Vísir - 15.10.1971, Side 3

Vísir - 15.10.1971, Side 3
V í SIR. Föstudagur 15. október 1971. mm í MORGUN UTLONDI MORGUN UTLOND I MORGUN UTLOND I MORGUN UTLOND Bandarísk þingnefnd samþykkir: Hætta aðstoð við Pakistan Utanrikismálanefnd öld- ungadeildar bandaríska þingsins samþykkti í gær að hætta skyldi allri að- stoð við Pakistan, en að- stoð við ísrael skyldi auk- in. Nefndin telur, að engin aðstoð skyldi veitt stjórn Pakistan, fyrr en Nixon for seti gæti sannfært þingið utn, að ástandið í Austur- Pakistan væri orðið eðli- legt og flóttafólkið f engi að snúa aftur heim. Frank Church öldungadeildarþing- maður sagði blaðamönnum, að deild in hefði verið harðari í afstöðu sinni til Pakistanstjórnar en full- trúadeild þingsins hefði verið, þegar hún hafi fjaliað um aðstoð við Pak- istan í ágúst sl. Ríkisstjórn Nixons hefur greitt um 20 milljarða króna í aðstoð viö Pakistan. Utanríkismálanefndin samþykkti að ísraej skyldi fá rúma sex millj- arða króna í sérstaka aðstoð, að því er öldungdeildarþingmaðurinn ÞRJÚ BÖRN MYRT — Morðingi vill útrýma svörtum innflytjendum Lögreglan í bænum Brad ford á Norður-Englandi er nú að taka fingraför allra karlmanna í bænum, sem eru eldri en 14 ára í tilraun til að hafa upp á þeim Þriðja jafn- teflið í röð í þriðja sinn í röð varð jafntefli milli stórmeistaranna Bobby Fisch- ers og Tigran Petrosjan í Buenos Aires. Nú eru búnar fimm af tólf skákum, og er jafnt 2l/2'2y2. Fischer bauð jafntefli í 38. leik, og Petrosjan féllst samstundis á það. Fischer hafði hvítt í þessari skák. Fischer hefur ekki staðið við Fischer vann fyrstu skáina í ein- stóru orðin, en sjö skákir eru víginu og Petrosjan þá næstu, en eftir. síðan hafa orðið jafntefiL manni, sem í gær myrti þrjú börn innflytjenda með íkveikju. Taka fingrafaranna' er þáttur í umfangsmikillj leit að glæpamanni i þessu máli, sem lögreglan kallar „djöfullegt". Lögreglan segir, að sprautað hafi verið parfínolíu bæði á ganginn og anddyri hússins. Hún hefur fundið tóma paTfínkönnu með fingraförum. Tíunda hver fjöl- skylda í bænum er þeldökkir inn- flytjendur. Þetta fólk lifir í si'felldri hræðslu við moðingjann, en hann hefur síöan 15. júní í sumar reynt ellefu sinnum að kveikja í húsum þessa' fólks. Þetta er þó í eina skiptið, aö manntjón verður Börnin þrjú voru á annarri hæð hússins og létust af reykeitrun, eftir að maðurinn kveiktj i'. Móöir barnanna' er í sjúkrahúsi með alvarleg brunasár, en eldri bróðir þeirra er úr hættu. Heimilisfaðirinn vann næturvakt í verksmiðju skammt frá, Nágrann- ar segjast hafa heyrt einhvern hlaupa skömmu áöur en eldsins varð vart. Varaforseti Kina sagður látinn Gerði LIN PIAO upp- reisn gegn MAO? Blað í Hongkong segir í morgun að varaformaður kínverska kommúnista- flokksins, Lin Piao hafi far izt í flugslysi í síðastliðn- um mánuði. Hann hafi þá verið á flótta eftir mis- heppnaða byltingartilraun sína. Hægrj sinnað blað í Hongkong Daily Express, vitnar til heimilda í Kína og fullyrðir að Lin Piao hafi haft áætlanir um að hrifsa til sín völdin úr höndum Mao Tse Tungs, áöur en hátíðahöldin 1. október liefðu farið fram. Eins og fram hef ur komið, var mjög dregið úr við iiöfn á þjóöhátíðardaginn í þetta sinn en engin skýring gefin. Bb.ðið segir að Lin Piao hafi flú ið, þegar upp komst um samsærið. Áður hafi hann þó reynt ásamt yfirmanni fiughers að umkringja heimili Mao Tse Tungs í Peking. Þeir hafi hins vegar komið að hús inu mannlausu. Lin Piao hafi þá farið um borð í flutningaflugvél og haldið í átt til sinnar gömlu her- deildar í Norðaustur-Kína. Hafi hann ætiað að undirbúa uppreisn gegn Mao þaðan, en flugvélin hafi farizt í nauölendingu i Mongólíu, þar serrf eldsneyti gekk til þurrðar. Frá riki Maos berast nú sífellt „dularfullar“ fréttir og Gyðingurinn Jacob Javitz segir. Nefndin samþykkti einnig tals- veröa minnkun á aðstoð við Suður- Kóreu, Kambódíu, Tyrkland, Jórdan íu og Grikkland. Aðstoð Bandaríkjanna við Pak istan, meðan borgarastríöið stendur hefur sætt gagnrýni. Einkum hafá verið tíðar mótmæiaaðgerðir á Ind landi, þar sem fullyrt hefur verið að þessi aöstoð til stjórnvalda í Pak istan komi þeim til góða í barátt unni við sjálfstæðishreyfingu Aust- ur-Pakistan. Bandaríkin hafa samt jafnframt Umsjón Haukur Helgason Frank Church þingmaður — Flóttafólkið fái að fara heim. þessu veitt allra ríkja mest til að- stoðar við flóttafólfcið frá Austur- Pafeistan, en um níu miiljónir flótta mánna hafa flúiö þaðan til Indlands sem kunnugt er. Glatt á hjalla í Persepolis Hátíðahöldin í tilefni 2500 ára af mælis Persarikis eru nú í hámarki. Sænski krónprinsinn skeggræddi við varaforseta Bandarikjanna, Spiro Agnew, og forseti Sovétrfkj anna Podgorny og Konstaintín Grikkjakóngur sögðu hvor öðrum brandara. Þannig lýsa fréttamenn „stemmningunni" í hinni fornu borg Persepolis í nótt. Flugeldaskothríö lýsti upp him ininn yfir rústum fornu hallarinn ar snemma í morgun og gestirnir fóru að tínast heim í tjaldborg sína. Þeir höfðu horft á söguleik á rúst unum, en Alexander mikli eyðiiagði höllina 330 fvrir Krists burð. í gærkvöildi sátu kóngar, forset ar og önnur stórmenni frá 69 þjóð ríkjum veizlu með keisara' og drottningu hans Farah Diba. Menn voru nokkuð þungir í fyrstu. en síðdh varð glatt á hjalla eftir að kavíar og kampavín var fram boriö. ségja fréttamenn. s%.,' Iranskeisari og drottning hans, Á vegg á fullri ferð — ekkert tjón — Saab fyrst með höggpúða sem fullnægir skilyrðum ársins 1973 Saab-bilfreið árgerð 1972 var í gær ekið með gffurlegri ferð á vegg á kjallara á „lúxushótelinu“ Emb- assy Row í Washington. Höggpúði, séstaklega gerður tók hins vegar við högginu og alls ekkert tjón varð á bifreiðinni. Á þennan hátt auglýsti Saab, aö sænski smábíllinn er fyrstur til að koma rneð höggbúða sem er í sam- ræmi við það sem bandarísk lög muni krefjast fyrir alla bfla af ár- gerðinni 1973. Saab segist vera ári á undan og hafa einá bílinn í heimi, sem uppfyllir þessar kröfur: Trygsingafélagið Allstate Insur- ance Company ætlar aö veita eig- endum Saab 15 prósent afslátt af tryggingargjöldum.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.