- hólaaf leggj aranum, stendur til dæmis hús, sem heitir Fagrabrekka, í brekku, sem að vísu er hvorki brött né sérlega fögur, en nafnið ber engu að síður m.eð sér að einhvern tíma var staddur þarna maður, sem hafði auga fyrir fallegu umhverfi, og var jafnvel til í að hressa dá- lítið upp á það með fall- egu örnefni. jþað er fulldjúpt 'í árinni tekið að segja, að þarna standi hús, sem heitir Fagrabrekka, þvi að þama standa bmnarúst ir einar, sótugar og hálfhrund- ar, umkringdar drasli. Fagrabrekka er forsmekkur- inn af ýmsu, sem utanbæjar- maður á leið til Reykjavíkur fær aö kynnast þegar hann kem ur til höfuðborgarinnar. /~kft hefur verið um það talaö ^ háfleygum orðum, hversu hrein og falleg borg Reykja- vík sé — borgin reyklausa. Og þaö er mikið til í því, að snot- ur hverfi finnast innan borgar- markanna, en hreinleiki borgar- innar er alls ekki að öllu leyti að þakfca íbúum hennar, sem sumir hverjir virðast staðráðn- ir í að gera hana sem fyrst að sams konar óþrifabæli og ýms- ar erlendar stórborgir. Náttúran auðveldar mjög að halda borginni hreinni. Reykja- vik er upphituð mestmegnis með hitaveituvatni, svo að kolareykur og sót er sem betur fer óþekkt fyrirbæri, annars konar reykur er þó ekki með öllu óþekktur i borginni. því að fiskimjölsverksmiðjur blása reykjarstrókum upp í loftið, þeg ar bezt lætur og vindátt er hag stæð, en i logni leggst reykur- inn yfir borgina. Mikið hirðuleysi hefur löng um verið afsakað með því, að Reykjavík sé borg í örum vexti, svo að spýtnabrak og rus] við nýbyggingar sé aðeins merki um uppgang og velmegun. En ekki hefur þó fengizt nein við- hlítandj skýring á því, hvers vegna sóðaleg umgengni og trassaskapur umhverfis ný- byggð eða hálfbyggð hús þyki afsakanlegt og jafnvel sjálf- sagt fyrirbæri. Sömuleiðis er illmögulegt að átta sig á því, hvers vegna þvi er tekið með þegjandi .sam- þykki, að verksmiðjubyggingar og umhverfi þeirra skuli yfir- leitt vera óþrifalegra en tíðkast við mannabústaði. Einkum og sér í lagi er þetta skrýtið hjá þess'ari iðjusömu þjóð, þar sem margir eyða mun lengri tíma á vinnustað sínum heldur en á heimili sínu. Einnig kemur það leikmanni á fjármálasviðinu spánskt fyrir sjónir, að í borg, þar sem land er svo verðmætt, að sjálfir banfcarnir fjárfesta í lóðum, skuli finnast stór afgirt svæði, þar seni haugar af hvers konar drasli grotna niður ár eftir ár — gjarnan á fallegustu stöðum í Reykjavík. In þess að gerlegt sé að finna í fljótu bragði einhverja á- kveðna meginreglu um, hvaða aöil'ar eigi mesta vansæmdina af sóðaskapnum í Reykjavík, bendir flest til þess, að þar eigi einkum hlut að máli húsbyggj- endur, verkstæði og fyrirtæki sem eiga stórar ónýttar lóðir ■því fer fjarri, að hægt sé að setja alla Reykvíkinga und ir sama hatt í þessu máli. — Margir gera sitt bezta til að vemda umhverfi sitt og halda því hreinu og fallegu. Sóðarnir eru ekki eins margir, en þeir eru of margir. Ryðgaðar tunnur og húskumbaldi að hruni kominn „prýða“ suðvesturenda Öskjuhlíðarinnar. Draslið er vandlega afgirt eins og þjóðgarður. Þannig er umhorfs fyrir utan hús í Kænuvogi. Það fer enginn fram á, að skrúðgarðar verði ræktaðir utan um verkstæðis- eða verksmiðjubyggingar — en þetta er þó fulllangt gengið f öfuga átt.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.