Vísir - 23.10.1971, Side 1
„Lengi veríð til
- en lítið selzt"
— segir verzlunarstjóri NLF-búðarinnar um söluna á Melisana-lyfinu
Eítt bezta sumar um áratuga-
skeið kvaddi í gasr. Svona eins
og til að minna á, hversu blíð-
lynt það hefur verið setti það
upp sparibrosið i gær eins og
undanfarna daga, þ.e. kvaddi
eins og það kom og hefur verið
löngum með blíöviðri. — Raun-
ar segja veðurfræðingar að sum
arið hafi verið heldur kaldara-
en í meðalári, en það er ekki ná
kvæmt hitastig, sem ræður
hvaö fólki finnst um veður,
heldur sólskinsstundir, regn og
vindar eða stillur.
Þetta lyf hefur verið til
hérna í mörg ár öðru hverju,
sagði Ásbjörn Magnússon,
verzlunarstjóri Náttúrulækn
ingafélagsbúðanna, er Visir
hringdi til hans í gær vegna
sölu á „Melisana“ mixtúr-
unni sem Vísir skýrði frá í
gær, en meðal þetta reyndist
innihalda 79% alkóhól og
ætti þvi að réttu lagi hvergi
að seljast nema þá í Áfengis
verzlun ríkisins.
„Melisana" fékkst í gær iNLF-
^ búðinni í Sólheimum, en þá
voru raunar aðeins eftir fáein
glös, sem seldust upp í gær.
Sagðj starfsfólk verzlunarinnar
hins vegar að mjög mikið hefði
hins vegar verið spurt eftir
þessari mixtúru og hefði af-
greiðslufólkið orðið fyrir tals-
verðu ónæði af þeim sökum og
jafnvel borið það á brýn að það
hefði stungið þessari sterku
mixtúru undir stól.
Að sögn Ásbjörns hefur lítið
selzt af þessu meðali, einna
helzt að Þjóðverjar hafi keypt
það, en þetta mun til í öllum
venjulegum verzlunum í Þýzka-
landi.
— Heildverzlunin Elmaró hef-
ur flutt „Melisana" inn og virö-
ast tollverðir ekki hafa gert
neinar athugasemdir við þennan
innflutning.
I frásögn V’isis í gær stóð að
mixtúran fengist á lítra flösk-
um og var þar um prentvillu að
ræða að sjálfsögðu eins og sjá
mátti á myndinni. í fréttinni
átti að standa að þetta fengist á
litlum flöskum. Pyttlurnar sem
meðalið er selt á taka naumast
meira en 200 grömm. Það væri
enda anzj ódýrt áfengi, sem
kostaði aðeins 110 kr. litrinn.
- JH
GÁFU HÚSRÁÐANDA EITUR
OG RÆNDU HANN
Maður nokkur fór á fimmtu-
dagskvöldið var að skemmta sér
í Þórskaffi. Segir ekki frekar af
skemmtuninni, nema hvað mað
urinn komst í góðan kunnings-
skap við eitthvert fólk, sem
hann reyndar man ekki lengur
hvað heitir eða hvemig það leit
út. Bauð hann þessu fólki heim
með sér á Háteigsveg eftir
ballið.
Eitthvað hafa gestir hans verið
grátt þenkjandi, því að þeir munu
hafa gefið honum inn eitthvert eitur
■ pilluformi. Féll maðurinn fljótt í
óminnisdá, og man ekkert síðan.
Er hann vaknaði, komst hann að
raun um, að gestirnir heföu af ein-
hverjum ástæðum ekki séð ástæðu
til að láta hann fá pillurnar ókeypis,
því að hvert tangur og tetur hafði
verið hirt úr peningaveski hans.
í veskinu voru margar ávísanir
stilaðar á handhafa, samtals að upp
hæð um 18 þúsund krónur. Var ein
ávisunin upp á 10.000 krónur önn-
ur upp á 4 þúsund, en hinar minni.
Ein þessara ávísana hefur þegar
komið fram, en hinar ekki.
Fólkið sem stal af sofandi mann-
;-uitn hefur enn ekki fundizt, enda
-etur maðurinn enga lýsingu á þvi
gefið, nema hvað um var að ræða
hrjá karlmenn og eina konu.
Rannsóknarlögreglan biður leigu-
Er verið oð „skipu-
leggja" hér fátækra-
hverfi?
Sjá bls 8
bílstjóra þann er ók þessu fólki
úr Þórskaffi og upp á Háteigsveg,
áð reyna að verða að einhverju Iiði
við að hafa uppi á fólkinu. — GG
„Persar hugsa ólíkt okkur
— sagði dr. Jakob Jónsson, sem hitti Iranskeisara
„Viö dvöldum á aðra viku f
Iran í boði keisarans og þessi
ferð okkar þangað austur varð
okkur hjónunum sérlega ánægju
leg. Hátíðin var stórkostleg á
alla lund“, sagði dr. Jakob Jóns
son er Visir ræddi við hann í
gærkvöldi, en dr. Jakob og frú
hans, Þóra Einarsdóttir eru nú
komin til Kaupmannahafnar eft-
ir dvölina í Iran.
„Það var alveg sérlega vel vand-
að til allra atriöa hátiðarinnar",
sagði dr. Jakob, „við vorum þarna
við setningarathöfnina, við gröf
Kyrosar, og þótt ég sé ekki fylgj-
andi hernaði, þá dáðist ég að þeirri
hersýningu, sem haldin var þarna
í tilefni 2500 ára afmælisins, því
að þar voru sýndir herbúningar og
búnaður allt frá því fyrir 2500 árum
og fram til okkar tíma“.
— Þarna hefur verið margmenni?
„Já. Það hefur nú aðallega í blöð-
um verið talað um þann fjölda þjóð
höfðingja, sem til hátíðarinnar var
boðið, en þeir voru 50, eða þar um,
en minna verið minnzt á okkur
hina.
Það var boðið fjöldanum öllum
af fræðimönnum af öllum heims-
hornum. Þarna voru íransfræðing-
ar gulir, hvftir, svartir og brúnir,
og var haldin sérstök ráðstefna um
írönsk frreði i háskólanum í Teher-
Sýnd betrj hliðin
— Það er mikið rætt um allan
þann kostnað sem lagðu/ var i
þessi hátíðahöld — og þá í sam-
bandi við þá örbirgð sem f landinu
er. Urðuð þér varir við fátækt fólks
ins?
„Þaö er nú þannig, þegar maður
er opinberlega boðinn, þá er manni
nú helzt sýnd betri hliðin, en mað-
ur veit minna um hina. Keisarinn
í íran hefur mikið gert til að brjóta
aftur veldi jarlanna í landinu, sem
fram undir þetta hafa hreinlega átt
fólkið í landinu. Nú er mér sagt að
það sé að myndast þarna millistétt,
og dæmi um það er hinn mikli
vöxtur borga og bæja í landinu.
Fólk flytur úr sveitunum og þang-
að sem skólar eru og meiri at-
vinna“.
Hitti keisarann
— Hittuð þér keisarann sjálfan?
„Já. Hann tók á móti okkur í sér-
stakr; garðveizlu. Viö spjölluðum
nú aðeins stuttlega viö hann, en
ég var hreykinn af því, að hann
þekkti til míns litla framlags á
þessu móti.“
Og hvert var það framlag?
„Ég flutti fyrirlestur um þær
I
12 lönd banna eitur-
efni í N-Atlantshaf
12 lönd hafa náð bráöabirgða-
samkomulagi um bann viö losun
eiturefna í Noröaustur-Atlants-
haf. Samkomuiag þetta náðist
f gær á ráðstefnu sem staðiö
hefur yfir í Osló undanfarna
daga.
Þessi lönd eru Norðurlönd-
in, Bretland, Belgía. Vestur-
Þýzkaland. Holland, Frakk-
land. Spánn ng Portúgal. Sam-
komulagið á eftir að hljóta stað-
festingu ríkisstjórna viðkom-
andi landa, en búizt er við að
fullnaöarsamkomulag verði und
irritað fyrir jól. Samningurinn
mun öðlast' gildi þegar sjö af við
kotnandi löndum hafa staðfest
hann.Er reiknað með að öll lönd
in hafi staðfest samkomulagið
fyrir umhverfisráðstefnuna í
Stokkhólmi sem haldin verður í
júní árið 1972i — SG
fombókmenntir eða stáði í fornum
íslenzkum bókmenntum, sem Kyros
ar er getið, t.d. f rfmum og vfðar".
Austurlandahugsunar-
háttur
— Nú voru byggð mikil mann-
virkj vegna hátíðarinnar, t.d. tjöld-
in frægu sem þjóðhöfðingjamir
bjtiggu í. Verður þetta látið standa?
„Já, já, og mun eflaust í framtfð-
inni laöa að sér ferðamenn. Mér
þætti ekki ólíklegt að amerískum
auðmönnum þætti fengur f að gista
tjald sem Eþíópiukeisari, Grace
Kelly, eða sjálfur íranskeisari hefur
búið í um hríð“.
— Ofbauð yður nokkjið íburður-
inn?
„Við verðum nú að gera okkur
grein fyrir því, að hugsun3?Jj4tDw
Austurlandaþjóða er allur annar e?s
gerist hér vestra. Ef sjálfur keisar-
inn í íran ætlar sér að gera eitt-
hvað, þá vijl þjöðin og reikiiar með,
að h’ann geri það á stórfenglegan
hátt sem keisara sæmir.
Það má þá kannski geta þess,
að íburðurinn allur, var ekki ein-
vörðungu greiddur úr rikissjóði. —
Margir fjársterkir eihstaklingar og
fyrirtæki styrktu þessa hátíð, t.d.
skreytingar f Teheran, vegalagn-
ingu og annað slíkt. Ljósaskreyting
ar voru t.d. stórkostlegar bæði í
Teheran og svo fornu bonginni,
Persepolis. Ég heyrði minnzt á Phil
ips f því sambandi". — GG
vism