Vísir - 15.10.1971, Page 2
BARNIÐ I
KASSANUM
1945 naut Deborah Skinner þess kannski vafa-
sama heiðurs, að vera umtalaðasta pelabam í heimi.
Hún var þá 11 mánaða gömul, er hún komst á hvers
manns varir og forsíður vikublaðanna, og almennt
kölluð „kassabamið“ eða barnið í kassanum.
Kassinn — eða „upphitaða barnarúmið“, eins og
pabbi hennar kallaði hann, var uppfinning hans sjálfs
og var aðeins lítill, einangraður og lofthreinsaður
kassi með glerhurðum.
*
Astarferðir
loftleiðis
Angela Davies
Angela skrifar
í steininum
Angela Davies, sá byltingarsinn
aöi heimspekiprófessor, sem á-
kærö er fyrir meösekt í morði,
situr ekki iöjulaus, meðan hún
bíöur dóms í kalifornísku fangelsi.
Hún skrifar nú bók, sem hún
kailar „If They take you in the
Morning" og er áætlað að þessi
bók komi innan skamms á mark
aö, en þaö er lítið bókaforlag í
New York, „The Third Press“,
sem er útgefandi. Mörg útgáfufyr
irtæki um allan heim hafa sýnt
áhuga á að gefa bók Davies út.
Julian Bond, þekktur, svartur
pólitíkus í Georgíu ætlar aö rita
formála bókarinnar.
c □ o o a
Díana Dors
Hr. Diana Dors laus
„Ég hef verið sem liðið lík allt
síðasta ár,“ sagði nýlega sú
„aldraða“ kynbomba, Díana Dors í
blaðaviðtali, en maður hennar, Al-
an Blake verður á næstunni látinn
laus úr fangelsi þar sem hann
hefur setið sl. ár.
„Ég tel klukkustundirnar sem
eftir eru af innisetu hans. Áður
en ég kynntist Alan, þá þóttist ég
ævinlega ástfangin, en nú veit ég
að það hefur verið nokkurs konar
forleikur. Nú er ég ástfangin í
alvöru.“
Sagðist Díana heimsækja mann
sinn ’i steininn vikulaga og hafa
þá ineð sór son þeirra, Jason,
sem er þriggja ára.
Herra Skinner var sannfærður
um að þessi hitakassi hans myndi
gerbylta ungbarnaumönnun í
hinum siðmenntaða heimi, og í
samræmi við atferlissálarfræöi-
kenningar hans, skapa heilbrigð-
ari og kátari börn.
Skinner hélt því fram, að það
eina sem mál; skipti í sambandi
við eftirlit ungbarna, væri að
halda barninu nægilega heitu.
Sagði hann að ungböm væru yfir
leitt kappklædd í rúminu, £ bleyj-
um, buxum, sokkum, skyrtum,
peysum og guð má vita hverju,
en þessi föt gerðu ekki annað en
Deborah Skinner, 27 ára.
aö hindra hreyfingar barnsins, og
sköpuðu þa'r aö auki hættu á köfn
un. Því til viðbótar fer mikill
og dýrmætur tími móðurinnar í
að klæöa barnið og hátta það
þegar þarf að baða það, plús
voðlegur kostnaður sem fylgir
því að koma hverju barni upp
góðum klæðaskáp.
Til þess að losna við allt upp
talið mas, útbjó Skinner kassann
hennar Deborah. Kassann útbjó
hann með sérstökum loftventli,
sem réði loftmagninu þar inni og,
hafði líka hitastilli ti-1 að halda
ævinlega sama, rétta hitanum á
barninu þannig að það gæti verið
nakið þar inni.
Þetta leiddi samt til þess, að
Deborah, sem ævinlega var alls-
ber inni í kassanum við sama
hitastig, varð ákaflega næm fyrir
hitabreytingum, og þoldi varla að
finna fyrir smávægilegum gusti.
Loftið í kassanum var einangr
að, og hélt öllum bakteríum úti.
Deborah var ævinlega mjög hrein,
og dugði jafnvel að baða hana
einu sinni í viku. Auðvitaö þurfti
að skipta um bleyjur á henni, en
foreldrar hennar settu sérstakt lak
í kassann, þannig að það var hægt
að draga það undan henni, og
rúllaðist þá hreint lak niður af
rúllu, sem fest var á kassann.
Hr. Skinner tók sér þaö nærri,
þegar blaðaskrif urðu um það, að
„bamið í kassanum“ lifði í allt
of einangruðum heimi. Sagði hann
að barnið sæi út um glerið allt
sem gerðist í herberginu, og að
kassinn væri ekki nema að hluta
einangraður. Auk þess væri De-
borah oft tekin upp úr kassatt-
um og leikið við hana: „Við skilj
um ekki,“ sagði dr. Skinner,
„hvernig hægt er aö halda böm
um heitum með fötum og teppum.
Deborah er ævinlega ánægð, hún
grætur aldrei — ekki einu sinni
þegar hún er bólusett. Vellíðan
hennar er fullkomin."
Og þaö lítur ekki út fyrir að
Deborah hafi beðið skaða af því
að vera í kassanum. Hún er 27
ára núna, og er sjálf viss um
að þau rúmlega tvö ár, sem hún
var í kassanum, hafi gert henni
mjög gott.
„Og þetta var engin sálfræðileg
tilraun — heldur var þetta til-
raun um heilbrigða sál i heilbrigð
um líkama. Ég held að mér hafi
liðið mjög vel, og öll sú gagn-
rýni sem fram kom um þennan
uppeldismáta, kom frá fólki sem
vissi ekki hvað það var að tala
Eins og á öðrum verzlunar-
sviðum, þá reyna flugfélög út um
allan heim að festa klær sínar
sem víöast. Og nú er það kynlíf-
ið, sem bezt er að snúa sér aö
og reyna aö græða á fé.
Flugfélag í S-Ameríku, sem
kallast „South West Airlines", er
farið að moka inn fé á svoköll-
uðum „ástarferðum“.
Farþe'’- - f slíkar ferð
ir f~~ '-'vti ríkis
br' ' •' tir og
•• •'r, sem
kaupa sér miða fyrir morð fjár og
láta skemmtilega klæddar flug-
freyjur sjá um að bera sér veit-
ingar.
Eitt af því sem flugfélagið veit
ir viðskiptavinum sínum, er
sérstaklega blandaður „ástar-
drykkur", sem er sagöur vel til
þess fallinn að fá taugaslappa
viðskiptajöfra til að gleyma um
stund hlutabréfum og verðbréfa-
markaði, en hugsa því meira um
fögur læri flugfreyjanna.
Deborah Skinner í kassanum fræga.