Vísir - 15.06.1971, Blaðsíða 9

Vísir - 15.06.1971, Blaðsíða 9
V1S I R . Þriðjudagur 15. júní 1971. ,Opnu skólarnir' halda innreið sina á Islandi f~|pnir skólar" er slagorð, 99'-f sem sú kynslóð, sem hef- ur verið að útskrifast úr skólum landsins kannast varla við, hvað þá þeir, sem luku námi sínu fyrr. En þetta slagorö mun heyrast oft á komandi árum og boða breytingu í skólamálum. Með „opnu skólunum“ er átt við kennsluhætti, sem fela það m. a. í sér að kennsla fer fram í stórum sölum, þar sem stórir hópar nemenda vinna saman, eða út af fyrir sig og tryggt er, að hver nemandi temji sér sjálfstæð vinnubrögð. Þessir kennsluhættir hafa orðið til þess, að skólabyggingar hafa verið teknar til endurmats og nýjar byggðar'þar sem hið nýja skipulag hefur áhrif á fyrir- komulag og útlit þeirra, sem er mikil breyting !i sjálfu sér. Þetta sást á sýningunn; í Melaskóianum þar sem sýndar Það sérs á þessu líkani af Fellaskóla hversu ólíkur hann er gamla skólahúsnæðinu. í stað inn fyrir lokaðar afhólfaðar kennslustofur er kominn stór salur „amphiteater“ í miðju fyrstu hæðar þar sem börnin geta setið í hálfhring utan um stóran gólfflöt þar sem ýmiss konar starfsemi mun fara fram. Léttir, hreyfanlegir milliveggir einkenna einnig þessa tegund skólahúsnæðis. SZKvvS S i & ** 4 H t 'M«»’ .aiojjtí jjjijioii Jiii breyttum kennsluháttum voru teikningar af tveim nýjum skólum, sem koma munu í Reykjavík. Þótt ekki sé enn til- búið formlegt heiti á „opnu skólana" í íslenzku skólamáli er þó ljóst að breyting er í að- sigi og undirbúningur hafinn að nokkru leyti — möguleikinn á breytingu er látinn vera fyrir hendi. Jónas B. Jónsson fræöslustjóri segir um hinar nýju skólabygg- ingar: \ síðasta áratug hefur form 99^"*- skólabygginga fyrir barna- og gagnfræðastig breytzt verulega. Þessar nýju skóla- byggingar eru kallaðar „open plan schools“ í enskumælandi löndum, en í Danmörku, Sví- þjóð og Noregi þar sem þessir skólar hafa veriö byggðir hafa þeir verið kallaðir „landskabs- skoler“. Aðalbreytingin frá hinu hefð- bundna formi skólabygginga, sem við þekkjum svo vel, er að í stað hinna venjulegu kennslustofa, sem eru vendilega einangraðar og lokaðar eru skólabyggingar nú miklu opn- ari. Venjulega er salur í miðju húsi, sem tengir saman hálf- opnar kennslustofur. Þær eru gjarnan í mismunandi stærð og því er hægt að skipta nemend- urn í mismunandj stóra hópa bæði smáar einingar og svo stóra hópa. í þessum sal eru geymd kennslutæki og hjálpar- gögn, þar er bókasafn og hvers konar kennsluefni, og eru þessi hjálpargögn öllum mjög aðgengi leg og verka sem hvatning á nemendur og kennara til að nota þau. í Fossvogsskóla og Fella- skóla hefur verið freistað þess að byggja upp skóla með þessu sniði. Þó er þess gætt, að þar geti farið fram hefðbundið kennsluform." — TTru nýbyggðir Breiðholts- skóli og Árbæjarskóli með þessu sniði? „í þessum skólum eru skil- rúm úr léttu efn; og yröi hægt að breyta þeim og hafa kennslu- stofur misstórar.“ — Verður nýtt kennsluform, sem þessar breytingar á kennsluhúsnæðí gera m. a. mögulegar teknar upp í nýju skólunum t. d. Fossvogsskóla? „Fossvogsskólinn verður að einhverju leyti tekinn í notkun í haust, og ég tel nauðsynlegt að gefa þeim kennurum, sem áhuga hafa á þessu nýja kennsluformi tækifæri til þess að kynna sér það eriendis þar sem slíkir kennsluhættir eru notaðir.“ — Er breyting á kennslu- háttum fyrirhuguð? „Fyrst og fremst er hugað að því, að þarna séu til mögu- ieikar fyrir nýja kennsluhætti, en ekki verið að knýja þá fram.“ — Hvað verður um gömlu skólabyggingarnar, ef kennslu- hættir breytast almennt sam- kvæmt þeim möguleikum sem opnu skólarnir gefa? „Það er sjálfsagt mjög erfitt að breyta görnlu skólunum, þó eru sennilega allir hlutir mögu- legir. En í þeim skólum, sem hafa verið byggðir síðasta ára- tuginn eru byggingarnar með léttum skilveggjum og auð- veldara að breyta þeim en það- an af eldra skólahúsnæði, sem er með steyptum veggjum og þyrftj að brjóta niður, en eins og ég tók fram áður, bjóðast sennilega aðrir möguleikar til að nýta það skólahúsnæði." T>reyttir kénnsluhættir kalla 99-*-® á breytt skólahúsnæði“ segir Ormar Þór Guðmundsson arkitekt en hann og Örnólfur Hall arkitekt hafa teiknað Fellaskóla, sem mun koma í Breiðholti III og veröur senni- lega nýtízkulegasta skólahús- næði á landinu. „í þessari tegund skóla er miðað að því að hafa burðar- virki lítil,“ segir Ormar, „ekki steypa veggi heldur sú’ur svo hægt sé að mynda stóra sali og misstóra með hreyfanlegum milliveggjum. Leiðslur, svo sem vatns- skolp- og rafmagns- leiðslur eru bundnar útveggiun- um og burðarsúlunum, sem er skilyrði fyrir því að hæm sé að hreyfa hina léttu mil’iveggi. Annað atriði í sambandi við þessa tegund skólahúsnæðis er að húsið hafi vissa dýps og sé í tvær áttir, svo að hægt sé að fá sali, en ekki endalaus löng herbergi. Enn eitt atriði er að tekið sé tillit til hljóðburðar í húsinu. Það þarf að deyfa hljóðið niður, þegar skiliö er milli stofa með léttum veggj- um eða skápum. Það gerum við með því að hafa teppi á gólfum og hljóðdeyfandi plötur f lofti. Þegar teppi eru komin á gólfið krefst það, að skófatnaður og yfirhafnir séu settar við inn- ganginn og þar fyrir utan sé skólinn hreinn, sem býður upp á þann möguleika, að börtnin geti setið, legið og starfað á gcJfinu. í Fellaskólanum er þessi möguleiki fyrir hendi. Miðhluti gólfs fyrstu hæðar er byggður sem „hringleikhús", stórt svæði fyrir miðju og stallar í kring þar sem börnin geta setið í hálfhring og séð það sem fram fer á miðju gólfinu. Þar getur verið um að ræða leiksýningu, söng, ræðuhöld eða frjálst kennsluform." — Hver er forsenda þess, að breyft skólahúsnæði er tekið upp? „Skólamenn hafa talað um það, að fyrsta ski’yrð; fyrir þessum breytingum sé, aö starfs fólkið vilji vinna samkvæmt nýju fyrirkomulagi og síðan, að byggingarnar geri br.ð mögulegt. Þeir Ieggja það mikla áherzlu á byggingamar." — SB — Hvernig leggjast úrslit kosninganna í yður? Pétur Urbancic, bankaritari: — Engan veginn. Ég stóð í þeirri trú, að stjórnin mundi halda velli, eða ,að minnsta kosti merja það en Það virðist geta orðið erfitt, eins og málin horfa nú viö. Mér kemur helzt í hug, að sjálfstæðismenn taki saman ' við Framsók„ ellega þá Al.þ.fl. og Hannibalista. Gæti oröið sterkt að hafa Hannibal inni, þegar launamálin fara af stað í haust. Halldór Sigurgeirsson, skrifstofu maður: — Ja, ég er nú svo anzi ópólitískur orðinn, en ég geri mig þó ekki ánægðan meö úr- slitin. Finnst ískyggilegt, hvað vinstri-öflin eru orðin sterk. Get ekki ímyndað mér hvernig þeir fara með þetta ... i íi Hermann Hermannsson, skrif- stofumaður: — Bara vel. Við sjálfstæðismenn höldum Rvík í gegnum alla brimboöa. Það sýnir aö Rvík er okkur alltaf sterkt vígi. Ég tel sjálfsagt að Sjálfst.fl. haldi stjórnarforystu áfram. Spurningin er bara sú: hverja taka skuli til samstarfs. Guðmundur Arason, járnsmiður: — Mín skoðun er bjargföst. Ég álít aö unga fólkið hefðj gott af því að kynnast vinstri stjórn. Það mundi þá trúlega kjósa Halldór Sæmundsson, verka- maður: — Ja, það er nú það. Ég hef ekki heyrt úrslitin al- mennilega, en ég hef frétt að Sjálfstæðisflokkurinn hafj farið vel út úr þessu — það leggst vef 1 mig. Líka þaö, að Hanni- bal hafi komið á óvart. Ég held alltaf upp á hann, eins og aðrir verkamenn ‘i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.