Vísir - 15.10.1971, Side 5
VÍSIR. Föstudagur 15. október 1971.
HMilfiCAflUC
— tveir leikir verða háðir um helgina. Annar
/ Vestmannaeyjum, en hinn / Reykjavik
Tveir leikir í 2. umf erð
Bikarkeppni KSÍ verða
háðir um helgina og þau
lið, sem sigra þar eru
kominn í undanúrslit
keppninnar ásamt Akur
nesingum og Víkingum.
Það er því til mikils að
vinna í þessum leikjum
og sigur í bikarkeppni
veitir rétt í Evrópu-
keppni bikarmeistara.
Fyrri leikurinn verður í Vest-
mannaeyjum og hefst kl. tvö á
laugardag. Þar leika ÍBV og
Fram og ef dæma má eftir ár-
angri Eyjamanna á heimavelli
sVnum í sumar ættu þeir að vera
sigurstranglegir í þessum leik.
Á Islandsmótinu í sumar í Vest-
mannaeyjum sigraði ÍBV með
4—1, en Fram var um þær
mundir í miklum öldudal. í
leiknum í Reykjavík sigraöi
Fram hins vegar i viðureign fé-
laganna með 3 — 1
Fram leikur án Jóhannesar
Atlasonar, sem hefur verið fyrir-
liði liðsins í sumar, en hann er
nú á förum til Englands og mun
dvelja þar við nám í íþróttafræð-i
um, en Jóhannes er íþróttakenn-
ari að atvinnu. Einnig mun hann
sennilega' leika með einhverju
áhugamannaliði á Englandi.
Síðari leikurinn verður á
Melavellinum á sunnudag og
hefst kl. tvö. Þar mætast Valur
og Breiðablik, sem vakt; lang-
mesta athygli ’i 1. umferð, þegar
það sigraði íslandsmeistara
Keflavíkur Þetta ætti að geta
orðið skemmtilegur leikur en
sennilega hallast þó fleiri að
sigri Vals í leiknum.
Hins vegar er rétt að benda á,
að í leik liðanna í 1. deild í
sumar á Melavellinum sigraöi
Breiðablik með 2—0, og var sá
sigur mjög verðskuldaður, og
einn fyrsti leikur Breiðabliks,
þar sem liðið vaktj verulega
athygli. I hinum leik liðanna i
1. deild á Laugardalsvelli sigr-
aði Valur með 4 — 2 og skoraði
tvö síðustu mörkin rétt fyrir
leikslok_
Ekki er enn fyllilega ákveðið
hvar og hvenær leikirnir í und-
anúrslitum bikarkeppninnar
veröa háðir Það verður þó
sennilega um þar næstu helgi —
en mótanefnd KSÍ hefur leyfi til
aö ákveða hvar leikirnir verða
háðir — eða þar, sem hún telur
mesta tekjumöguleika. Þetta
finnst mér persónulega ófært
fyrirkomulag. Það lið, sem dreg-
ið er úr hattinum á undan, á
auðvitað að leika á sínum heiiiia
velli. Hins vegar er sjálfsagt að
úrslitaleikurinn sé á Melavell-
inum eins og alltaf hefur verið.
— hsím.
Opið mót í badminton
Opið mót verður haldið í bad-
minton í Laugardagshöllinni 30.
okt næstkomandi.
Keppnisgreinar verða:
Einliðaleikur karla einn flokkur.
Einliða og tv'iliðaleikur kvenna
einn flokkur
Ekki verður um hreinan útslátt.
að ræða í einliöaleik karla, þar sem
þeir er tapa fyrsta leik ganga yfir
í aukaflokk.
Þátttaka tilkynnist til Hængs
Þorsteinssonarí sími 35770 eða
82725 fyrir 18. október
Tennis oð Badmintonfélag
Reykjavíkur.
Á morgun verður stóri leikurinn í Evrópukeppninni í handknatt leik í Laugardagshöllinni. Þá mæta íslandsmeistarar FH frönsku
meisturunum Ivry og þyrfti FH helzt að tryggja sér nokkurra marka forskot fyrir hinn síðari, sem verður háður í Frakklandi.
Myndin hér aö ofan er af íslandsmeisturum FH og við vonum að þeim takist vel upp á morgun. Leikurinn hefst kl. 15.30.
Einar Hjartarson dæmir í Glasgow
Það verður íslenzkt dóm
aratríó, sem dæmir leik
Celtic og Slima Wanderes
frá Möltu, í Glasgow á mið
vikudaginn. Þá mætast
þessi lið í 2. umferð Evr
ópukeppni meistaraliða.
Ákveðið hefur verið að Einar
Hjartarson verði dómari leiksins,
en línu veröir verða þeir Guðjón
I Finnbogason frá Akranesi og Valur
jBenediktsson, Reykjávík Þetta
! verður þriðji leikurinn í hinum
ýmsu Evrópumótum í haust, sem
. íslenzkir dómarar sjá uni dóm-
igæzluna í. Sem kunnugt er mætti
Akranes Möltu-liðinu í 1. umferö
^keppninnar og var slegiö út —
tapaði fyrri leiknum, en jafntefli
; var í hinum síðari. Báðir voru leikn-
ir á Möltu. Celtic er eitt kunnasta
knattspyrnulið á Bretlandseyjum og
sigraði í þessari keppni 1967 —
fyrst, brezkra liða.
Aibert Guðmundsson
Albert út
oð semja
Heimsmeistarakeppnin í knatt-
spyrnu verður háð ’i Þýzkalandi
1974 og ísland er þar meðai þátt-
takenda. Albert Guðmundsson, for-
maður KSÍ fer utan á sunnudag til
BrUssel 'i Belgíu til að semja um
væntanlega leikj islands í keppn-
inni. Dregiö var fyrir nokkru og er
ísland í riðli með Belgíu, Hollandi
og Noregi og er sennilegt, að ein-
hverjir leikir í riðlinum verð; þeg-
ar háðir næsta sumar — en um
það mun Albert semja úti. Leikinn
er tvöföld umferð — bæði heima
og að heiman.
Dregið á
sunnudag
Strax eftir leik Vals og Breiða-
bliks á sunnudaginn verður dregið
um það hvaða lið mætast í undan-
úrslitum Bikarkeppni KSÍ. Tvö
lið, Akranes og Víkingur, hafa
tryggt sér rétt ’í undanúrslitum, en
hver hin tvö liðin veröa kemur í
ljós í leikjunum tveimur í bikar-
keppninni um helgina.
Formanna-
fundur K.S.Í.
Formannafundur KSÍ verður að
Hótel Loftleiðum á laugardag og
hefst kl. 13.30 og veröur þar unn-
in einhver undirbúningsvinna fyrir
ársþing KSÍ, sem veröur haldið 27.
og 28 nóvember.
Landsliðið
til Irlands
Unglingalandslið íslands í knatt-
spyrnu, sem sigraði írland hér
heima á Laugardalsvellinum á dög-
unum, heldur til írlands á mánu-
dag og leikur síöari leikinn við íra
í Dublin á miðvikudaginn. Það lið-
ið, sem sigrar ’í þessari keppni,
mætir næst Wales. Ef fsiánd vinn-
ur skapast mikið vandamál fyrir
ísl. piltana, sem nær allir eru
námsmenn, og leikirnir viö Wales
yrðu þá að fara ffam einhvern
tímann í vetur. En nánar verður
rætt um þetta hér á íþróttasíðunni
eftir helgina.