Vísir - 03.06.1971, Page 2

Vísir - 03.06.1971, Page 2
=.“>( ii; ' ■ • ff/Mfííý Langstökk á mótorlijóli Ef til vill er iþetta lausnin á umferðarvandamálinu, þegar bíl- amir standa tímunum saman i einni bendu, og engin leið er að mjakast áfram, j'afnvel þótt lífið liggi við. Þessj maður á mótor- hjólinu, sem sést stökkva yfir / fimm stórar amerískar bifreiðir, er 18 ára gamall Bandaríkjamað- ur. Steven Droste að nafni. Ef- laust hefur hann upphugsað þessa nýju fþróttagrein, einhvern tím- ann þegar hann hefur verið bú- inn að fá leið á því að bíða tím- unum saman eftir að greiddist úr umferðinni. Hann segir, að langstökk á mótorhjóli sé ákaflega spennandi og skemmtileg íþróttagrein, þótt ekki sé beinlínis mælt með henni fyrir venjulega trimmara. Og Stev en hefur áhuga á að bæta heims- metið í greininni, en til þess þarf hann að geta stokkið yfir sjö bila — ekki neina smá'bíla, held- ur amerísk tryllitæk; af stærstu gerö. Þetta er líkast til alldýrt sport, nema því aðeins að kunningj'ar Stevens ber; það mikið traust til hans og hæfni hans í stökkinu, að þeir þori óhræddir að lána honum bíla sína til að stökkva yfir. Úrangútan í ur unga sína s LSD-vímu Gestir i dönskum dýragórðum gefa dýrunum eiturlyf TZ^alli, órangútan-api í dýra- v garðinum i Álaborg, er nú grunaður um að hafa verið í LSD- vímu. þegar hann drap nýfæddan unga sinn á dögunum. Þetta er í annaö sinn, sem Kalli verður nýfæddu afkvæmi. sínu að bana, því að það sama henti fyrir einu ári. Forstöðumaður dýragarðsins segir, aö þetta athæfi Kalla sé ákaflega óeðlilegt. í fyrra datt mönnum engin skýring í hug, en nú hallast forstjóri dýragarðsins að því. að Kalla 'hafi verið gefið LSD, og hafi því verið undir á- hrifum eiturlyfja, þegar hann drap unga sinn. Það hefur nefnilega komið á daginn, að eiturlyfjaneytendur • * .sa Kalli —* heíu/tvívegis drepið unga sína. hafa mikia ánægju af því að gefa mannöpunum íspinna með LSD í til að sjá þá ,,í rúsi“. Og upp á síðkastið hefur hegöan Kalla verið með slíkum endemum, að útlit er fyrir, að hann hafi orðið fyrir varanlegum skaða af eitr- Trylltist Burtséð frá því að hann drap ungana sína tvo, hefur Kalli hegð- að sér skrýtilega al-It undanfarið ár. Fyrir nokkru trylltist hann allt í einu og sleppti sér gersamlega. þegar hann réðst á gæzlumann sinn, sem hann hafði til þessa umgengizt af mestu vin- semd. Ofan í kaupið hefur Kalli gert ítrekaðar tilraunir til að brjót ast út úr búri sfriú að undan- förnu. Drápið á unganum kom f ljós í síðustu viku, þegar gæzlumaður- inn sá, hvar Kalli dró nýfæddan ungann um búrið. Hann hafði bit- ið sundur brjóstkassa ungans og slitið af honum annan handlegg- inn. Forstjóri dýragarðsins í Ála- borg segir: „Bæði gæzlumennirnir hér ’i dýra garðinum og ég hörmum þetta atvik. Við héldum, að viö værum að gera rétt, þegar viö leyfðum Kalla að vera inni í búrinu hjá Súsi, maka sínum, á síðasta skeiöi meðgöngutíma hennar. Fyrir um.það bil mánuði reyndi ég að aðskilja Súsí og Kalla, þegar við héldum að fæðingin væri í vændum. En Súsí varö svo óróleg, þegar við aðskildum þau, aö eftir fimm mínútur tókum við það til bragðs að leyfa þeim að vera saman í búri. Súsí varð al- veg óð. Hvert einasta hár á henni reis og hún barði í kring- um sig. Það róaði hana, þegar Kalla var sleppt aftur inn til hennar, svo að við leyfðum þeim að vera saman.“ Þeir. sem sjá um dýragarða, eru áhyggjufullir yfir þessum at- burði eins og vonlegt er, því að erfitt er að sjá til þess, að eng- inn geti gefið dýrunum sælgæti, og ekki er hægt að sjá, hvenær það inniheldur einhver eiturefni, þótt það sé reyndar furðulegt. að nokkur skuli geta fengið af sér að gefa dýrunum eiturlyf til þess eins að geta hlegið að viðbrögð- um þeirra. • •••MtMlltllimMMtKðlligilllMMtlMttMM’ Liz TayEor og Jieekie Önassis keppnst um að eignasf risagimsfein Það er keppt í mörgu, og núna eru tvær af ríkustu konum í heimi í harðri samkeppni um að eignast einn stærsta gimstein 1 heimi, sem innan t’iðar verður boðinn upp í Genf í Sviss. Þær Elisabet Taylor og Jackie Onassis hafa báðar sent fulltrúa til að vera við uppboðið og reyna að klófesta gripinn, sem nefnist ,,Deep Dene“ og er metinn á um tuttugu milljónir króna. Líka er talið að þriðja milljóna frújn, Barbara Hútton, girnist gimsteininn, en hún er ein af auð- ugustu konum veraldar og býr í Marokkó. Uppboðshaldararnir hugsa sér gott til glóðarinnar, ög hafa gef- ið út yfirlýsingu um það. að ekki verði svo mikið sem litið við til- boði upp á minna en 12 milljónir króna fyrir þennan gimstein, sem milljónafrúrnar langar að skarta. Þessi merkisgimsteinn, „Deep Dene“ fannst árið 1920 í Suður- Afríku. Uijimál hans er 28 milli- metrar.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.