Vísir - 14.02.1972, Síða 12

Vísir - 14.02.1972, Síða 12
12 Visir. Mánudagur 14. febrúar 1972. Nú er púður allt annað í vopnabúrinu Það er greinilegt, að púð- ur hefur aukizt mjög i vopnabúrinu frá því Alan Ball fór að leika með Ar- senal. Yfir 52 þúsund áhorf- endur mættu á Highbury á laugardag, þegar Derby kom í heimsokn og leik- menn vopnabúrsins unnu góðan sigur, 2—0 — úrslit, sem ekki gefa alveg rétt til kynna yfirburði Arsenal. Þeir voru mejri og bæði Charlie George og George Armstrong áttu skot í stangir og þverslá Derby- marksins. En mörkin urðu tvö og skoraði Charlie George bæði, hið síðara úr vítaspyrnu. Þetta var sjötti sigurleikur Arsenal i röð á Highbury og liðið hefur vissulega góöa möguleika til að verja meistaratitil sinn — er aðeins f jórum stigum á eftir efsta liðinu i deildinni, Manch. City — en það er nokkuð, sem fáum datt i hug eftir slæma byrjun Arsenal i fyrstu leikjunum á leiktima- bilinu. Það var talsvert um óvænt úr- slit i leikjunum á laugardag og áður en lengra er haldið, skulum við lita á úrslitin i leikjunum á getraunaseðlinum. Chris Chilton skoraði bæði mörk Hull gegn Crystal Palace., en það nægði þó ekki nema tíl aö hljota annað stigið. Leeds náði heldur ekki nema jafntefli i leik sinum á Goodison Park gegn Everton. Það var ósköp slakur leikur og litill •k # m # h rancis Lee skoraöi tvö mork fyrir Manch. vftaspyrnumet á leiktimabili. City á laugardag — annað úr viti,og hann setti þar með nýt 1 Arsenal—Derby 2—0 X C. Palace—Coventry 2—2 X Everton—Leeds 0—0 2 Huddersf,—Liverpool 0—1 2 Leicester—WBA 0—1 2 Manch.U.—Newcastle 0—2 2 Nott.For,—Tottenham 0—1 X Sheff.U.—Manch.C. 3—3 Southamton—Chelsea frestað X Stoke—Ipswich 3—3 1 Wolves—West Ham 1—0 1 Swindon—Sheff.W. 1—0 Það skeði margt i leik Sheffield United og Manch. City. Þeir Francis Lee og Colin Bell skoruðu tvö mörk fyrir Manch. City fljót- lega i leiknum. Eftir 33 min. stóð 0—2, en Bill Dearden tókst að laga stöðuna i 1—2 tveimur minútum siðar. Þegar 15 min. voru af siðari hálfleik jafnaði Alan Woodward úr vitaspyrnu fyrir Sheffield — 19, mark hans á leiktimabilinu og 100. mark hans fyrir Sheff. Utd. og áhorfendur voru farnir a trúa á sigur heimaliðsins, þegar Tony Currie skoraði rétt á eftir þriðja mark liðsins. En þá skeði þetta, sem næstum er orðinn fastur liður i leikjum Manch. City — vita- spyrna, og Francis Lee tók hana að venju fyrir lið sitt og brást ekki 3—3. Þetta 'er 13. vitaspyrnan, sem Lee skorar úr og hefur þar með sett nýtt vitaspyrnumet á leiktimabili hjá leikmanni og þó á Manch. City eftir að leika fjórtán leiki I deildinni. <■ meistarabragur á leik Leeds. Keith Newton tók Johnny litla Giles i gæzlu og tókst það mjög vel, en viö þaö varð leikur Leeds hvorki fugl né fiskur. WBA heldur áfram á sigur- braut — liðið hefur hlotið niu af -siðustu 12 stigum mögulegum — og er nú komið upp fyrir Nottm. Forest, Crystal Palace og Hudd- ersfield á töflunni. Gegn Leicester skoraði Tony Brown eina mark WBA, mark, sem gaf tvö stig. Aðeins eitt lið annað af neðstu liðunum, C.Palace hlaut, stig á laugardag — og það var langsótt stig. Chris Chilton, leikmaðurinn, sem Coventry keypti frá Hull City i haust fyrir 92 þúsund pund, skoraði bæði mörk Coventry — en Gerry Queen tókst að jafna fyrir Palace á siðustu minútu leiksins og þar með öðlaðist Palace dýr- mætt stig i fallbaráttunni. Og til gamans má geta þess, að Chilton hefur óskað eftir þvi að vera settur á sölulista — hann vill burt frá Coventry og hefur aðeins skorað þar sex mörk með þessum tveimur töldum á laugardag. Fyrir Hull skoraði hann hins vegar milli 20—30 mörk á leik- timabili áður. Nú ef við förum fljótt yfir sögu þá skoraði John Richards eina mark Úlfanna gegn West Ham og það nægði til sigurs. Martin Peters skoraði fyrir Tottenham gegn Nottingham Forest og þar með sigraði Tottenham i annað skipti á leiktimabilinu á útivelli — það er að segja i deildinni. Jack Whitham lék að nýju með Liverpool og það þýddi sigur gegn Huddersfield. Þessi leikmaður, sem Liverpool hefur svo litið notað frá þvi hann var keyptur fyrir stórpeninga frá Sheffield Wed, hefur skorað mjög þýð- ingarmikil mörk fyrir Liverpool i þau fái skipti, sem hann hefur fengið að leika með aðalliðinu. Illa leit út hjá Stoke gegn Ip- swich lengi vel. Þegar tæpar 10 min. voru tii leiksloka stóð 3—1 fyrir Ipswich i leiknum, en þeim Greenhoff, vitaspyrna, og Denis Smith tókst að jafna undir lokin. Oðrum Denis gekk ekki eins vel — Denis Law hjá Manch. Utd. Hann átti frábæran leik með Manch. Utd., eitthvað það bezta, sem þessi frægi leikmaður hefur sýnt, en það hafði ekkert að segja — það var sama hvað hann gerði. trinn i marki Newcastle, McFaul, sýndi hreint ótrúlegan leik og varði allt, sem á mark Newcastle kom, og enn tapaði Manch. Utd. dýrmætum deildastigum, þvi þeir Tudor og Hibbitt skoruðu fyrir Newcastle. Staðan i 1. deild er nú þannig, að Manch. City er efst með 39 stig. Leeds hefur 37, Derby 36 og siðan koma Arsenal og Manch. Utd. með 35, (Jlfarnir hafa 34. Neðst er Nottm. Forest með að- eins 15 stig, Crystal Palace hefur 19 og Huddersfield og WBA 20. — ■ hsim. Vörn KR var IR ofviða Frábær varnarleikur og seiglan hjó KR-tríóinu, Kolbeini, Kristni og Einari, komu KR á toppinn í íslandsmótinu, þegar KR sigraði höfuðand stæðinginn gegnum árin, IR. KR-ingar léku að þessu sinni svæðisvörn gegn IR og tókst að halda stór- skyttum IR-liðsins Agnari og Birgi Jakobssyni niðri, sem gerði ekki sízt muninn í þessum bráð skemmtilega elik. Loka- tölurnar i leiknum urðu 75- 65, eða 10 stiga munur, sem er óvenju stór munur í leik milli þessara liða. Eftir 5 minútna leik hafði nvort lið um sig aðeins skorað 6 stig, og virtist einhver skjálfti i mönnum. Næstu tvær minúturnar gerðu KRingar hverja skyssuna á fætur annarri, og tR náði 14-7, en eftir að KRingar höfðu tekið leik- hlé og sett Bjarna Jóhannesson inná, fór leikurinn að jafnast. Fimm minútum siðar munaði aðeins 3 stigum, 26-23 1R i hag, en tveimur minútum fyrir hlé jaf- naði Kolbeinn Pálsson fyrir KR. Kolbeinn átti aö þessu sinni ,,súperleik” og virðist stöðugt sækja sig. tR haföi 2 stig yfir i hálfleik, 36- 34, og jók muninn i 7 stig næstu fimm minútur, 50-43. Þá tók KR heldur betur við sér, og Einar Bollason jafnaði og kom KRyfir, 53-52. á 12._ minútu. Eftir betta missti KR ekki forystuna, heldur jók hana stöðugt til leiksloka, og var sigurinn tæplega i hættu siðustu 2-3 minúturnar, enda þótt hart væri barizt. Kristinn Stefánsson varð stigahæstur KRinga með 20 stig og hirti þar að auki f jöldann allan af fráköstum — þar á meðal flest öll fráköstin við körfu KR. Einar kom næstur með 16 stig, sem má teljast gott, þegar tekið er tillit til þess, hversu geysivel hans var gætt af Birgi Jakobssyni. Hjá IR var Agnar Friðriksson hæstur að stigum með 14 stig, sem er ó venjulitið þegar hann á I hlut, en nefna má, að nýtt kerfi IRinga gegn svæðisvörninni kann að hafa orðið til nokkurs trafala fyrir liðsmenn tR. Kristinn Jörundsson skoraði 11 stig, en Birgir Jakobsson hitti óvenju-illa og komst vart á blað. Vítahittni góð Fjögur vitaskot Guttorms Olafssonar á siðustu tveimur minútunum björguöu Þór frá tapi gegn hinum harðsnúnu HSK mönnum i jöfnum leik þessara liða á sunnudaginn. Staðan var 60-59 fyrir HSK, þegar Gut- tormur fékk tvö vitaskot, hitti báðum, og fékk skömmu seinna önnur tvö vitaskot, sem hann skilaði báðum i körfu HSK af öryggi. HSK tókst aðeins að skora eitt stig úr viti á rúmum fjórum minútum i lok leiksins, en óvenjulega slæm hittni háði liðinu mjög. Fyrstu 15 minúturnar i leiknum voru jafnar, þannig að eftir 15 minútur stóð 20-18 fyrir Þór, en fyrir hlé náði Þór að skora 18 stig gegn aðeins 10 og hafði þvi 10 stig yfir I hálfleik, 38-28. Yfirleitt var þetta 8-10 stiga munur fyrir Þór framan áf siðari hálfleik, en 7 mínútum fyrir leiks- lok jöfnuðu HSK-menn, 50-50. Færðistnúfjörileikinn.og þegar 5 minútur voru eftir var enn jafnt, 58-58. Sýndi HSK góðan leik a þessu timabili, en varð nú fyrir þvi að missa einn sinn sterkasta mann útaf, Einar Sigfússon. Þó náði HSK forystu á ný, 60-58, ef eftir það var eins og lok v.æri komið á körfuna hjá Þór, og boltinn vildi ómöguiega þar niður fara. Hins vegar skoruðu þór- sarar 5- stig úr vitaskotum,, og sigruðu með tveggja stiga mun, 63-61. Eyjaskeggjar efstir. Vestmannaeyingar gerðu góða reisu til meginlandsins um með hið nýja körfuboltalið sitt. Sigruðu þeir i tveimur leikjum, og eru þar með i efsta sæti 2. deildar með 4 stig. Vestmannaeyingarnir sigruðu á laugardaginn Breiða- blik með 52 stigum gegn 33 og á sunnudag sigruðu þeir hina nýliðana i 2. deildinni, Hauka, með 38 stigum gegn 35 i jöfnum og baráttumiklum leik. Aður hafa farið fram tveir leikir i 2. deild, UMFN sigraði Breiðabíik, og Haukar fengu einnig tvö stig gegn Breiðabliki, sem mætti ekki til leiks.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.