Vísir - 14.02.1972, Blaðsíða 1
62. árg. — Mánudagur 14. febrúar 1972 — 37.tbl.
Stal bílnum sínum úr
vörzlu lögreglunnar
Lögreglan i Reykjavík erýmsu vön, ekki slzt þegar áfengið er annars vegar. Um helgina átti lögreglan
viðskipti við inann nokkurn vegna aksturs undir áhrifum áfengis. Maðurinn fékk heimkeyrslu — en um
morguninn var bfllinn allt i einu horfinn hjá lögreglunni. En skýringin kom I Ijós. Maðurinn haffti síoiin
bílnum frá lögreglunni.
— Sjá bls. 20.
Bolluvendir eru ómissandi á jafn spennandi degi. A barnaheimili Sumargjafar, Hamraborg, rakst hann Bragi Ijósmyndari VIsis á
þessibörn vera að búa sig undir bolludaginn. Frá vinstri: Bjarni Þór 3ára, Guðrún 4 ára, Jón Þór 2 ára og Aldfs Ilafsteinsdóttir 3 ára
Eflaust hafa einhverjir fengið að finna fyrir þessum fallegu vöndum f morgun.
Bolla - Bolla
Þessi unga dama var komin á kreik I morgun meö „offset-bollu-
vönd”,. Hún bjó til vönd úr litrfkum Visisblöðum.
Bolla
„Bolla, bolla, bolla"
æptu börnin í morgun
um leið og þau létu
bolluvendina dynja á
bakhluta foreldranna
eða annarra sem í fleng
ingarfæri voru. Síðan
var rölt út i næstu brauð-
búð eftir bollum og þær
innbyrtar með beztu
lyst.
Sigurður Jónsson bakara-
meistari i Austurveri sagði i
samtali við Visi, aö fólk hefði
verið farið aö spyrja eftir boll-
um fyrir 10 dögum siðan. Fór
hann þá að baka bollur og var
talsverð bollusala alla siöustu
viku. t gær skall svo skriðan á
fyrir alvöru og strax kl. sjö i
morgun fór fólk að koma til
bollukaupa. Hann sagði fólk
helzt vilja rjómabollur og
siðan rjóma- og kremlausar
bollur, sem það siöan gengur
sjálft frá heima.
,,En það þýðir ekkert að
bjóða fólki bolíur á öðrum árs-
timum. bað litur ekki við þeim
nema bara i kringum bollu-
daginn”, sagði Sigurður.
— SG
Fólkið
gleymdist
alveg
Skipulag og áætlanagerö
getur verið ágætt, en aðgát
skal höfð. Þetta vita þeir
Rússarnir, sem létur reisa
vefnaðarverksmiðju i Kursk,
ágætis verksmiðju, hreinlega
og vellýsta. Einu var þó
gleymt, að fá starfsfólk i verk-
smiðjuna. betta „Samáatriði”
i áætlanagerðinni reyndist þó
nokkuð stórt. — Sjá bls. 6.
Einn af þeim
gömlu sló
í gegn
Mikil eftirvænting rikti i
Þjóðleikhúsinu á föstudags-
kvöldið að sjá Jón Laxdal
Halldórsson, leikarann, sem
unnið hefur sér mikið hrós i
þýzkumælandi leikhúsum.
Hann lék nú aðalhlutverkið,
Márann Öþelló á fjölum Þjóð
leikhússins. Það fór þó svo að
einn af gömlu leikurunum i
leikhúsinu fór með stærstan
leiksigur þetta kvöld. Sjá leik-
rýni Ólafs Jónssonar á bls. 7.
- Yfirgnæfandi líkindi fil
þess að einvígið fari hér
fram a.m.k. að hluta.
Dr. Euwe tekur ákvörðun
á miðvikudag
Sú lausn á staösetningu á
heimsmeistaraeinviginu i
skák, sem ég sækist eftir, er
skipting keppninnar millí
Reykjavikur og Belgrad,
sagöi dr. Max Euwe, for-
maöur FIDE, alþjóöaskák-
sambandsins, i viðtali við
Vísi i morgun.
Ég er nú að bíða eftir svari
Rússa við þessari hugmynd, en ef
þeir samþykkja hana, fæ ég ekki
betur séð, en að sú lausn sé sú,
sem allir aðilar ættu aö geta sætt
sig viö. Reykjavik og Belgrad
hafa þegar fallizt á hana og ég tel
að Fischer muni sætta sig við þá
lausn, ef Spasský gerir það.
—Hvað, sem úr verður, hef ég ák-
veðið að taka endanlega ákvörð-
un á miðvikudag, sagði dr. Euwe.
Ef þessi skipting einvigisins fær
ekki hljómgrunn hjá Rússum er
ekki ósennilegt, að Reykjavik
verði íyrir valinu.
Eins og fram hefur komið i
fréttum hafa Rússar kastað strið-
hanzkanum vegna þessa máls og
hafa hólað að hlita ekki úrskurði
FIDE, nema fylgt verði þeirra
óskum, en þeir hafa skrifað
Reykjavik efst á blað.
Eins og útlitið er núna, eru þvi
yfirgnæfandi likindi til þess, að
skákeinvigið verði a.m.k. að
hluta til haldið hér i Reykjavik.
—VJ
Eiturlyf úr
Lysti-
garðinum
sjá
baksíðu
Óþekktur
sló í gegn
Þrir leikir voru háðir i Is-
landsmótinu i handknattleik i
gær — P'ram sigraði Val i
glæsileik, þar sem Þorsteinn
Björnsson og ungur og litt
þekktur leikmaður léku aðal-
hlutverk fyrir Fram — en
Hafnarf jarðarliðin F'H og
Haukar skildu jöfn, og sömu
úrslit urðu i leik Vikings og
KR. Fram hefur nú tveggja
stiga forustu i 1. deild og frá
þessum leikjum er sagt á bls.
9, 10, 11 og 12 og auk þess sið-
ustu keppnisgreinum á
Ólympiuleikunum i Sapporo.