Vísir - 26.04.1972, Síða 12
12
VÍSIR. Miðvikudagur 26. april 1972.
Stríplast í spilaborginni
HÆRRI NÓBELSLAUN
Nóbelsverðlaunahafarnir þetta
árið fá hver um sig sem svarar
sjö milljónum, sex hundruö og
áttatiu þúsund krónum isl., en
það er 360 þúsund krónum hærri
fjárupphæð á mann en i fyrra.
Þar með hefur verðlaunaupp-
hæðin hækkað um liðlega 180%
frá þvi árið 1953.
ANTI-
KRIST-
SYMBOL
Fjölmargir, eldri sem yngri,
bera þetta merki, en hversu
margir skyldu hafa hugmynd
um, að þetta alheimsins friðar-
tákn var hér i eina tið krotað á
þá, sem teknir voru af lifi fyrir
að boða fagnaðarerindið? Þetta
merki ber fólk Jesúbyltingar-
innar oftlega jafnhátt krossin-
um, en virðum nú betur fyrir
okkur þetta „friðar-
tákn”.......kemur það ekki
fyrir sjónir eins og brotinn kross
á hvolfi.....????!!
oFUGSNu INN
SLÖKKVILISÐMAÐUR.
Nitján ára gamall slökkviliðs-
maður var rekinn úr slökkviliði
japanska bæjarins Kawasaki i
siðustu viku. Hann þótti ekki
beint efnilegur starfskraftur, en
brottrekstrarsökin var sú, að
hann bar eld að slökkvistöðinni
eftir að hafa verið sendur i
„brunagabb”. „Ég er bara
svo sár”, sagði hann snöktandi.
„Ég hafði bundið svo miklar
vonir við þetta útkall.”
OG LÆKNIR REKINN
Á MANILA.......
Ákæra á hendur lækni i Manila
hefur vakið talsverða athygli.
Læknirinn er nefnilega ákærður
fyrir manndráp. Sjúklingur
hans einn hafði kvartað sáran
undan slæmum höfuðverk, og
þaðsem læknirinn tók til bragðs
var að stinga hann með nálum
út um allan likamann og stinga
þeim siðan i vegginn. — Sjúkl-
ingurinn lézt skömmu siðar án
þess að hafa notið annarra
aðgerða.
FINNAR í SOVÉT
P’jögur þúsund finnskir verka-
menn eru á förum til Sovétrikj-
anna til að hefja störf i norður-
rússneskum járnnámum, sem
liða fyrir skort á vinnuafli.
DAUÐADANS
Það átti sér stað á Manila eigi
alls fyrir löngu, að Victor nokk-
ur Sambiles, 71 árs gamall, vildi
sýna fram á, að hann væri enn
fær um að dansa vals. Hann tók
sig til og dansaði i samfleytt tvo
klukkutima á dansgólfi nætur-
klúbbs — siðan féll hann um
koll, örendur..
ELTON JOHN
sem sérhver sannur pop-unn-
andi þekkir vafalitið, er haldinn
mikilli ástriðu á bilum.Nú hefur
hann komið sér upp hinum
myndarlegasta flota af þeim
Hann á Rolls Royce, tvo
Daimler, einn Mercedes Sport
og einn Morris GT. Þegar hann
svo fer i sundlaugina, ekur hann
á appelsinugulum pinubil.'
BOB HOPE
hyggst koma á fót „Bob Hope
minjasafni” i ameriska bænurr
Burbank. Það verður áreiðan
lega myndarlegt að allri gerð
Bob er jú margmilljónari oj
hefur óbilandi sjálfsálit.
Umsjón:
Þórarinn Jón
Magnússon
Las Vegas hefur nú tekið við hlutverki Parisar
sem borg gleðinnar. Þar striplast nú um daga og
nætur æsilegur hópur ungmeyja i miklu úrvali, bæði
„brjóstgóðar” og „véllærðar”. Sem sagt, eitthvað
fyrir alla, eins og meðfylgjandi myndir bera ótvi-
rætt með sér.
Flestar stúlknanna á myndunum eru starfandi
sem fatafellur við vinsælasta klúbb gleði-
borgarinnar um þessar munir, ,,The Strip”. Það er
eðlilegt, að menn drifi þangað úr öllum áttum,
svona rétt til að gleyma sér innan um þennan friða
fans.
Og peningarnir streyma inn, enda leikurinn til
þess gerður, stúlkukindurnar tina ekki af sér
spjarirnar ókeypis. Þær segjast vera komnar til
starfa i þessari borg til að þéna „stórum”.
Spilaviti alls konar eru lika talsverðar peninga-
hitir, en af þeim er nóg i Las Vegas.
Lífið gengur svo sannarlega glatt fyrir sig þar i
borg hvort sem bjart er af degi — eða
neonljósum.....
m’an'ÓLó torríNII *'ir“'
STEAK 5 SHOW §4
ðPH . *
COCKTAIL SHOW 12
.L YOU CAN DRINK - S300 P
HITI - af
48 þúsund
plastkúlum
Með 48000 plastkúlum á stærð og
þyngd við tenniskúlur er i köldu
veðri kleift að halda sundlaug á
borð við þá, sem við sjáum á
myndinni, heitri og notalegri.
Það eru frændur okkar Danir.
sem hafa fundið upp þessa
nýjung. Þessar kúlur eru fylltar
af lofti og sérstaklega gerðar til
að sjúga i sig sól og hita, sem
siðan breiðist út i vatnið. Nægi-
legt er, að þær þeki 4/5 hluta
laugarinnar. Þessi mynd er tek-
in i útilaug i Bremerhaven,
Þýzkalandi, og kostnaðurinn við
að þekja hana plastkúlunum er
eitthvað um 50.000 islenzkar kr.
Liklega verðum við ekki svo
kulvisir hérna heima, að við
þyrftum á þessari aðferð að
halda.
\\ V‘» , V . "
y-w - . .... ..
-LóV; ''W *■ v L-íV*.iyiki . 'Á '■ .NV
1
... ■