Vísir - 15.10.1971, Side 9
V1SIR. Fðstudagur 15. október 1971.
9
„Hvað ætli þeir séu margir þessir veðurguðir?“
spurði maður einn, sem leit til okkar hingað á
blaðið um daginn. — „Maður lítur á almanakið og
sér að það er október og maður lítur út um glugg-
ann og sér að það er frost í jörð og heldur kulda-
legt um að btast. Og maður fer niður í kjallara og
grefur upp vetrarfrakkann, hanzkana og skinnhúf-
una, og þegar maður Ioksins kemur út undir bert
loft, þá finnur maður að það veitir ekkert af frakk-
anum, og maður lofar sjálfum sér að fara í föður-
landið í fyrramálið og reyna að fá fyrirfram af kaup
inu svo maður geti fengið sér kuldaskó.“
„Svo fer maður og fær fyrirfram fyrir kulda-
skóm. Daginn eftir er komið úrhelli, og maður
verður aftur að hendast niður í kjallara að sækja
regnkápuna og skóhlífarnar — ég nennti því raun-
ar ekki, og það er þess vegna sem ég stend hér í
gegnblautum ullarfrakka og það standa af mér
svitagufurnar af því að ég var kominn út á strætó-
biðstöð þegar ég áttaði mig á því að ég fór í ullar-
nærfötin eins og ég hafði lofað sjálfum mér! Óþol-
andi veður“.
Veðurguðir
— „Hvað eru veðurguöir
pabbiT*1 heyrðist lítill drengur
spyrja frakkaklæddan föður
sinn í strætisvagni um daginn.
„Veðurguðir?" sagði pabbinn,
„æ — það eru þeir sem hafa
fyrir okkur veöur Þú getur séð
þá í sjónvarpinu á kvöldin."
Og leikmenn spyrja oft veður
fræðinga hér á landi, hvort það
sé ekkí V senn erfiðara starf
og skemmtilegra, að vera veð-
urfræðingur hér en t. d. á
Mæjorku, þar sem sólin skín
alltaf.
Þær hafa a m. k. verið nokkuð
„fjörmiklar" veðurspárnar. að
undanfömu. Á miðvikudaginn
hringdi Vísir í Veöurstofuna, og
Páll Bergþórsson tjáöi okkur, að
þann dag til kvölds myndi verða
lygnt veður, og frost allt að
sjö stigum. Reyndist það rétt
vera, en um kvöldið var hann
kominn hva'ss á suðaustan.
„Og hann heldur sér í suð-
austrinu til fimmtudagskvölds“.
sagðj Páll „þá vendir hann yf-
ir í suðvestrið og kemur með
skúrir".
— Hvaö skyldi þaö nú standa
lengi?
„Hann verður kominn í norð-
austrið á fimmtudagskvöldið og
jafnframt kólnar þá eitthvað,
þótt ekki verði eins kalt og
va'r fyrr í vikunni."
„Regnhlífaveður“ eða
„frakkaveður“
„í Reykjavfk er aldjft fr.ákk^
veður,“ sagðj Norðlendingur
einn við Vísismann nýlega, „það
er ævinlega einhver fjárans
suddj hér og dugir ekkert ann
að en gúmföt — aftur á móti
ættj hver einasti maður hér aö
ganga með regnhlíf — lfkar þeg
ar snióar eða sólin skín.“
- Nú?
„Það er svo ágætt að hafa
uppspennta regnhlYf til að
bregða fyrir andlitið í þann
mund sem maður arkar yfir
göturnar. Bílar stoppa þá skyndi
lega þegar rigning er, að maður
kemst yfir án þess að þurfa
að bíða lengi.
Svo er lika nauðsynlegt ,*ð .
vera ævinlega í uppháum stig-
vélum, vegna þess að bYIar aka
svo hratt um götumar, sérstak
lega þegar rigning er, að maður
verður með einhverju slíku móti
að verjast ágjöf frá þeim. Flest-
ar götur eru svo illa gerðar,
að vatnshallinn hefur gleymzt,
eða þá að niðurföllin eru stffl
uð, og bílarnir aka því eins og
í grunnu stöðuvatni. Óþægilegt
fyrir gangandi en þeir veröa
einhvem veginn að verjast."
stjórar eiga vont meö að komast
hjá að aka ofan t drullufenið
og ausa því yfir gangstéttina:
Og þá er lítið gaman að vera
gangandi þar framhiá, kannski
í betri fötunum að fara á áríð
andi fund.
Af einhverjum ástæðum veit
ist starfsmönnum gatnamála-
stjóra erfitt að halda niöurföll-
um í lagi a. m. k. viröast þau
illa þola að fá ofan í sig vatn.
Þarna myndast því iöulega
stöðuvatn, heldur forugt, og bíl
Tveir geðstirðir
Undirritaður var eitt sinn I
slagviöri á leið upp Laugaveg.
Rétt innan við Heklu, bílaumboð
ið, var maður á gangi, og stefndi
sá líka austur Laugaveg.
Það venjulega „stöðuvatn" var
komið á sinn stað. náði frá gagn
stéttarbrún og út undir miðja
akbrautina
Allt f einu kom Trabantbfll
á mikill ferð og ók fyrst fram
hjá undirrituðum. Sem betur
fer var ég ekki kominn að
fyrrgteindu „stööuvatni". en
það var hins vegar sá er á
undan gekk, Og sá fékk aldeilis
baðið!
Hann var frakkaklæddur og
í hvítri skyrtu, hafði þar að auki
hatt á höfði Ég reikna ekki með
að hann eigi lengur bessar flík
ur, bví í þann mund sem Trab
antinn var kominn gegnum vatn
ið. stóð maöurinn á gangstétt-
inni, rennand; blautur og for-
ugur upd fyrir haus
Frakkinn orðinn að forar
druslu og hatturinn hafði tekið
á sig einhverja undarlega lög
un. Maðurinn steytti hnefann á
eftir b’flnum, og þegar ég gaf
mig á tal i;ið hann og bauðst
, til að aðstoða^ ef eitthvað væri
hægt að gera,' rak hann upp
skræk og tók á rás. Fyrst hent
ist hann inn Laugaveginn á
eftir bílnum, en breytti fljótt
um stefnu, og stökk upp holtið,
yfir óbyggða svæðið neðan við
Tónabíó og hvarf upp í Skip-
holtið Aumingja maðurinn
Það er hins vegar af Trabant
inum að frétta, að hann komst
ekk; öllu lengra en yfir poll-
inn. Hann fékk nefnilega sjálf
ur þvílíka gusu yfir sig og upp
undir, að hann blotnaði illa.
Brátt fór hann að hósta og
skyrpa. og loks stoppaði mótor
inn alveg.
Ég fór og hjálpaði ökumann
inum að koma bílnum út fyrir
götuna, og fékk að heyra hvem
ig komið var fyrir skapsmun-
um hans Það stendur nú ekki
tij að ég haf; orðbragð hans
hér eftir, enda óprenthæft, en
kannski einhverjir borgarstarfs-
menn hafj fengiö hiksta þennan
eftirmiðdag. —GG
„.. .vaða með regnhlífar fyrir andlitinu út á umferðar-
götur...“
„Ávallt viðbúinn“
Við birtum í fyrradag grein
meö ráðleggingum til handa b'il
eigendum fyrir veturinn. Verra
er aö semja slíka rullu handa
gangandi fólkj að fara eftir.
Eina ráðið sem dugar, er að
vera ávallt viðbúinn — eða svo
sa'gði okkur garpur einn í Kópa
vogi, sem vinnur í Reykjavík,
en gengur yfirleitt til vinnu
sinnar.
Þetta er nú soldið kaldhæðni
legt, því að varla getur maður
inn dröslað með sér regnfötum
eða kuldaúlpum 1 vinnuna dag
lega, tij þess að vera viðbúinn
veðurfarsbreytingunni, sem ef-
laust verður einhvern tíma dags
ins.
— Nei. Reykvíkingar, sem
hugsa sér að fara allra sinna
ferða um borgina, óháðir blikk
beljunni eða strætisvögnum,
eiga sannarlega úr vöndu að
ráða.
Mjög margir þurfa t. d. að
storma .nn Laugaveg og Suður
landsbraut daglega. Þessi leið
verður svo að segja ófær yfir
ferðar ef aðeins ýrir úr lofti.
„Ég veit hann er skritinn .. .en hann er nú einu sinnl
veðurfræðingur.“
«!0 -nbo </ h