Vísir - 04.03.1972, Síða 3

Vísir - 04.03.1972, Síða 3
Visir. Laugardagur 4. marz 1972. 3 Brekkukotsannáll á 20 milljónir Frá Ástþóri Magnússyni, London i gær: Fréttamenn fylgja Jónasi Árnasyni fast eftir i Englandsferðalagi hans. I gær var viðtal við Jónas í skozka sjónvarpinu og í Norðmenn vilja hjdlpa sígaunum Norðmenn ætla að stofna sér- staka sigaunaskrifstofu, sem á að sjá um, að norskir sigaunar aðiagist öðrum landsmönnum og siðum þeirra. Hugmyndir eru um, að þar starfi fyrst um sinn fimm starfs- menn, þar af þrir félagsráð- gjafar. Stefnt er að þvi i Osló, að hið opinbera veiti sigaunum, sem þar hafast við, stuðning til að þeir geti fengið fast húsnæði. Hafa skal samband við nágranna sigauna til að forðast ónauð- synlegan ágreining og deilur og aðstoða skólayfirvöld við að skipuleggja grunnskólamenntun sigaunabarna. Kennsla þessara ungmenna á að framkvæmast i samvinnu félagsmálaráðuneytis og kirkju- og kennslumálaráðuneytis. Fé- lagsmálaráðuneytið fær það verkefni að styðja sveitarfélögin utan Oslo i þessum efnum. Talið er, að i Noregi. séu að staðaldri eitthvað um 100 sigaunar. slslslslslsljlslsljljlslslslslslslsljlslsl IMyndin gerð í lit Í fyrir breiðtjald og | með íslenzku tali - 3 allir leikarar 3 íslenzkir. Sveinn | Einarsson | aðstoðarleikstjóri. | LSLSLJLSLJLJLJLJLJLJLJLnjLJLJLJLSLJLSLJLS „Það mun kosta um 800 þúsund þýzk mörk að gera Brekkukots- annál”, sagði Rolf Haidrich, þýzkur leikstjóri frá Norður- þýzka sjónvarpinu (Nord- deutsche Rundfunk),” en það er nokkuð erfitt að segja til um endanlegan kostnað, þar sem Nordvision, eða sjónvarps- stöðvarnar hér á Norðurlöndum, munu aðstoða það þýzka við að kvikmynda Brekkukotsannál hér á íslandi i sumar”. Rolf Haidrich, leikstjóri, efndi til blaðamannafundar i gærdag, ásamt Halldóri Laxness i tilefni af væntanlegri kvikmyndun hér i sumar. Auk þeirra Laxness voru þeir Jón Þórarinsson, stjórnandi Lista- og skemmtideildar sjón- varpsins, Sveinn Einarsson, leik- hússtjóri, og Jón Laxdal til staðar að svara spurningum blaða- manna. „Þetta verður litmynd, breið- tjaldsmynd”, sagði Haidrich, ,,35 mm, og verður myndin væntan- lega filmúð hér í Reykjavik og þorpum norður i landi i júli i sumar. Frumsýnd verður myndin svo i islenzka sjónvarpinu næsta vetur. fslenzkir leikarar verða i öllum eða langflestum hlut- verkanna — þ.e.a.s. ef við getum DANSAR HJÁ SINFÓNÍUNNI Þcir eru kumpániegir þessirtveir náungar hérna á myndinni, en þeir heita Bock og Harnick. Von er á þcim fyrrnefnda, Jerry Bock, hingað til lands, en hánn verður heiðursgestur á Sin- fóniuballinu '12, sem haldið verður i Súinasai Hótel Sögu sunnudaginn 19. marz nk. Jerry Bock hefur t.d. samið Fiðlarann á þakinu, en Harnick semur fyrir hann textana. Það skal tekið fram, að miðar á dansleikinn eru seldir að Hótel Sögu og á skrifstofu hljómsveitarinnar, Skúiagötu 4. BJÖRN BJARNASON, rektor: Astandið cr slæmt. - og sýndur í sjónvarpinu nœsta vetur - og nemendur óska eftir að Fríkirkjuvegi verði lokað „Við viljum láta loka Frikirkju- veginum fyrir bilaumferð”, segja nemendur Menntaskólans við Tjörnina, en þar er ekki góð aðstaða fyrir kennslu sökum hávaða, sem berst stöðugt utan af götunni. Nemendur kvarta mjög mikið yfir þessum ókosti og segja þeir, að þaö sé ekki mögulegt aö opna glugga vegna gauragangs. Ot aö götunni snúa 12 kennslustofur, en I einni hliðarálmu skólans er kennt lika. Þar eru 7 kennslustofur, og eru ekki heldur lausar við hávaðann. Við náðum tali af Birni Bjarnasyni rektor, og sagði hann ástandið slæmt. ,,Á skólafundi sem haldinn var hér i skólanum um daginn”, sagði Björn, var mikið rætt um þessi mál, og sendu nemendur bréf til borgarstjóra með beiöni um lokun Frikirkjuvegarins. Svar barst frá Umferðarnefnd, og segir þar meðal annars, að i aðalskipulagi Reykjavíkur- borgar sé Frikirkjuvegurinn áætlaður sem hraðbraut i fram- tiðinni, og er svarið þar af leið- andi blákalt nei. Við verðum þvi vist að sætta okkur við þetta, en það er anzi slæmt að heyra varla til sjálfs sin i kennslu- stundum, og svo eru það nú flugvélarnar, sem stöðugt fljúga hér yfir, þær eru nú al- deilis til að bæta gráu ofan á svart.” Nemendur og starfslið Menntaskólans kunna þó vel við húsakynnin, þrátt fyrir það að þau eru illa staðsett. Skólinn er heldur ekki innréttaður miðað við kennslu i framhaldsskóla, heldur var hann upphaflega byggður sem barnaskóli á árinu 1898. —EA gærkvöidi hafði BBC viðtal við hann um landhelgis- málið. Ýmsir blaðamenn og frét- tastofnanir hafa beðið Jónas um viðtal. í gær birtist grein um landhelgismálið i Daily Mail, sem var Islendingum i hag. Hins vegar hélt Toir ráðherra blaðamannafund sem svar brezku stjórnarinnar við umræðunum i lávarðadeildinni i fyrradag, var ráðherrann á móti útfærslunni og vildi fiskveiðitak- mörk innan 12 milnanna. Þing- mannafundurinn umræddi verður haldinn á mánudag. -AM- fundið svo marga leikara hér sem hæfa i hlutverkin.” Sveinn Einarsson mun verða aðstoðarleikstjóri Brekkukots- annáls, og tjáði hann okkur, að leikarar yrðu 15—20 i stórum hlutverkum og svo til viðbótar eitthvað af aukaleikurum. „Haidrich sá bezti" ;,Rolf Haidrich er álitinn beztur evrópskra leikstjóra sem við sjónvarp starfa”, sagði Sveinn Einarsson — og Haidrich tjáði þá blaðamönnum, aö hann væri sér- lega ánægður að fá Svein til sam- starfs við sig, „ég hef séð sumt af þvi, sem hann hefur gert fyrir sjónvarpið hér, og reyndar einnig leiksviðsverk, sem hann hefur sviðsett, og það er mjög gott.” Rolf Haidrich skrifaði sjálfur handrit að væntanlegri kvikmynd eftir skáldsögu Laxness, en hins vegar hefur Halldór sjálfur litið yrir það verk, og þeir i samein ingu lagt á handritið siðustu hönd. „Þvi fer náttúrlega fjarri að hægt sé að gera venjulega kvöld- sýningarmynd eftir allri sögunni — óhjákvæmilega varð að sleppa ýmsum smásögum innan sög- unnar og fella niður sumar persónur er fram koma”, sagði Halldór — „kvikmyndin er eitt og sagan sjálf annað, þótt þræðinum áe vissulega haldið.” Vont aö finna umhverfi. Halldór tjáði blm. að hann hefði hugsað sér, að Brekkukotsannáll gerðist um eða rétt eftir siðustu aldamót, og vegna þess væri erfitt að finna hér á landi hepp ilegt umhverfi, og væri enn eftir að ákveða, hvar filmað yrði úti. Sjónvarpið islenzka mun væntanlega sjá um að byggja skála mikinn, sem notaður verður til kvikmyndunar innisena, og Umferðargnýrinn truflar kennsluna einnig mun það leggja til ein- hverja tæknimenn. Rikisútvarpið hefur mikinn áhuga á gerð þessarar myndar”, sagði Jón Þórarinsson, „en ekki er endanlega ákveðið, hvernig okkar framlag til hennar verður. Þýzka sjónvarpið hefur hins vegar sýnt fullan skilning á okkar peningaleysi.” Auk islenzka sjónvarpsins munu sjónvarpsstöðvar hinna Norðurlandanna veita aðstoð. Til dæmis er ákveðið að Sviar leggi til kvikmyndarana. Þegar myndin hefur verið frumsýnd i islenzka sjónvarpinu með islenzku tali, verður hún sýnd i Þýzkalandi og á Norður löndum. Sett verður þýzkt tal við myndina og einnig enskt, en á Norðurlöndum verður hún væntanlega sýnd með islenzku tali. Jón Laxdal, leikari, sem á stóran þátt i þvi ásamt Rolf Haidrich, að úr kvikmyndun þessari verður, mun leika Garðar Hólm, en i önnur hlutverk hefur enn ekki verið skipað. „Við erum reyndar með nokkrar hugmyndir hér”, sagði Sveinn Einarsson, „en þvi er ekki hægt að skýra frá enn. Haidrich mun koma hingað i april aftur, og þá verður endanlega gengið frá hlutverkaskipan og verða þá leikarar prófaðir”. -GG FRÉTTAMENN Á EFTIR JÓNASI

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.