Vísir - 23.10.1971, Page 1

Vísir - 23.10.1971, Page 1
„Lengi veríð til - en lítið selzt" — segir verzlunarstjóri NLF-búðarinnar um söluna á Melisana-lyfinu Eítt bezta sumar um áratuga- skeið kvaddi í gasr. Svona eins og til að minna á, hversu blíð- lynt það hefur verið setti það upp sparibrosið i gær eins og undanfarna daga, þ.e. kvaddi eins og það kom og hefur verið löngum með blíöviðri. — Raun- ar segja veðurfræðingar að sum arið hafi verið heldur kaldara- en í meðalári, en það er ekki ná kvæmt hitastig, sem ræður hvaö fólki finnst um veður, heldur sólskinsstundir, regn og vindar eða stillur. Þetta lyf hefur verið til hérna í mörg ár öðru hverju, sagði Ásbjörn Magnússon, verzlunarstjóri Náttúrulækn ingafélagsbúðanna, er Visir hringdi til hans í gær vegna sölu á „Melisana“ mixtúr- unni sem Vísir skýrði frá í gær, en meðal þetta reyndist innihalda 79% alkóhól og ætti þvi að réttu lagi hvergi að seljast nema þá í Áfengis verzlun ríkisins. „Melisana" fékkst í gær iNLF- ^ búðinni í Sólheimum, en þá voru raunar aðeins eftir fáein glös, sem seldust upp í gær. Sagðj starfsfólk verzlunarinnar hins vegar að mjög mikið hefði hins vegar verið spurt eftir þessari mixtúru og hefði af- greiðslufólkið orðið fyrir tals- verðu ónæði af þeim sökum og jafnvel borið það á brýn að það hefði stungið þessari sterku mixtúru undir stól. Að sögn Ásbjörns hefur lítið selzt af þessu meðali, einna helzt að Þjóðverjar hafi keypt það, en þetta mun til í öllum venjulegum verzlunum í Þýzka- landi. — Heildverzlunin Elmaró hef- ur flutt „Melisana" inn og virö- ast tollverðir ekki hafa gert neinar athugasemdir við þennan innflutning. I frásögn V’isis í gær stóð að mixtúran fengist á lítra flösk- um og var þar um prentvillu að ræða að sjálfsögðu eins og sjá mátti á myndinni. í fréttinni átti að standa að þetta fengist á litlum flöskum. Pyttlurnar sem meðalið er selt á taka naumast meira en 200 grömm. Það væri enda anzj ódýrt áfengi, sem kostaði aðeins 110 kr. litrinn. - JH GÁFU HÚSRÁÐANDA EITUR OG RÆNDU HANN Maður nokkur fór á fimmtu- dagskvöldið var að skemmta sér í Þórskaffi. Segir ekki frekar af skemmtuninni, nema hvað mað urinn komst í góðan kunnings- skap við eitthvert fólk, sem hann reyndar man ekki lengur hvað heitir eða hvemig það leit út. Bauð hann þessu fólki heim með sér á Háteigsveg eftir ballið. Eitthvað hafa gestir hans verið grátt þenkjandi, því að þeir munu hafa gefið honum inn eitthvert eitur ■ pilluformi. Féll maðurinn fljótt í óminnisdá, og man ekkert síðan. Er hann vaknaði, komst hann að raun um, að gestirnir heföu af ein- hverjum ástæðum ekki séð ástæðu til að láta hann fá pillurnar ókeypis, því að hvert tangur og tetur hafði verið hirt úr peningaveski hans. í veskinu voru margar ávísanir stilaðar á handhafa, samtals að upp hæð um 18 þúsund krónur. Var ein ávisunin upp á 10.000 krónur önn- ur upp á 4 þúsund, en hinar minni. Ein þessara ávísana hefur þegar komið fram, en hinar ekki. Fólkið sem stal af sofandi mann- ;-uitn hefur enn ekki fundizt, enda -etur maðurinn enga lýsingu á þvi gefið, nema hvað um var að ræða hrjá karlmenn og eina konu. Rannsóknarlögreglan biður leigu- Er verið oð „skipu- leggja" hér fátækra- hverfi? Sjá bls 8 bílstjóra þann er ók þessu fólki úr Þórskaffi og upp á Háteigsveg, áð reyna að verða að einhverju Iiði við að hafa uppi á fólkinu. — GG „Persar hugsa ólíkt okkur — sagði dr. Jakob Jónsson, sem hitti Iranskeisara „Viö dvöldum á aðra viku f Iran í boði keisarans og þessi ferð okkar þangað austur varð okkur hjónunum sérlega ánægju leg. Hátíðin var stórkostleg á alla lund“, sagði dr. Jakob Jóns son er Visir ræddi við hann í gærkvöldi, en dr. Jakob og frú hans, Þóra Einarsdóttir eru nú komin til Kaupmannahafnar eft- ir dvölina í Iran. „Það var alveg sérlega vel vand- að til allra atriöa hátiðarinnar", sagði dr. Jakob, „við vorum þarna við setningarathöfnina, við gröf Kyrosar, og þótt ég sé ekki fylgj- andi hernaði, þá dáðist ég að þeirri hersýningu, sem haldin var þarna í tilefni 2500 ára afmælisins, því að þar voru sýndir herbúningar og búnaður allt frá því fyrir 2500 árum og fram til okkar tíma“. — Þarna hefur verið margmenni? „Já. Það hefur nú aðallega í blöð- um verið talað um þann fjölda þjóð höfðingja, sem til hátíðarinnar var boðið, en þeir voru 50, eða þar um, en minna verið minnzt á okkur hina. Það var boðið fjöldanum öllum af fræðimönnum af öllum heims- hornum. Þarna voru íransfræðing- ar gulir, hvftir, svartir og brúnir, og var haldin sérstök ráðstefna um írönsk frreði i háskólanum í Teher- Sýnd betrj hliðin — Það er mikið rætt um allan þann kostnað sem lagðu/ var i þessi hátíðahöld — og þá í sam- bandi við þá örbirgð sem f landinu er. Urðuð þér varir við fátækt fólks ins? „Þaö er nú þannig, þegar maður er opinberlega boðinn, þá er manni nú helzt sýnd betri hliðin, en mað- ur veit minna um hina. Keisarinn í íran hefur mikið gert til að brjóta aftur veldi jarlanna í landinu, sem fram undir þetta hafa hreinlega átt fólkið í landinu. Nú er mér sagt að það sé að myndast þarna millistétt, og dæmi um það er hinn mikli vöxtur borga og bæja í landinu. Fólk flytur úr sveitunum og þang- að sem skólar eru og meiri at- vinna“. Hitti keisarann — Hittuð þér keisarann sjálfan? „Já. Hann tók á móti okkur í sér- stakr; garðveizlu. Viö spjölluðum nú aðeins stuttlega viö hann, en ég var hreykinn af því, að hann þekkti til míns litla framlags á þessu móti.“ Og hvert var það framlag? „Ég flutti fyrirlestur um þær I 12 lönd banna eitur- efni í N-Atlantshaf 12 lönd hafa náð bráöabirgða- samkomulagi um bann viö losun eiturefna í Noröaustur-Atlants- haf. Samkomuiag þetta náðist f gær á ráðstefnu sem staðiö hefur yfir í Osló undanfarna daga. Þessi lönd eru Norðurlönd- in, Bretland, Belgía. Vestur- Þýzkaland. Holland, Frakk- land. Spánn ng Portúgal. Sam- komulagið á eftir að hljóta stað- festingu ríkisstjórna viðkom- andi landa, en búizt er við að fullnaöarsamkomulag verði und irritað fyrir jól. Samningurinn mun öðlast' gildi þegar sjö af við kotnandi löndum hafa staðfest hann.Er reiknað með að öll lönd in hafi staðfest samkomulagið fyrir umhverfisráðstefnuna í Stokkhólmi sem haldin verður í júní árið 1972i — SG fombókmenntir eða stáði í fornum íslenzkum bókmenntum, sem Kyros ar er getið, t.d. f rfmum og vfðar". Austurlandahugsunar- háttur — Nú voru byggð mikil mann- virkj vegna hátíðarinnar, t.d. tjöld- in frægu sem þjóðhöfðingjamir bjtiggu í. Verður þetta látið standa? „Já, já, og mun eflaust í framtfð- inni laöa að sér ferðamenn. Mér þætti ekki ólíklegt að amerískum auðmönnum þætti fengur f að gista tjald sem Eþíópiukeisari, Grace Kelly, eða sjálfur íranskeisari hefur búið í um hríð“. — Ofbauð yður nokkjið íburður- inn? „Við verðum nú að gera okkur grein fyrir því, að hugsun3?Jj4tDw Austurlandaþjóða er allur annar e?s gerist hér vestra. Ef sjálfur keisar- inn í íran ætlar sér að gera eitt- hvað, þá vijl þjöðin og reikiiar með, að h’ann geri það á stórfenglegan hátt sem keisara sæmir. Það má þá kannski geta þess, að íburðurinn allur, var ekki ein- vörðungu greiddur úr rikissjóði. — Margir fjársterkir eihstaklingar og fyrirtæki styrktu þessa hátíð, t.d. skreytingar f Teheran, vegalagn- ingu og annað slíkt. Ljósaskreyting ar voru t.d. stórkostlegar bæði í Teheran og svo fornu bonginni, Persepolis. Ég heyrði minnzt á Phil ips f því sambandi". — GG vism

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.