Vísir - 22.05.1971, Qupperneq 5
VlSIR . Laugardagur 22. maí 1971.
5
„Það er að vísu enn ekki tímabært að mynda okkur innan dyra í Stjórnarráðinu,“ sögðu for-
sprakkar Framboðsflokksins, „en þáð er fyllilega tímabært fyrir utan.“ Með fingrunum
mynda þeir O-merkið, tákn flokksins. F. v. Hallgrímur Guðmundsson, framkvæmdastjóri
flokksins, Baldur Kristjánsson, varastýrimannsefni, Gunnlaugur Ástgeirss., stýrimaður flokks-
ins, Rúnar Ármann Arthursson, 1. maður á lista Framboðsflokksins á Suðurlandi, og Sigurður
Jóhannsson efsti maður á lista í Reykjavík.
//
Erurn ieiðir á gömium slagorðum
— segja forsprakkar Framboðsflokksins
//
„Kannski það hafi í upphafi
verið hálfgerður brandari, sem
nú er orðinn að stjórnmála-
f]okki,“ sagði Gunnlaugur Ást-
geirsson, stýrimaður Framboðs-
flokksins, og flokksbræður
hans, þeir Hallgrímur Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
flokksins, og Baldur Kristiáns-
son, varastýrimannsefni, taka
undir.
„Það má s'egjá' aö þessi flokk
ur sé nokkurs konar prófsteinn
á lýðræðiö í landinu.“
Þeir þremenningarnir gáfu
sér tíma frá kosningaundirbún-
ingi og próflestri til að segja
blaðamanni Vísis frá hinum ný-
stofnaða Framboðsflokki og
stefnumálum hans. Fundurinn
fór fram á Mokkakaffi en ekki
í skrifstofu flokksins, því að
þar er húsrými ákaflega tak-
markað, þar sem skrifstofan er
í pósthólfi 1800.
„Jú,“ segir Hallgrímur. „Hús-
næðið er að vísu af skornum
skammti, en það kemur pkki að
sök því að sem betur fer höfum
við ekkert bréf fengið ennþá.“
„Hvers vegna var Framboðs-
flokkurinn stofnaður?“
„Okkur fannst eins og gömlu
flokkarnir væru orönir leiði-
gjarnir. Stjórnmá'ayfirlýsing-
arnar frá þeim eru í flestum
atriðum alveg eins, alveg sama
tóbakið. Viö vorum ekki á-
nægðir með þá.“
„Er það ekki kostnaðarsamt
fyrirtæki að fara í framboð?“
„Það er ekki dýrt fyrir okkur,
sem höfum þióðina með okkur,
en fyrir hina flokkana, sem miða
að því að heilaþvo þióðina. má
gera ráö fyrir, að það sé dýrt
spaug.“
„Hvernig vitið þið, að þið
hafið þjóðina með ykkur?“
„Meðlimir Framboðsflokksins
eru allir þéir, sem ekki hafa
formlega sagt sig úr honum —
og ennþá hefur enginn sagt sig
úr honum. Og þar að auki hefur
okkur alls staðar verið einstak-
veH. tekið.“
„Hvað getið þið sagt um
flokkinn almennt?"
,,Á bak við Framboðsflokkinn
er engin gömul hugsjón. Skoð-
anir hans og stefnumál eru jafn-
fjölbreytt og skoðanir og stefnu
mál frambjóðendanna. Það er
ekki hægt áð mæla þenna flokk
á gömlu hægri-vinstri-mæli-
stikuna. Eitt aðalkappsmál okk-
ar er, að vaxandi hagfótur þurfi
stærri og betri skó.“
„Sem þýöir hvað?“
„Sem þýðir, að við erum
leiðir á gömlum slagorðum."
„Takið þið þátt í einhverju
samstarfi við gömlu fiokkatiíi
varðandi kosningaundirbúning?“
„Það er Pkkert.-ákypfiið pnn-
þá, en okkur skilst, að sumir
þeirra séu æstir í áS'iá að“véfa
með okkur í sjónvarpsumræð-
unum.“
„Hvers vegna?"
„Vegna þess að þá horfa al'ir
á sjónvarpið. Svo vildu l'ika á-
kveðnir aðilar fá okkur með sér
á framboðsfund á Reykjanesi —
„til að ,'t^ekkja“ eins og aum-
ingja maðurinn glopraði út úr
sér.“
„Eruð þið farnir að undirbúa
ykkur undir sjónvarpsumræð-
urnar?“
„Við erum einna helzt að æfa
kosningabrosið. Það hefur jafn-
ve! komið til tals að fá ein-
hverja tijsögn í tízkuskóla.“
„Búizt þið við að koma nianni
á þing?“
Nú færist líf í þá. Þeir eru
nú hræddir um það.
„Við bjóðum ekki fram nema
í þremur kiördæmum í bili. svo
að útilokað er, að við fáum
hreinan meirihluta. Við vorum
heldur ekki vissir um, að ráð-
legt væri að þurrka út alla
gömlu flokkana í einu.“
„Þið verð'ð kannski til með
að taka þátt í stjórnarsamstarfi
eftir kosningar?"
„Jú, við erum reiðubúnir tii
að taka þátt 'i stjórnarsamstarfi,
en ekki með neinum ákveðnum
flokkum, heldur með einstökum
þingmönnum eftir því sem
semst.“
„Hvað er að segja um fram-
boðslista ykkar.“
„Meðala'dur frambjóðenda er
sennilega um það bil helmingi
lægri en meðalaldur frambjóð-
enda hinna flokkanna. E’zti
frambjóðandi okkar er fæddur
1940, sá næstelzti 1945 og flest-
ir hinna 1949 og 1950.“
„Það er ekki sérlega mikiö
um kvenfólk á listum ykkar.
Eru kvenréttindin ekki hátt
skrifuð?"
„Auðvitað eru kvenréttindin
hátt skrifuð. Það kvenfólk, sem
er á okkar listum er þar vegna
eigin verðleika, en ekki vegna
kynferðis tii að prýða listana.
Það má líka koma fram, að við
erum eini flokkurinn, sem býð-
ur fram utanbæjarmenn í
Hjá þ,inum,^r,yþe.tta ■
öfugt.",,-.,..... . |
„Úr hvaða.stóttæru.frambjóð- |
endurnír einna helzt?“
„Margir þeirra eru náms-
menn, en annars koma þeir úr
mörgum störfum. Þeir sem
starfa einna mest líta á kosn-
ingaundirbúninginn sem góða
upp’vftingu frá próflestri."
„Ætlið þið að gera einhverjar
ráðstafanir á kjördag ti] að að-
stoða kjósendur ykkar við að
komast á k]örstað.“
„Strætisvagnarnir munu flvtía
okkar kjósendur, enda duga
varla smærri farartæki, og þar
að auki ætlum við að reiða fólk
á kjörstað á þeim reiðhjólum,
sem ganga af í flokkshappdrætt-
inu,“
„Kemur til greina, að þið
dragið framboð ykkar til baka
á síöustu stund?“
„Nei!“
„Starfar þessi flokkur að
einhverju leyti eftir erlendum
fyrirmyndum.“
„Sumir hafa spurt okkur.
hvort við værum að herma
eftir „Dvergunum" í Hollandi.
en það erum við ekki að gera.
Þegar fyrst var farið að ta!a um
að stofna flokkinn vissum við
ekki af tilveru þeirra. Ef við
eigum eitthvað sameiginlegt
með erlendum flokkum er það
tilviljun en ekki eftiröpun. Viö
h'jótum að eiga eitthvað sam-
eiqinlegt með flestum, þVi að
okkar höfuðmarkmið er að sam-
eina allar stefnur í einum
flokki."
,.Er eitthvað sérstakt. sem
ykkur lannar til að t'>k-' r'-am?“
Þeir ha'da ekki. ,,Og þó ...“
segir Baldur. „Maður verður að
vera heiðar'egur gagnvart kjós-
endum, það er ekki vert að leyna
bá neinu. Ástandið er nefnilega
dálítið slæmt með menntamála-
ráðherraefnið okkar ...“
„Nú?“
„Hann er svo flugveikur.“
— ÞB
Ritstjóri Stefán Guðjohnsen
DALLAS-Ásarnir frá Texas sigruðu
Frakka í úrslitaleik um heimsmeist
aratitilinn meö 243 stigum gegn
181. Er það annaö árið í röð, sem
þeir eru heimsmeistarar. 1 sveit-
inni eru Jacoby-Wolff, Lawrence-
Goldman, Hamman-Eisenberg. —
Fyrirliði er Oswald Jacoby. í
þriöja sæti varð Formósa sem snil
að við Ástralíu. í 5. sæti varð
Brasilía, en B-sveit B'andaríkjanna
gaf leikinn þegar staðan var 83-
63 fyrir Brasilíu.
íslandsmótið í sveitakeppni hófst
á fimmtudagskvöld í Domus Med-
ica og spila sex sveitir um titilinn.
I fyrstu umferðinni spiluðu allar
sömu spil og fékkst því saman-
burður milli þeirra allra. Þessi
háttur fékk þó misjafnar undir-
tektir hjá áhorfendum og vaþ þá
ákveöið að sýna einn af leikjum
mótsins á bridge-rama eins og
áður fyrr.
Hér er spil úr fyrstu umferð.
Staðan var allir utan hættu og
suður gaf.
4 10-5
4 10-9-6-4
4 G-4
* Á-K-10-4-3
♦ 8 4 D-7-6-4-3
4 K-D-G-5 4 8-7-3-2
4 Á-K-7-6-5-3-2 4 D-9
* 5 4> D-6
4 Á-K-G-9-2
V Á
„i • ■ iin. . 4'.10-8 ,.. .
4» G-9-8*5fr2|«f,,;fiiv i
Þar sem sveit Stefáns Guðjohn-
sen sat n-s, og sveit Þórarink Hall
grímssonar á Egilsstöðum a-v,
gengu sagnir þannig:
Suður Vestur Norður Austur
1 S D P 1 G
2 L 2 T 3 L P
3 S 4 T 5 L Allir pass
Vestur tök tvo hæstu í tígli og
spilaði síðan hjartakóng. Sagnhafi
drap á ásinn og átti auðveldlega
afganginn. Slétt unnið.
Á hinu borðinu gengu sagnir
þannig:
Suður Vestur Norður Austur
1 S D 2 L P
4 L 4 T 4 H P
5 L Allir pass
Austur spilaði út tíguldrottningu,
vestur tók 'tvo hæstu og spilaði
þriðja tfgli. Austur hlaut því að fá
trompslag og spilið varð einn nið-
ur.
Þar sem sveit Jóns Arasonar sat
n-s og sveit Hjalta Elíassonar a-v,
varð lokasamningurinn fimm tíglar
doblaðir í vestur. N-s fengu fjóra
slagi, 300 til n-s. Á hinu borðinu
spiluðu a-v fjögur hjörtu dobluö
og fengu aðeins sex slagi. 700 til
n-s. \
Þar sem sveit Skúla Thoraren-
sen, Keflavik sat n-s og sveit Guð
mundar Guölaugssonar, Akureyri
a-v varð lokasamningurinn fimm
tíglar doblaðir, 300 niður. Á hinu
borðinu voru einnig spilaöir fimm
tíglar, tveir niður, en ódoblaðir.
Mótinu lýkur á sunnudagskvöld
með hófi og verðlaunaafhendingu,
en í dag spila saman m.a. sveitir
Jóns Arasonar og Skúla Thoraren
sen, í kvöld sveitil' Sfefáns og'Jóns
og síðdegis á sunnudag spila
saman sveitir Stefáns og Hjalta.
Sýningar í barna-
skólum í Hafnarfirði
Lækjarskóli
í tilefni af 50 ára afmæli Sambands íslenzkra barna-
kennara, verður sýning á handavinnu og teikningum
nemenda, laugardaginn 22. maí kl. 14—19 og sunnu-
daginn 23. maí kl. 14—22.
Öldutúnsskóli
í tilefni af 10 ára afmæli skólans og 50 ára afmæli
Sambands íslenzkra barnakennara, verður sýning á
vinnu nemenda laugardaginn 22. maí kl. 14—19 og
sunnudaginn 23. maí kl. 14—22.
Skemmtiatriði fara fram báða dagana kl. 16.
Sýningarnefndirnar.
*JB \
IIB
m
Tilboð óskast í byggingarframkvæmdir við
Lagarfossvirkjun fyrir Rafmagnsveitur ríkis-
ins.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
Borgartúni 7, Rvík, gegn 10.000.— króna
skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað mánudaginn
5. júlí n. k., kl. 14.00.