Vísir - 06.07.1971, Síða 1

Vísir - 06.07.1971, Síða 1
Færri atvinnulausir í • Atvinnuleysingjum í bæjunum fækkaði í siðasta mánuöi, og staf aðj öli fækkunin af því, að færri skólaungmenni í Reykiavík voru á skránni en í byrjun júní. í sumum bæjanna bættust nokk- ur skólabörn á atvinnuleysisskrána í mánuöinum, til dæmis f Kópa- vogi, þar sem atvjnnuleysingjum f jölgaði úr 8 í 22. AIls voru atvinnu lausir í bæjunum um 270. í Rvík eru nú atvinnulausir 106 sem er fækkun um 100 á einum mánuði. Á Siglufirði eru 55 atvinnulausir, en þeir voru 54 fyrir mánuði. 44 eru atvinnulausir á Sauðárkróki Hverjir verSa ráðherrar? fjórum mikilvægum máiaflokk- um sem eru menntamál, sjáv- arútvegsmál, iðnaðarmál og við skiptamál. Þeir hafa því lagt til, að ráðherrum yrði fjölgað, en náðherralaunin lækkuð, svo að kostnaður aukist ekki við fleiri ráöherra. Aö því er Vísir getur komizt næst eru bugmyndirnar um skipan í ráöherrastólana þessar: Ólafur Jóhannesson (B), for- sætis- og dómsmál. Halldór E. Sigurðsson (B) landbúnaðar- og samgöngumál. Einar Ágústsson eða Þórar- inn Þórarinsson (B), utanríkis- mál. Lúðvík Jósefsson (G) sjávarút vegsmál. Ragnar Arnalds, Gils Guð- mundsson eða Magnús Kjartans son (G) menntamál. Björn Jónsson (F), fjálmál. Magnús Torfi Ólafsson (I) félagsmál. Eins og sjá má á þessum lista er Hannibal Valdimarsson ekki taiinn með. Taliö er líklegt að hann vilji standa utan ríkis- stjórnar meðfram vegna hug- mynda um vinstri sameiningu, en einnig er talið óheppilegt, að bæöi hann og Björn Jónsson, formaður og varaformaður Al- þýðusambands íslands séu báðir í ríkisstjórn. Þetta kann þó að breytast þegar á herðir og Hannibal jafnvel veriö orðaður við utanríkismál, — Þá er eftir að koma fyrir tveimur veiga- miklum málaflokkum, viðskipta og iðnaðarmálum. Vei mætti hugsa sér, að Einar Ágústsson tæki viðskiptamálin meö utan- ríkismálunum, en óvíst er enn, hvor fer með landhelgismálin, utanríkisráðherra eða sjávarút- vegsráðherra. Þess skal getið að lokum aö þessi ráöherralisti hangir mjög í lausu lofti. -VJ Allsherjarmálefnasamningur tekinn fyrir á fundi / dag — Ný rikisstjórn á fimmtudag? Flest bendir nú til þess, að ný ríkisstjórn komist á laggimar í þess ari viku. Má jafnvel bú- ast við, að Ólafur Jó- hannesson kynrii ráðu- neyti sitt á fimmtudag, en ekkert hefur verið gef ið opinberlega upp enn, hverjir muni skipa ráð- herrastólana. Sérstakri nefnd var falið það verk jtea ' \ \ ’ efni, að bræða saman á- lit undimefndanna fjög- urra, sem flokkamir þrír fólu að kanna einstaka málefnaliði. Niðurstöður þessarar nefndar eiga að liggja fyrir fundi flokk anna þriggja, sem hefst kl. 5 f dag og geta flokkarnir þrír því fyrst rætt raunhæfan mál- efnasamning á fundi sínum í dag. Svo sem vænta má er flokkun um þremur mrki-ll vandi á hönd- um aö skipa í ráðherrastöðurn- ar. Þannig hefur verið rættum sjö ráðherra, en Alþýðubanda- lagsmönnum þykir vandséð, hvernig t. d. aðeins tveir menn þeirra get; annað sómasamtega Vaðsteinn og Ieðurleifar var fyrsti fornleifafundurinn á Uppsalahominu. Leitin aö bæjarstæði Ingólfs hófst í gær með uppgreftri á horninu. Leitin að bæjarstæði Ingólfs hafin Fornleifafræðingar byrjaðir á uppgreftri á Uppsalahorninu „Jú þetta er spennandi, en það verður enn meira spenn andi seinna, þetta er aðeins tilraunagröftur“, sagði Bengt Schönbech fomleifafræðing- ur við Vísi í morgun. Leitin að bæjarstæði Ingólfs er haf- in. Fornleifafræðingar byrj- uðu í gær að róta upp jarðveg inum á Uppsalahorninu. Vís- ir kom að þeim í morgun þar sem þeir vom með skóflur sín ar og rekur að grafa upp úr gmnni Uppsalahússins, vinnu vél var skammt fyrir ofan einnig í uppgreftri. „Viö erum að hreinsa upp úr grunninum og aðeins búið að taka ofan af moldinni sem er undir gamla Uppsaiagrunninum með steyputeifum í. í gær komu strax í ljós leöúrleifar, sem geta verið frá gamalli tíð. Þaö er hægt að láta sér detta í hug að þær komi frá Tómasi Björns syni Bech, sem átti hús héma á hominu, en hann kom hingað um aldamótin 1800. Hann hefur líklega haft hér söðlasmíðaverk stæði, en hann átti tvö hús hér á horninu og skemmu uppi í brekkunni. Áður en hann var hér var hér ullarstofan í inn- réttingum Skúla fógeta og llk- lega sútunarverkstæði lfka“, sagði .Þorkell Grímsson fornleifa fræðingur, sem vinnur að upp- greftrinum af Islendinga hálfu ásamt Þorleifi Einarssyni jarð- fræðingi, sem er til aðstoðar. „Rannsóknin beinist að því að finna forna bæinn í Reykja- vík, við vonumst til að finna bæjarstæði Ingólfs, en það er örðugt að segja hvar hann hafi búið, skoðanir um það eru á reiki. Þó hefur verið áhugi á þessu svæöi fyrir vestan gamla kirkjugarðinn. Það hefur oft ver ið haldið, að Ingólfur hafi búið hér. Menn hafa einnig haldið, að Ingólfur hafi búið á bak við þar sem er Grjótagata 4“. Sænski fornleifafræðingurinn Bengt Schönbech frá Statens Historiska Museurn í Stokk- hólmi var fenginn hingað til að hafa umsjón með uppgreftrin- um. Hann var í morgun að vinna við uppgröftinn með konu sinni Elsu Nordahl sem er einn- ig fornleifafræðingur. — Unnið verður f sumar við uppgröftinn til 15. ágúst og ætlunin er að halda áfram næstu sumur. — Bengt Scbönbech sagði við Vísi, að ekki væri vitað hvort þetta væri f raun og veru bæjarstæði Ingólfs, þar sem verið væri að vinna núna. En með þessum upp greftri sjáist hversu mörg jarð- lög séu að elzfu byggð. Svo get- ur hann um vaðstein, steinsökku af færi, sem fornleifafræðingarn ir fundu í gær, og Þorkell held- ur að sé frá því fyrir aldamót, og leðurleifarnar. — SB bæjunum (ivoru 39). Á Akureyri ecu aðeins 19 atvinnulausir, 17 í Hafnarfirði, 2 á Akranesi fig 2 á ísafirði. —HH Reiðhfil til að hjóla up|» tföppur! Ýmsir „nytsamir" hlutir eru kynntir í blaðino í dag, þar á meðal afar metkilegt reiðhjól, sem uppfinningaimaðurinn telur að sé tii þess að hjóla upp tröppur. — sjá nánar um upp- finninguna og aðrar / sama dúr á bls. 2 Devold: Síldin í engri yfir- vofandi hættu Norski síldarsérfræðingurinn Finn Efevold hefur látið í Ijós þá skoðun sVna að hann telji sfldina ekki í yfirvofandi hættu, en fyrrverand; brezkur ráðherra hafði áður viðhaft orð um það að síldarstofninum væri mikil hætta búin í Norðursjónum. — sjá bls. 7 Öryggisbelti í rúminu Bandaríkjamenn verða nú að hafa öryggisbelti f bílum sfnum, — og nota þau. Er þetta orðið að lögum, og tóku þau gildi 1. júlí s.l. Víða er það svo að menn hafa öryggisbelti, en nota þau ekki. — Oft hafa menn óska þess að hafa haft þau spennt. Það hefði getað komið 1 veg fyrir stórmeiðsl. 1 grein á bls. 9 er fjallað um notkun beltanna, — þar kemur m. a. fram að Bandarikjamenn verða að spenna beltin í rúm inu, í sumum tilfellum, þ. e. þegar þeir eru að ferðast í hús vögnum. — sjá bls. 9 Hvað kostar bil- túr til Akureyrar? Fjölskyldusíðan í dag fjallar um slika bilferð, en þeir eru margir, sem velja þessa leið f sumarleyfinu sínu. — sjá nánar bls. 13 Öruggar sprautur til getnaðarvarna Stofnun í Bandaríkjunum seg ir frá 100% árangri af þVi að gefa konum sprautur til að varna getnaði. Þessar sprautur voru gefnar fjórum sinnum á ári. — sjá bls. 3 Skordýraeitur í tóbaki Sænskir sérfræðingar hafa fundið talsvert magn af skor- dýraeitrinu DDT I tóbaki þar- lendis. einkum amerísku tóbaki. — sjá bls. 3

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.