Vísir - 21.08.1971, Blaðsíða 13
3T f S I R . Laugardagur 21. ágúst 1971.
7 3
pil
Börnin eru hvað fyrst til að fara í berjamóinn á sumrin. Hér hafa tveir röskleika strákar |
brugðið sér í berjatínslu.
— To/oð við grasafræðing, hófelstjóra, sim-
stoðvarstjóra o.fl. um berjasprettuna i ýmsum
landshlutum
]y<ú fer aö líöa aö þvi að fólk
fari til berja. í því sambandi
spurðist Fjölskyldusiðan fyrir
um berjasprettuna hjá ýmsum
aðilum.
Eyþór Einarsson, grasafræð-,
ingur hjá Náttúrufræöistofn'uri-
inni varð fyrstur fyrir svörum.
Hann sagðist búast við því, að
berjasprettan yrði eins og venju-
lega töluvert Breytileg. ,,Ég er
nýkomirin heim vestan af fjörð-
um og get ekki sagt um það
hvernig hún er í nágrenni borg
arinnar. Fyrir vestan var gífur-
lega mikið af krækiberjum, en
bláberjasprettan þar er aftur
á móti miklu seinni til. Snemma
í sumar sá ég mikið af biómum
á bláberjalyngi og í það heila
tekið held ég að það megi reikna
meö nokkuð góðri berjasprettu
á vestanverðu landinu."
— Er hægt að segja til um
það hvers konar veðurfar eigi
bezt við berin?
,,Það er erfitt að segja um
það vegna þess, að það eru mis-
munandi skilyrði, sem eiga bezt
við, bæði meðan lyngið er að
blómstra og eins þegar berin eru
að þroskast, sprettan fer líka
eftir jarðveginum hversu rakur
hann er, en yfirleitt má telja,
að hlýtt vor og gott sumar hafi
góð áhrif á berjasprettu. Það
háir stundum berjasprettunni
hér sunnanlands hversu litið er
um snjó á vetrum þannig, að
frost kemst að lynginu, en vet-
urinn var frostlítill og ætti hann
ekki að koma að sök núna“.
— Fölk hefur mismunandi
skoðanir á berjatínum og sumt
telur þær skaðlegar lyngi?
„Það er ekki ólíklegt að þær
getj skaddað lyng, ef þær eru
notaðar harkalega. Ég hef heyrt
menn lýsa efasemdum á t’inurn-
ar.“
— Nú hef ég heyrt misjafn-
lega látið af berjasprettu á land
inu?
„Það er aldrei þannig, að það
sé jafnmikið af berjum um allt
land. Veðurfar ætti þó að hafa
verið þannig, að minni finnist
horfur á berjasprettu góðar. Að
vísu var kalt fyrir norðan í vor
þótt veturinn væri mildur".
T^rá ýmsum öðrum aðilum hafa
heyrzt misjafnar fregnir.
Fólk, sem fór um Heiðmörk gat
ekki séð nein ber að ráði Útlit-
ið var heldur slæmt á ýmsum
helztu berjastöðum í nágrenni
Akureyrar og þótti fólki, sem
þar fór um það hafa heldur lítið
upp úr krafsinu.
Á Þingvöllum var útlit fyrir
sæmilega krækiberjasprettu,
betri jafnvel en undanfarin ár,
en þar er yfirleitt ekki mikið
um ber.
I nágrenni Ólafsfjarðar var
útlit sæmilegt en ekki talið að
krækiberin væru nógu stór.' i
Guðmundur Magnússon, hót-
elstjóri á Búöum sagöi, að það
liti sæmilega út með berja-
sprettu, „það er anzi fallegt
lyngið og góð rót fyrir bláber
sums staðar“.
Anna Böðvarsdóttir, símstöðv-
arstjóri á LaUgarvatni
sagði: „Þaö er nú ekki langt síð-
an ég fór út með fjöllunum
hérna og mér fannst bara li'tið af
berjum. Það er mikil beit þarna
og mikið af ónýtu berjalyngi. Ég
fer þarna árlega og það er segin
saga að berin minnka með
hverju ári, þar er nú lítið af
krækiberjum og ónýtt land
hvað berjatínslu snertir — það
er svo aö það er raunalegt upp
á að horfa Ég var inni f Þjörs-
árdal um helgina og þar var
anzi mikið af krækiberjum, anzi
falleg ber, og reytingur af blá
berjum, en yfirleitt voru þau
ekki orðin blá. Annars er mikill
vikur 'í Þjórsárdalnum og ég fór
ekki viða um.“ — SB
Jazzballet skóli
Sigvalda
NÝJUNG — NÝJUNG
Megrun og likamsrækt
fyrir konur á öllum aldri
Jazzballet
barnaflokkar — unglingaflokkar og fram-
haldsflokkar. — Innritun daglega. Sími 140SI.
Frá BSAB
eigendaskipti að 2ja herb. íbúð í 2. byggingar-
flokki félagsins við Álfheima og 4ra herb.
íbúð í 4. byggingafl. fél. við Kóngsbakka. Fé-
lagsmenn sem neyta vilja forkaupsréttar hafí
samband við skrifstofu BSAB fyrir 28. ágúst
1971.
BSF atvinnubifreiðastjóra
Fellsmúla 20. Sími 33509.
Wm
Ýtu skófla
Tíl sölu er 6 ára gömul ýtuskófla af gerðinni
Intemational DT9. — Nánari upplýsingar gef
sé skilað til hans fyrir miðvikudaginn 1. sept.
ur aðalverkstjóri Kópavogsbæjar. Tilboðum
næstkomandi.
. Bæjarstjóm Kópavogs.
an ogljeimilid
4
4