Vísir - 04.08.1971, Page 7
VÍSIR. Miðvikudagur 4. ágúst. 1971.
og Sprengisandur
brautir
mikil umferð um hálertdið um verzlun armannahelgina
Kjölur og SprengisawVw komust
aftur svo um munaði i pjöfibraut
um verzlunarmannahelgina. Tölii-
verður fjöldi smábíla fór þessar
leiðir um helgina auk sterkbyggð-
ari farartsekja. Hálendisvegirnir
hafa verið óvenju góðir í sumar
cg sáust þess merki i umferöinni.
Á vinsælum ferðamannaslóðum á
hálendinu var mannmargt og var
t. d. mikið fiölmenni í Kerlingar-
fjöllum og geysimikið af tjöldum í
Landmannalaugum og allt inn meö
Eldgjá.
Ekki hefur frétzt af neinum *telj-
andj óhöppum á þessum leiðum. Þó
sagði Guðrún Sveinbjörnsdóttir
húsfreyja á Mýri í Báröardal, að
tveir' fólksbílar hefðu verið dregnir
upp úr Mjóadalsá í gærdag, en þeir
drápu á sér í ánni. „Það hefur ver-
ið mjö’g mikil umferö hér i sumar
um Sprengisandsleiö, og allar teg-
undir bíla. I sumar hefur ekki ver-
ið fariö inn í Eyjafjörðinn og hefur
umferðin því aukizt hér. Það var
he’.zt núna um helgina að fór að
bera á umferð t'ólksbíla og var það
útvarpið, sem átti sinn þátt í því.
Þetta er þó varla leið fyrir smá-
bíla en þeir komffst varla yfir ána
hér — þetta er eini farartálminn á
leiðinni og er það svotítið gremju-
legt“. Guðrún sagði umferðina hafa
greinilega verið meiri í sumar en
áður.
Mikill fjöldi bíia fór um Kjöl
um helgina. Franz Pálsson sem var
fararstjóri fyrir 4B manna hópi
frá ■ Ferðafélagi íslands sem fór í
Rafhitun eða
hveravatn?
Kerlingarfjöl! og á Hveravelli sagði
við Vísi: „Ég tel að þaö hafi
verið mjög mikil urnferð um Kjöl
og talsvert af fólksbílum. Viö mafett
um t. d. talsvert mörgum H-bílum,
sem komu að norðan, flest jeppar
'að vísu. í Kerlingaríjöllum var mik-
ið af fólki á skíðum og hafði það
jafnvel lítil börn meö sér“.
Það má tala um „skotfæri“ á
Kili. Bílstjóri einn, sem fór frá
Akureyri á smábíl var 9‘A tíma til
Reykjavíkur og fór þó rólega sam-
kvsemt þvi sem hann sagði
Mikill fjöldi smábiia ?ór til Land-
m. ínalauga og þar voru a’Hs staðar
tjöld allt frá Landmannalaugum og
austur i Eldgjá um helgina — SB
Vitaskipiö
tók land-
helgisbrjót!
• Vitaskipið Árvakur kpm
togbátnum EinariÞórðarsyniNK|
;20 að veiðum tveim sjómíluml
■innan fiskveiðimarkanna undffn|
iHjörleifshöfða laust fyrir mið-^
nætti í fyrrinótt.
i Báturinn var með botnvörp-
úna úti, þegar vitaskipið koro að.
• Var farið með bátinn til Vest
imannaeyja. þar sem um
•hans verður fjallað. —
að
Hafnfirðingar fá hráðum hitaveitu
Mikiö heitt vatn hefur komið úr
þeim borliolum sem Orkustofnun
hefur látið g'era á Krísuvíkursvæð-
inu, og virðist sem Hafnfirðingar
fái nú aukna möguleika á að leiða
til sín heitt vatn tij upphitunar af
þessum slóðum.
„Það er verið að fara yfir kostn-
aðaráætlun. sem verkfræðifyrir-
tækið Virkir gerði fyrir Hafnar-
fjarðarbæ 'fyrir nokkrum árum, og
fara þeir hjá Virki yfir kostnaðar-
áætlunina núna með sérstöku til-
liti til kostnaðar við rafhitun. .m-.
Niðurstöður þessara athugana
munu liggja fyrir mjög fljótlega,
og þá verður tekin afstaða tii hita-
veitumálsíns — þ.e. hvor kostur-
inn verður valinn rafhitun eða
upphitun með vatni". — GG
Það er hressandi aö þvo sér úr ísköldu lindarvatni að morgni
dags á sumarmóti.
Þessar tvær voru einmitt í andlitsbaði á sunnudagsmorguninn,
þegar ljósmyndarinn laumaðist að þeim.
Sumarmótin þóttu vel takast. — Spáð hafði verið vætu um
helgina, segja má að regnský hafi lónaö yfir svæðunum, en allt
fór vel, veðrið hékk þurrt og það sem meira var, mótsgestir héldu
sig frá því að blotna innvortis, en það hefur þótt heldur ljótur
siður á mótunum á stundum.
Andlitsböð og
hárþvottur á
sumarmótum
■4 Hin myndin er tekin í Galtalækjarskógi á sunnudaginn. —
„Nei, það er sko ekkert sældarbrauð að vera til, ekki með hana
á bakinu að minnsta kosti“, sagöi ungi maðurinn, sem klöngraðist
upp holt og hæðir með fallega stúlku, sem hottaði á hann. Þau
kváðust ætla að fara upp með ánni í hárþvott og almenna „upp-
skverun“ fyrir lokaballið þá um kvöldið. í Galtalækjhrskógi var
menningarlegt um að litast. Einn maður hafði sézt með áfengis-
flösku kvöldið áður og var einna likastur mislukkuðu skemmti-
atriði, en áfengisilmur fannst af einum eða tveim til viðbótap.
En allir skemmtu sér hið bezta og má segja að fólk hafi öllu:
fremur verið ölvað af gleði og ánægju. Mjög mikið bar þarna á
fjölskyldufólki, og virtist kynslóðagjáin enn ekki uppgötvuð af
þessum glaðværa hópi.
Dr. Gylfi í
húsiJóns S.sg-
urðssonar í
Höfn
í síðasta mánuði var í fyrsta
sinn auglýstur til umsóknar áf-
notaréttur af fræðimannsibúö í
húsi Jóns Sigurðssonar í Kaup-
mannahöfn. íbúö þessi er á 2.
hæð hússins og skal samkvæmt
reglugerð hagnýtt til þess að
skapa íslenzkum fræðimanni að-
stöðu til að starfa að tilteknum
rannsóknum á starfssviöi sínu.
íbúðin er veitt til afnota endur-
gjaldslaust frá 3 og allt að 12
mánuðum. 8 umsóknir bárust.
Stjórn hússins hefur ákveðiö að
veita dr. Gylfa Þ. Gíslasyni af-
notarétt íbúðarinnar frá 1. sept.
til 30. nóv. 1971. Hann hyggst
kynna sér nýjungar á sviði
rekstrarhagfræði. Frá 1. des.
1971 til 31. ágúst 1972 fær Gunn
ar Karlsson, cand. mag., rétt
til afnota af íbúðinni. — Hann
hyggst halda þar áfram rann-.
sóknum, er hann hefur stund*
að um nokkurt skeið, á lýðræð-
isþróun meðal íslenzkra bænda
á 19. öld.
OFNINN
ÁVALLT I SÉRFLOKKl
HF. OFNASMŒÐJAN
Einholti 10. — Slmi 21220.
i