Vísir - 25.06.1971, Side 1
tfSTU tlNSTAKUHGAR
SPRCNGDU TÚLVUNA
\ ■ , ' i
Porva'dur uuömundsson,
forstjóri:
„O, ekki er maður óvanur
þessu, því að I þessum sætum
hefur maður verið undanfarin
ár.
— En það er ekki umtaisvert,
þótt einhver borgi skattana
sína... einhver, sem rekur fyr-
irtæki eftir beztu getu, og fær
lagða á sig skatta eftir því.
Nær væri heldur að tala við
hina, sem taldir eru hafa góðar
tekjur, en borga enga skatta
samt. Þessa, sem „sleppa vel“,
eins og sagt er.
Það hlýtur að vera „sensation“
að heyra, hvað þeir hafa til
málanna að leggja.“
Pálmi Jónsson, forstjóri, —
annar hæsti einstaklingur á
skattlistanum, er staddur er-
lendis.
Ekki pláss á útskriftarvél skýrsluvéla rikisins
og Rvik fyrir tekjuútsvar og tekjuskatta Þorvalds
i Sild & Fiski og Pálma i Hagkaup
Takmarkaðir hæfileikar
tölvunnar komu sár illa.
Húr réði nefnilega ekki við
stærstu tölumar og sleppti
milljón framan af hjá tveim
ur mönnum, sem reyndust
vera hæstu skattgreiðend-
urnir, þegar til kom. Tvær
milljónir bættust því
á elleftu stundu við Þor-
vald Guðmundsson for-
stjóra Síld og fisk og Pálma
Jónson í Hagkaup.
Með viðbótinni ruku þeir upp í 1.
og 2. sæti. Þorvaldu,- með rúmlega
Hæstu fyrirtækin
Samanlögð útsvör, tekju- og eignarskattar:
1. Olíufélagið hf. 14.311.000,00.
2. Heildverzlunin Hekla 10.092.000.00
3. IBM 9.276.000.00
4. Olíufélagið Skeljungur 9.232.000.00
5. Eimskipafélag íslands 7.489.000.00
6. Olíuverzlun Islands 6.000.000.00
7. Gúmmívinnustofan hf. 4.178.000.00
8. Sveinn Egilsson hf. 3.860.000.00
9. Júpiter hf. 3.723.000.00
10. Verkfræðiskrifst. Sig Thoroddsen 3.537.000.00
11. Fálkinn hf. 3.531.000.00,
12. SÍS 3.286.000.00!
13. Húsgagnahöllin sf. 3.248.000.00
14. Bifreiðar -og landbúnaðarvélar 3.286.000.00
Hæstu aðstöðugjöld félaga:
1. SÍS 4.153.400.00
2. Sláturfélag Suðurlands 4.118.100.00
3. Heildverzlunin Hekla 4.006.900.1
4. Samvinnutryggingar 4.005.700.00
5. Loftleiðir 3.142.400.00
6. Eimskip 3.015.800.00
tvær og hálfa milljón í þau gjöld,
sem við tökum, útsvör og tekju-
skatt og eignarskatt.
Sigurgeir Svanbergsson í Vega-
leiðum fór niður í 3. sæti og aðrir
eftir því. Á bls 9. er því númera-
röðin ekki alveg rétt. Þar falla
allir um tvö sæti.
Á bls. 9 er listi yfir 54 hæstu
skattgreiðendurna í Reykjavík í ár.
Sigurgeir Svanbergsson, for-
stjóri Vegaleióa.
„Jú, mér lízt ágætlega á þetta.
Maður hefur þrælað fyrir þessu
myrkranna á milli, og þetta hlýt-
ur að vera rétt útreiknað. Það
er ekkert á móti því að hafa
svona skatta frá ári til árs, þeg-
ar vel gengur.“
Rolf Johanisen, stórkaupmaður:
„Maður vissi þetta nokkurn
veginn íyrir. Slíkt sér maður á
bókhaldinu, svo að þetta kemur
manni ekki á óvart. — Nú, og
undanfarin ár hefur þetta komið
þannig út, að ég hef lent í ein-
hverju þessara efstu sæta. Svei
mér, ef ég held ekki bara að ég
saknaði þess, ef ég félli niður."
Margrét Dungal, Miklubraut 20.
„Þetta er víst eins og hvað
annaö. Maöur verður að taka
því, sem að höndum ber. Að
öðru leyti hef ég ekkert um
þetta að segja.
Kristín Guðmundsdóttir,
híbýlafræðingur:
„Jesús minn! Eru þeir alveg
orönir ... ? — Mikið jjeta þeir
verið yndislegir! Maður leggur
nótt við dag til þess að reyna
að koma á legg 3 börnum, sem
eiga alla sína skólagöngu eftir
og svo... — Jæja, þetta er
mér mikið áfall, en svona bitnar
þetta ævinlega á þeim, sem eru
heiðarlegir."
Árni Gíslason, bflasmiður:
„Ég sá skattseðilinn minn, þeg
ar ég hljóp út f morgun. Hann
var alveg hroðalegur á fjórt-
ánda hundrað þúsund! — Það er
súrt að horfa þannig á eftir öllu
þvf sem maöur með erfiðismun-
um kraflaði saman s.l. ár. Skítt
með það, þótt þeir heíðu tekið
helminginn, en ca. % ... það
þætti fleirum skítt. Það varla
til þess að draga fram lífið al
því, sem eftir verður. — Það er
gremjulegt, að horfa upp á allt
erfiðið verða til einskis. Þetta
skal ég aldrei gera aftur —
þræla mér svona áfram, eins og
ég gerði f fyrra.“
Snorri G. Guðmundsson, for-
stjóri, Ármúla 7.
„Ætli maður eigi ekki að
borga eins og eðlilegt er, að
maöur borgi. Það er ekkert við
því að segja, að maður greiði
skatt í hlutfalli við þær tekjyr,
sem maður hefur.“
Kristinn Bergþórsson,
stórkaupmaður:
„Ég átti alltaf von á ein-
hverju svipuðu þessu. Þetta er
ekki ýkja mikil hækkun frá þvi
f fyrra. — Mikil umsetning meö
lítiö staifslið leiðir af sér háa
skatta.
Annars sem gamall keppnis-
maður, þá seilist maður alltaí
eftir efstu sætunum,“ sagði
Kristinn hlæjandi, en hann er
fyrrv. landsliðsmaður í bridge.
— „En ég má ekki vera aö þessu
skrafi, því að nú verð ég að
fara að vinna fyrir sköttunum.“
Karl Lúðvíksson, apótekari,
Austurbæjarapóteki.
„Ég hef ekkert um þetta að
segja Ekki neitt.“
— GP - HH - ÞB
HANNIBALISTAR aðeins í stjórn eftir úttekt á efna-
hagsmálunum og ýtarlegan málefnasanming
Vilja Alþýðuflokkinn með
2. Ákjósanlegast væri, að væntan
leg rikisstjórn byggi við sem traust
astan meirihluta svo aö tryggður sé
framgangur þeirra umfangsmiklu
aðgerða, sem framkvæma veröur.
Af þessum ástæöum telur þing-
flokkurinn nauðsynlegt að Alþýðu-
flokknum verði boöin, þátttaka í
þeim viöræöum, sem nú eru aö hefj
ast og flokksstjórn Alþýðuflokksins
ritað viðeigandi erindi þar um.
Auk framangreindra atriöa vill
i þingflokkur Samtaka frjálslyndra
og vinstri manna taka fram, að úti-
lokað sé að hann geti staðið að
myndun rikisstjórnar án þess, að
fyrst fari fram úttekt á þeim efna-
hagsvanda, sem fráfarandi ríkis-
stjórnarflokkar skilja eftir sig og
ýtarlegur málefnasamningur verði
gerður um lausn þeirra vandamála.
Hannibalistar vilja, að Alþýðu-
fl. verði hafður með í ráð-
um um myndun vinstri stjórnar
og að úttekt verði gerð á efna-
hagsmálunum og ýtarlegur mál
efnasamningur, áður en þeir
taki þátt í myndun slíkrar stjórn
ar. Þetta kom fram í svari því
frá Hannibalistum, sem fulltrúar
þeirra afhentu á þeim undirbún-
ingsfundi „Ólafíu“, sem lengi
hefur verið beðið eftir og hald-
inn var kl. 11 í morgun.
í svarinu segir m.a.:
„1. Við myndun ríkisstjórnar ber
eftir mætti að forðast útilokun
hluta þeirra afla, sem eiga heima í
sameiginlegum stjórnmálasamtök-
4um jafnaðar- og samvinnumanna.
Fulltrúar stjómarandstöðuflokkanna íhuga greinargerð Hannibalista á fundinum í morgun.