Vísir - 15.01.1972, Page 9
f
sS
*?ÍS1R . Laugardagur 15. janúar 1972.
Mun minna byggt í Reykja-
yík 1971 en árið áður
/ skýrslu byggingafulltrúa kemur fram oð
meðalstærð ibúða er lika minni
Lokið var við færri byggingar á síðasta ári í
Reykjavik en árið 1970. Meðalstærð byggðra íbúða
á árinu 1971 var 33 rúmmetrum minni en árinu
áður.
Alls var Iokið við að byggja á árinu 1971 71.546.6
fermetra og 480.002 rúmmetra, sem er 12.76%
minna en árið 1970.
I smíðum um áramótin voru 1118 íbúðir í Reykja
vík og voru 711 fokheldar eða meira. Á árinu var
hafin bygging á 664 nýjum fbúðum. Lokið var við
110 fbúðum færra á árinu 1971 en árinu áður og
hafin bygging á 21 íbúð færra en 1970.
Meðalstærð nýbyggðra íbúða á árinu 1971 er um
það bil 372 rúmmetrar, 33 rúmmetrum minni en
árið 1970.
Mest var byggt af fjögurra herbergja íbúðum á
árinu, þá af þriggja herbergja íbúðum og næst af
tveggja herbergja fbúðum. Þar á eftir koma fimm
herbergja íbúðir.
I„Það er áberandi hversu
miklu minna hefur verið
byggt af íbúðarhúsnæði í
Reykjavík á árinu 1971 en
árinu áður. í fyrra var tala
íbúða, sem lokið var við að
byggja 530 en árið áður 640,
þannig aö fækkunin nemur
110 íbúðum“, segir Sigurjón
Sveinsson byggingafulltrúi
Reykjavíkur.
ISikýrsla byggingaifulltrúa yfir
byggingar í Reykjavfk árið 1971
hefur verið lögð fram. Þar kem
um m.a. fram að fyrir utan það
að dregið hefur úr byggingafram
kvæmdum er meðalstærð íbúða
einnig minmi.
IBýggingafulltrúi segir, að
samdráttar í byggingum gæti
einnig f byggingu félagsheimiila
| og skóla.
„Þótt fermetrafjöldinn sé svip
aður og áriö 1970 þá er rúm-
metrafjöldinn um 30 þúsund
minni, sem þýðir lægri bygging
ar og að meira hefur verið
byggt af minnj byggingum á sl.
ári en árinu áður, t.d. skólum á
einni hæð og öðrum minni bygg
ingum. Samdrátturinn f verzlun
ar- og iðnaðarhúsnæði er hlið
stæður. Fermetrafjöldinn er
meiri en rúmmetrafjöldinn
minni. Aukningin er 1 þeim lið,
sem bílsikúrar og gripahús falia
undir og þar vegur þyrtgáf'á'ttét'
unum bygging hesthúsanna í Sel
ásnum, þar hefur orðiö tvöiföid
aukning í fennetramáli.
Mun fleiri mál voru afgreidd
í bygginganefnd á árinu en ár
inu áður. Samþykkt var leyfi
fyrir byggingu 53'3 ibúða en árið
1970 947 íbúða. Á síðasta ári
var skortur á f jölbýlishúsalóðum
enda kemur það fram núna að
auglýstar hafa verið lóðir undir
900 íbúðir.
Það er útjöfnun á lóðaveiting
um frá ári til árs enda er betra,
að byggingarsvæði byggist upp
hraðar og hægt sé að ganga frá
þeim í staðinn fyrir að leyfa
byggingar á mörgum stöðum í
einu, sem hefur það í för með
sér að erfitt er fyrir borgina að
ljúka gatnaframkvæmdum og
öðrum frágangi í nýbygginga-
hverfum.
Á síðasta ári var mest byggt
af fjögurra herbergja íbúðum.
Við stöndum hinum Noröurlönd
unum langtum framar hvað
viðkemur íbúðastærð, Þegar 2ja
til 3ja herbergja íbúðir eru
byggðar á Norðurlöndum byggj
um við 3ja til 4ra herbergja íbúö
ir. Það að við erum stærri f sniö
um stafar sennil. af því að við
erum háðari fbúðunum en aðrir
vegna veðráttunnar og einnig
eiga einstaklingar fremur sfnar
fbúðir hér og menn leggja metn
að sinn í að gera þær sem bezt
úr garði.“
— Nú viröist af tölum um
ibúðastærð að fólk sé að minnka
viö sig, er sú raunin á?
„Það hefur kannski heldur
þrengzt að fólkj en þar veldur
einnig um að við höfum hingað
til verið að byggja íbúðir fyrir
fjölskyldur, en lítið gert af því
að byggja íbúðir fyrir einstakl
inga. Núna eru menn farnir að
hugleiða þaö og farnir að byggja
minni íbúðir til þess að ná til
þess markaös. Bn í tölunum gæt
ir einnig samdráttarins árin
1968 — 69 . þegar iðnaðarmenn
fluttu út því yfirleitt standa
ibúðarbyggingar hér lengi.'*
— En hefur byggingarhraði
aukizt?
„Já, hann hefur aukizt vegna
þess að stór fyrirtæki hafa kom
ið á markaöinn t.d. Breiðholt
Framkvæmdanefndin, Einhamar
og Byggingasamvinnufélag
Hreyfilsmanna o. fl. Byggingar
hraðans er farið að gæta en
ekki í tölunum yfir fullgerðar
íbúðir.“
— f samþykkt bygginganefnd
ar fyrir nýjum byggingum kem
ur fram óvænt hlutfall í eldri
hverfum leyfi fyrir mörgum ný
byggingum á síðasta ári.
„Þaö eru ýmsar stórbyggingar
kom koma þar inn í t.d. áburðar
verksmiðjan f Gufunesi sem var
sett þar inn f en þar er verið
að byggja um 1200 fermetra
birgðaskemmu, þá er það hús Ör
yrkjabandalagsins, sem er mjög
stórt, fiskiðnaðarhús í Örfirisey
Heymleysingjaskólinn og kom-
skemman og vöruskemma stór
kaupmannna við Sundagaröa. —
En aðalbyggingarsvæðið á árinu
' er Breiðholt III og sfðan Foss
vogur og umhverfi."
— Verður meira byggt á
þessu ári en í fyrra?
„Ég hef ekki trú á því en á-
Iika miikiö. Ég held að þessi eft
irspum sem varð f haust á íbúð
um hafi verið kapphlaup um
peninga vegna þess að fólk hafi
haldið að verðstöðvun lyki um
áramót og vildi koma peningum
sínum í fast en ég held að
þetta kapphlaup sé núna aö
stöðvast.“ —SB
Byrjað á byggingu 100
fleiri íbúða í Hafnarfirði
í Hafnanfirði voru 205 fbúðir
i smfðum þann 1. janúar 1970 og
síðan var byrjað á 153 íbúðum
á árinu. 50 nýjar íbúðir voru
teknar f notkun á árinu og voru
því 308 íbúðir í smiðum um ára
mótin 1970/71. Á síðasta ári var
byrjað á 258 íbúöum £ Hafnar-
firði og vom því samtals 566
ibúðir í smíðum á árinu. Ekki er
búið að vinna úr skýrslum um,
hve margar íbúðir var lokið við
á árinu en auðsjáanlega er um
mikla aukningu að ræða frá ár
Íinu áður.
Friðþjófur Sigurðsso” bygg-
ingafulltrúi sagði í samtali við
Vísi að á síðasta ári hefði verið
úthlutað lóðum undir 27 einbýiis
hús. í raðhúsum var byrjað á 24
ri iDúoum og haffin var bygging
| þriggja tvfbýlishúsa.
Þá var eitt fjölbýlishús í bygg
ingu með samtals 42 íbúðurn í
sjö stigagöngum. Og þá em ó-
taldar 60 íbúðir í verzlunarmið
stöðinni. Friðþjófur sagði að
ekki væri hægt að fulinægja eft
irspum eftir íbúðarhúsalóðum í
Hafnarfirði. í fyrra var einnig út
hlutað 25 lóðum fyrir iðnaðarhús
næði.
Elkki tókst að fá upplýsingar
um byggingar í Kópavogi á síð-
asta ári og ekki lágu fyrir upplýs
ingar um byggingafframkvæmdir
í Seltjamarneshreppi á liðnu
ári Burtséð frá þeim stöðum
virðist Hafnarfjörður hafa vinn-
inginn á Stór Reykjavikursvæð
inu þar sem íbúðabyggingar
hafa dregizt saman í Reykjavfk
á árinu eins og fram kemur hér
á sföumni. — SG
Lítil breyting í
„Ég hef ekki undir höndum
nákvæmar tölur um fjölgun
íbúða á síðasta ári þar sem ekki
er búiö að ganga endanlega frá
byggingaskýrslum", sagði Pálm
ar Ólafsson byggingafulltrúi
Garðahrepps.
Hann sagði að um áramótin
1970—71 hefðu 170 íbúðir verið
fuligerðar eða í smíðum og
bjóst hann við að talan væri
svipuð um þessi áramót, Pálm
ar sagði að yfirleitt væru byggð
einbýlishús f Garðahreppi eða
þá einnar hæðar raðhús. Eftir
spum eftir lóðum væri mun
meiri en hægt væri að sinna og
Garðahreppi I
bjóst hann við að jafnvel hefði |
verið úthlutað heldur færri lóð I
um I fyrra en árið áður. |
Húsbyggjendur f Garðahreppi
byggja nú heldur minni hús en |
áður en þó er meðalstærðin 1
ósköp viðunandi eða 140—150 jj
fermetrar. |
„Fólk er fariö að byggja á 1
skynsamlegri hátt og binda sig 1
meira við kröfur Húsnæðismála- !|
stjómar“ sagði Pálmar. Garða
hreppur reynir að láta gatna ■
gerðina fylgja byggingahraðan- J
um og hefur það gengið fremur 1
vel. Þó er gatnagerðin orðin svo
lítið á eftir húsbyggingunum. '2
—SG |
9
TÍSIESm
— Mættu verzlanir
vera lokaðar á laugar-
dögum yðar vegna?
Leifur Þorsteinsson, háskóla-
nemi: — Já, það held ég bara.
Ég get að minnsta kosti auð-
veldlega klárað mig af meö mín
innkaup aðra daga vikunnar.
Ég er afar meömæltur þvf, að
verzlunarfólk fái fri á laugar-
dagsmorgnum eins og flestir
aðrir.
Jón Sigtryggsson, bókari: —
Já, alveg væri þaö f lagi frá
minnj hálfu. Ég þarf að minnsta
kostj ekki svo mikið á opnum
verzlunum að halda á laugar-
dagsmorgnum. Þá hef ég oftast
lokið öllum mínum helgarinn-
kaupum.
Bryndís Guðmundsdóttir, hús-
móðir: — Siður vildi ég það nú,
en hitt er annaö mál. að ég get
vel skilið það, að verzlunarfólk
vilji eiga fri á laugardagsmorgn
um. Ég tala nú ekkj um á sumr-
in. Ég mundi þvf ekk; hafa svo
hátt, þó aö þeim yröi veitt þetta
frf. Ég geri líka oftast mín inn-
kaup öll á föstudögum — Á
mánudagsmorgnum verzla ég
svo sjaldnast, svo að þá mega
allar verzlanir vera lokaöar mín
vegna.
Steinunn Gunnarsdóttir, hús-
móðir: — Já, já, þess vegna.
Ég er alltaf svo fjand; löt að
koma mér út að verzla á morgn
ana, þannig að verzlanirnar
mega mín vegna vera lokaðar
á bæð; laugardags- og mánu
dagsmorgnum. — Jafnvel alla
morgna, og á kvöldin lfka. Mér
fellur bezt aö verzla á eftir-
miðdögunum.
Kjartan Jóhannesson, verk-
fræðingur: — Nei. Það er alveg
klárt mál, að þann verzlanatfma
má maður ekk; missa. Ég geri
að minnsta kostj mfn innkaup
að mestu þá morgna. Annað mál
er með mánudagsmorgnar?a þá
mættu þær allar vera harðlok-
aðar mfn vegna. .