Vísir - 08.05.1972, Síða 3

Vísir - 08.05.1972, Síða 3
VÍSIR. Mánudagur 8. mai 1972. 3 Tízkuverzlun ungu konunnar, Kirkjuhvoli. Sími 12114. Sumar hattar Nýkomnir skemmtilegir og ódýrir sumarhattar (úr strái og filti), hvítar ,,stúdínu-blússur", röndóttar síðbuxur o.fl. Nýir kjólar teknir upp næstu daga. Mikið úrval af buxum og blússum. — Nýtt í hverri viku. Yfírtekur Kanada markaði okkar fyrir grásleppuhrogn? „Það er ekki vafi á aö Kanada- menn geta oröið haröir keppi- nautar okkar um sölu á grá- sleppuhrognum á næstu árum. Þeir hafa geysilegt magn til aö Fara annan hring um landið „Jú, viö erum vist búnir meö flestar sýslur i þessum árbókum okkar,” sagöi Einar Guöjohnsen hjá Feröafélagi tslands i viðtali viö blaðið. „Annars er af mörgu aö taka, og ef viö komumst einhvern tima i þrot, þá förum viö bara annan hring um landiö.” „Næstu árbækur okkar fjalla allar um staði, sem við höfum áður tekið fyrir, en verða núna ýtarlegri, t.d. Svarfaðardalur, þó hann hafi auövitaö komið inn i lýsinguna á Eyjafjarðarsýslu (1938), fjalllendi Austurlands, sem var að sjálfsögðu á sinum tima i Austf jarðabókinni, o.s.frv.” Arbók Ferðafélagsins 1972 nær að þessu sinni yfir Rang- árvallasýslu austan Markar- fljóts, en ætlun er að gefa einn kafla hennar út i litlum bæklingi, Þórsmerkurlýsingu Gests Guð- finnssonar, til hægðarauka fyrir ferðamenn. „Margar af ár- bókunum eru nú orðnar sjald- gæfar, og ég hef heyrt, að frum- útgáfur á þeim fyrstu gangi á 2000 kr. hjá fornbókasölunum”, sagði Einar að lokum. veiöa i kringum Nýfundnaland” sagöi Guöjón B. ólafssson framkvst. sjávarafuröardeildar SÍS i samtali viö Visi i morgun. t fyrra seldi SIS um 5.000 tunnur af hrognum, en nú hefur fyrirtækið aðeins samiö um sölu á 2.500. 1 fyrra voru samtals 11.000 tunnur fluttar út og var útflutningsverðmætið uppundir 100 milljónir króna. Kanadamenn hófu þá að verka hrogn til útflutnings og hafa nú stóraukið framboð sitt. Grásleppukarlar okkar eru nú sem óöast aö hætta veiðum vegna sölutregðunnar. —SG. Þrengt að sjúkrafluginu — auglýst var uppboð ó eignum Flugþjónust- unnar, fyrirtœkis Björns Pálssonor ÞORA VART AÐ LÁTA BÖRNIN SELJA AAERKI — Börnin sífellt rænd Tveir drengir, 12 eða 13 ára gamlir, réðust að 6 ára Ráða starfsfólk í skriffinskuna í norrœnu keppninni Þeir voru komnir i hálfgerö vand- ræöi meö alla skriffinnskuna i sambandi viö norrænu sund- keppnina. Til þessa hafa áhuga- samir félagar I sunddeildum fé- laganna séö um þessa hliö mála, en nú standa yfir próf i skólum og svo er það sumarvinnan. Og hvar átti þá aö fá starfsliöið? Nú hefur rofaö til í þessu efni, sundstaöirnir fá aö ráöa ungar dömur i sumar, sundstúlkur, sem liklega notfæra sér þá tækifærið til aö æfa sig á milli. Ahugi er geysimikill fyrir keppninni, og viröist siöur en svo fara þverrandi. — telpu, sem var að selja merki í Árbæ í gærdag, og hrifsuðu þeir af henni peningabaukinn. Drengj- anna var leitað í hverfinu, en þeir komust undan með 90 króna ránsfeng sinn. Stutt er að minnast þess, aö telpa sætti svipaðri áras i mið- bænum, og mýmörg dæmi mætti rekja um þvilik ran, sem virðast verða æ örari með hverju árinu. Horfir til þess, að sölubörn séu alls ekki óhult við iðju sina, og foreldrar vila orðið fyrir sér að leyfa ungum börnum sinum aö notfæra sér þá tekjulind, sem þau hafa af merkja- og blaðasölu. —GP. „NAUDUNGARUPPBOD, sem auglýst var... á húseign á Reykjavfkurflúgvelli, þingl. eign Flugþjónustunnar h.f., fer fram ettir kroiu rram- kvæmdasjóös tslands og Gjald- heimtunnar I Reykjavik á eigninni sjálfri, mánudaginn 8. mai 1972 kl. 10,30...” Þessi auglýsing birtist i dagblööum í gær en Flugþjónustan er fyrirtæki Björns Pálssonar, flugmanns, sem hvaö lengst hefur stundaö siúkraflui: hér á landi. „Þetta er nú eins að lána hev á haröindavetri og krefja svo um það aftur áður en grös fara að gróa um vorið”, sagði Björn Pálsson, er Visir ræddi við hann á dögunum. „Þetta var skuld við Fram kvæmdasjóð, og ég er búinn að ganga frá þvi, að ekkert uppboð verður. Sagði Björn að sjúkraflugið sem er burðarás atvinnu- rekstrar hans, væri ákaflega erfitt i rekstri, kostnaðarsamt, og mjög að þvi þrengt fjár- hagslega. „Við, sem stundum slikt flug, fengum fyrir þetta ár 125.000 króna rikisstyrk—það er ekki einu sinni hálf trygging og langt frá þvi að mæta þvi tapi sem ævinlega verður, þegar fólk get- ur ekki greitt fyrir flugið. Það er undarlega litill skilningur á þvi hjá rikinu, að sjúkraflug er nauðsynlegt aö reka, og aö við sem stundum það spörum rikinu stórfé með þvi. Það kostar nefnilega talsvert meira en 125 þúsund aö reka sjúkraflugvél. Ég er núna meö eina sjúkravél, Beechraft, en það er ekki nóg aö hafa eina. Maðureroft illa sett- ur með hana, kemur henni ekki i viðgerð sökum anna, og svo er maður kallaður út i flug, þegar maður er kannski staddur einhvers staöar að sækja sjúkling. Ég ætla samt að reyna að kaupa aðra vél til sjúkra- flutninga, hún verður af gerðinni Astec, svipuð að stærð og Beechcraft-vélin, en hentugri i rekstri. Astec-velin kostar um 4,5 milljónir”. Sagöi Björn Pálsson einnig, að fyrirtæki hans hefði undan- farið átt erfitt uppdráttar sök- um samkeppni við önnur flug- félög. „Það er erfitt að vinna við hliðina á félögum, sem skjóta upp kollinum skyndilega — en koílvarpast svo fljótlega. Þessir menn bjóða kannski i byrjun lægri fargjöld, en siöan kemur i ljós, aö rekstrargrundvöllur er ekki fyrir hendi — þegar svo langt er komiö, hafa þeir eyði- lagt fyrir mér”. En menn geta andað léttar i bili - þ.e. þeir sem kannski þurfa á sjúkraflugi að halda; uppboð fer ekki fram á mánudaginn, Björn Pálsson er enn að. — GQ Hundrað bíða eftir að fá garðholuna — en áhugi á kartöfluroekt annars minni en fyrr Um hundrað manns eru á biö- lista eftir kartöfluræktunarlönd- um i Korpúlfsstaöalandi og á Korpúlfsstaöamelum. Byrjaö veröur aö úthluta afgangslöndum á mánudag. Hinsvegar er enn nóg af ræktunarlandi I Skammadal. Um þriöji hluti jaröræktarlands- ins, sem borgin hefur til umráöa hefur nú verið unninn til ræktunar. Háfliöi Jónsson garöyrkjustjóri sagði í viðtali viö Visi, að eftir- spurnin eftir Korpúlfsstaöaland- inu væri meiri en i Skammadal vegna minni fjarlægðar frá borg- inni. Hinsvegar telur hann ræktunarlandið i Skammadal vera sizt verra og enginn klaki þar i jörðu eins og oft áður. Garðyrkjustjóri sagði, að sér virtist vera mikið minni áhugi fyrir kartöfluræktinni núna en flest undanfarin ár. — Þaö gerir þessi mikla niöur- greiðsla á kartöflum og að það kostar talsvert að rækta þær. -SB Enn um fjölmiðla Þorbjörn Broddason lektor hefur ásamt fjórum nemendum sinum samið athugasemd i tilefni af þvi, að Vfsir gerði athugun á hans vegum að umtals'efni nýlega. Birtist athugasemd þeirra hér i blaöinu á laugardaginn. Visir skilur vel, aö höfundar at- hugasemdarinnar séu óánægðir með, að starf þeirra blandist inn i pólitiskar deilur. Þess utan var oft sagt hér i blaðinu, að um „niðurstöðu” athugunar væri að ræða. Heimildarmaður blaðsins, einn þátttakenda i athuguninni, hafði aðeins átt viö þaö, „sem lá i loftinu”, þegar gögn höfðu veriö tekin saman, en ekki endanlega niðurstöðu. Athugun þessi hafði þá legið niðri um margra mánaða skeið og munu nú ekki vera horf- ur á, að botninn verði sleginn i hana. Fólk getur þvi þess vegna haldiðáfram að trúa þvi, sem það vill, um misjafna sannleiksást fjölmiðla. Umrædd athugun fjallaði einmitt um samanburð á skrifum Morgunblaösins og Þjóð- viljansum innrás Rauða hersins i Tékkóslóvakiu. Af þessu tilefni vill Visir árétta umrædd skrif sin um einokun i fjölmiðlunum og um rökvillur þær, sem ýmsir, ekki sizt Þjóð- viljamenn, hafa á heilanum um það efni. Einokunar er ekki að leita hjá neinu þeirra fimm dag- blaöa, sem keppa á einu sviði fjöl- miðlunar, heldur hjá rikisvald- inu, sem einokar tvö svið fjöl- miðlunar, útvarp og sjónvarp.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.