Vísir - 14.02.1972, Síða 20

Vísir - 14.02.1972, Síða 20
Mánudagur 14. febrúar 1972. Hort og Georghiu r Þafi, a& Anderson skuli hafa unnið Stein telst tii helztu tföinda, sem gerðust á aiþjóðlega skák- mótinu um helgina. Sjötta umferö var tefld á laugardag, en sjöunda I gær. Eftir stöundu umferð er rööin þannig. 1 fyrsta og öðru sæti eru Holt og Georghiu efstir með 5 vinninga hvor, Þá koma Friðrik Ölafsson, Anderson og Tukmakov i þriðja til fimmta sæti með 4 1/2 vinning hver, í sjötta sæti er Trimman með 4 vinninga og bið skák, i sjöunda og áttunda sssti eru Stein og Kéén með 4 vinninga, 1 niunda sæti Jón Torfason með 3 1/2 vinning, i tiunda sæti Guð- mundur Sigurjónsson meö 3 vinn- inga og biöskák, i ellefta sæti Magnús Sólmundarson með 3 vinninga, I tólfta til þrettánda sæti Freysteinn Þorbergsson og Bragi Kristjánsson með 2 1/2 vinning hvor og biöskák, i fjórt- ánda til fimmtánda sæti Jón Kristinsson og Gunnar Gunnars- son með 2 1/2 vinning hvor og sextánda sæti Harvey Georgsson með engan vinning og biðskák. 1 sjöttu umferð á laugardag vann Anderson Stein, Friörik vann Hort, Georghiu vann Frey stein Þorbergsson, jafntefli varö hjá Tukmakov og Keen, Jóni Torfasyni og Braga Kristjáns- svni, Gunnar Gunnarsson vann Magnús Sólmundarson, biö skák varö hjá Guðmundi Sigur- jónssyni og Harvey Georgssyni og hjá Jóni Kristinssyni og Timman. I sjöundu umferð varð jafntefli hjá Friðriki og Gunnari og hjá Magnúsi og Timman og Stein og Tukmakov. Keen vann Freystein, Hort vann Anderson, Bragi vann Jón Kristinsson, Georghiu vann Harvey og Guömundur Sigur? jónsson vann Jón Torfason. Attunda umferö skákmótsins verður tefld f kvöld en biðskákir annað kvöld. — SB — Brotist inn í gripahús Nokkuð hefur verið um það suður i Njarðvfkum og þar um kring upp á siðkastið, að brotizt hefur verið inn I gripahús hjá bændum. A laugardagsmorgunn sfðast liðinn var svo enn eitt innbrotið kært til lögreglunnar á Kefla- vfkurflugvelli. Hafði þá verið brotizt inn I hesthús eitt i Njarð- vikum. Þegar lögreglan kom á staðinn fann hún fljótlega pilt þar nærri, þar sem hann lá sofandi vært. Mun þarna hafa veriö á ferðinni kynferöislega brenglaöur maöur og haíöi hann nokkur stundað innbrot f gripahús aö undanförnu til aö fá fýsnum svalaö. Lögreglan i Hafnarfiröi mun nú hafa þennan mann f gæzlu og rannsókn. —GG Rændi eigin bíl frá lögreglunni - kærði sjálfan sig fyrir þjófnað Lögregian greip á sunnu- dagsmorgun drukkinn mann, þar sem hann ók bil sinum. Eins og venja er til um slika ökumenn, færði lögreglan hann þegar á lögreglustöðina viö Hverfisgötuna, sendi manninn reyndar fljótiega heim til sin, en hélt bilnum par eftir I sinni vörzlu. Þ.egar nokkuö leiö á morg- uninn, kom sá sami ökumaður aftur á lögreglustöðina, og var enn drukkinn. Sagðist hann vera nýlega vaknaður og hafa litið út á götuna fyrir utan hjá sér, þar sem hann bjóst við að fararskjóti sinn stæði. Var hann þá enginn þar. Fór hann þvi á lögreglustöðina(sagöi aö honum heföi verið stoliö. Lög- reglan gat þá skýrt honum frá þvi, að billinn væri i vörzlu hennar, vegna þess að drukk- inn maður, eigandinn að þvi bezt væri vitað, hefði verið staöinn aö þvi aö aka bilnum. Maðurinn þvertók fyrir að hann hefði veriö á ferli um nóttina. Þaðan af siöur að hann heföi ekiö bilnum sinum. Þaö væri ekki venja á hans heimili. Fór hann viö svo búiö, fann bil sinn við lögreglustöðina og fiskaöi lykla upp úr vasa sin- um og ók brott frá lögreglu- stöðinni. Skömmu siðar hand- tók lögreglan manninn aftur fyrir að aka drukkinn. Hann þvertók fyrir aö hafa áöur ekiö bil sinum drukkinn, og allra sizt þá um nóttina áöur. Var nú fariö á stúfana og vaktir upp tveir lögreglu- menn, sem fyrr um nóttina höföu tekið manninn drukkinn á bil sinum, og vottuðu þeir að þar væri kominn sami maður- inn aftur. Mun hann hafa trú- að þvi þá loksins, og var bill- inn af honum tekinn. - GG. Eiturlyf úr Lystigarðinum - en þeir varast að láta vita hvar þá jurt er að finna Fjölmargir Suöurnesja- búar lyktuðu af hassreyk í gærdag að boði Gústafs Bergmanns, lögreglu- manns/ en hann gætti sýningar á fiknH og eiturlyfjum á fundi um vandamál þessi í Stapa, en samkomuhúsið var vart meira en hálfsetið, en fólk á öllum aldri kom til fundar og umræður urðu fjörugar. Kjartan ölafsson, héraöslæknir haföi framsögu á fundinum ásamt Kristjáni Péturssyni deild- arstjóra. t ræöu Kristjáns kom enn fram gagnrýni á lækna, taldi hann að margir þeirra væru of lausir á útgáfu lyfseðla á fiknilyf. Kjartan lagði áherzlu á, að ströng löggjöf væri eina meöaliö gegn eiturlyfjahættunni. Fjörugar umræöur uröu aö loknum framsöguerindum. Ingólfur Aöalsteinsson, veöur- fræöingur, sagöi m.a., aö i Lysti- garöinum á Akureyri væri ræktuö jurt áf kannabisættinni, — þvi væri af skiljanlegum ástæöum haldiö leyndu hver hún væri, og hvar I garöinum hana væri aö finna! Séra Björn Jónsson spuröi hvort ekki mundi unnt aö leiða unglinga af refilstigum meö þvi aö leiöa þá aö Jesúshreyfingunni svonefndu. Siöar svaraöi héraös- læknirinn þvi og taldi óskyn- samlegt, aö blanda trúmálum inn I lausn slikra mála, enda heföu margir slikir trúflokkar eitur- lyfjaneyzlu á stefnuskrá sinni. Ungur hljómlistarmaöur, Magnús Kjartansson tók til máls og kvaö vandamáliö ekki tekiö réttum tökum, veriö væri aö ota saman börnum og unglingum annars vegar og lögreglunni og læknum hins vegar, þar sem sál- fræöingar og geölæknar ættu aö koma til og leysa vandamáliö. Annar ungur maöur tók til máls og kvaðst hafa reynt hass litil- lega, sagðist hann vilja mótmæla ýmsu af þvi sem Kristján Péturs- son hefbi sagt um efni þessi. Einnig tóku tvær ungar dömur til máls, vildu fá aö vita hvaö veröi af fikniefnum, sem tekin eru af fólki. Kristján upplýsti fundinn um aö þeim væri tortimt einu sinni á ári á báli. — JBP/EMM Efnilegur byrjandi Dr. Gunnar Thoroddsen stjórnaði Sinfóníuhljómsveitinni Þaö er ekki á hverjum degi, sem óvanir menn stiga upp á stjórnendapallinn hjá Sin- fóniuhljómsveitinni, en það geröist á laugardaginn á skemmtun, sem Rauði kross- inn hélt til ágóöa fyrir starf- semi sina. Þar steig upp á pallinn dr. Gunnar Thorodd- sen, prófessor og alþingis- maður. Hann stjórnaöi flutningi verksins „Til skýsins”, eftir frænda sinn Emil Thoroddsen og varö ekki heyrt aö þar héldi óvanur maður um sprotann. Ekki mun dr. Gunnar þó hafa ákveðiö aö leggja þetta fyrir sig, þó aö byrjunin lofaði ann- ais góöu. — VJ. Loðna frá Hðfn að Jökli Loðnulýsi og mjöl selt á botnverði Þeir eru aö fá loðnuna núna allt frá Jökli og austur undir Horna- fjörö. Loftur Baldvinsson fyllti undir Jökli i morgun og Sæberg náöi þar upp 310 tonnum, einnig 1 morgun. Þessir bátar koma til Reykjavikur meö aflann klukkan um 14 I dag, en verða þá væntan- lega að biöa i um sólarhring eftir löndun, þar sem allt rými hér er fullt. Nú er talsvert þróarrými aftur á Hornafirði og var óskar Halld- órsson væntanlegur þangað i morgun meö fullfermi, en Horn- firðingar taka væntanlega við um 10 bátum eða svo til viðbótar. Landað var loðnu i Vestmanna- eyjum um helgina, en þegar brældi upp i gærkvöldi héldu margir bátar kyrru fyrir þar I höfninni, en munu stefna á miöin i dag. Loðnan viröist vera mjög dreifð fyrir sunnan landið, vestur fyrir og allt vestur undir Jökul, þar sem nokkrir hafa fengið afla. —GG— - megnið af mjölinu þegar selt. Fátt bendir til þess að verðið hækki. Verulegur hiuti af loönumjöli, sem framleiddur hefur verið nú á vertiöinni, hefur nú verið seldur á mun lægra verði en var i fyrra. Fyrir helgina voru seld um 8.000 tonn fyrir 22 shillinga prótein- einingin, en i fyrra var langmest af magninu selt fyrir um 27 shill- inga. Um 65 próteineiningar eru i tonninu, þannig, að tonniö af loðnumjöli er nú selt fyrir um 1100 kr. lægra verð en I fyrra. Um 5.000 tonn af loðnumjöli höfðu verið seld um áramótin fyrir um 24 shillinga, þannig að alls hafa nú verið seld um 13.000 tonn, eða megniö af þvi sem framleitt hefur verið. Astæðan fyrir þvi að nú hefur verið selt svona mikið magn á óhagstæðu verði, er ótti framleiðenda við, að verðið geti enn lækkaö á mjölinu. Einnig var fyrirsjáanlegt, að mjög erfitt yrði að geyma allt þetta magn, en það veröur af- skipað frá miðjum þessum mánuði. Þá voru seld um 600 tonn af loðnulýsi fyrir helgina fyrir botn- verð eða um 53 sterlingspund tonnið. Þetta voru nokkrir aðilar, sem voru orðnir hræddir um að veröið kynni aö lækka enn, en meðalverðið fyrir lýsið i fyrra var 97 sterlingspund, og er þvi verð- fallið á lýsinu orðið mjög til- finnanlegt. Með þessum sölum vonast framleiöendur til að nokk- uð dragi úr spennunni á markaðnum, en þvi miður virðist fátt benda til þess, að mjöl eöa lýsi hækki neitt umtalsvert á næstunni. —VJ IfiByi iitjm 'f. m sTk»f. 1 »3

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.