Vísir


Vísir - 04.03.1972, Qupperneq 1

Vísir - 04.03.1972, Qupperneq 1
62. árg. — Laugardagur 4. marz 1972 — 54.tbl. SYSTUR FA FALKAORÐU Tvær systur, gamalkunnir borgarar I Keflavfk, fengu óvæntan heiðursvott nú nýlega, — þær voru skyndilega og fyrirvaralaust verölaunaðar fyrir margvfsleg félagsstörf með fálkaoröunni, æösta heiðursmerki, sem þjóöfélagiö veitir þegnum sinum. Oftast hafa landsþekktir athafnamenn verið Þessa heiöurs aönjótandi, en nú var oröan veitt tveim alþýöukonum, sem ekki voru mikiö þekktar utan heimabæjar sfns. — Sjá bls. 16. Sóttu ekki gull í greipur nefndarinnar, —(fremur en fyrri daginn) NEFNDIN kom sem sigur- vegari úr umræöunum, segir Kristján Bersi ólafsson um þátt Ólafs Ragnars Grims- sonar um Mammon og list- ina, og telur að listamenn hafi ekki sótt gull i greipar nefndarinnar. Likir Kristján þættinum einna helzt viö skopleik, eins konar nautaat, þegar bezt lét. Nánar um þáttinn á bls. 5. Ekki bara geirfuglinn. . Það er ekki bara geirfuglinn okkar, sem varö útdauður vegna gegndarlauss dráps- æöis mannanna. Stööugt berast fréttir af þvi hvernig dýrategundirnar eru i stór- hættu, sumar nálega út- dauðar. Strangar friðunar- ráöstafanir viröast jafnvel ekki ætla að bera árangur i öllum tilfeilum. Sjálfir megum við islendingar lita i eigin barm. — Sjá bls. 6. Með miljén punda seðil í hðndum Skyldi maöur ekki lenda al- veg i stökustu vandræöum með milljón punda seðil i höndunum, — ef maður ætti eins og einn slikan? Mark Twain, bandariski rit- höfundurinn frægi ritaöi einu sinni stórsnjalla sögu um þetta efni. Myndaflokkur i sjónvarpinu er einmitt byggður á þessari sögu Mark Twains. — Sjá bls. 13. „Gildran" í Kópavogi og London Músagildran hennar Agöthu Christie hefur aldeilis gert lukku i London. Þar er veriö að halda upp á tveggja ára tuga veru gildrunnar i einu leikhúsa stórborgarinnar. Þaö er meira að segja fullyrt að leikurinn hafi örvaö ferða mannastrauminn þar. Ólafi Jónssyni þykir hins vegar ekki liklegt að feröamanna- straumurinn i Kópavog auk- ist meö tilkomu sömu gildru hjá Leikfélaginu þar i bæ. — Sjá bls. 5. •■■■■■■■■■*■■■■■■■■■ Tóbakið drepur ó 40 órum — en heróínið og LSD eru skjótvirkari óvanaefni — Rœtt við Ezra Pétursson, lœkni „Ávana- og fíkniefni eru öll i sama flokki, þóxtekur upp í 40 ár að drepa mann lengur með suma, heróínið og LSD eru miklum mun skjótari, áfengið er líka fremur seinvirkara ávana efni en t.d. hassið, en það er ekki fullrannsakaðenn sem komið er". Svo segir Ezra Pétursson læknir í viðtali við Vísi í dag. Læknirinn bendir á, að marg- vislegir glæpir hljótist af neyzlu ávana- og fikniefna. Sé fólk með glæpahneigð fyrir þá eykst hún til stórra muna þegar slikra efna er neytt. Hann segir einnig að Is- lendingar séu þekktir út um allan heim, m.a. fyrir vestan, fyrir að vera löghlýðnastir allra þjóða. Telur hann þetta standa i nokkru sambandi við það, að tiltölulega litið magn ávanaefna, þar með- talið tóbak og afengi, er notað hér á landi miðað við önnur lönd. I viðtalinu kemur fram, að könnun sem fram fór i Banda- rikjunum leiddi i ljós, að 90% heróinneytenda byrjuðu að nota hass fyrst, en 10% voru áfengis- neytendur. Ezra Pétursson segir að óvist sé að svo stöddu að gera upp á milli, hvort hassið er skað- legra eða siður skaðlegt en tóbak og áfengi, eða nokkuð likt, en það telur hann sennilegast. Þvi sé mjög varhugavert að bæta þriðju plágunni við þær sem fyrir eru og eru nógu slæmar, eins og tóbaks- og áfengisnotkun. Ezra mun i dag flytja erindi á fræðslufundi Rauða krossins um ávana- og fikniefni og tengsl þeirra við þjóðfélagsvandamál. Sjá bls. : Marblettir hér og þar sögðu sína sögu — Þegar SV Hamborg sigraði íslenzka landsliðið í gœrkvöldi. Þýzka liðið Hamburger Sport- Verein er mikill landsliðabandi. t gærkveldi bætti það við i frægt safn sitt sigri yfir islenzka lands- liöinu og hefur þá sigrað danska, sovezka, rúmenska og júgóslav neska landsliöiö auk þess isienzka og eru vist fá félagsliö i heimin- um, sem geta státaö af öðru eins. Og grimmir eru leikmenn liðsins og þaö fengu islenzku leik- mennirnir að reyna i ieiknum i gærkvöldi, marblettir hér og þar sögðu sina sögu. Leiknum lauk með eins marks sigri Þjóðverja 17-16 og vissulega gátu íslenzku leikmennirnir sjálfum sér um kennt hvernig fór — ótimabær skot ásamt misheppnuöu vita kasti Geir llalls.teinssonar loka- minúturnar voru orsök tapsins, þvi liðiö hafði átt skinandi leik- kafla inn á milli — ieikkafla, sem gefa fyrirheit um, að liöið getur náð góðum árangri i undankeppni ólympiuleikanna á Spáni siðar i mánuöinum. Sjá iþróttir bls. 9 VEIKA OLIÐ OF STERKT Á ÍSLANDI - Sjú bls. 16 | Ungt fólk j j og kristinn j ■ ■ dómur ■ ■ ■ Óreglusenti og slark hjá ■ 2 ungu fólki hefur verið mikiö JJ ■ efni i fréttir um langt skeiö. ■ ■ En er allt ungt fólk þannig? ■ ■ Sem betur fcr er það viös ■ ■ fjarri aö svo sé. 1 Kirkju- ■ ■ þættinum i dag er heimsókn i . ■ aöalstöðvar KFUM og K. J . Þar sjá lesendur væntanlega ■ ■ aö margt ungt fólk tekur ■ ■ virkan þátt i kristilegu starfi * ■ i Reykjavik. — Sjá bls. 7. J ■ ■ ■ ■ ■ Þá er ekki úr vegi að visa á ■ . tilkynningar frá kirkjum i ■ ■ Reykjavik og nágrenni, en JJ ■ allar lialda upp á æskulýðs- ■ ■ daginn meö barna- og J ■ unglingaguösþjónustum á ■ ■ morgun. — Sjá bls.7. J ■ ■ ■ I ■■■■■■■■■■■■■!!■■■■■ ■ ■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ j Brekkukotið j j kvikmyndað j fyrir 20 ■ •■■O V • m milljonir : — Sjá bls. 3 :

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.